Þjóðviljinn - 19.09.1989, Side 4
þJÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Að skrifa með
gaffli á sjoinn
Jón Sigurösson iönaöarráöherra hefur veriö á funda-
feröalagi um Noröur- og Austurland og þar hefur hann reifaö
hugmyndir um miklar nýjar stóriöju- og virkjunarfram- •
kvæmdir. Ef þær yrðu aö veruleika væri hér um aö ræöa '
fjárfestingar uþp á 130-140 miljaröa króna á fimm til tíu árum •
og má sannarlega sjá minna grand í mat sínum.
Alþýðublaðið tekur þessar hugmyndir upp í leiðara um .
helgina, lýsir þeim sem „gríðarlegu hagsmunamáli fyrir land
og þjóð“ sem sé mikil nauösyn á aö gefa byr undir vængi,
enda sé ekki um marga aöra kosti að velja til aö gera
atvinnulíf fjölbreyttara og auka hagvöxt. Því fer samt fjarri aö ‘
hrifningin af stóriöjuáformum Jóns Sigurössonar sé út-
breidd. Meira aö segja Morgunblaðið, sem er alla jafna fúst •
til stóriðju, hefur látíö í Ijós efasemdir í leiöaraskrifum um
þaö, aö hugmyndir iönöarráöherra séu raunsæjar. „Sann- .
leikurinn er því miður sá, segir blaöiö, aö ítrekaöar tilraunir
ráöamanna í nærfellt tvo áratugi til þess aö fá erlenda aöila
til samstarfs um frekari uppbyggingu stóriöju hér hafa verið
árangurslitlar." Svavar Gestsson menntamálaráöherra hef-
ur minnt á þaö, aö iðnaðarráðherra leiki hér einleik án
nokkurs samráös um þessi stórmál viö ríkisstjórnina. Stór-
iöjumál þessi eru vitaskuld fleinn í holdi ríkisstjórnarsam- •
starfs: hugmyndir iðnaðarráðherra stangast rækilega á við
hugmyndir Alþýðubandalagsins bæði um virkjanaröð og um
þaö, hvernig staðiö skuli að uppbyggingu stóriðju hér á landi
- án þess aö allt forræöi í þeim málum sé afhent erlendum
aðilum.
Aö öllu samanlögöu viröist þaö ööru fremur einkenna ;
stóriöjuboöskap iönaöarráöherra að hann er sem skrifaður
meö gaffli á sjóinn. Álver fyrir austan eöa noröan er afar
óljós framtíöarsöngur sem ekki tengist viö neitt sem hendur
má á festa. Sá söngur er aö því er virðist raulaður einkum til
aö fá landsbyggðarmenn til aö sætta sig viö þaö, aö efst á
blaði eru í raun áform um stækkun álvers í Straumsvík. Þau •
áform er reynt aö gera nokkurn veginn frambærileg fyrir
íslendinga meö útreikningi, sem á aö sýna aö meö því aö
fleyta rjómanum hér og þar af ýmsum smærri virkjunarkost-
um, þá mætti réttlæta þaö aö selja útlendri samsteypu í
Straumsvík raforku fyrir svosem 14 mills (87 aura) til alda-
móta. Þaö væri skammgóöur vermir - eins og Hjörleifur
Guttormsson, fyrrum iönaöarráöherra, bendir á í grein í
Austurlandi, þá „kæmi síðan aö íslendingum aö greiða mis-
muninn og bera hærri virkjunarkostnað vegna nýrra og dýr-
ari virkjana". Og jafnvel þótt menn geröu þá reginvitleysu aö
samþykkja að fórna rjómanum úr raforkukerfinu með slíku
gjafveröi - þá er ekki víst að slíkt sé nóg freisting þeim
aðilum sem hafa veriö aö velta fyrir sér aöild að stækkun
álvers í Straumsvík. Nú síðast berast af því fregnir, að tveir
þeirra hafi verið að kaupa sig inn í nýtt kanadískt álver og .
muni Straumsvíkuráhugi þeirra rýrna aö sama skapi.
