Þjóðviljinn - 24.01.1990, Qupperneq 5
VIÐHORF
Einn lista gegn íhaldinu
Guðrún Ágústsdóttir skrifar
Mig hefur lengi dreymt um að
vinstra fólk í Reykjavík, flokk-
arnir og fólk til vinstri utan
flokka, félagshyggjufólk innan
flokks og utan bæri gæfu til að
bjóða fram einn sameiginlegan
lista í komandi borgarstjómar-
kosningum. Aðstæður em þess-
ar: í fyrsta lagi nýtast atkvæði
mun betur og möguleikar á því að
feila íhaldið aukast, í öðm lagi er
slíkt framboð líklegt til að virkja
fleira fólk, og í þriðja lagi hefur
reynslan undanfarið kjörtímabil
og raunar lengur, sýnt okkur að
við getum mjög vel starfað saman
á grundvelli málefnalegrar sam-
stöðu.
Segja má að sameiginlegt
framboð hafi í raun verið í undir-
búningi allt kjörtímabilið og það
svifið yfir vötnunum að loks
myndi nú takast að koma því í
höfn. Undirbúningurinn var og
er í því fólginn að Alþýðubanda-
lagið, Alþýðuflokkurinn, Fram-
sóknarflokkurinn og Kvennalist-
inn hafa unnið saman að öllum
helstu málum allt kjörtímabilið.
Við höfum unnið saman við gerð
fjárhagsáætlunar og flutt þar
sameiginlegar tillögur og verið
þar með allt aðrar áherslur en nú-
verandi meirihluti. Þrjá mála-
flokka leggjum við áherslu á: 1.
aðbúnað aldraðra, 2. aðbúnað
barna, og 3. aðbúnað ungs fólks.
Aðrir málaflokkar sem við höf-
um sameiginlega lagt áherslu á
eru umferðaröryggismál, um-
hverfismál, skipulagsmál,
launamál borgarstarfsmanna, al-
menningssamgöngur, verndun
gamalla menningarverðmæta og
menningarmál. Og fleira mætti
telja. Við getum því með lítilli
fyrirhöfn útbúið málefnagrund-
völl fyrir sameiginlegt framboð
og fengið til liðs við okkur það
fólk sem ekki hefur tekið þátt í
störfum innan flokkanna/sam-
takanna, en hefur mjög svipaðar
skoðanir og við í ofangreindum
málaflokkum. Líklegt er að í
þennan hóp gætu bæst mun fleiri
en oft áður - fólk sem mislíkar og
hefur skömm á ólýðræðislegum
og einræðislegum vinnubrögðum
Davíðs Oddssonar borgarstjóra
og varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins.
Við borgarfulltrúamir í minni-
hlutanum ræddum þessi mál
mikið og lengi og sú aðferð sem
oftast var nefnd var að hver
flokkur hefði tvo fulltrúa á listan-
um og í 1. og 8. sæti yrðu Kvenna-
listakonur og sú í 8. sætinu yrði þá
jafnframt borgarstjóraefnið. S.l.
vor leit út fyrir að af sameiginlegu
framboði gæti orðið. Þá kom
babb í bátinn, vegna ágreinings
um ráðningu í skólastjórastarf í
einum af grunnskólum borgar-
innar og lýsti Bjarni P. Magnús-
son (A) því þá yfir að ekki væri
hægt að vinna með Alþýðu-
bandalaginu og sameiginlegt
framboð með því væri úr sög-
unni. Þetta var greinilegt bakslag
sem kom mjög illa við alla, ekki
síst Kvennalistakonur, sem töldu
þetta til marks um það að lítið
mætti út af bregða milli flokk-
anna. Nú hefur Alþýðuflokkur-
inn snúið við blaðinu og óskað
eftir viðræðum um samstarf við
Alþýðubandalagið og Borgara-
flokkinn, eins og kunnugt er.
