Þjóðviljinn - 24.01.1990, Page 2
FRÉTTIR
Aldraðir
Vistunarþörfin metin
Heilbrigðisráðherra kynnir nýjar reglugerðir um málefni aldraðra
Guðrnundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra hefur gefið
út fjórar reglugerðir vegna nýrra
laga um málefni aldraðra sem
gengu í gildi hinn 1. janúar síð-
astliðinn. Reglugerðirnar eru um
Framkvæmdasjóð aldraðra, vi-
stunarmat, dagvist aldraðra og
stofnanaþjónustu fyrir aldraða.
Merkust reglugerðanna nýju,
að áliti heilbrigðisráðherra, er
sú sem fjallar um vistunarmat.
Settir verða á fót sérstakir þjón-
ustuhópar aldraðra við heilsu-
gæslustöðvar úti á landi, en mats-
hópur í Reykjavík. í hópum þess-
um verður fagfólk í heilbrigðis-
og félagslegri þjónustu á hverjum
stað. Hlutverk þeirra er að meta
vistunarþörf gamla fólksins til að
tryggja það að þeir fái notið þjón-
ustu sem mest þurfa á henni að
halda. Fram að þessu hefur ekk-
ert samræmt mat á vistunarþörf
verið til.
Að sögn Páls Sigurðssonar,
ráðuneytisstjóra í heilbrigðis-
ráðuneytinu, ríkir almenn
ánægja meðal starfsfólks stofn-
ana fýrir aldraða með nýju regl-
urnar. Matshóparnir munu taka
til starfa á næstu vikum.
Nýju reglurnar um vistunar-
mat munu auðvelda mjög yfirsýn
yfir raunverulega biðlista á þjón-
ustustofnunum aldraðra. Jafn-
framt verður virkt eftirlit með því
að stofnanirnar fari eftir þeim
þegar nýir vistmenn fá þar inni.
Framkvæmdasjóður aldraðra
hefur starfað frá árinu 1981.
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum var
1982 og hefur nú alls verið úthlut-
að úr honum um tveimur miljörð-
um króna til framkvæmda fyrir
aldraða. Hlutverk sjóðsins
breytist með tilkomu nýju lag-
anna og meðal nýmæla í reglu-
gerðinni má nefna að sjóðurinn
getur nú stutt sveitarfélög til að
koma á fót heimaþjónustu fyrir
aldraða. Þá er sjóðnum ekki
heimilt lengur að styrkja bygg-
ingu íbúða fyrir aldraða nema
ákveðið sé í upphafi að þar verði
rekið þjónustuhúsnæði.
Reglugerðin um dagvist aldr-
aðra kveður á um að dagvistar-
gestir taki þátt í greiðslu dagvist-
arkostnaðarins. Gjaldið er 500
kr. á dag en skal þó aldrei vera
Kvikmyndavorið
10 ára
íslenskir kvikmyndagerðarmenn
halda upp á það að áratugur er
liðinn frá frumsýningu fyrstu ís-
lensku kvikmyndarinnar í hinu
svokallaða kvikmyndavori á
sama tíma og nýjum áratug er
heilsað. Föstudaginn 26. janúar
verður haldin ráðstefna í Borg-
artúni 6 og boðið til hennar þeim
sem láta sig kvikmyndagerð
varða, s.s. menntamálaráðherra,
fjárveitinganefnd Alþingis, út-
hlutunarnefnd kvikmyndasjóðs,
stjórn kvikmyndasjóðs, kvik-
myndaleikurum o.fl. sem unnið
hafa við kvikmyndir. Markmið
ráðstefnunnar er að árétta kröfur
kvikmyndagerðarmanna um
stórátak í kvikmyndamálum fyrir
þann áratug sem er að hefjast.
Ráðstefnan hefst kl. 17.
Sögur Halldórs
Stefánssonar
Halldór Guðmundsson mun tala
um sögur Halldórs Stefánssonar
á fundi hjá Félagi íslenskra fræða
í Skólabæ í kvöld kl. 20.30.
Dögg Pálsdóttir lögfræðingur, Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri
og Hrafn Pálsson deildarstjóri kynntu nýjar reglugerðir um málefni aldraðra í gær. Mynd: Kristinn.
hærra en 10.853 kr. á mánuði,
eða sem nemur grunnlífeyri al-
mannatrygginga, ef dvalargestur-
inn dvelur á stofnuninni hvern
virkan dag.
Með reglugerð þessari er ætl-
unin að leiðrétta það misræmi að
þeir sem búa í íbúðum fyrir aldr-
aða sem tengjast dagvist hafa
þurft að borga að fullu kostnað
vegna þjónustu og matar sem
þeir fá. Dagvistargestir hafa hins
vegar ekkert þurft að borga.
