Þjóðviljinn - 28.11.1989, Side 4
þJÓÐVILIINN Málgagn
sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Áhrif ályktana
Viku eftir landsfund Alþýðubandalagsins hafa tvær álykt-
anir hans þegar átt hlut að því að breyta rás atburðanna og
móta þjóðfélagið. Annars vegar er um að ræða þá stefnu
landsfundarins að íslenskt prentmál og bókaútgáfa eigi ekki
að bera virðisaukaskatt. Hins vegar að tvö skattþrep eigi að
vera í væntanlegu kerfi og innlend matvæli í því lægra.
Frumkvæðið í dæmunum sem hér voru nefnd kom úr
öðrum áttum og margirfleiri en landsfundarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins lögðust á þessar árar. Hins vegar má fullyrða
að hefði landsfundurinn ekki ályktað á þennan veg eða leitt
málin hjá sér væri staðan allt önnur.
Landsfundur Alþýðubandalagsins fólst nefnilega ekki í
eintómum glímum persóna og skoðanahópa, eins og halda
mætti af umfjöllun áhrifamikilla fjölmiðla. Fyrst og fremst fór
tími hjá starfshópum og í umræðum til þess að móta 25
ályktanir fundarins.
Hver verða til dæmis áhrif utanríkismálaályktunar lands-
fundarins? Þarsegir m.a.: „Alþýðubandalagið mun ekki sitja
undir því í ríkisstjórn að neinn undirbúningur að hernaðar-
framkvæmdum fari fram, svo sem forkönnun, að nýjum her-
flugvelli á íslandi, hverju nafni sem nefnist".
Þetta orðalag er býsna afdráttarlaust. Hið sama má segja
um stefnumótun Alþýðubandalagsins í viðræðum við EB og
EFTA: „Ekki er hægt að fallast á að á næstu vikum verði
knúin fram afstaða um aðild íslands að formlegum samn-
ingaviðræðum EFTA við Evrópubandalagið um myndun
evrópsks efnahagssvæðis."
Ályktanir Alþýðubandalagsins í sjávarútvegsmálum eru
ítarlegar. Alþýðubandalagið vill byggðakvóta sem verði
„sjálfkrafa úthlutað til fiskiskipa í viðkomandi byggðarlagi“.
Kvótann skal lána í 2 ár en frá því binda við ákveðin skip í
byggðarlaginu. Alþýðubandalagið vill ekki tonnakvóta í
þorskveiðum, þar eð hann tryggir ekki viðhald stofnsins, -
„Færri tonn geta þýtt aflífun fleiri fiska, en smærri". Stungið
er upp á öðrum aðferðum, talningu fiska, svæðalokunum
osfrv. Loks er mælt með eflingu fiskmiðlunar og fiskmark-
aða svo að hámarksverð fáist fyrir fisk og landanir innan-
lands tryggi fulla atvinnu.
Af nógu er að taka, ef benda skal á um hvað landsfundur
Alþýðubandalagsins snerist, hverjar niðurstöður hans urðu,
hvaða áhrif hann getur haft. Flokkurinn vill t.d. „að aflafé
landsbyggðarinnar nýtist henni sjálfri" og að sjálfsákvörð-
unarréttur hennar eflist „í öllum málum“. Flokkurinn vill að
allar konur njóti sama fæðingarorlofs, að lengd þess sé eitt
ár og réttur feðra betur tryggður. Alþýðubandalagið vill
breyta búvörulögunum, styðja Leikfélagið og Háskólann á
Akureyri, en „varar við öllum tilraunum ríkisvaldsins til að
skerða sjálfstæði Háskóla íslands" og „fagnar því frum-
kvæði núverandi menntamálaráðherra að breyta reglum
um stöðuveitingar Háskólans." Landsfundurinn krafðist
skjótra úrbóta í húsnæðismálum aldraðra og fatlaðra og
mótaði raunar drög að „neyðaráætlun" í þeim efnum. Al-
þýðubandalagið bendir á þá þversögn, að meðan dregið er
markvisst úr vígbúnaði í kringum okkur skuli hér vera hern-
aðartengdar framkvæmdir í öllum landshlutum. Ólöglegt
frumhlaup og umhverfismengun Bandaríkjahers á Bolafjalli
fyrir skemmstu minnir óþægilega á þá staðreynd.
Margar góðar og vel undirbúnar ályktanir hinna og þess-
ara samtaka komast aldrei upp á yfirborð þjóðmálaumræð-
unnar og hafa engin áhrif. Allir sem hafa tekið þátt í félags-
störfum kannast við þetta fyrirbæri. Viðbrögð félagsmanna
verða oft þau að semja styttri og færri ályktanir næst, í þeirri
von að fjölmiðlar sinni þeim betur.