En til einhvers eru menn aö skrifa stóriðjudrauma meö
gaffli á sjóinn og vekja upp vonir hér og þar um kreppu
slegna landsbyggö um álver í túninu heima og þar meö
mikla peninga og nóga atvinnu. Hve langt sem slíkir
draumar geiga frá skynsemi og veruleika, þá eru þeir líklegir
til pólitískra vinsælda. Þegar þeir svo ekki rætast, þá er
hægur vandi aö finna sökudóiga meðal pólitískra andstæö-
inga, kalla þá úrtölumenn og afturhaldsmenn og þröngsýn-
ismenn og segja: þaö var ekki mér aö kenna aö gullöld og
gleðitíð létu á sér standa.
KLIPPT OG SKORIÐ
n ** I81|i| tS|| w ! *j§
| i V. 'JL \ ■ 1 j|
WW'Jr f *> i 5 i m ''m&’. .Jhfáni. K ll
■ 6TE M ■ m t » 1
sv! m
Byggingaverkamenn í Oslo snúa baki viö Verkamannafiokknum og mæla með SV.
Kosningasigur
norskra sósíalista.
; SV, Sósíalíski vinstriflokkur-
inn, kom vel út úr kosningunum í
Noregi í fyrri viku. Hann tvöfald-
aði fylgi sitt og fékk sautján þing-
*menn. Þessi ágæti sigur er þó ekki
stærri en svo, að ef Alþýðu-
bandalagið, sem um margt er
hliðstæður fiokkur við SV, fengi
sama fylgi - tíu prósent - þá létu
menn sér fátt um finnast, því sá
árangur væri verulegt áfall. En
fyrir SV skiptir fylgisaukningin
vitanlega miklu máli. Flokkurinn
skaust upp fyrir tvo borgaralega
miðjuflokka í fylgi og nýtur nú
stuðnings sem gerir það að verk-
um að Verkamannaflokkurinn
hlýtur að taka verulegt tillit til
hans ef hann á annað borð vill
reyna að stjórna Noregi áfram.
Verkamannaflokkurinn tapaði
reyndar svo miklu fylgi í kosning-
unum, að foringi hans, Gro Harl-
em Brundtland, finnur hjá sér
nokkra þörf til að taka SV sér í
fang og reikna eindregið með at-
kvæðum flokksins, þegar sýna
þarf fram á að það það sé engin
hægrisveifla í gangi í Noregi, eins
þótt Framfaraflokkur Carls F
Hagens sé orðinn óþægilega stór.
Hvað er SV?
SV á rætur að rekja til afla í
Verkamannaflokknum sem voru
í andstöðu við Nató og Efnahags-
bandalagið og hann hefur sótt
styrk til kynslóðarinnar sem er
kennd við árið 1968 og hennar
„endurmats allra gilda“ og til
jafnréttishreyfingar kvenna.
Miklar sveiflur hafa orðið á fylgi
flokksins og hann hefur ekki farið
.varhluta af illvígum skæruhern-
aði sem er landlægur í smærri
flokkum til vinstri. Þó hann hafi
sem betur fer ekki lent í sömu
ógöngum og VS, Vinstri sósíalist-
ar, í Danmörku, en starfandi
voru einir sex skipulagðir flokkar
innan hans og bitust oft og börð-
ust af heift - og þó hafði hann ekki
nema 3-5 % fylgi. SV hefur til
dæmis trekist að halda svo á mál-
um, að ekki hefur verið stofnaður
sérstakur Kvennaflokkur í Nor-
egi - en svo sannarlega má litlu
muna. í sjálfshæðnum pistli um
flokkinn í blaði hans „Ny Tid“
núverið var meðal annars þessa
klausu hér að finna:
„Þótt SV sé lítill flokkur, er
hann altént gamansamur. Það
hafa m.a. komið fram hótanir um
að eyðileggja flokksblaðið (Ny
Tid er vikublað, ekki stórt
reyndar) ef að ekki verði séð til
þess, að þar birtist jafn margar
myndir af körlum og konum.“
Og er þá við hæfi að skjóta hér
inn frægu mismæli sem eitt sinn
heyrðist á Alþingi íslendinga:
Það er eins og hver sjái upp undir
sjálfan sig með það!
Vildi ekki verða stór
Pistilhöfundur í Ny Tid lýsir til-
veruvanda lítils vinstriflokks á
skemmtilegan hátt með þessum
orðum hér:
„SV er sjálfspyndingarflokkur
sem hefur í sér innbyggða þörf
fyrir að valda sjálfum sér skaða
og neitar með öllu að verða stór.
Til hvers að verða stór þegar
rnaður unir sæll við að vera lítill?
