Þjóðviljinn - 24.01.1990, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.01.1990, Síða 1
Miðvikudagur 24. janúar 1990 16. tölublað 55. árgangur Reykjavík A-flokkamir til í viðræður Stjórn ABR skiparþrjá menn til viðrœðna við aðra minnihlutaflokka um sameiginlegtframboð. Stefanía Traustadóttir: Viljum reyna tilþrautar hvortsamfylking allra minnihlutaflokkanna nœst. BirgirDýrfjörð: Opið prófkjör hornsteinninn. Borgarar hafna samfylkingu Afundi stjórnar ABR sl. mánu- dag var skipuð þriggja manna nefnd til þess að annast viðræður við fulltrúa annarra minnihluta- flokka í borgarstjórn Reykjavík- ur um hvort unnt verði að ná samstöðu þessara flokka í borgar- stjórn um sameiginleg málefni og framboðslista við borgarstjórn- arkosningarnar í vor. Það eru þau Arthúr Mortens, Stefanía Traustadóttir og Svavar Gestsson sem munu annast við- ræðurnar fyrir hönd stjórnar ABR, en í gær voru send erindi til hinna minnihlutaflokkanna um að þeir taki þátt í tilraun til að ná samstöðu og ræði við fulltrúa ABR um það hvort, og með hvaða hætti, það megi verða. Stefanía Traustadóttir formað- ur ABR sagði við Þjóðviljann í gær að ákveðið hefði verið að reyna til þrautar hvort samfylk- ing allra minnihlutaflokkanna í borgarstjórn náist, en í samþykkt félagsfundar ABR frá 17. janúar er því lýst yfir að ABR muni áfram vinna að því að sameina alla íhaldsandstæðinga fyrir borg- arstjórnarkosningarnar. Fyrir stjórnarfundi ABR á mánudag lá bréf frá Birgi Dýr- fjörð íormanni Fulltrúaráðs Al- þýðuflokksfélaganna í Reykja- vík, þar sem kynnt var niðurstaða fundar fulltrúaráðsins sl. laugar- dag. Par var samþykkt að heimila stjórn fulltrúaráðsins að vinna að samkomulagi milli Alþýðuflokks annars vegar og Alþýðubanda- lags, Borgaraflokks, Birtingar og óháðra kjósenda hinsvegar. í samþykkt fulltrúaráðs Al- þýðuflokksins eru tilgreindar fjórar forsendur fyrir slíku sam- eiginlegu framboði. f fyrsta lagi að opið prófkjör verði við val á frambjóðendum. í öðru lagi er samkomulag um flokkslega óháð borgarmálaráð. í þriðja lagi að samkomulag náist um verkefna- skrá en að borgarfulltrúar hafi frjálsa afstöðu til mála utan verk- efnaskrárinnar. Og í fjórða lagi að óháðum frambjóðendum sé boðin aðild með auglýsingu. „Opið prófkjör er undirstaðan ef það á að nálgast óháða kjós- endur,“ sagði Birgir Dýrfjörð við Þjóðviljann í gær og bætti því við að það skipti sig engu máli hvað- an þeir kæmu sem fólkið veldi til verka, ef þeir hinir sömu gætu komið í veg fyrir verk einsog t.d. lokun Fæðingarheimilisins. Stjórn kjördæmisráðs Borg- araflokksins í Reykjavík hafnaði á mánudagskvöldið öllum hug- myndum um samfylkingu með A- flokkunum og öðrum og ákvað að vinna að sjálfstæðu framboði í vor. Stjórn ABR hefur ákveðið að halda félagsfund miðvikudaginn 31. janúar og er stefnt að því að þá liggi fyrir hvort grundvöllur sé fyrir samfylkingu allra minni- hlutaflokkanna. Sá fundur mun svo væntanlega kveða upp úr um hvort ABR gengur til sameigin- legs framboðs með öðrum. Ingibjörg Hafstað starfsmaður Kvennalistans ítrekaði þá af- stöðu Kvennalistans í Þjóðviljan- um í gær, að yfirgnæfandi meiri- hluti Kvennalistans í Reykjavík væri andvígur hugmyndum um sameiginlegt framboð. Þá hefur Framsóknarflokkurinn tekið þá afstöðu að bjóða fram eigin lista og ekkert bendir til að breyting verði þar á. Málið virðist því snú- ast um það hvort ABR er tilbúið í sameiginlegt framboð með Al- þýðuflokknum, Birtingu og óháðum kjósendum, en það ætti að skýrast eftir félagsfundinn eftir viku. Ljóst er hinsvegar að kratar munu ekki hætta við að bjóða ó- flokksbundnum kjósendum aðild að framboðslista hver sem af- staða ABR verður, heldur munu efna til opi.ns prófkjörs með aðild óháðra frambjóðenda hafi þeir áhuga. -Sáf í nýju Ijósi. Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson á enborgarhliðið og rofinn Berlínarmúrinn í bakgrunni gæti Ólafur verið opnum umræðufundi Birtingar á Hótel Sögu í gærkvöld, þar sem að benda Jóni á svarið í Herald Tribune. reifuö var spurningin Kalda stríðið búið - hvað tekur við? Með Brand- Mynd: Jim Smart. Samningar Verða aldrei samþykktir Óánœgja í röðum Dagsbrúnar með tilvonandi samningsgerð. ÞórirKarl Jónasson: Samþykkjum aldrei tryggingu lágmarks kaupmáttar. Enn fundað í Karphúsi cssir samningar fara aldrei í gegn hjá okkur, enda er bara verið að verðtryggja botninn á kaupmættinum. Þetta endar með því að fólkið í félögunum tekur völdin í sinar hendur,“ sagði Þór- ir Karl Jónasson í samtali við Þjóðvijjann, en hann á sæti i trún- aðarráði Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Nú þegar samningar ASÍ og VSÍ virðast vera í sjónmáli er helsta hindrunin að fá samning- ana samþykkta í verkalýðsfélög- unum. Óánægjuraddir hafa heyrst í einstökum félögum, en þær virðast vera hvað mestar í röðum Dagsbrúnarmanna. Að sögn Þóris Karls eru margir í trúnaðarráðinu ósáttir við þann ramma sem þegar hefur verið settur „og verður verkalýðsfor- ystan dregin til ábyrgðar fyrir þessa samninga.“ í gær héldu fundir áfram í húsi sáttasemjara þarsem unnið var í hópum að ramma samningsgerð- ar. Talsverð vinna erennóunnin, en möguleiki er á að henni verði lokið fyrir helgi. Fyrir fundina í gær héldu Ásmundur Stefánsson og Guðmundur J. Guðmundsson á fund Ögmundar Jónassonar formanns BSRB og kynntu hon- um stöðuna, en samtökin hafa samráð um leiðir í samningum. -þóm Háhyrningarnir Innflutningur kærður Grænfriðungar og náttúru- verndarsamtök sem kenna sig við Hróa hött, íhuga að kæra Cotc d ‘Azur safnið í Nice, sem flutti ný- iega inn tvo háhyrninga frá Is- landi. Samtök þessi telja innfluttn- inginn á háhyrningunum brot á samningum Evrópubandalags- ríkjanna. Samkvæmt þeim þarf að uppfylla mjög ströng skilyrði um vísindalegar rannsóknir til þess að fá að flytja inn sjávar- spendýr til Frakklands. Náttúruverndarsamtökin hafa kannað það hjá vísindaráði EB hvort leitað hafi verið eftir heim- ild til innflutnings háhyrninganna frá íslandi en þar kannast enginn við þennan innflutning.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.