Þjóðviljinn - 24.01.1990, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 24.01.1990, Qupperneq 9
ALÞÝPUBANDALAGIP Alþýðubandalagið Akureyri Félagsfundur Almennur félagsfundur veröur haldinn í Alþýðubandalaginu Akur- eyri fimmtudaginn 25. janúar kl. 20 í Lárusarhúsi. Fundarefni: 1. Undirbúningur framboðs. 2. Staða bæjarmála og kosningabaráttan. 3. Önnur mál. Alþýðubandalagið ísafirði Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn sunnudaginn 28. janúar kl. 16 á Hótei ísafirði. Dagskrá: 1. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga. 2. Önnur mál. Félagar mætum öll. Stjórnin Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn að Kirkjuvegi 7 laugardaginn 27. janúar kl. 14. Dagskrá: Bæjarstjórnarkosningar í vor. Uppstillingarnefnd Miðstjórnarfundur Sveitarstjórnarmenn sérstaklega hvattir til að sitja fundinn Boðað er til fundar í miðstjórn Alþýðubandalagsins dagana 9. - 11. febrúar 1990 í Þinghóli, Kópavogi. Nánari tímasetning verður auglýst síðar. Fundarins bíða mörg mikilvæg verkefni, en aðalefni nanss verða: 1. Stjórnmálaástandið. 2. Sveitarstjórnarmálefni 3. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninganna í vor. Fundarboð og dagskrá verða send miðstjórnarmönnum í næstu viku. Mikilvægt er að miðstjórnarmenn mæti sem best. stjórnin AB Kópavogi Þorrablót Hið vinsæla þorrablót Alþýðubandalags Kópavogs verður haldið í Þinghóli Hamraborg 11, laugardaginn 3. febrúar kl. 19. Nánar auglýst síðar. Laugardagsfundir ABR Alþýðubandalagið í Reykjavík heldur opinn umræðufund laugar- daginn 27. janúar, kl. 11 að Hverfisgötu 105, efstu hæð Atburðirnir í Austur-Evrópu og barátta sósíalista. Málshefjendur: Arni Bergmann, ritstjóri Jórunn Sigurðardóttir, leikari Sveinn Rúnar Hauksson, læknir Eftir stuttar framsögur verða fyrirspurnir og umræður. Umræðustjóri verður Ragnar Stefánsson, Alþýðubandalagið í Reykjavik 'f _ígjjp(S&Ég|j|* $ Ámi Bergmann Jórunn Sigurðar- dóttir Sveinn Rúnar Hauksson Alþýðubandalagið í Kópavogi Spilakvöld Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur annað spilakvöld í þriggja kvölda keppni mánudaginn 29. janúar klukkan 20.30 í Þinghól Hamraborg 11. Allir velkomnir. Stjórnin Margrét Alþýðubandalagið Hveragerði Opið hús Opið hús í sal Verkalýðsfélagsins Boðans, Austurmörk 2, Hveragerði, laugardaginn 27. janúar kl. 10-12. Margrét Frímannsdóttir ræðir landsmála- pólitíkina og Ingibjörg Sigmundsdóttir bága stöðu bæjarins og komandi kosningar. Heitt á könnunnin. Stjórnin Ingibjörg Akureyri og nágrenni Almennur stjórnmálafundur Akureyri og nágrenni. Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgönguráðherra og Svavar Gestsson menntamálaráðherra verða á almennum stjórnmálafundi í Alþýðuhúsinu Akureyri, sunnudaginn 28. janúar kl. 20.30. Allir velkomnir. Fundarboðendur Svavar VIÐHORF Framhald af bls. 5 fyrir nokkrumárum að fallast á áætlanir Bandaríkjastjórnar um að kollvarpa byltingunni í Nicar- agua og hélt uppi rétti Panama- búa til að stjórna skurðinum sín- um. ímynd ráðastéttarinnar í Bandaríkjunum, er stendur ein- huga bak við forseta sinn og styð- ur þessa ólöglegu innrás. Það var átakanlegt að endur- lifa þessa ásýnd ríksrekinna hryðjuverka. Að sjá enn á ný, eins og við gerðum á Grenada, sorg og þjáningar, svipmót hryggðar og örvilnunar greypt í andliti mæðra og eiginkvenna, þeirra er misst höfðu syni sína, eiginmenn, bræður og feður, sem og heimili sín og fátæklegar eigur í þessu síðasta sóðalega stríði bandarísku heimsvaldastefnunn- ar í þriðja heiminum. Endurminningin, er við vorum reknir frá heimilum okkar undir byssukjöftum bandarískra her- manna 28. október 1983, vaknar þegar horft er á Bandaríkjaher handtaka panamíska ættjarðar- sinna. Við vorum fluttir í fanga- búðir er komið var upp til bráða- birgða og yfirheyrðir klukkutím- um saman, riflum beint að höfðum okkar. Rétt eins og bræður okkar og systur í Panama, voru ættjarðarsinnar á Grenada bundnir