Þjóðviljinn - 06.01.1990, Page 7
ERLENDAR FRETTIR
Bandaríkjamenn vita af langri
reynslu og flytja boð þeirra greitt
og milliliðalaust inn í valdamið-
stöðvarnar hérlendis.
Bandarísk stjórnvöld hafa
lengi ætlað að tryggja ísland sem
útvarðstöð í hernaðarkerfi eigin
lands. Meira að segja færsla á
bandarískum fjárveitingum til
hernaðarframkvæmda hér á landi
undir liðnum CONUS (Contin-
ental US, þ.e. meginland Amer-
íku) ber þessu órækt vitni. Það er
ekki seinna vænna fyrir íslend-
inga að gera það upp við sig,
hvort þeir ætla landi sínu að vera
áfram sú herstöð, sem bandarísk
stjórnvöld miða við í langtíma-
áætlunum Pentagon.
Alþýðubandalagið og
íslensk flokkaskipun
Talsverð umræða fer nú fram
um landslag stjórnmálanna hér-
lendis og hlutverk einstakr-
stjórnmálaflokka. Fyrir ári boð-
uðu formenn Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags til sérstakrar
fundaherferðar undir heitinu „Á
rauðu ljósi" til þess m.a. að ræða
um samstarf og hugsanlega sam-
einingu A-flokkanna. Fáir höfðu
heyrt um þetta tiltæki Jóns og
Ólafs fyrirfram og fundaherferð-
in króknaði á miðri leið í þorra-
byrjun.
Nú er það vissulega engin ný
bóla að rætt sé um þörfina á að
þjappa fólki saman á vinstri kanti
í íslenskum stjórnmálum: Sundr-
ung félagshyggjufólks geri ekki
annað en að skemmta skrattan-
um, í þessu tilviki Sjálfstæðis-
flokknum. Þessi misserin starfar
sérstakur félagsskapur í kanti Al-
þýðubandalagsins og kallar sig
Birtingu. Það góða fólk hefur fest
nokkra trú á þorraboðskap for-
mannanna og telur sig sjá ljós í
Alþýðuflokknum og sér í hill-
ingum stóran „Jafnaðarmanna-
flokk íslands".
Mér hefur stundum orðið á að
inna eftir málefnalegri uppskrift
fyrir þennan draumaflokk, en
fátt orðið um svör. Eftir þátttöku
í stjórnmálum um nokkra ára-
tugi, þar á meðal í kallfæri við
gilda Alþýðuflokksmenn í
tveimur ríkisstjórnum hef ég ekki
fundið þann snertiflöt við Al-
þýðuflokkinn að freisti til sam-
starfs við hann umfram aðra
flokka, hvað þá að samruni geti
skilað öðru en andhverfu sinni:
málefnalegri sundrungu - og er
þá verr af stað farið en heima set-
ið.
Stjórnmál eiga að snúast um
málefni og flokkarnir hafa sem
slíkir mikilvægu hlutverki að
gegna í samfélaginu. Ég tel margt
af því fólki sem styður nú
Kvennalistann og Framsóknarf-
lokkinn standa mér málefnalega
nær en oddvita Alþýðuflokksins
og hef ég þó engan sérstakan ím-
ugust á þeim. Burtséð frá slíkum
venslum tel ég að Alþýðubanda-
lagið hafi sem flokkur enn hlut-
verki að gegna. í þessari grein hef
ég vakið máls á nokkrum stór-
málum, sem Alþýðubandalags-
menn hafa látið sig skipta og þar
sem sérstaða flokksins hefur ver-
ið skýr og ótvíræð.
Landsmönnum öllum óska ég
farsældar á nýbyrjuðu ári og
þakka margháttuð samskipti og
stuðning á liðinni tíð.
Neskaupstað, á nýársdag 1989
Hjörleifur Guttormsson
Grein þessi birtist í Austurlandi 4.
janúar sl. og er prentuð hér lítil-
lega stytt af höfundi.
Petre Roman, forsœtisráðherra Rúmeníu
Aristó- og tæknikrati
úr nómenklatúm
Eftir byltinguna í Rúmeníu
beinist athyglin að nýjum
ráðamönnum þarlcndis. Einn
helstu manna í ríkisstjórninni
nýju er Petre Roman, forsætis-
ráðherra.
Á austurevrópskan mæli-
kvarða síðustu áratuga er hann
hástéttarmaður. Hann er af gyð-
ingaættum frá Transsylvaníu.
Faðir hans hét í raun Ernst Neu-
lander og var af gamalli rabbína-
ætt. Hann gekk ungur til liðs við
kommúnista og tók sér þá nafnið
Valter Roman. Kommúnista-
flokkur Rúmeníu var þá örsmár
og margir félaga í honum gyðing-
aættar.
Valter Roman barðist í
spænska borgarastríðinu á fjórða
áratugnum, var í alþjóðaherdeild
þeirri frægri er kommúnistar áttu
mestan hlut að og stríddi með
spænska stjórnarhernum gegn
Franco. Á árum heimsstyrjaldar-
innar síðari var Valter Roman í
Moskvu og starfaði þar hjá Kom-
intern. Þar gekk hann að eiga
spænska konu, Hortensiu að
nafni. Börn þeirra urðu tvö,
Petre og dóttir sem Carmen •
heitir.
