Þjóðviljinn - 28.12.1989, Side 7
Ólafur Þ. Jónsson
þátt í myndun þessarar stjórnar,
sem fræg er að endemum, en Jón-
as Jónsson, enda helgaði hún
starf sitt, í hvívetna, hugsjónum
hans. Rúmsins vegna verður þó
ferill hennar ekki rakinn hér, þótt
freistandi væri, aðeins minnt á
frægasta sköpunarverk hennar,
bráðabirgðalög um gerðardóm í
kaupgjalds- og verðlagsmálum,
gerðardómslögin illræmdu frá
1942 (skylt er að geta þess að
vegna þeirra sagði ráðherra Al-
þýðuflokksins af sér og fór úr
stjórninni; hinir flokkarnir tveir
stjórnuðu síðan án hans til næstu
kosninga, vorið 1942).
Með falli „þjóðstjórnarinnar"
var veldissól Jónasar Jónssonar
að viði hnigin, enda var hann orð-
inn tímaskekkja í íslenskum
stjórnmálum.
Jonas eftir 1949
Ég hefi nú rakið í grófum drátt-
um útlínur íslenskrar stjórnmála-
sögu árin sem umsvif Jónasar
Jónssonar voru hvað mest. Ekki
endilega þín vegna, þótt mér sýn-
ist raunar ekki vanþörf á, heldur
miklu fremur í þeirri von að ein-
hverjir sem horfðu á umræddan
sjónvarpsþátt á dögunum, lesi
líka þessar línur.
Að sjálfsögðu stökk Jónas ekki
alskapaður inn í þá sögu vorið
1927, þegar ráðherradómur hans
hófst og hann lagði heldur ekki
niður baráttu fyrir hugsjónum
sínum vorið 1942, með falli
„þjóðstjórnarinnar".
Jónas Jónsson átti meira að
segja heilmargt vantalað við
landslýð allan, eftir að hin viða-
mikla útihurð Alþingishússins, á
velsmurðum lömum sínum, féll
að stöfum á hæla hans í síðasta
sinn árið 1949 (alþingismaður
1923-1949). Þegar hér var komið
sögu var hann að vísu „með klof-
inn hjálm og rofinn skjöld“ og
sverðið biturlega orðið ryðfrakka
ein. „Rödd hrópandans í eyðim-
örkinni", eins og þú nefndir svo
fjállega í þættinum. Röddin sú lét
þó sætlega í eyrum yfirstéttarinn-
ar í landinu, einkum landsöluór-
arnir.
Það væri svo sem nógu
freistandi að rifja upp viðhorf
hans til nýsköpunarstjórnarinnar
1944-1947, til kröfu Bandaríkja-
stjórnar frá 1945 um leigu tiltek-
inna þriggja landsvæða undir her-
stöðvar til 99 ára, eða til Kefla-
vfkursamningsins 1946, til Mars-
halláætlunarinnar 1947, til
inngöngu íslands í NATO 1949
og til hernámsins 1951 „Leifslín-
una“ kallaði gamli maðurinn þær
hugsjónir sínar. Það vantaði svo
sem ekki þjóðlegheitin. Það yar
trúlega úti á „Leifslínuna", sem
mannvitsbrekkan út í París, líkti
Jónasi Jónssyni, í tvígang, við Jón
Sigurðsson, í sjónvarpsþættin-
um.
Það væri líka fróðlegt að rifja
upp ofsóknir „skólamannsins"
mikla á hendur íslenskum
æskulýð, þegar hans var „máttur-
inn og dýrðin“, lýsa tilraunum
hans og nánustu fylgifiska til að
útiloka þann hluta hans, sem
hafði róttækar skoðanir, frá
skólanámi, rifja upp útburð hans
á sjúklingi af sjúkrahúsi vegna
pólitískra skoðana, ofsóknir hans
á hendur róttækum mennta- og
listamönnum, rifja t.d. upp í því
sambandi sefasýkisherferðina
hans gegn Halldóri Laxness, eftir
að Sjálfstætt fólk kom út (1934-
1935), sem náði hámarki þegar
honum tókst, vegna aðstöðu
sinnar sem formaður
Menntamálaráðs að lækka
skáldalaun Halldórs úr kr. 5000 í
kr. 1800 árið 1940.
Það væri einnig full ástæða til
að rifja upp skoðanir „samvinnu-
frömuðarins" mikla á Pöntunar-
félagi verkamanna, sem var
undanfari KRON, Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis, og
viðhorf hans til þess félags síðar,
svoleiðis kaupfélag átti að hans
dómi að drepa af því að kommún-
istar stjórnuðu því. Rifja upp við-
horf hans til byggingasamvinnu-
félaga og til útgerðarfélaga með
samvinnusniði. Slík samvinnufé-
lög áttu ekki upp á pallborðið hjá
Jónasi Jónssyni, þetta voru ein-
faldlega ekki samvinnufélög. sem
þjónuðu valdakerfi hans, SIS og
Framsóknarflokknum. En hann
átti nú drýgstan þátt í samningu
samvinnulaganna, jú, en hvemig
vom þau? Ramgölluð löggjöf þar
sem samvinnufélögunum var
tryggt það víðtækt skattfrelsi að
til vandræða horfði fyrir mörg
smærri bæjar- og sveitarfélög og
stóð vexti þeirra beinlínis fyrir
þrifum, einkum þar sem félögin
sátu ein að allri verslun.