öflugu og frambærilegu fólki til
að skipa G-lista, og nógu er
stefna okkar skýr í borgarmálum
og næg eru verkin sem vinna þarf.
í borgarmálaráði ABR hefur
ríkt mikill einhugur og málefna-
ágreiningur enginn verið, hvorki
í borgarmálaráði né milli okkar
borgarfulltrúanna. Stefnumála-
umræða hófst sl. vor og hefur
hópur fólks sem m.a. er í nefnd-
um og ráðum unnið vel og dyggi-
lega að því að móta áhersluþætti
vegna komandi kosninga. í haust
hvort við færum fram ein eða
með öðrum. Fjórar tillögur komu
fram um málsmeðferð en niður-
staða fundarins var sú að vinna
áfram að samfylkingu gegn
íhaldsöflunum hér í borg og bíða
þess formlega erindis sem Al-
þýðuflokkurinn hafði boðað í
fjölmiðlum og samþykkti svo s.l.
laugardag.
Mál standa því þannig nú að
stjórn ABR hefur verið falið að
freista þess enn að ná samkomu-
lagi um sameiginlegt framboð
„Ég er andvíg tilboði Alþýðuflokks um
galopið prófkjör með þeim og Borgara-
flokki, þar semfélög og hópar, jafnvel
andstœðingar framboðsins geta ráðið
úrslitum um val áframboðslista eins og
dæmin sanna”
S.l. haust var haldinn opinn
fundur á vegum ABR þar sem
fulltrúar flokkanna í stjómarand-
stöðunni gerðu grein fyrir af-
stöðu sinni til sameiginlegs fram-
boðs. Bjarni P. Magnússon (A)
lýsti þeirri afstöðu sinni að hann
vildi helst sameiginlegt framboð
þar sem flokkarnir drægju sig
nokkuð í hlé, en lýstu yfír stuðn-
ingi við eins konar óháð fram-
boð. Hann hafnaði þar með
þeirri leið að tveir kæmu frá
hverjum flokki. Sigrún Magnús-
dóttir (B) hafnaði leið Bjama en
upplýsti að Framsóknarflokkur-
inn hefði getað hugsað sér upp-
haflegu aðferðina. Elín Ólafs-
dóttir (V) upplýsti að Kvennalist-
inn hygðist bjóða fram eigin
lista og við Kristín Á. Ólafsdóttir
(G) lögðum áherslu á sameigin-
legt framboð og vorum opnar
fyrir öllum þeim aðferðum sem
um gæti náðst víðtækt samkomu-
lag.
Síðan þetta gerðist hafa
Kvennalistakonur og Framsókn-
arfólk lýst því yfir ótvírætt að þau
muni bjóða fram eins og áður
sinn eiginn lista. Fyrir mig var
þetta nokkurt áfall, draumurinn
ætlaði ekki að rætast. Þetta var
þeirra niðurstaða - því miður.
Við þessar aðstæður fannst
mér eðlilegt að næsta skref væri
að hefja undirbúning G-lista
framboðs - við höfum ágæta mál-
efnastöðu í borginni, og innan
flokksins og meðal stuðnings-
manna hans er fullt af góðu,
var svo haldinn fundur þar sem
starf hópanna var kynnt og þar
ríkti mikið hugmyndaflug og ein-
drægni. Talað var um að þessi
málefnavinna myndi nýtast okk-
ur hvort heldur við færum fram
ein eða með hinum flokkunum. f
borgarmálaráðinu hefur ekki
lengi ríkt jafn mikilli eindrægni
um áherslur okkar og á s.l. kjör-
tímabili, sem auðvitað hefur gert
samvinnu við hina flokkana í
stjórnarandstöðunni auðveldari.
Sundrung í okkar hópi hefði að
sjálfsögðu gert samstarfið erfið-
ara og það traust sem myndast
hefur á milli okkar í minnihlutan-
um á m.a. rætur að rekja til þess-
arar samstöðu okkar þriggja í
stærsta minnihlutaflokknum.