Er sovéski herinn hafði rekið
þann þýska frá Rúmeníu sneri
Valter Roman heim til föður-
Sonardóttir
Eisenhowers gift-
ist Sovétmanni
Susan Eisenhower, sonardóttir
Dwights Eisenhower Bandaríkj-
aforseta, hefur ákveðið að ganga
í heilagt hjónaband með Roald
Sagdeév, sovéskum geimvísinda-
manni sem er einn æðstu manna
við geimrannsóknastofnun So-
vétríkjanna. Sagdeév er jafn-
framt þingmaður á þjóðfulltrúa-
þingi, var náinn vinur Andrejs
Sakharovs, sem er nýlátinn, og
starfaði um skeið sem ráðgjafi
Míkhafls Gorbatsjovs.
Susan Eisenhower er forstjóri
fyrirtækis að nafni Eisenhower
Group, Inc., sem annast þjón-
ustu fyrir bandarísk stórfyrirtæki
er skipta við Sovétmenn. Hjóna-
efnin eiga samtals fimm börn úr
fyrri hjónaböndum. Þau hafa
ákveðið að búa til skiptis í Mos-
kvu og Washington.
Kontrar reyna að
hindra kosningar
Tveir opinberir starfsmenn
voru drepnir og fimm særðir í
fyrirsát, sem þeim var gerð við
San Rafael del Norte, nyrst í Ník-
aragva, í gær. Voru liðsmenn
kontra þar að verki. Talsmenn
Níkaragvastjórnar segja að und-
anfarið hafi allmargir kontrar
komið inn í landið frá Hondúras,
þeirra erinda að trufla undirbún-
inginn fyrir kosningarnar, sem
fram eiga að fara þarlendis 15.
febr. Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakannana undanfarið er
líklegt að sandinistar vinni þær.
Rúmenum gefnir
smokkar
Breska fyrirtækið Durex, sem
framleiðir smokka, hefur fært
Petre Roman - fæddur með silfur-
skeið Flokksins í munninum.
landsins og komst fljótt til met-
orða í skjóli flokks síns, sem fljót-
lega varð alráður. Sonur hans
Petre fæddist 1946.
Valter Roman var skamma
hríð yfirmaður herráðs rúmenska
hersins og ráðherra, en var svipt-
ur embættum er grunur féll á
hann um títóisma. Hann slapp þó
fremur vel frá því og ekki virðist
það hafa sakað feril sonarins.
rúmensku þjóðinni að gjöf
40,000 eintök af þeirri vöru.
Stjórn sú, sem við tók er Ce-
ausescu var steypt, lét verða eitt
sitt fyrsta verk að afnema bann
það við getnaðarvörnum, er Ce-
ausescu hafði lagt og hafði verið í
gildi í yfir 20 ár. Ceausescufjöl-
skyldan er þó sjálf sögð hafa ver-
ið vel birg af þessari vöru, eins og
öðru sem almenning skorti.
300 látnir eftir
járnbrautarslys
Yfir 300 manns létust í versta
járnbrautarslysi hingað til í sögu
Pakistans, er varð á miðviku-
dagskvöld er farþegalest ók á
fullri ferð á kyrrstæða vöruflutn-
ingalest. Gerðist þetta skammt
frá borginni Sukkur í Indusdal.
Mörg hundruð manna slösuðust
og er mörgum þeirra ekki hugað
líf.
Þýskir þjóð-
flutningar
Um 721,000 manns fluttust á
nýliðnu ári . frá fyrrverandi
austantjaldslöndum til Vestur-
Þýskalands, eða næstum þrefalt
fleiri en árið áður. Flestir komu
frá Austur-Þýskalandi, um
344,000 eða næstum nífalt fleiri
en 1988, um 250,000 frá Póllandi,
98,000 frá Sovétríkjunum, yfir
23,000 frá Rúmeníu auk þess sem
allmargir komu frá Tékkóslóvak-
íu, Ungverjal_ _góslavíu.
Allt þetta fólk fékk landvistar-
leyfi og borgararétt í Vestur-
Þýskalandi á þeim forsendum að
það væri þýskrar ættar. Margir
telja fulla þörf á þessari viðbót,
enda flestir innflytjendanna ung-
ir og tiltölulega vel menntaðir en í
Vestur-Þýskalandi fjölgar öldr-
uðu fólki sífellt í hlutfalli við ungt
fólk. Mesta vandamálið viðvíkj-
andi innflutningi þessum er hús-
næðisskortur.
1953 var Valter Roman tekinn í
fulla náð á ný og þá settur yfir
bókaútgáfu á vegum flokksins.
Petre Roman gekk í bestu
skóla heimafyrir og nam síðan í
Touiouseháskóla í Frakklandi.