Það væri heldur ekki úr vegi að
rifja upp hvernig hann hóf, um
1930, þau pólitísku hrossakaup í
stöðu- og embættaveitingum,
sem hafa lifað góðu lífi alit. til
þessa dags. Þar gekk hann þvert á
allar gamlar gildandi reglur og
venjur og spurði meir um pólit-
ískar skoðanir manna en próf og
hæfileika. Hann tróð ekki aðeins
sínum eigin fylgismönnum inn í
embætti við skóla og ríkisstofn-
anir, heldur notaði slíka bitlinga
óspart til að ná efnilegum pólit-
ískum andstæðingum.undir veld-
issprota sinn og gera þá óvirka.
Dró m.a. tennurnar úr mörgum
efnilegum kratanum, en það er
önnur saga. Athyglisvert er, að af
þessum umsvifum sínum stærði
gamli maðurinn sig einna mest og
sagðist hafa hreinsað til í hinu
gamla og „spillta" embættis-
mannaliði ríkisins.
Ekki er hægt að skiljast við
þennan þátt í pólitísku starfi Jón-
asar.Jónssonar án þess að minn-
ast á hlut þeirrar stofjiunar, sem
varð honum hvað notadrýgst við
framleiðslu dyggra lærisveina og
fylgismanna, Samvinnuskólans.
Skólinn var stofnaður 1918 og
varð Jónas skólastjóri, þegar við
stofnun hans (skólastjóri 1918-
1955), hafði raunar hvatt til
stofnunar hans í tímariti kaupfé-
laganna, nokkrum árum áður,
fyrstur manna. Þennan skóla, þar
sem ungir menn ætluðu að læra til
kaupfélagsstjóra, gerði Jónas
strax að flokksskóla Framsóknar
og boðaði lærisveinunum sína út-
gáfu af samvinnustefnunni, sem
var vægast sagt æði frábrugðin
þeirri samvinnustefnu, sem vef-
ararnir í Rochdale á Bretlandi
hrundu af stað árið 1944.1 þessu
hreiðri ungaði Jónas út mörgum
af sínum tryggustu fylgis-
mönnum, sem hann plantaði síð-
an niður í lykilstöður vítt um
land.
Allt sem hér hefur verið minnst
á og margt fleira af athöfnum
Jónasar Jónssonar er full ástæða
til að rifja upp, ekki síst eftir að
ríkissjónvarpið varð bert að
þeirri sögufölsun, sem fram kom i
þættinum er hér hefur verið gerð-
ur að umtalsefni, m.ö.o. rifja upp
hvaða hlutverki hann gegndi fyrir
borgarastéttina í landinu á sinni
tíð, þegar verið var að móta og
festa auðvaldsskipulagið á ís-
landi í sessi. Og síðast en ekki síst
hvemig hann mddi stöðugt
brautina fyrir sér óvandaðri
menn. Því miður er ekki, rúmsins
vegna, tækifæri til þess hér, en
gefst kannski síðar. Mat mitt á
Jónasi Jónssyni frá Hriflu og
starfi hans miðast auðvitað við
hagsmuni þeirrar stéttar sem ég
tilheyri, verkalýðsstéttarinnar,
stéttar sem raunar er svo langt úti
að aka í dag, að hún er að hluta til
farin að falla fram og biðja um
óhefta erlenda stóriðju, án skil-
yrða um íslenska meirihlutaeign-
araðild, biðja um að ísland verði
á ný nýlenda erlendra auðdrott-
na. Frá sjónarhóli þessarar stétt-
ar er Jónas Jónsson einn mesti
óheillafugl íslenskra stjórnmála.
Borgarastéttin er að sjálfsögðu á
allt annarri skoðun. Frá hennar
sjónarhóli séð er hann án efa einn
merkasti maður íslandssögunn-
ar. Ég get sagt þér það svona í
framhjáhlaupi, af því ég held að
þú sért ekki ofkunnugur landslagi
stéttabaráttunnar, að þetta er
skilningur þeirra, á fyrirbærinu
frá Hriflu, sem hafa marxismann
að leiðarljósi, þú hefur gott af því
að hugleiða það, einmitt núna
þegar þú ert lagður af stað með
flokkinn þinn fjársjúkan, fram að
Urðarseli, sem er innar í
heiðinni. „Úr einum næturstað í
annan verri“. Og þó að sólarlögin
séu ef til vill falleg þar ennþá, er
ég ansi hræddur um að það dragi
skammt.
Vertu svo kært kvaddur.
Ólafur Þ. Jónsson
vitavörður Hornbjargsvita
P.S. Kannski skrifa ég þér aftur
til þegar ég er búinn að lesa
stjórnmálaályktun landsfundar-
ins þetta nýjasta „Testimonium
paupertatis“, (fátækravottorð)
flokksins. Sami.