Þegar þetta er skrifað er ljóst
að Alþýðuflokkurinn mun bjóða
Alþýðubandalaginu, Birtingu og
Borgaraflokki að taka þátt í opnu
prófkjöri þar sem óháðir kjós-
endur geta einnig tekið þatt.
Hugmynd Alþýðuflokksins er að
flokkarnir dragi sig í hlé, listinn
sem kæmi út úr sameiginlegu
prófkjöri myndi 30 manna
borgarmálaráð og flokkunum
yrði síðan boðið að tilnefna 2 full-
trúa hver í borgarmálaráð, en
þeir hefðu ekki atkvæðisrétt þar.
Félagsfundur
s.l. miðvikudag
Á félagsfundi ABR s.l. mið-
vikudag var rætt um komandi
sveitarstjórnarkosningar og
allra. Jafnframt þarf að svara Al-
þýðuflokknum þegar erindi um
viðræður berast og auðvitað
hljótum við að ganga til þeirra
viðræðna. Að sjálfsögðu. Náist
ekki samkomulag um samfylk-
ingu allra þá taka við viðræður
við Alþýðuflokkinn. í þeim við-
ræðum þurfum við að taka af-
stöðu til þess hvort við föllumst á
tilboð þeirra. Við getum að sjálf-
sögðu sett þar fram okkar kröfur
og áherslur.
Spurningarnar sem við stönd-
um þá frammi fyrir eru þessar:
1. Erum við tilbúin til að taka þátt
í opnu prófkjöri með Alþýðu-
flokknum, Borgaraflokknum og
óháðum kjósendum sem lýsa yfir
stuðningi við málefnaáherslur
flokkanna? Hlíta svo niðurstöðu
úr opna prófkjörinu og fela þeim
30 sem skipa framboðslista,
ásamt tveimur frá hverjum flokki
með áheyrnar- og tillögurétt,
meðferð borgarmála næsta kjör-
tímabil?
2. Erum við tilbúin til að fara í
opið prófkjör með Alþýðu-
flokknum og óháðum en án
Borgaraflokks?
3. Viljum við að hver flokkur
velji sjálfur sína frambjóðendur
með sínum hætti á sameiginlegan
lista?
4. Viljum við bjóða fram með Al-
þýðuflokknum þar sem hver
flokkur velur sitt fólk á listann?
Hver þessara aðferða sem val-
in yrði, yrði aðeins til þess að
fækka framboðum í Reykjavík
um eitt - þau yrðu fjögur í stað
fimm.
Mín skoðun
Ég er andvíg leið 1, tilboði Al-
þýðuflokks um galopið prófkjör
með þeim og Borgaraflokki, þar
sem félög og hópar, jafnvel and-
stæðingar framboðsins geta ráðið
úrslitum um val á framboðslista,
eins og dæmin sanna. Reynsla
Alþýðuflokksins af opnum próf-
kjörum sýnir að slíkt getur hæg-
lega gerst sbr. síðasta prófkjör,
sem fléiri tóku þátt i en kusu list-
ann. Samfylking með Borgara-
flokki heillar mig ekki heldur,
síður en svo. Varðandi þann kost
að bjóða fram með Alþýðu-
flokknum einum, þá hefur það
kosti og galla (eins og raunar allar
leiðirnar). Slíkt framboð væri
vissulega nýtt en ekki baun ferskt
og hæpið að það myndi höfða til
fólks úr hinni frægu grasrót.
í Alþýðubandalaginu er til
bjartsýnisfólk sem trúir því að-
enn sé hægt að samfylkja með
öllum stjómarandstöðuflokkun-
um í sameiginlegu framboði eins
lista gegn íhaldinu. Ég er í þess-
um hópi og vil freista þess enn
einu sinni að ræða það við hina
flokkana. Það væri bæði nýtt og
ferskt og líklegt til að ná til fjölda
fólks utan flokkanna. Slíkar við-
ræður em líka í takt við samþykkt
síðasta félagsfundar ABR og var
rauður þráður í ræðum nær allra
fundarmanna.
