Þjóðviljinn - 15.11.1989, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 15. nóvember 1989 194. tölublað 54. árgangur
Húsnœðislán
Húsbréfin stimpluð í dag
Fyrstiflokkur húsbréfa gefinn út. Biðtímimun minnka, lánstími verður skemmri, lánsupphœðyfirleitt
hœrri og vextirýmist hœrri eða lœgri. Jóhanna Sigurðardóttir: Kaupendurþurfa að
tileinka sér nýja grundvallarhugsunarhœtti
í dag verður tekið í notkun nýtt
húsnæðiskerfi þegar lög um hús-
bréfaviðskipti taka gildi. Hús-
bréfakerfinu er ætlað að leysa af
hólmi núverandi kerfí og er
reiknað með að biðtími eftir lán-
um muni allt að því hverfa. Það
mun laga sig mun meira að mark-
aðinum en fyrra kerfi og því er í
raun mörgum spurningum um
kosti og galla þess enn ósvarað.
Fyrsta hálfa árið munu aðeins
þeir sem sóttu um húsnæðislán
fyrir 15. mars eiga aðgang að
húsbréfum og gilda þau aðeins
um notaðar íbúðir fyrsta árið.
„Það er verið að koma af stað
nýjum grundvallar hugsunar-
hætti varðandi húsnæðiskaup.
Kaupendur verða að haga fjár-
festingum sínum eftir greiðs-
lugetu og því ættu greiðsluerfið-
leikar fólks að minnka verulega,"
sagði Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra á kynningar-
fundi í gær. Með þessum orðum
vísaði Jóhanna í þá ráðgjafaþjón-
ustu sem Húsnæðisstofnun mun
veita umsækjendum og væntan-
legt mat hennar á greiðslugetu
einstaklinga.
Stærsti kostur húsbréfakerfis-
ins, þe. stytting biðtíma, hefur
mikil áhrif á ráðgjafaþjónustuna
þar sem hægt verður að meta ná-
kvæmlega hvert tilfelli fyrir sig.
Húsnæðisstofnun mun síðan
beina fólki frá því að fjárfesta um
efni fram og lenda þannig í of
miklum greiðsluerfiðleikum. At-
hygli vekur að mat á greiðslugetu
er bundið við að greiðslubyrði
verði ekki hærri en 30% brúttó-
tekna lántakanda. Hér er átt við
allar skuldir viðkomandi og því
ljóst að margir geta átt erfitt með
að hljóta náð fyrir augum Hús-
næðisstofnunar.
Með húsbréfakerfinu verða
ýmsar grundvallarbreytingar á
húsnæðiskerfinu, ss. stytting af-
borgana úr 40 árum í 25, hækkun
vaxta úr 3,5% í 5,75 og einsog
áður sagði styttri biðtími og ná-
kvæm athugun greiðslugetu
kaupenda. Einnig verða lánin
talsvert hærri en í núverandi kerfi
þótt lánshlutfall lækki úr 70% í
65% af kaupverði (aldrei hærra
en brunabótamat). Hægt verður
að fá allt að 8 miljónir til íbúða-
kaupa með þessum hætti en að
öðru leyti er fjárhæðin aðeins
bundin við fyrrnefnt hlutfall. Nú-
verandi kerfi veitir hinsvegar
aldrei meira en 2,8 miljónir til
kaupa á eldri íbúðum. Þannig
munu þeir sem kaupa íbúðir dýr-
ari en 4,3 miljónir fá hærra lang-
tímalán en í fyrra kerfi og þörf
fyrir dýrkeyptu skammtímaláni
verður minni. Þeir sem kaupa
ódýrustu íbúðirnar fá hinsvegar
5% lægra langtímalán en áður.
Ein stórbreyting til víðbótar er að
eftir 15. maí fellur úr gildi skilyrði
um lífeyrissjóðsgjald og kerfið
verður öllum opið.
Það kann að þykja mikill ó-
kostur fyrir íbúðakaupendur að
vextir hækki úr 3,5% í 5,75%. Sá
munur á að jafnast út með
greiðslu vaxtabóta til þeirra sem
lægri hafa launin, en bæturnar
eru háðar vaxtagjöldum, tekjum
og eignum íbúðareiganda. Það
verður því mjög breytilegt hvað
fólk greiðir í raun mikil vaxta-
gjöld og þarf að reikna hvert til-
felli fyrir sig . -þóm
Reykjavík
Umsátur í
Vogunum
Lögreglan í Reykjavík hafði
mikinn viðbúnað í gær þegar
grunur lék á að góðkunningi
hennar hefði skotvopn undir
höndum í íbúðarhúsi við Karfa-
vog í gær. Víkingasveitin var
kölluð út og eftir smá tíma féllst
hinn grunaði á að koma út og
reyndist þá vera vopnlaus.
