Þjóðviljinn - 06.03.1990, Side 2
FRETTIR
Ríkisstarfsmenn
Mótframboð gegn stjóm SFR
✓
Agreiningur í uppstillingarnefnd vegna stjórnarkjörs. Meirihlutinn hafnar Margréti
Ríkharðsdótturþroskaþjálfa. Óánœgjameð vinnubrögð meirihlutans
Það sauð upp úr á fundi trún-
aðarmannaráðs á föstudag-
inn þegar meirihluti uppstiliing-
arnefndar hafnaði Margréti Rík-
harðsdóttur þroskaþjálfa án
nokkurra skýringa,“ sagði Sig-
ríður Kristinsdóttir sjúkraliði en
hún hefur boðið sig fram til for-
manns Starfsmannafélags ríkis-
stofnana á móti Einari Olafssyni
sem gegnt hefur formennsku í yfir
20 ár.
Á fundinum á föstudaginn
kom í ljós að uppstillingarnefnd
vegna stjórnarkjörs hafði klofn-
að. Jóhannes Gunnarsson sagði
sig úr nefndinni í mótmælaskyni
við vinnubrögð meirihlutans.
Deilurnar stóðu um það hvort
stilla skyldi upp Margréti Rík-
harðsdóttur en hún hefur átt sæti
í stjórn SFR í sex ár og naut ein-
róma stuðnings Þroskaþjálfafé-
lagsins til endurkjörs.
„Það má segja að þessar deilur
hafi verið að gerjast síðan á þingi
BSRB í fyrra en þá kom upp á-
greiningur um vinnubrögð við
uppstillingu á fulltrúum SFR í
stjórn bandalagsins. Á föstudag-
inn sauð upp úr. Meirihluti upp-
stillingarnefndar hafnaði Mar-
gréti Ríkharðsdóttur án nokk-
urra skýringa en við teljum að
raunveruleg ástæða þess sé sú að
Margrét hefur sem formaður
jafnréttisnefndar SFR staðið að
ýmsum ályktunum og samþykkt-
um sem fóru fyrir brjóstið á
meirihluta stjórnar. Það teljum
við ekki gilda ástæðu því
jafnréttisnefnd er sjálfstæð nefnd
og það er ekki í verkahring
stjórnarinnar að leggja mat á fólk
eftir skoðunum þess.
Margrét hefur hins vegar starf-
að mjög vel í stjórninni og þegar
við fréttum að henni hefði verið
hafnað neituðum við Margrét
Tómasdóttir að þiggja uppstill-
ingu nefndarinnar. Við töldum
að vinnureglur hefðu verið brotn-
ar og að Einar Ólafsson hefði far-
ið út fyrir verksvið sitt þegar hann
reyndi að fá aðra þroskaþjálfa til
að taka sæti í stjórn. Þeir neituðu
beiðni hans vegna þess að
Þroskaþjálfafélagið stóð einhuga
að framboði Margrétar.
Eftir að þessi úrslit lágu fyrir
var drifið í að kanna viðbrögð fé-
lagsmanna við mótframboði. Þau
voru mjög góð, við söfnuðum 200
meðmælendum á fímm tímum á
sunnudaginn. Við bjóðum fram
ellefu manns til stjórnar og vara-
stjórnar og þótt ekki sé um að
ræða listakjör höfum við lýst því
yfir að þessir ellefu frambjóðend-
ur vilji vinna saman,“ sagði Sig-
ríður.
Auk hennar verða í framboði
Jens Andrésson hjá Vinnueftir-
litinu, Lilja G. Þorvaldsdóttir
leikari, Margrét Ríkharðsdóttir,
Margrét Tómasdóttir hjá
Atvinnuleysistryggingasjóði,
Skúli Árnason á sýsluskrifstofu
Árnessýslu, Trausti Flermanns-
son deildarstjóri á Skattstofu
Reykjavíkur, Páll Hermannsson
á barnageðdeildinni við Dal-
braut, Sigurður Rúnar Elíasson
rafveitustjóri á Selfossi, Tryggvi
Friðjónsson frkvstj. Sjálfsbjargar
og Hulda Lilliendahl læknaritari
á geðdeild Landspítala.
Svo var að heyra á Sigríði að
framboðið væri ekki til komið
vegna ágreinings um stefnuna í
kjaramálum, til dæmis hefði hluti
frambjóðenda tekið þátt í ný-
gerðum kjarasamningum. Hún
kvaðst bjartsýn á árangur í fram-
boðinu. „Það er fullt af góðu fólki
með okkur í þessu og við ætlum
að vinna.“
Atkvæðaseðlar verða sendir
heim til allra félagsmanna sem
eru um 5.000 talsins. Þeir sem
búa á landsbyggðinni geta sent
atkvæði sín til skrifstofunnar en
íbúar höfuðborgarsvæðisins
greiða atkvæði á aðalfundi sem
verður haldinn 29. þ.m. Þó geta
þeir sem ekki komast á fundinn
kosið utankjörstaðar.
