Þjóðviljinn - 06.01.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.01.1990, Blaðsíða 5
Kíkt í risa- buddumar Fjölmiðlarnir dæla talnaflóði svo örtyfir mann- skapinn aðfólk getur varla sett upphæðirnar ísam- hengi og borið saman að gagni Ólafur H. Torfason skrifar Tilb. Landsb. I Samv.banka des. ‘89 Tilb. Landsb. I Samv.banka des. '89 Hlutabréfasala á Isl. 1989 Hagnaöur Isl. jámblendifél. 1989 Þjóöarþotan Hlutafó Stöövar 2 Skattgreiöslur ISAL 1989 Vegafrkv. Amameshæö Dýpkun Sandgeröishafnar (3 ár) Viögerö Bessastaöastofu Rikisáb. launa v. gjaldþr. 1989 Endumýjun Hótels Loftl. Tilb. Rvíkur I Vatnsendaland Útfl. aaöardúnn 1990 Þrotabú ReiÖhallarínnar Hlutabréfasala 29.des. 1989 Hönn.kostn. Þjóöl.hússviög. Verö á laxv.kvóti GraBnl./Fær. hámark Holræsi v. Ægissíöu, Rvfk Verö á laxv.kvóti Grænl./Fær. lágmark I 828 1605 1600 1500 ■■438 | 405,5 1400 Hve margar milljónir? ÞJÓÐVIUINN / ÓHT 200 þús. tonna álvet Heildarskuld fsl. erfendis Fjárfög 1990 Veröm. útfl. fiskafuröa 1989 Tryggingar 334 skipa 1989 Verömæti afla upp úr sjó 1989 Eign landsm. f sparísk. rfkissj. Afb. & vext. af erl. lán. 1990 Verömæti ftota Flugleiöa Jólasalan f versl. 1989 Hagnaöur ISAL 1989 Viöskiptahalli v. útl. 1989 Jákv. vöruskiptajöfn. 1989 Lánv. Atv.trygg.sjóðs 1989 Fjárlagahalli 1990 Jarögöng undir Kópavog Viögerö Þjóöleikhúss Skuldir Stöövar 2 I 200 1150 I 95,2 Hve margir milljarðar? ÞJÓOVUINN/ÓHT Einu alþjóðamálin sem duga eru tónlistin og stærðfræðin. Tákn þeirra skiija allar þjóðir og gildi þeirra er alls staðar eins. Hins vegar gengur afar misjafn- lega að festa sér jafnt tóndæmi sem talnadæmi í minni. Fjölmiðl- ar demba yfir fólk daglega úr talnatunnum. Erfiðlega gengur að finna raunverulegt samhengi og fá raunhæfan samanburð. Fjárhæð sem slegið var upp í gær kann aö vera mun lítilfjör- legri en sú sem leynist milli lína í dag. Þess vegna er hollt að staldra við og bera sumar þessar tölur ögn saman í ró og næði. Berum saman milljarða Skoðum nú til dæmis ýmsar tölur úr nýlegum fréttum sem hátt hefur borið. Skuldir Stöðvar 2 eru sagðar 1,2 milljarður. Með því að líta hér á súluritið „Hve margir milljarðar“ má sjá, að þetta er smáræði borið saman við aðrar milljarðatölur sem skotið hafa upp kollinum nýlega. Þrándur spáirí spilin í þessum fyrsta pistli ársins er við hæfi að slást í för með stjórnmálaforingjum og völvum, og spá í spilin fyrir árið. Þrándur er bjartsýnismegin á vogarskál spádómanna en herdeild hag- fræðinga, sem engin verðmæti þekkir önnur en þau sem mæld verða í einhverjum hraksmánar- legasta gjaldmiðli heimsins, sér að venju um svartsýnina. Fyrst af öllu virðist Þrándi ljóst að ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar muni lifa að minnsta kosti fyrst um sinn, jafnvel allt árið ef stjórnarandstaðan lofar, sem hún gerir að venju sinni. Þetta verður að vísu ekkert sæld- arlíf á köflum. Þó er bót í máli að allt mun fara saman, löngun ráð- herranna til að sitja, lempni verkalýðsforystu og atvinnurek- enda við að halda í henni lífinu, og þægilegt viðmót stjórnarand- stöðunnar. Stjórnarandstaðan, sem áfram situr á Kvennakaupþingi hægri- mennskunnar, mun aftur á móti eiga góða daga og baða sig í hug- myndaleysi Sjálfstæðisflokksins, athugunarleysi Kvennalistans og tilgangsleysi Frjálslyndra hægri manna. Þegar líða tekur á árið mun að vísu renna upp fyrir Álver af þeirri stærð sem nú er helst rætt um er dýrasta fyrirbæri sem íslendingar taka sér í munn, kostar um 200 milljarða, eða rúmlega tvöföld fjárlögin 1990. Ríkisrekstursreikningurinn fyrir þetta ár stendur nefnilega í kr. 95.231.513 á blöðunum hjá fjár- málaráðuneytinu. Heildarskuld íslendinga er- lendis nemur nú um 150 milljörðum, eða