Þjóðviljinn - 06.03.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 06.03.1990, Blaðsíða 12
—SPURNINGIN- Hvaö finnst þér um ár- angur íslendinga á HM í Tékkóslóvakíu? Haukur Eyþórsson leigubílstjóri Mér finnst þetta ekki hafa gengið nógu vel. Liðið er gott, en ég held að Bogdan verði að gera breytingar ef þeir eiga að standa sig betur. Mér finnst hornamenn- irnir hafa staðið sig lang-best. Kristín Guðmundsdóttir húsmóðir Árangurinn er eins og búast mátti við. Þeir hafa verið aö leika gegn sterkum þjóðum. Halldóra Einarsdóttir sjúkraliði Ég hef ekkert fylgst með þessu og hef engan áhuga á keppninni. Mér er þó ekki alveg sama um hvernig þeim gengur. Reynir Hermannsson nemi Mér finnst árangurinn ekki hafa verið nógu góður. Ég átti von á því að þeir stæðu sig betur og vona að þeir taki við sér. Björn Þórisson nemi Árangurinn er ekki alveg nógu góður, en ég held samt að þeir hafi gert sitt besta. þiómnuiNN Miðvikudagur 7. mars 1990. 45. tölublað 55. örgangur Atvinnuleysið SÍMI 681333 SÍMFAX 681935 Mér flnnst þessi námskeið mjög jákvætt framtak og vonast til þess að ég verði hæfari í samkeppninni um atvinnu eftir að hafa verið hér. Kannski ég komist í aðra vinnu en þá sem ég hef mest verið í hingað til, segir Guðmundur Magnússon í samtaii við Þjóðviljann, en hann er meðal þátttakenda á námskeiðum fyrir atvinnulausa sem hófust í síðustu viku hjá Námsflokkum Reykja- vfkur. Um miðjan febrúar voru 940 á atvinnuleysisskrá í Reykjavík, 576 karlar og 364 konur. Á sama tíma í fyrra voru 720 á skrá yfir atvinnulausa. Guðmundur Magnússon er 32 ára gamall og hefur verið atvinnulaus síðan í desember. „Ég hef aðallega fengist við verkamannastörf og sjó- mennsku. Ég var í vinnu niðri við höfn fram í desember, en hef ekkert fengið síðan og sé ekki fram á að fá neitt fyrr en í vor. Þá er ég að hugsa um að fara á grá- sleppu austur á fjörðum," segir Guðmundur. Missti bæturnar Föstu punktarnir í tilveru hans undanfarnar vikur hafa verið höfnin, ráðningarskrifstofa Reykjavíkurborgar, vinnumiðl- unin og skrifstofa Dagsbrúnar. Hann segist rölta niður á höfn reglulega til þess að spyrjast fyrir um vinnu. Á hverjum mánudegi á hann að vera mættur niður á ráðning- arskrifstofu til þess að stimpla sig inn. Ef hann kemst ekki á opnun- artíma á mánudögum, getur hann gleymt bótunum þá vikuna. „Ég lenti einu sinni í því að komast ekki á tilsettum tíma og missti bæturnar þá vikuna. Fleiri hafa lent í þessu. Ég heyrði til dæmis um einstæða móður sem komst ekki frá veiku barni og varð því að sjá á bak bótunum.“ Þegar allt er með felldu fer Guðmundur annan hvern mið- vikudag niður á skrifstofu Dags- brúnar og sækir bæturnar. Hann hefur 92 prósent rétt og það gefur honum rétt til bóta upp á rúmlega sextán þúsund krónur hálfsmán- aðarlega. „Bæturnar endast í um það bil viku. Ég hef ekki einu sinni efni á að leigja mér húsnæði," segir Guðmundur. „Þegar maður er atvinnulaus er geysilega mikilvægt að hafa Guðrún Halldórsdóttir, forstöðu- maður Námsflokka Reykjavíkur, sem sjá um námskeið fyrir atvinnulausa. Námskeiðunum er ætlað að veita þátttakendum sið- ferðilegan stuðning og að gera þeim auðveldara að fá vinnu. eitthvað fyrir stafni. Ég les, hjóla, syndi, stunda júdó og bog- fimi. Það er nauðsynlegt að hreyfa sig. Svo sé ég ekki eftir þeim tíma sem fer í námskeiðið. Það er að vísu ekki komin nein reynsla á þetta enn, en ég vona að ég muni eiga betra með að fá vinnu eftir námskeiðið en fyrir. En ég vil auðvitað komast í vinnu sem allra fyrst. Ég er vanur alls kyns vinnu og hef gaman af að vinna Hins vegar þekki ég fólk sem heldur að það sé bara aumingjaskapur að vera atvinnulaus," segir Guð- mundur Magnússon. Vandamál samfélagsins Hann er einn af um það bil hundrað körlum og konum sem hafa staðfest þátttöku í nám- skeiðum Námsflokkanna. Nám- skeiðin eru haldin að frumkvæði borgarinnar. Guðrún Halldórsdóttir, for- stöðumaður Námsflokkanna, segir í samtali við Þjóðviljann að námskeiðin eigi í fyrsta lagi að gera þátttakendur hæfari til þess að keppa um vinnu og í öðru lagi að veita þeim siðferðilegan stuðning. „Atvinnuleysi er vandamál samfélagsins en ekki einstakling- anna, þótt það bitni auðvitað á þeim,“ segir Guðrún. Guðmundur Magnússon: Hálfsmánaðar bætur endast mér vikuna. Myndir Kristinn. Boðið er upp á sex vikna nám- skeið í ýmsum greinum. Fólk get- ur valið um iðnaðarsvið, verslun- arsvið, umönnun barna og umönnun aldraðra. Auk þess geta allir valið úr kjarna. Flestir hafa valið sér verslunarsvið. Námskeið sem þessi hafa ekki verið haldin hér á landi áður, en þau eru þekkt fyrirbrigði er- lendis, t.d. á Norðurlöndum. „Fólkið sem hefur látið skrá sig er á öllum aldri og af báðum kynj- um. Ég býst við að námskeiðið muni standa fram að páskum en veit ekkert hvað tekur við þá. Við skulum bara vona að ástandið verði þannig að ekki verði þörf fyrir áframhald. En ég vil benda fólki á að þótt námskeiðið sé farið af stað tökum við inn þátttakendur á meðan plássið leyfir," sagði Guðrún. -gg Atvinnuleysi Námskeið á Akureyri Atvinnulausir á Akureyri eiga kost á að sækja námskeið dag- ana 20.-29. mars, þar sem m.a. verður fjaliað um réttindi atvinnulausra, skólakerfið kynnt, rætt um starfsumsóknir og fyallað um efnahags- og atvinnu- líf. Á fimmta hundrað manns eru atvinnulausir á Akureyri, en það jafngildir um sex af hundraði atvinnufærra manna. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, atvinnumálanefnd, Verkmennta- skólinn á Akureyri, Iðja og Ein- ing standa sameiginlega að nám- skeiðahaldinu. Námskeiðið á að standa í 16 tíma og verður þátt- takendum að kostnaðarlausu. -gg Vil komast í vinnu sem allra fyrst Guðmundur Magnússon er meðal þátttakenda á námskeiði fyrir atvinnulausa: Fæ rúmlega 30 þúsundí bætur ámánuði. Sumirhalda að atvinnuleysi sé bara aumingjaskapur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.