Einkenni þeirra ályktana sem athygli vekja er góður undir-
búningur. Verklag á ráðstefnum, tímaskipulag ofl. ræður
einnig úrslitum um hvort ályktanirnar eru nógu markvissar
og málefnalegar til að verða aflvaki í þjóðfélagsþróun eða
réttlætisbaráttu.
Hér hefur verið stiklað á stóru í nokkrum ályktunum lands-
fundar Alþýðubandalagsins. Lesendur Þjóðviljans geta
kynnt sér þær ítarlegar. Viku eftir fundinn hafa tvær þeirra átt
þátt í að valda straumhvörfum. Því skal spáð hér að mál-
efnavinna 9. landsfundarins muni reynast eftirminnilegri og
áhrifaríkari þegar tíma líða fram en margt það sem hæst
hefur borið í fyrstu.
-ÓHT
KLIPPT OG SKORIÐ
Valt reynist
valdið
Þeir fara allir fyrir bí, var eitt
sinn kveðið: nú er Todor Zhivk-
ov lagður lágt í Búlgaríu, Jakes
og hans menn hlaupnir frá völd-
um í Prag og eftir stendur Ce-
aucescu einn í Rúmeníu. Og dett-
ur engum í hug að hans einvald-
skerfi standi lengi eftir að hann
sjálfur hverfur af sviði.
Upplausn flokksræðis í austan-
verðri álfunni kemur ágætlega
heim og saman við athuganir þess
ágæta marxista Isaacs Deutschers
(menn gleyma því oft í frétta-
skeytalátunum öllum að marx-
ismi er reyndar ekki stjórnkerfi
heldur viss tegund söguskýring-
ar, sem vísar um leið fram í tím-
ann - án þess að marxistar séu
allir sammála um framtíðina, þó
ekki væri). Deutscher skrifaði
bók á fimmtugsafmæli rússnesku
byltingarinnar árið 1967 og
nefndi hana „Byltingin ó-
fullgerða". Þar lagði hann mikla
áherslu á það, að í fjölflokkalýðr-
æði tapar stétt eða flokkur eða
hreyfing ekki öllu sínu þótt pólit-
ísk orrusta (t.d. kosningar) tapist
- menn geta hörfað til síns bak-
lands í valddreifingunni. En ein-
kenni alræðis á borð við flokks-
ræðið sovéska, segir Deutscher,
er það að það býður upp á allt eða
ekkert, það grefur undan sínum
eigin möguleikum til undanhalds
til nýrrar víglinu, það getur hrun-
ið - í bókstaflegum skilningi.
Það gleðilegasta við þessa þró-
un er svo það, að valdhafarnir
gefast upp blóðsúthellingalaust,
eða svo hefur það verið til þessa
að minnsta kosti. Og þar með er
grafið undan þekktum kenning-
um um að valdið vaxi út úr byss-
ustingjunum (Maó formaður) og
svo þeirri kenningu, að kommún-
ískt flokksræði sé svo altækt og
rammbyggt að þjóðfélög sem það
hefur hremmt geti ekki breyst (á
þessari skoðun hafa ýmsir höf-
undar bandarískrar utanríkis-
stefnu verið).
Dubcek tekur
aftur til máls
Það gerðist í Prag á dögunum
að Alexander Dubcek talaði á
gríðarmiklum útifundi og var
fagnað ákaflega. Það var Du-
bcek, þáverandi formaður
Kommúnistaflokks Tékkósló-
vakíu, sem byrjaði árið 1968 á
umbótum sem voru róttækari en
sovéska flokksforystan þoldi - og
allir vita hvernig það fór. Dubcek
sagði meðal annars þetta við
mannfjöldann:
„Hugsjón sósíalisma með
mennskri ásýnd lifir enn í hugum
nýrrar kynslóðar."
En eins og menn vita var það
slíkur mennskur sósíalismi sem
Dubcek letraði á sinn gunnfána
áður en hann var hrakinn frá
völdum.
Þessi orð Dubceks verða borg-
aralegum málgögnum tilefni til
að segja sem svo, að Dubcek sé
reyndar ágætur maður, en maður
tíma sem þegar er liðinn. Það séu
hinsvegar Ungverjar sem hafi
skilið kall tímans og tali þeir sem
minnst um sósíalisma, enda ætla
þeir - stórnarflokkur sem stjórn-
arandstaða - að koma á vestur-
evrópsku kerfi í öllum greinum,
m.a. með því að selja ríkisfyrir-
tækin á uppboði erlendis ef ein-
hver vill kaupa.