Alþýðuflokkurinn finnur nú
fyrir þessum mikla þrýstingi og
hefur snúið við blaðinu. Þá er lag
til að vinna hina flokkana á okkar
band, en Alþýðubandalagið er
eini flokkurinn sem aldrei hefur
lokað á samfylkingarhugmynd-
ina. Það er eins og það á að vera,
því Alþýðubandalagið varð til við
samfylkingu vinstri manna og
hlýtur ávallt að gegna kalli tím-
ans. Við höfum skamman tíma en
til mikils er að vinna.
Hins vegar ef hinir flokkarnir
vilja ekki vera með, munum þá,
ágætir félagar í Reykjavík, að Al-
þýðubandalagið er flokkur með
góðan málstað og góða málefna-
stöðu. Félagar okkar um allt
land munu bjóða fram G-lista
eins og mörg undanfarin ár og
það gerum við líka að sjálfsögðu,
ef sú verður niðurstaðan af við-
ræðum okkar við aðra flokka.
Það yrði ekki nýtt, en við getum
gert slíkt framboð sterkt, ferskt
og öflugt ef við viljum og stönd-
um saman. Og það hljótum við
að gera.
Guörún Ágústsdóttir er borgarfulltrúi
og aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra.
Hliðstæðumar í Panama og Grenada
Don Rojas skrifar
Grein þessi er birt til að vekja
athygli á umrœðufundi um innrás
Bandaríkjanna í Panama er hald-
inn verður miðvikud. 24. jan. kl.
20:30 í húsakynnum Pathfinder
bóksölunnar að Klapparstíg 26,
2. hœð. Yfirskrift fundarins er:
„Bandaríkin burt úr Panama!
Fyrir sjálfsákvörðunarrétti þjóða
í Mið- Ameríku og Karíbahafi. “
Innrásin í Panama kallar aftur
fram hroll hjá okkur sem lifðum
Umræðufundur verður haldinn um
innrás Bandaríkjanna í Panama, í
kvöld kl. 20:30 I húsakynnum Path-
finder bóksölunnar að Klapparstíg
26, 2. hæð.
af innrásina á Grenada fyrir sex
árum.
Síðustu daga hefur rifjast upp
skelfileg og kunnugleg ásjóna
stríðsins, einu af öðru sjónvarp-
að; dynkir frá stórskotaliði, sund-
urslitin hljóð í vélbyssum, lífs-
hættulegar þyrlur skjótandi eld-
flaugum.
Eins og á Grenada: Við sjáum
unga og velvopnaða bandaríska
hermenn - hvíta menn, blökku-
menn og menn af rómansk amer-
ískum uppruna - syni verkafólks í
kolanámum, jámiðnaði, bflaiðn-
„Hliðstæðurnar milli Panama og Gren-
ada eru áberandi. Hernaðarlegar, pólit-
ískar og diplómatískar hliðar þessara
tveggja innrása eru keimlíkar og um leið
lœrdómsríkaru
aði og bændasyni. Augu þeirra
vart greinanleg vegna felulita, tjá
ótta og ringulreið. Sumir ráð-
villtir vegna fyrirskipana um að
drepa dætur og syni vinnandi al-
þýðu í Panama, sem þeir áttu
ekki í neinum útistöðum við.
Aðrir óttuðust að verða drepnir
eða særast að þarflausu, í landi er
ógnar ekki á nokkum hátt öryggi
Bandaríkjanna.
ímynd blóðbaðs í nafni kapit-
alísks lýðræðis í Mið-Ameríku
leiftrar á skjánum. Tilefnislaus
dráp íbúa Bandaríkjanna og Pa-
nama, samkvæmt fyrirskipun
forseta Bandaríkjanna. Manuel
Noriega -hershöfðingi neitaði
Framhald á bls. 9
Miðvikudagur 24. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5