Það er hægt að líkja SV við Ósk-
ar, aðalpersónuna í skáldsögu
Gunthers Grass, Blikktromman.
Hann hætti að vaxa þegar hann
var þriggja ára gamalí. Hann tók
þá ákvörðun blátt áfram, en til
vonar og vara kastaði hann sér
niður stiga til að fólk áliti að hann
hefði hætt að vaxa vegna þeirra
meiðsla sem hann varð fyrir í fall-
inu. Með þessu móti varð Óskar
sér úti um ágætis innsýn í heim
hinna stóru, fullvaxinna manna.
Hann sér af mikilli skarpskyggni í
gegnum fals þeirra og lygar,
heimsku og hégómaskap. Hins-
vegar fékk hann lítið að gert. Því
hann var hætur að vaxa, hann var
dvergur."
Greinarhöfundur víkur að
gamalkunnu fyrirbæri í röðum
róttæklinga: Þar hafa alltaf verið
til menn, sem finnst það áhættu-
samt mjög ef hreyfing þeirra
stækkar ört. Hún kynni að þynn-
ast út, fyllast af hentistefnu og
týna sjálfri sér.
Vettvangur víkkar
Hve sterkur slíkur uggur hefur
á næstliðnum árum verið í SV
hinum norska, það vitum við
ekki. Hitt er svo líklegt að með
kosningasigrinum í fyrri viku
muni hreinlífisstefnan þoka til
hliðar. Blaðið Ny Tid ber þess
reyndar merki að vettvangur
flokksins er að breikka. Hann
hefur best náð eyrum opinberra
starfsmanna í ýmsum greinum
meðan verkamenn í hefðbundn-
um starfsgreinum hafa verið
nokkuð tryggir fylgismenn
Verkamannaflokksins (eins þótt
sumir þeirra hafi upp á síðkastið
því miður lagt eyrun við lýð-
skrumi Carls I. Hagens gegn út-
lendingunum „sem taka vinnuna
frá okkur“). f Ny Tid mátti nú
síðast sjá merki þess að bæði
járniðnaðarmenn og byggingar-
verkamenn, samtök þeirra og
trúnaðarmannaráð, hafi vaxandi
trú á SV sem farvegi fyrir sín við-
horf og kröfur í atvinnumálum.
Skýrari línur
í skrifum um norsku kosning-
arnar hér í blaðinu höfum við að
sjálfsögðu minnt á það, að úrslit
þeirra (stóru flokkarnir tapa, SV
og Framfaraflokkurinn unnu
mikla sigra) bæru vott um vissa
pólitíska þreytu á miðjunni.
Undir þetta tekur gamall höfð-
ingi í SV, Trygve Bull, í samtali
við Ny Tid, þar sem hann hefur
litlar áhyggjur af því að Framfar-
aflokkur Hagens sé hættulegur
fyrir lýðræðið og sér í uppgangi
hans möguleika á vænkandi hag
vinstrisinna. Trygve Bull segir:
„Hagen hefur komið aftur með
ástríðuhitann í norsk stjórnmál
eftir margra ára hundleiðinleg
einvígi Gró og Kára (Káre Will-
och, fyrrum leiðtoga Hægri-
manna). Fyrir okkur á vinstri-
væng ætti þetta að verða hvatning
til að herða okkar róður
Fyrst og fremst hefur Hagen
kjark til að standa við hægri-
mannaskoðanir. Hann segir það
sem flestir Hægrimenn meina en
Syse (formaður flokksins) ekki
þorir að láta út úr sér af ótta við
frjálslyndari væng flokksins. Það
þarf ekki lengi að skafa utan af
hægrimanni til að hörð einstakl-
ingshyggja komi í ljós.“
ÁB
Þjóðviljinn
Síðumúla 6*108 Reykjavík
Sími: 681333
Kvöldsími: 681348
Símfax:681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Ritstjóri: Arni Bergmann.
Frótt98tjóri:LúðvíkGeirsson.
Aörir blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur
RúnarHeiðarsson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart(ljósm.),
Kristófer Svavarsson, Ólafur Gíslason. Sigurður Á. Friðþjófsson
(umsjm. Nýs Helgarblaðs), Þorfinnur Ómarsson (íþr.), ÞrösturHar-
aldsson.
Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guömunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir.
Símavarsia: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðir: Erla Lárusdóttir
Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: GuðrúnGísladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63.
Símfax:68 ^9 35
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1000 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. september 1989