-ÞH
Forseti Islands
Þjóðarátak um Yricju
Efnt til sjóðsstofnunar í tilefni sextugsafmœlis Vigdísar. Afrakstur af
sölu afmœlisrits fer til uppgrœðslu landsins á vegum skólafólks
r
Igær hófst söfnun áskrifenda að
afmælisriti forseta íslands,
Vigdísar Finnbogadóttur, sem
verður sextug á páskadag, 15.
aprfl. Ritið hefur hlotið nafnið
YRKJA og í það rita tæplega 60
skáld, rithöfundar og fræðimenn.
YRKJA verður boðin öllum ís-
lendingum til kaups og fyrir ágóð-
ann verður stofnaður sjóður til
kaupa á trjáplöntum, sem æska
landsins fær til gróðursetningar.
Forystusveit þá sem gengst
fyrir útgáfunni mynda Skógrækt-
arfélag íslands, menntamála-
ráðuneytið, Félag skólastjóra og
yfirkennara, Kennarasamband
íslands, Hið íslenska kennarafé-
lag og JC-hreyfingin á íslandi.
Fjölmargir velunnarar forsetans
leggja hönd á plóg og öll vinna
við gerð bókarinnar er innt af
hendi í sjálfboðavinnu.
Verkefnið var kynnt við hátíð-
lega athöfn í Listasafni íslands í
gær og m.a. söng þar öflugur
barnakór, „Litli risakór", nem-
enda í Kársnesskóla í Kópavogi
undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur. Nöfn áskrifenda að
YRKJU verða skráð á sérstakan
heillaóskalista sem afhentur
verður forsetanum. Höfundar
bókarinnar skrifa allir um þemað
„ræktun" í víðasta skilningi orðs-
ins, í tilefni af hvatningum og
Hulda Stefánsdóttir, t.v., formaður Skógræktarfélags íslands, ritaði
fyrst allra nafn sitt á áskrifenda- og heillaóskalista YRKJU við hátíð-
lega athöfn í Listasafni íslands í gær, en síðan dóttursonur hennar
Stefán Gunnarsson og dóttirin Kristín Gunnarsdóttir. Heimir Pálsson,
einn af skipuleggjendum átaksins, fylgist með. Mynd: Jim Smart.
þátttöku Vigdísar Finnbogadótt-
ur til uppbyggingar og ræktunar
lands og lýðs.
Að ósk forsetans sjálfs verður
stofnaður sjóður íslenskrar æsku
til að hún rækti land sitt. Stefnt er
að því að sjóðurinn verði svo öfl-
ugur að hann geti staðið undir því
að kaupa trjáplöntur handa
öllum grunnskólanemum á
hverju vori. Að loknu grunn-
skólanámi ætti þá hver nemandi
að hafa séð plöntur sem hann
gróðursetti við upphaf náms hafa
breytt landkostum. Menntamála-
ráðherra hefur ákveðið í sam-
ræmi við heimildir í lögum að
verja einum kennsludegi ár hvert
til líffræði- og vistfræðikennslu
sem gróðursetningin getur fallið
inn í.
OHT
Sendibílstjórar
Forseta
aflient
mótmæli
Fjölmargir sendibflstjórar óku
sendibílum sínum að Alþingi í
gærdag og afhentu forseta sam-
einaðas Alþingis Guðrúnu Helga-
dóttur mótmæli vegna virðis-
aukaskatts á vöruflutninga. Al-
bert Ómar Guðbrandsson segir
að í erindinu sé vakin athygli á
ýmsum leiðréttingum sem sendi-
bflstjórar telji að þurfi að gera á
málum sendibflstjóra bæði varð-
andi virðisaukaskatt og lög um
leigu- og sendibflaakstur.
Albert Ómar sagði sendibfl-
stjóra telja að reglugerð sem
samgönguráðherra setti bryti í
bága við lög og þess vegna væriu
leitað til Alþingis. Það hlyti að
vera Alþingis að sjá til þess að
farið væri að lögum.
Guðrún Helgadóttir kvaðst
myndu kynna þingmönnum er-
indi sendibflstjóra. Þannig vildi
til að Guðmundur Ágústsson
þingmaður Borgaraflokksins
hefði lagt fram fyrirspurn varð-
andi þetta mál til samgönguráð-
herra í gær og hún myndi taka
fyrirspurnina á dagskrá viku fyrr
en fyrirhugað hefði verið. Fyrir-
spurnin kæmi því á dagskrá
næstkomandi fimmtudag og
sagðist Guðrún vona að það flýtti
fyrir lausn málsins.
-hmp
HM-handbolti
B-keppnin
blasir við
Pólverjar unnu íslendinga í
heimsmeistaramótinu í gær með
27:25. Þessi ósigur íslenska liðsins
var sá fjórði í röð á mótinu og
getur þýtt að liðið sé fallið úr hópi
bestu liða. Þar með blasir við
okkar mönnum að keppa á nýjan
leik í B-keppninni.