rúmlega tvö- földu verðmæti útfluttra fiskaf- urða í fyrra, 57,5 milljörðum króna. Athyglisvert er að það er næstum sama fjárhæð og flotinn er tryggður fyrir, 57 milljarðar. Þar er um að ræða alls 334 skip og báta. Jólasalan í verslunum 1989 er talin hafa numið um 13 milljörðum króna. íslendingar hefðu næstum getað keypt allan flugflota Flugleiða, 7 þotur, fyrir þessa upphæð, en reyndar þurft að sleppa varahlutunum. Fjár- festing Flugleiða f þessu f heild nemur 16,7 milljörðum. ÍSAL hagnaðist árið 1989, í fyrsta sinn í langan tíma segja þeir, og nam gróðinn 7,6 stjórnarandstöðunni að hún á að vasast í pólitík rétt eins og stjórn- arliðið. í vetrarlok veldur þetta henni nokkurri undrun, skrekk í þingbyrjun næsta haust og endur- nýjuðum móðgunum undir jól. í millitíðinni verða aftur á móti sveitarstjórnarkosningar. Þá verður nú margur standandi hissa, einkum þó í höfuðborg- inni. Á útmánuðum kemur í ljós að stjórnarandstaðan í höfu- ðstaðnum getur aðeins komið sér saman um eitt: að hún eigi ekki nógu margt sameiginlegt til að geta boðið fram saman gegn Da- víð og vinum hans. Hún mun heldur ekki geta ákveðið fyrr en á síðustu stundu í hve mörgum hollum hún á að vera í kosninga- baráttunni. Fjöldi stjórnarand- stöðuframboða er í dálítilli þoku ennþá en flest bendir til að þau verði á bilinu sjö til tíu. Á síðustu stundu kemst stjórnarandstaðan að þeirri niðurstöðu að hún verði því trúverðugri sem hún er sund- urlausari og málflutningur henn- ar ruglingslegri. Meðal annars þess vegna verður hún mjög undrandi yfir úrslitum kosning- anna, og ekki orð um það meir. Ríkisstjórnin glímir áfram við efnahagsvandann sem breiðfylk- ing hagfræðinga hefur fundið upp. Þjóðin mun að vísu verða meðal þeirra ríkustu í heimi, hér- lendir sjómenn verða enn einu sinni aflakóngar veraldarinnar, fiskvinnslufólk heldur áfram að búa til dýrðlegar máltíðir fyrir auðuga sælkera vesturlanda, og næstum allir sem vettlingi valda munu vinna lengstu vinnuviku allra vesturlandabúa, en allt verða það jafn óskiljanleg auka- atriði fyrir sérfræðinga í efna- hagsmálum og hingað til. milljörðum. Til samanburðar má nefna að hagnaður Grundartang- averksmiðjunnar, þ.e. íslenska járnblendifélagsins, nam um hálfum milljarði á sama tíma. Ráðamenn þjóðarinnar hafa verið roggnir með þá staðreynd, að vöruskiptajöfnuður okkar á sl. ári var jákvæður um 6,8 milljarða. Hins vegar var við- skiptahallinn í heild 7,6 Smátt og smátt rennur upp fyrir þjóðinni að hún kann að eiga skilda skárri ríkisstjórn, en þess háttar stjórn stendur því miður ekki til boða fyrst um sinn, og alls ekki á meðan Sjálfstæðis- flokkurinn lýtur forystu þeirra sem eru jafn illa að sér í þjóðar- bókhaldinu og raun ber vitni. Kvennalistinn mun aftur á móti ná sæmilegum sáttum við al- menna skynsemi, og sambúðin við Sjálfstæðisflokkinn fer þar af leiðandi hríðversnandi þegar líð- ur á næsta vetur. Þá hefst létt og saklaust daður milli núverandi stjórnarflokka og Kvennalistans, sem vel getur endað með því að eftir næstu þingkosningar verði margur ekki bara standandi hissa, heldur beinlínis forviða. Hjá stjórnarflokkunum verður flest við það sama. Framsóknar- mönnum mun halda áfram að þykja varaformaðurinn traustari en formaðurinn. f Alþýðubanda- laginu mun hins vegar bara sumum þykja varaformaðurinn traustari en formaðurinn og í Al- þýðuflokknum verður varafor- maðurinn fyrst um sinn aukaatr- iði, hvað sem síðar kann að verða, þegar öllum markverðum afmælisboðum er lokið á þeim bæ. Samtökum um jafnrétti og félagshyggju vegnar vel, og hafa enga þörf fyrir varaformenn. Framtíð Borgaraflokksins er óljósari, en þar sem spá Þrándar er á bjartsýnu nótunum verður það mál ekki rætt