Og svo geta menn farið enn
víðar og minnt á það, að meira að
segja stjórnarandstaðan („Nýr
vettvangur“) í Austur-Þýska-
landi leggur nokkra áherslu á það
eða hefur gert, að hún vilji ekki
hafa kapítalisma eins og þann
sem uppi er fyrir vestan þá múra,
sem nú er búið að rífa góðu heilli.
Þessar misjöfnu áherslur ota
að mönnum mikilvægri spurn-
ingu: Hvað er það sem fólkið í
löndum Austur-Evrópu vill í
raun og veru?
Við vitum að það vill valdhaf-
ana burt, sem hafa setið ára-
tugum saman og skammtað sér
fríðindi og lof. Það vill losna við
lamandi skrifræði, það vill mál-
frelsi og ferðafrelsi. Það vill vöru-
gnótt í búðum og hærra kaup.
Þetta er allt saman tiltölulega ein-
falt og sjálfsagt. En það kann að
reynast erfitt að finna svör við
því, hvort almenningur vill líkja
sem nákvæmast eftir t.d. Vestur-
Evrópu í öllum greinum eða
ekki, þaðan af síður vita menn
hvernig það fer í fólk að losna
kannski við austantjaldsvanda-
mál og hreppa vestantjalds-
vandamál í staðinn. Enda ekki að
því komið svo heitið geti.
Helst vildu menn náttúrlega
losna við hin fyrrnefndu án þess
að hreppa hin síðarnefndu.
Hvað er átt við með því? Ef við
berum lauslega saman stöðu
verkamanns fyrir vestan og fyrir
austan þá fáum við mynd sem
lítur sisona út:
Sá vestræni verkamaður hefur
hærra kaup en félagi hans fyrir
austan, hann hefur neytenda-
frelsi og möguleika til að nota sér
það, hann býr við meiri aga á
vinnustað og minna atvinnuör-
yggi. Sá austræni hefur lægri
tekjur og má þar að auki glíma
við vöruskort, vinnuharkan er
minni, atvinnuöryggið meira
(það hefur verið sú heilög kýr
sem ráðandi flokkar í Austur-
Evrópu hafa síst viljað slátra).
Báðir vinna launavinnu sem
þeir hafa takmörkuð áhrif á eða
engin. Báðir búa við velferðar-
kerfi sem taka almennt mið af
framfærsluskyldu þjóðfélagsins,
sérkenni þeirra kerfa eru svo
þau, að fyrir vestan miðast félags-
legt öryggisnet ekki síst við að
draga úr sviða atvinnuleysis, en
fyrir austan að því að niðurgreiða
sem mest húsnæði og menntun og
nokkrar allra nauðsynlegustu
matvælategundir.
Af sjálfu leiðir að ef menn gætu
valið sér það skásta úr þessu
tvennu, þá væru þeir tiltölulega
sáttir við sitt hlutskipti. En það er
svo hægara sagt en gert.
Rammur hnútur
Tökum sem snöggvast dæmi af
Póllandi. Þar er komin til valda
stjórn sem verklýðshreyfingin
Samstaða veitir forystu. Hreyf-
ingin fékk byr í vængi í baráttu
gegn valdaeinokun, forréttind-
um, með verkföllum gegn rétt-
leysi og lágu kaupi. Nú sér sú
sama Samstaða við stjórnvölin
sig neydda til að hækka verð á
nauðsynjum (niðurgreiðslurnar
voru að sliga ríkissjóð), og banna
um leið verkföll eða svo gott sem.
Og þó er eftir það sem erfiðast er:
með auknum viðskiptatengslum
og fjármagnstengslum við
Vestur-Evrópu kemur það strax í
ljós, að þeir vinnustaðir sem
Samstaða sótti mestan styrk til -
skipasmíðastöðvar, stáliðjuver,
kolanámur - eru einmitt þau fyr-
irtæki sem helst eru dauðadæmd
fyrirfram í frjálsri samkeppni og
erlent kapítal hefur minnstan
áhuga á. Þótt þau fengjust gefins.
ÁB.
pJÓÐVILJINN
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími: 681333
Kvöldsími:681348
Símfax:681935
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Rltstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H.Torfason.
Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur
RúnarHeiðarsson, HeimirMár Pótursson, HildurFinnsdóttir(pr.),
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson
(Ijósm.), LiljaGunnarsdóttir, ÓlafurGíslason.ÞorfinnurÖmarsson
(íþr.), Þröstur Haraldsson.
Skrlfstof ustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Augiýsingastjóri: Olga Clausen.
Augiýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi-
mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu-ogafgreiðslustjóri:GuðrúnGísladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63.
Simfax:68 19 35
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1000 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN > Þriðjudagur 28. nóvember 1989