I reglugerð um stofnanaþjón-
ustu fyrir aldraða er leiðrétt mis-
ræmi í þátttöku aldraðra í
greiðslu fyrir dvöl í þjónustu-
húsnæði annars vegar, og í hjúkr-
unarrými hins vegar. Einstak-
lingur í þjónustuhúsnæði hefur
fram til þessa tekið þátt í dvalar-
kostnaði sínum ef hann hefur haft
tekjur umfram svokallað frí-
tekjumark. Þegar sami einstak-
lingur fluttist síðan yfir í hjúkrun-
ardeild, greiddu sjúkratryggingar
alfarið dvalarkostnaðinn. Á því
verður nú breyting. Þá munu þeir
sem fara beint úr heimahúsi inn á
hjúkrunardeild taka þátt í kostn-
aðinum um leið og bætur al-
mannatrygginga falla niður.
Greiðslubyrði vistmanns verð-
ur aldrei meiri en tæpt 61 þúsund,
eða sem samsvarar kostnaði
mánaðardvalar í þjónustuhús-
næði. Einstaklingur sem býr í
þjónustuhúsnæði og hefur eigin
tekjur umfram bætur almanna-
trygginga heldur þó eftir 15.770
krónum, en vistmaður á hjúkrun-
ardeild 13.200 krónum. -gb
ísafjörður
Rækjuskel til fiskeldís
Fjórar rækjuverksmiðjur við
Isafjarðardjúp hafa tekið
höndum saman með Fiskimjöl og
Lýsi í Grindavík um vinnslu á
rækjuskel sem hingað til hefur
verið fleygt. Afurðina á síðan að
selja fóðurstöðvum í fiskeldi sem
þurfa á rauða litnum að halda til
fóðurframleiðslu fyrir lax.
Að sögn Gunnars Þórðarsonar
framkvæmdastjóra eiga rækju-
verksmiðjurnar hver sín 10% í
fyrirtækinu á móti 60% h'lut
Grindvíkinga sem leggja til kunn-
áttu og markað en verksmiðjurn-
ar hráefnið. Talið er nærri lagi að
á ársgrundvelli geti það numið
allt að 5 þúsund tonnum. Fyrir
kflóið af rækjuskel fá verksmiðj-
umar um 15 aura. Búið er að fá
lóð undir starfsemina við Sunda-
höfn og skammt í það að verks-
miðjuhúsið, sem reist verður úr
stálgrind, verði tilbúið en hluti
þeirra tækja sem þarf til fram-
leiðslunnar eru komin vestur.
Engin reykmengun mun verða
frá verksmiðjunni en við vinnslu
er mjölið gufuþurrkað og gufan
kæld með sjó. Þá er talið að við
vinnsluna á veturna muni ekki
vinna nema tveir menn og kann-
ski helmingi fleiri á sumrin.
„Það er búið að tala lengi og
mikið um þessa vinnslu á rækju-
skel og því vorum við ekki lengi
að samþykkja þetta. Fyrir utan
hvað fjörurnar hérna í kringum
rækjuverksmiðjurnar verða mun
hreinlegri á að líta þegar hætt
verður að kasta skelinni eins og
hverjum öðrum úrgangi. Síðan er
það spurning hvort ekki verður
hægt að nýta þann hagnað sem af
þessu verður til að kaupa skip,“
sagði Gunnar Þórðarson.
-grh
Ómladí-Ómlada
Þeir Ómar Ragnarsson og Laddi (Þórhallur Sigurðsson) munu vera
með skemmtidagskrá í Súlnasal Hótel Sögu á laugardagskvöldum sem
þeir kalla Ómladí-Ómlada, Skemmtisigling á þurru landi. Skútan
verður sjósett nk. laugardagskvöld, 27. janúar og er stefnan tekin á
stanslaust fjör og haldið með gesti rakleitt suður til Horrimolinos.
Meðal farþega eru gleðimennirnir Eddi og Elli, Leifur óheppni,
þokkadísin Elsa Lund, Marteinn Mosdal, pokapresturinn fjölþreifni,
Magnús og Mundi, HLÓ flokkurinn og síðast en ekki síst maga-
dansmær sem iðar í undurfögru skinninu. Þegar á leiðarenda er komið
leika Ragnar Bjarnason og hljómsveitin Einsdæmi fyrir dansi fram á
rauða nótt. Miðaverð (matur innifalinn) er kr. 3900. Gestum utan af
landi er boðið upp á sérstaka helgarpakka með ferðum og gistingu í
samvinnu við Flugleiðir og Arnarflug. Upplýsingar í síma 91-29900.