Afmælisrit
„Ferskeytlan
er frónbúans“
Kvœðamannafélagið Iðunn 60 ára
Um Jónsmessuleytið áríS 1929 var
Björn Friðriksson frá Bergsstöðum á
Vatnsnesi, þá búsettur í Reykjavík
staddur á bakka Almannagjár á Þing-
vöUum ásamt systrum sínum, konu og
dóttur. Tóku þau sér sæti á bakka
gjárinnar og hófu að kveða rímnalög
þarna f sólkyrrunni. Brátt skaut
þeirri hugmynd upp f hópnum, að
efna til stofnunar kvæðamannafélags.
Var kvaddur tif þeirrar ráðagerðar
Kjartan Ólafsson bæjarfuUtrúi og
múrarameistari, sem þarna var
skammt undan. TU þessara róta er að
rekja upphafið að stofnun Kvæða-
mannafélagsins Iðunnar.
Um sumarið þróuðust málin á þann
veg, að hinn 1. sept. 1929 komu
nokkrir karlar og konur saman til
fundar í því skyni að undirbúa stofn-
un kvæðamannafélags. Var þar kosin
nefnd til þess að undirbúa stofnfund
og semja lög fyrir væntanlegt félag.
Nefndina skipuðu: Kjartan Olafsson,
Jósep S. Húnfjörð, Bjöm Friðriks-
son, Kristján Jónsson og Ingibjörg
Friðriksdóttir. Nefndin lét hendur
standa fram úr ermum og hálfum
mánuði seinna, eða þann 15. sept.
1929,var stofnfundur haldinn í húsi
Góðtemplarareglunnar í Reykjavík.
Kvæðamannafélagið Iðunn var orðið
að veruleika. Sá neisti, sem kviknaði
austur við Almannagjá vorið 1929,
var orðinn að glóð, sem sfðan hefur
lifað góðu lífi og veitt mörgum
ánægju og yl. Stofnendur félagsins
voru 33 og fyrstu stjómina skipuðu
Kjartan Ólafsson formaður, Bjöm
Friðriksson ritari, og Jósep S. Hún-
fjörð gjaldkeri.
Tilgangur félagsins hefur frá upp-
hafi verið sá að safna rímnalögum og
alþýðuvísum, fornum og nýjum. Em
nú til á segulböndum í safni félagsins,
yfir 500 kvæðalög (rímnalög).
Feiknum öllum hefur einnig verið
safnað af alþýðukveðskap f vísna- og
ljóðaformi. Er sá sjóður nú geymdur í
Landsbókasafni íslands, ásamt
fundargerðum félagsins frá upphafi.
Og nú hefur Kvæðamannafélagið
Iðunn starfað í 60 ár. Af því tilefni
hefur félagið nú gefið út ljómandi
snoturt afmælisrit. Hefst það á
ávarpsorðum Orms Ólafssonar for-
manns félagsins. Þá ritar Einar Krist-
jánsson einkar fróðlegt ágrip af
þróunar- og þroskasögu félagsins. í
60 ár. Njáll Sigurðsson á þama grein
um rímur, kveðskaparlist og kvæða-
lög, „fáein atriði til fróðleiks um þann
flutning bundins máls, sem kallast að
kveða“. - Haukur Sigtryggsson send-
ir Iðunni afmæliskveðju frá Kvæða-
mannafélagi Hafnarfjarðar, en það
var stofnað ári síðar en Iðunn. - Ið-
unnarfélagar hafa jafnan stundað
„sumarferðir" sér til fróðleiks og
ánægju og hafa þær ferðir fætt af sér
æði margar stökur. Frá þessari starf-
semi segir Ormur Ólafsson, auk þess
sem B j ami Guðmundsson greinir sér-
staklega frá ferð, sem farin var 22.-
23. júní 1946. - Magnús Þ. Jóhanns-
son á þarn,a grein um íslenskan kveð-
skap og birtir jafnframt sýnishom af
vísnagerð fjölmargra höfunda. - Ög-
mundur Helgason ræðir við Ragn-
heiði Magnúsdóttur um kynni hennar
af rímnakveðskap og Valgeir Sigurðs-
son við Sigurð Kristjánsson, sem átt
hefur samleið með Iðunni f 30 ár.
Hér hefur lauslega verið drepið á
efni þessa eigulegu afmælisrits, sem
auk hins prentaða máls, er prýtt
nokkrum tugum ágætra mynda, en
ritstjóri þess er Einar Kristjánsson.
Núverandi stjóm Iðunnar skipa:
Ormur Ólafsson formaður, Ólafur
Runólfsson gjaldkeri og Úlfar Þor-
steinsson ritari.
-mhg
' m w w
Hringdu!
Upplýsingasíminn er (91)
» 1
<
g
>- .'2
4
í þessu númeri getur þú fengiö upplýsingar og
svör viö spurningum þínum um íslandsbanka.
Upplýsingasíminn er opinn virka daga
kl. 9.00-16.00.
Ef þú ert með spurningu, hringdu!
4
1
<
i
i
i
i
i
i
i
i
i
ISLAN DSBANKI
- í takt við nýja tíma !
Ftmmtudagur 28. desember 1989 { ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7