Ósigurinn í gær er rosalegt áfall
fyrir íslenskan handknattleik en
um leið fékk pólskur handknatt-
leikur uppreisn æru og náði pól-
ska landsliðið þar fram hefndum
á íslendingum eftir að hafa tapað
íyrir þeim í eftirminnilegum úrs-
litaleik í B-keppninni í Frakk-
landi í fyrra.
-grh
Blús
á Borginni
Vinir Dóra halda blústónleika á
Hótel Borg á fimmtudagskvöld-
ið, en þetta eru fyrstu tónleikar
Vinanna á þessu ári. Vinir Dóra
eru þau Halldór Bragason, gítar
og söngur, Guðmundur Péturs-
son gítar, Andrea Gylfadóttir
söngur, Hjörtur Howser orgel,
Jens Hansson saxófónn, Ásgeir
Óskarsson trommur og Haraldur
Þorsteinsson bassa. Gestur
kvöldsins er blökkusöngkonan
Marelene Little frá Bandaríkjun-
um. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og
er fólk beðið að mæta tímanlega.
Glæsileg
verðlaun
Norræna félagið gengst fyrir rit-
gerðarsamkeppni um efnið
„Hvað eiga íslendingar sameigin-
Iegt með öðrum Norðurlanda-
þjóðum?“ og hafa nemendur í
öllum framhaldsskólum landsins
þátttökurétt, en keppnin er hald-
in í samvinnu við menntamála-
ráðuneytið. Ritgerðin skal vera á
Teskeiðin í Keflavík
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir á sunnudag leikritið „Týnda teskeið-
in“ eftir Kjartan Ragnarsson í Féiagsbíói kl. 21. Leikstjóri er Halldór
Björnsson en leikmynd hannaði Jóhann Smári Helgason. Alls taka 20
manns þátt í sýningunni eru leikarar eru 9. Önnur sýning verður
sunnudaginn 11. mars.
íslensku og er æskileg lengd
hennar 1500 til 2000 orð, þ.e.
fimm til sjö vélritaðar blaðsíður.
Ritgerðunum skal skilað til þess
framhaldsskóla sem nemandi
stundar nám við eða til Norræna
félagsins í Norræna húsinu í
Reykjavík og er skilafrestur til 1.
aprfl. Vegleg verðlaun verða
veitt fyrir fimm bestu ritgerðirnar
að áliti dómnefndar, en formaður
hennar er Gylfi Þ. Gíslason.
Verðlaunin eru farmiði á vegum
Norræna félagsins til einhverrar
af höfuðborgum Norðurlanda
sem Flugleiðir fljúga til og 50 þús-
und krónur í farareyri.
Sumaráætlun
Samvinnuferða
-Landsýnar
Sumarbæklingur
Samvinnuferða-Landsýnar er
kominn út í 32.000 eintökum og í
honum er kynnt ferðaáætlun
ferðaskrifstofunnar frá páskum
fram á haust. Helstu áfangastaðir
SL í hópferðum til sólarlanda eru
strandbæirnir Santa Ponsa og
Cala d‘Or á Mallorca, Benidorm
á Spáni, Vouliagmeni-ströndin á
Grikklandi og Riccione og Porto-
verde á Adríahafsströnd Ítalíu.
Þá má nefna sæluhúsin í Kemper-
vennen í Hollandi og Franka-
skógi í Frakklandi. Farþegum í
flug og bíl bjóðast sumarhús í
Danmörku og Hollandi, og á
dagskrá rútuferða bætist við ný
ferð um Austur-Evrópu. Þá er
boðið upp á ferðir á framandi
slóðir, til Thailands og Hawaii og
í fyrsta sinn er boðið upp á lúxus-
ferð til Egyptalands með m.a. 7
daga siglingu á Nfl. Kátum
dögum fyrir eldri borgara fjölgar,
í sumar verða kátir dagar í Kan-
ada, á Mallorca í vor og haust og
nú í fyrsta sinn í Austurríki og er
fararstjórn í höndum Ásthildar
Pétursdóttur. Þá er boðið upp á
skipulagðar golfferðir til Cala
dðOr á Mallorca um pásla, til
Torquay á Englandi um hvítas-
unnu og til Bandaríkjanna með
haustinu, allar í fararstjórn
Kjartans L. Pálssonar. Ýmislegt
annað er kynnt í sumarbækli-
ngnum.
Menningarsamtök
Suðurlands
Samtök sunnlenskra sveitarfé-
laga og Skálholtsskóli efna til
ráðstefnu um menningasamtök á
Suðurlandi nk. sunnudag, 11.
mars. Ráðstefnan hefst kl. 12 og
lýkur um 17 og er þess óskað að
öll samtök og hópar, sem sinna
hvers konar menningarstarfi,
sendi fulltrúa á ráðstefnuna.
Skráning þátttakenda fer fram á
skrifstofu SASS.
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. mars 1990