frekar. Af framanrituðu sést, að hin íslenska þjóð á gleðiríka daga framundan hvað sem hagspek- ingar Seðlabanka og Þjóðhags- stofnunar kunna að segja. Gleði- legt nýár! Þrándur. milljarðar, sem náttúrlega er öllu verra. Lánveitingar Atvinnu- tryggingasjóðs eru ekki langt frá þessari stærðargráðu, voru alls 6,4 milljarður. Metum svo milljónir Hæsta milljónatalan sem við setjum hér á samanburðarmynd- ina „Hve margar milljónir" er til- boð Landsbankans í 52% hlut SÍS í Samvinnubankanum í haust: 828 milljónir. Síðan lækk- aði tilboðið reyndar um sem svar- ar vegaframkvæmdunum á Arn- arneshæð, en þær eru taldar kosta um 225 milljónir. Þjóðarþotan svokallaða, sem ríkissjóður seldi Arngrími Jó- hannssyni og félögum í Atlanta- flugfélaginu um daginn, var metin á 438 milljónir. Hagnaður Járnblendifélagsins 1989, 500 milljónir, hefði dugað fyrir henni, en hins vegar ekki skatt- greiðslur ÍSAL 1989, sem námu um 400 milljónum. Hér skulum við nefna þrenns konar dæmi sem virðast kosta eitthvað svipað: 1. Dýpkun Sandgerðishafnar næstu3 árin er áætluð kosta 210 milljónir. 2. Ríkisábyrgð á launum vegna gjaldþrotafyrirtækja 1989 nemur um 200 milljónum. 3. Viðgerðakostnaður við Bessastaðastofu siglir hraðbyri í 200 milljónir, sem er ferföld upp- hafleg áætlun. Allar endurbætur á Bessastöðum voru upphaflega áætlaðar mundu kosta um 300 milljónir, og ef allt fjórfaldast þarf að snara fram rúmum milljarði í þetta. Við getum nefnt fleiri sýnis- horn af sambærilegum fjárhæð- um. Til dæmis samþykkti Borg- arráð Reykjavíkur að greiða sömu fjárhæð fyrir Vatnsenda- land og Flugleiðir vilja verja til endurbóta á Hótel Loftleiðum: 170 milljónum króna. Og enn birtast samstæður: Hlutabréfasala í einn dag, 29. desember síðastliðinn, nam hvorki meira né minna en 90 milljónum króna, en það er ná- kvæmlega sama fjárhæð og hönn- unarkostnaður við endurbætur á Þjóðleikhúsinu er sagður vera. Nokkrir ofurhugar vilja að keyptur verði upp allur laxveiði- kvóti Grænlendinga og Færey- inga í Norður-Atlantshafi. Meiningin er sú að þá veiðist bet- ur í íslenskum stangveiðiám á næstunni. Fyrir þetta eru menn reiðubúnir að punga út sem svar- ar einu holræsi við Ægissíðu, nánar tiltekið 70 milljónum. En það er hámark. Laxveiðimenn- irnir telja sig geta náð kvóta grannþjóðanna fyrir 37 milljónir ef allt gengur að óskum. Til hvers? Hvers vegna eru menn að flækja ólíkum fjárhæðum fyrir óskyld verkefni saman í eina bendu eins og hér er gert? Fyrst og fremst er það nú gert til gam- ans. En hugsanlega finnst ein- hverjum gagn að því að hugleiða, að blessaður æðarfuglinn gefur af sér meira á einu ári en sem svarar öllu þrotabúi Reiðhallarinnar hf., meira en hönnunarkostnaði vegna viðgerða Þjóðleikhúss. Gjaldeyristekjur af sölu æðar- dúns 1989 voru hvorki meira né minna en 100 milljónir, og þenn- an búskap er enn hægt að stór- efla. Hugsanlega að gera vöruna verðmætari. Og ef til vill er rétt að huga að því, þegar mönnum ofbýður að greiða 13 milljarða í vexti af er- lendum lánum þjóðarinnar 1990, að þetta er nákvæmlega sama upphæð og fróðir menn áætla að þjóðin hafi eytt í jólagjafir 1989. Gísli Guðmundsson leiðsögumaður og kennari frá Tröð verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. janú- ar kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Landgræðslusjóð. Anna M. Guðjónsdóttir Jón H. Gíslason Brandur Gíslason Guðmundur T. Gíslason Atli Gíslason Ásmundur Gíslason Guðrún Gísladóttir Valgerður Guðmundsdóttir Margrét Sigurðardóttir Marta Hauksdóttir Jóhanna Vigfúsdóttir Unnur Jónsdóttir Rannveig Hallvarðsdóttir Laugardagur 6. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN -• SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.