Hann hefur nú prófessorsstöðu í
verkfræði við tækniháskólann í
Búkarest. Þar í háskólanum kvað
hann hafa komist í kunningsskap
við Ion Iliescu, sem nú er orðinn
forseti Rúmeníu.
Fyrir nokkrum árum stofnaði
maður að nafni Mihai Dragan-
escu, stærð- og félagsfræðingur
og meðlimur í rúmensku aka-
demíunni, óformlegan umræðu-
hóp til að fjalla um framfarir í
tækni og vísindum. Þeir Iliescu og
Roman voru báðir í hópi þessum,
sem samanstóð af mönnum með
tæknikratísk viðhorf. Á fundum
hópsins sýndi Roman aukheldur
áhuga á umhverfisvernd. Hann
mun hafa verið einn stofnenda
Þjóðbjörgunarráðsins, sem tókst
PRÓFÍLL
á hendur ríkisvaldið í bylting-
unni, en úr þeim hópi var ríkis-
stjórn mynduð. Frá því í bylting-
unni hafa þeir Iliescu og Roman
Dauðadómur
fyrir klám
í Quanzhou, borg í kínverska
fylkinu Fujian, hefur maður ver-
ið dæmdur til dauða eftir að hafa
verið sekur fundinn um að spila á
spil með myndum af nöktum
kvenmönnum, auk þess sem á
hann hafði sannast framleiðsla á
almanökum með samskonar
myndskreytingu. Dómurinn er
þó skilborðsbundinn í tvö ár,
þannig að sökudólgurinn, sem
Wang Jinyan heitir, hefur mögu-
leika á að sleppa með skrekkinn
ef hann bætir ráð sitt.
GorbatsjovtilL.it-
háen á miðviku-
dag
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétríkj-
aforseti fer til Vilnu, höfuðborg-
ar Litháens, á miðvikudaginn
kemur til viðræðna við þarlenda
ráðamenn. Aðalumræðuefnið
verður sú ákvörðun Kommún-
istaflokks Litháens nýverið að
ætíð verið saman, er þeir hafa
komið fram opinberlega.
Kunningjar Romans segja
hann hafa á sér hástéttarbrag.
Hann sé siðfágaður og kurteis, en
haldi mönnum í vissri fjarlægð.
Auk móðurmálsins talar hann
frönsku, spænsku og rússnesku
reiprennandi. Kona hans er Mio-
ara Georgescu, dóttir fyrrum
ambassadors Rúmeníu í Sviss.
Mágur hans er kvæntur dóttur
Cornelius Manescu, fyrrum utan-
ríkisráðherra sem í fáeina daga
var oddviti nýju forustunnar. Á
yngri árum kvað Roman hafa
verið allnáinn vinur Zoiu Ce-
ausescu, dóttur einræðisherrans,
sem lifði eins og prinsessa meðan
hans naut við en er nú í varðhaldi.
Bandaríska blaðið New York
Times hefur eftir rúmenskum
heimildamönnum að nýja forust-
an sé öll úr nómenklatúru, yfir-
stétt kommúnistaflokksins. Ætla
má að það sem tengir félagana í
hópnum saman sé tæknikratísk
viðhorf, gagnrýnin afstaða
gagnvart Ceausescustjórninni
(sem flestir þeirra höfðu þó ekki
hátt um meðan einræðisherrann
var og hét) og að sumir þeirra
höfðu komist í ónáð hjá Ce-
ausescu eða áttu það yfir höfði
skilja við Kommúnistaflokk So-
vétríkjanna og verða óháður
flokkur. Það líta sovéskir ráða-
ntenn mjög alvarlegum augum.
Gorbatsjov hefur af þessu tilefni
frestað áður ákveðnum við-
ræðum við erlenda stjórnmála-
menn, og sýnir það hversu mikil-
vægt málið er að hans dómi.
Sakaruppgjöf
í Rúmeníu
Rúmeníustjórn hefur tilkynnt
sakaruppgjöf fyrir alla pólitíska
fanga þarlendis, svo og alla þá
fanga sem dæmdir hafa verið í allt
að þriggja ára fangelsi, að frá-
töldum þeim sem sitja inni fyrir
alvarlega glæpi eins og morð,
nauðganir, rán og mútur. Þjóð-
björgunarráðið, sem stendur á
bakvið stjórnina, hefur ennfrem-
ur lýst því yfir að saga kommún-
istaflokksins rúmenska sé öll og
að ráðsmenn muni bjóða sig fram
í kosningum, sem fram eiga að
fara í apríl n.k. Ekki eru allir
áhyggjulausir um hvernig það
muni ganga, þvi að Rúmenar
hafa sáralitla reynslu af lýðræði.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing um styrki
til leiklistarstarfsemi
í fjárlögum fyrir árið 1990 er gert ráð fyrir sérstakri fjár-
veitingu, sem ætluð er til styrktar leiklistarstarfsemi at-
vinnuleikhópa, er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu í fjár-
lögum.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af þessari
fjárveitingu. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir
25. janúar næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
29. desember 1989
Laugardagur 6. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7