og sjónin byrgð. Sumir okkar voru settir í búr eins og dýr. Lýðræðisleg réttindi voru fótum troðin af innrásarher heimsvaldasinna. Okkur er í fersku minni hvað það merkir að vera fórnarlamb innrásar. Alveg eins og í Panama, gerði Bandaríkjaher engan greinarmun á hemaðarlegum og borgaralegum skotmörkum. Sprengjum var varpað á spítala og þeir eyðilagðir. Eldflaugum dúndrað og skotið úr vélbyssum á heimili fólks, þar á meðal heimili Maurice Bishops. Ráðastéttin í Bandaríkjunum segir að líf bandarískra ríkis- borgara í Panama og á Grenada sé ómetanlegt og það beri að vernda, hvað sem það kostar. Lífum Panamabúa og Grenada- búa má fórna, þau eru ekki jafn mikilvæg, ekki jafn verðmæt. Þannig er siðferðismat heims- valdasinna tvískipt. Hliðstæðurnar milli Panama og Grenada eru áberandi. Hern- aðarlegar, pólitískar og diplóm- atískar hliðar þessara tveggja innrása eru keimlíkar og um leið lærdómsríkar. 1 fyrsta lagi var um að ræða gífurlegan mannlegan harmleik, framinn af hinni heimsvaldasinn- uðu bandarísku ráðastétt gegn fá- mennum og aflvana þjóðum. Eini „glæpurinn“ er þær drýgðu var að verja þjóðlegt sjálfstæði sitt, fullveldi, félagslega ávinn- inga og óafsalanlegan rétt sinn til sjálfsákvörðunar. Eins og á Grenada 1983 urðum við vitni að því hvernig þjóð blökkumanna er fótum troðin, hvernig ráðist er á varnarlaust fólk sem hafði þann styrk til að bera að snúast gegn heimsvalda- sinnum. Og sýndi samstöðu með frændþjóðum um alla Ameríku. Því það eiga þessar innrásir sammerkt með innrásinni í Dóm- inikanska lýðveldið 1965, að öllum þjóðum í Karíbahafi og gjörvallri Rómönsku Ameríku er ógnað. Árásin á Panama var sex sinn- um stærri en árásin á Grenada. Hún var brot á rétti sjálfstæðs ríkis, vanvirðing á landamærum þess, brot á alþjóðalögum sem sett eru niður í sáttmála Samein- uðu þjóðanna og einnig andstæð samkomulaginu um Panama- skurðinn frá 1977. ATH.: Framhald þessar greinar verður birt síðar. Don Rojas var upplýsingafull- trúi Maurice Bishops, forsætis- ráðherra Grenada á árunum 1979-1983. Bandaríkjastjórn gerði innrás á eyjuna 1983, er rík- isstjórn hans hafði verið steypt af stóli. Don Rojas vann um skeið sem talsmaður fjölþjóðlegra samtaka um sjálfsákvörðunarrétt þjóða við Karíbahaf, en er í dag dálkahöfundur í New York. Hann skrifar reglulega í viku- blaðið Militant og er greinin sem hér birtist þýdd þaðan, örlítið stytt. Þýðendur eru Gylfi Páll Hersir og Sigurlaug S. Gunn- laugsdóttir. Opið hús í þjónustumiðstöð aldraðra að Aflagranda 40 Miðvikudaginn 24. janúar verður opið hús eldri borgara í Vesturbænum, sunnan Hringbrautar.frá kl. 17.00-19.00 í tilefni af opnun þjónusturýmis þar. Boðið verður upp á kaffiveitingar og skoðunarferð um þjónustumiðstöðina. Reykjavíkurborg Lögtök Að kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, fyrir 10.-12. greiðslutímabili með eindögum 15. hvers mánaðar frá nóvember 1989 til janúar 1990. Reykjavík, 22. janúar 1990 Borgarfógetaembættið í Reykjavík HAFNARBORG Rekstur kaffistofu Stjórn Hafnarborgar, menningar- og lista- stofnunar Hafnarfjarðar auglýsir eftir tilboðum í rekstur kaffistofu hússins. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður. Tilboð þurfa að berast skrifstofu Hafnarborgar, Strandgötu 34, Hafnarfirði fyrir 10. febrúar nk. Stjórn Hafnarborgar KVENNA ATHVARF Munið félagsfundinn í Hlaðvarpanum á morg- un, fimmtudag 25. janúar, kl. 20.15. Samtök um kvennaathvarf Kærar þakkir færum við öllum sem heiðruðu minningu Gríms M. Helgasonar og sýndu okkur vinarþel og samkennd við fráfall hans. Hólmfríður Sigurðardóttir, Vigdís Grímsdóttir, Sigurður Grímsson, Anna Þrúður Grímsdóttir, Helgi Grimsson, Grímur Grímsson, Hólmf ríður Grfmsdóttir, Kristján Grímsson, og barnabörn. Vigdís M. Grímsdóttir, Birna Þórunn Pálsdóttir, Sigurþór Hallbjörnsson, Ása Magnúsdóttir Birgir Hákonarson, Lára Helen Óladóttir ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.