Þjóðviljinn - 06.01.1990, Síða 1
Laugardagur 6. janúar 1990 4. tölublað 55. árgangur
Vatnsendi
Borgin ryður frá sér
Borgarráð samþykkir samhljóða kaup á Vatnsendalandifyrir 170 miljónir. HeimirPálsson: Látum lögsögu aldrei
af hendi ogþað er óheyrt ííslandssögunni að ákveðin sé lögsaga án samþykkis beggja aðila. Magnús Hjaltested: Óánœgður með
verðið en átti ekki annarra kosta völ. Stöð 2 tókst að afla 150 miljóna hlutafjár
Við munum aldrei láta löesögu
Vatnsendalands af hendi, en
það er óheyrt í íslandssögunni að
slíkt sé gert með lögum án sam-
iþykki beggja aðila. Gefi löggjafi
'fordæmi á því geta önnur
sveitarfélög einsog Mosfellsbær
farið að óttast um sinn hag því
víða leynast veiðilendur í ná-
grenni Reykjavíkur. Það er því
spurning hvernig túlka beri orð
borgarstjóra um að fallið verði
frá kaupum samþykki Kópavog-
ur ekki lögsöguna, sagði Heimir
Pálsson formaður bæjarráðs
Kópavogs eftir að Reykjavíkur-
borg hefur gert samning um kaup
á nær allri jörðinni á Vatnsenda,
sem er í lögsögu Kópavogs.
Davíð Oddsson borgarstjóri og
Magnús Hjaltested landeigandi
gengu frá þessum samningi í gær
og var hann samþykktur sam-
hljóða í borgarráði. Borgin
kaupir um 700 hektara lands af
Magnúsi á 170 miljónir króna, en
Magnús heldur um 50 hekturum
meðfram Elliðavatni ásamt
veiðirétti í vatninu og svæði þar-
sem nú eru byggð hesthús. 12
miljónir greiðast sem útborgun á
einu ári, en eftirstöðvar eru
greiddar á 10 árum með verðbót-
um og venjulegum skuldabréfa-
vöxtum.
En þótt samkomulagið hafi
þegar verið undirritað verður
landið alls ekki strax í eigu
Reykjavíkur því Kópavogur hef-
urenn forkaupsrétt. Hafni Kópa-
vogur forkaupsrétti er samkomu-
lagið háð því skilyrði að Alþingi
setji lög um heimild Reykjavík-
urborgar til eignarnáms og sölu á
landinu. Fáist eignarnámsheim-
ild ekki á þessu þingi fellur
samkomulagið úr gildi. Þá skal
aflýsa veðskuldum er hvíla á
jörðinni, en annars er kaupanda
heimilt að halda eftir hluta
skuldabréfa.
„Við eigum aðeins kost á að
bjóða samsvarandi tilboð eða fyr-
irgera forkaupsrétti okkar.
Hvorn kostinn við veljum get ég
ekkert sagt um, en við munum
auðvitað nota okkar 28 daga til
að athuga málið vandlega," sagði
Heimir um það hvernig Kópa-
vogur muni bregðast við þessu
samkomulagi.
Magnús Hjaltested sagðist
hafa gengið að þessu samkomu-
lagi vegna þess að honum stóð
ekkert annað til boða. „Ég er óá-
nægður með verðið en átti ekki
annarra kosta völ. Ég veit ekkert
hvað Kópavogur ætlar að gera í
málinu því þeir hafa aldrei verið
til umræðu um kaup á landinu.
Um það hvort þetta samkomulag
væri í einhverjum tengslum við
hlutafjáraukningu í Stöð 2 sagði
Magnús það fjarri lagi. „Ég þekki
engin deili á Stöð 2 nema hvað
konan mín vinnur þar. Hafi þeir
náð að auka hlutafé sitt er það
ekki frá mér komið, enda mun ég
ekki sjá krónu úr þessum samn-
ingi á næstunni," sagði Magnús.
Fyrri eigendur Stöðvar 2 hafa
náð að auka hlutafé sjónvarps-
stöðvarinnar um 150 miljónir
einsog gert var ráð fyrir í samn-
ingi við Eignarhaldsfélag Versl-
unarbankans. „Þeir hafa tilkynnt
mér að 150 miljóna hlutafjár-
aukning hafi takist en ég vil ekk-
ert ræða hvernig hennar var
aflað,“ sagði Þorvarður Elíasson
varaformaður Eignarhaldsfélags-
ins og stjórnar Stöðvar 2. Ekki
náðist ; þremenningana í gær
enda sátu þeir tíða fundi með
fjármagnseigendum varðandi
hlutafjáraukninguna. -þóm
Noriegamálið
Von á óþægilegum uppljóstrunum
Bush segir
George Bush Bandaríkjaforscti
þvertók fyrir það í gær að til
greina kæmi að vægja Manuel
Antonio Noriega, hinum afsetta
einræðisherra í Panama, gegn því
að hann gæfi bandarískum yfir-
völdum upplýsingar um eiturlyfj-
aviðskipti. Noriega gafst sem
kunnugt er Bandaríkjamönnum á
vald í Panamaborg á miðviku-
dagskvöld eftir tíu daga vist í
sendráði Páfagarðs þar í borg.
Bandaríska blaðið New York
Times hafði í gær eftir ónefndum
manni háttsettum í Bandaríkja-
stjórn að stjórnin væri reiðubúin
samkomulag við fyrrverandi starfsmenn sinn ekki koma til greina
til samkomulags við Noriega af
því tagi, er að ofan greinir.
Hermt hefur verið að Bush og
fleiri háttsettir menn þarlendis
séu ekki svo áfram um að lög-
sækja Noriega sem þeir láta, af
ótta við að í málaferlunum komi
ýmislegt það á daginn er kunni að
verða þeim óþægilegt, t.d. frá
þeim árum er Bush var forstjóri
CIA og Noriega undirmaður
hans þar.
Verjendur Noriega hafa þegar
lýst því yfir að þeir muni ganga
hér á lagið og krefjast þess að birt
verði fyrir rétti skjöl með upplýs-
ingum um störf Noriega meðan
hann þjónaði CIA. Þegar Nori-
ega kom fyrst fyrir rétt í Miami í
fyrradag héldu verjendur hans
því fram að handtaka Noriega og
málaferlin gegn honum væru
ólögleg, þar sem hann væri leið-
togi annars ríkis, auk þess sem
Bandaríkjamenn hefðu náð hon-
um á sitt vald með innrás er hefði
verið brot á alþjóðalögum.
Jafnskjótt og Noriega var
genginn Bandaríkjamönnum í
greipar flugu þeir með hann til
Miami, en kviðdómar þar og í
Tampa ákærðu hann 1988 fyrir að
hafa þegið 10 miljón dollara
mútur af kólombískum kókaín-
barónum og að launum verndað
smyglara á vegum barónanna,
„þvegið" fyrir þá illa fenginn
gróða og hjálpað þeim um útbún-
að í eiturlyfjafabrikkur. Noriega
mætti fyrir rétti í fyrradag í ein-
kennisbúningi hershöfðiíngja
með fjórum stjörnum, var hinn
roggnasti og kvaðst ekki viður-
kenna dómsvald bandarísks rétt-
ar yfir sér. Hann getur átt von á
fangelsisdómi upp á 145 ár, verði
hann sekur fundinn.
Reuter/-dþ.