Að sögn lögreglu voru mála-
vextir í upphafi þeir að RLR
hafði húsleitarheimild til að leita
að ólöglegu skotvopni sem hinn
grunaði hafði ekki leyfi fyrir. Af
látbragði hans og orðfæri að
dæma mátti álíta að hann væri
vopnaður og því þótti ástæða til
að gæta fyllsta öryggis og því var
kallað á Víkingasveitina og göt-
unni lokað fyrir allri umferð.
-grh
Betur fór en á horfðist í fyrstu í gær þegar grunur lék á að góðkunningi
lögreglunnar hefði skotvopn undir höndum í húsi í Karfavogi. Svo
reyndist ekki vera og gaf hann sig á vald lögreglu sem færði hann á
brott í lögreglubíl. Mynd: Jim Smart.
Virðisaukaskattur
Hringurinn að lokast
Fjórar nýjar reglugerðir komu ígœr. 12 af 14 nauðsynlegum
reglugerðum komnar um nœstu mánaðamót
TiJ þess að lög um virðis-
aukaskatt geti tekið að fullu gildi
um næstu áramót, þarf að setja
14 reglugerðir. Fjármálaráð-
herra gaf út í gær fjórar og eru þá
sex reglugerðir komnar fram. í
tilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu er boðað að ráðherra
muni gefa út þrjár reglugerðir í
næstu viku og aðrar þrjár um
næstu mánaðamót. Þá verða 12 af
14 nauðsynlegum reglugerðum
komnar fram. En Alþingi þarf að
ræða þær tvær sem eftir eru í
tengslum við þær breytingar sem
fyrirhugaðar eru á upprunalegu
frumvarpi um virðisaukaskatt.
f gær gaf Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra út
reglugerð um framtal og skil á
virðisaukaskatti. í henni eru
ákvæði um hvar eigi að greiða
virðisaukaskatt og hvernig. í til-
kynningu ráðuneytisins segir að
verið sé að ganga frá samkomu-
lagi við banka, sparisjóði og póst-
hús um að greiðendur geti notað
gírókerfið til greiðslu. Með þessu
muni þjónusta batna verulega frá
því sem nú tíðkist og móttökuað-
ilum fjölgi úr 32 í 200. Þá er sér-
staklega fjallað um aukauppgjör
bænda í þessari reglugerð.
Önnur reglugerðin fjallar um
frádrátt svo kallaðs innskatts. Þar
er kveðið á um hvað teljist inn-
skattur hjá þeim sem hafi bæði
með höndum skattskylda starf-
semi og starfsemi sem ekki verði
skattskyld. Þriðja reglugerðin er
um endurgreiðslu virðisauka-
skatts til sendimanna erlendra
ríkja og er hún ekki mjög frá-
brugðin reglugerð um endur-
greiðslu söluskatts til sömu aðila.
Fjórða og síðasta reglugerðin er
síðan um sjóðvélar og í henni eru
reglur um lágmarksútbúnað sjóð-
véla og meðferð þeirra.
-hmp
Skátar
Miður ef
morðtól hrífa
GunnarEyjólfsson skátahöfðingi: Skátahreyf-
ingin er friðarhreyfing
„Þarna hefðu átt að vera með
vitrir menn sem hefðu lýst til-
gangi þessara véla betur fyrir
skátunum þannig að þeir hefðu
þá frekar fleygt þeim frá sér en að
handijatla þau. Mér þykir það
mjög miður ef það eru morðtól
sem hrífa íslenska skáta mest,“
sagði Gunnar Eyjólfsson skáta-
höfðingi.
Um síðustu helgi fóru 75 skátar
á aldrinum 9 - 15 ára úr skátafé-
laginu Ægisbúum sem starfar í
Vesturbæ Reykjavíkur, í
skoðunarferð uppá Keflavíkur-
flugvöll. í frétt í DV í fyrradag
kom fram að þeim voru ma. sýnd-
ar vélbyssur landgönguliða, þyrl-
ur og flugvélar hersins og önnur
hertól auk slökkvistöðvarinnar á
Vellinum og svo virðist sem ís-
lensku skátarnir hafi orðið hrifn-
astir yfir vélbyssum landgöngul-
iðanna. „Ég get varla ímyndað
mér að i dag séu menn að halda
uppi áróðri fyrir vélbyssum og
öðrum drápstólum. Skátahreyf-
ingin er fyrst og fremst friðar-
hreyfing þó að innra skipulag
hennar sé eins og hjá her sem er
mjög gott skipulag," sagði Gunn-
ar Eyjólfsson skátahöfðingi