5 menn til
hjálparstarfa
5 fulltrúar á vegum Rauða kross
íslands fóru til hjálparstarfa í
Asíu og Afríku í byrjun janúar.
Elín S. Guðmundsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og Kjartan
Magnússon skurðlæknir fóru til
Thailands til að starfa á sjúkra-
húsi Alþjóðaráðs Rauða krossins
í flóttamannabúðunum Khao-I-
Dang við Iandamæri Kambódíu.
Ellen Þórarinsdóttir hjúkrunar-
fræðingur fór til Yerevan í Arm-
eníu en þar mun hún starfa í 4
mánuði við endurhæfingarstöð
fyrir mænuskaddað fólk. Jón
Karlsson hjúkrunarfræðingur fór
til Afganistan til 6 mánaða starfa
við heilsugæslu í Herat í vesturh-
luta landsins sem skæruliðar hafa
að hluta til á valdi sínu og Magnús
Hallgrímsson verkfræðingur er
nýfarinn til Eþíópíu þar sem hann
mun sinna eftirliti með dreifingu
matvæla og annarra hjálpargagna
í norðurhluta landsins. Áuk þess-
ara fimm er Lilja Steingrímsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur við störf á
sjúkrahúsi Alþjóða Rauða kross-
ins í Quetta í Pakistan, en þar er
hlynnt að særðum flóttamönnum
frá Afganistan.
Vertíðin
Fer rólega
af stað
Haugabrim og land-
lega í Grindavík. Fáir
bátar byrjaðir í Þor-
lákshöfn. Lítið að
hafa í netin hjá Ólafs-
víkurbátum en
þokkalegt á línu
Bátavertíðin fyrir sunnan og
vestan fer heldur rólega af stað og
er það aðallega vegna ótíðar. Þeg-
ar gefið hefur á sjó hefur afli víð-
ast hvar verið þokkalegur bæði í
net og á línu.
Landlega var hjá Grindavík-
urbátum í fyrradag en þar úti fyrir
var haugabrim og leiðindasjór.
Þar eru aðeins fimm bátar byrj-
aðir á netum og hefur ufsi verið
aðaluppistaðan í afla þeirra eins
og venjulega er á þessum árs-
tíma. Áfli þeirra hefur þó verið
all þolanlegur í þeim róðrum þeg-
ar gefið hefur en þorskurinn fer
ekki að gefa sig í netin fyrr en
með hækkandi sól á miðum bát-
anna.
Þorlákshafnarbátar reru í gær
en þar eru aðeins fimm bátar
byrjaðir á netum og var ágætis
kropp á hjá þeim fyrir austan
Eyjar. Þá eru draganótabátar
ekki enn byrjaðir. Ennfremur
hefur verið afar tregt á línu en að
sögn Þórðar Eiríkssonar á hafn-
arvigtinni hefur ufsinn verið
nokkuð góður það sem af er og
hið sama má segja um það litla
sem línubátar hafa fengið af
þorski.
„Annars finnst manni menn
vera heldur svartsýnir í byrjun
vertíðar og mér sýnist aðalhugs-
unin vera hjá mörgum að best sé
að hætta þessum barningi og selja
í staðinn báta og kvóta. Það er
síðan spurning hvort menn gera
alvöru úr þessu eða ekki,“ sagði
Þórður Eiríksson á hafnarvigt-
inni í Þorlákshöfn.
í Ólafsvík er vertíðin ekki haf-
in á fullum krafti fremur á hinum
vertíðarstöðunum. Afli netabáta
hefur ekki verið neitt sérstakur
en verið þokkalegur hjá línubát-
um og virðist sem þorskurinn sé
sæmilega góður sem veiðst hefur.
Svipaður fjöldi af heimabátum er
gerður út á vertíðinni og var í
fyrra en síðan veltur það á því
hvort uppgrip verða í Breiðafirð-
inum að bátar frá Norðurlandi
láti sjá sig á miðunum eins og svo
oft áður. -grh
Lyfjanotkun -
ofnotkun
Félagið Geðhjálp stendur fyrir
fyrirlestri á morgun, fimmtudag-
inn 25. janúar. Guðjón Magnús-
son aðstoðarlandlæknir mun
flytja fyrirlestur sem hann kallar
Lyfjanotkun-ofnotkun. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í
kennslustofu á 3. hæð Geð-
deildar Landspítalans og er að-
gangur ókeypis og allir velkomn-
Þjónustumið-
stöð aldraðra
Ný þjónustumiðstöð aldraðra
verður opnuð í dag að Afla-
granda 40 í vesturbæ Reykjavík-
ur. Frá kl. 17-19 í dag verður opið
hús fyrir eldri borgara í Vestur-
bænum að þessu tilefni.
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. janúar 1990