Þjóðviljinn - 06.03.1990, Qupperneq 3
______FRÉTTIR_____
Reyðarfjörður
Blásið til
sóknar
Um 20 manns á atvinnuleysisskrá
Samdráttur í fískvinnslu á
Reyðarfirði er aðalástæðan
fyrir því að um 20 manns eru þar
á atvinnuleysisskrá. Til að spyrna
við fótum og snúa vörn í sókn eru
uppi hugmyndir um það í héraði
að allir hlutaðeigandi aðilar legg-
ist á eitt til að hægt verði að
kaupa nýtt skip í plássið.
Um síðustu helgi stóð Byggð-
arlagssvið JC á Reyðarfirði fyrir
atvinnumálafundi þar sem rætt
var um leiðir til að útrýma núver-
andi atvinnuleysi þar sem einnig
var horft til framtíðar með bygg-
ingu stóriðju á svæðinu í huga. f>á
skoraði fundurinn á hreppsnefnd
Reyðarfjarðarhrepps að taka nú
til hendinni til að reyna að ráða
niðurlögum atvinnuleysisins. Að
öllu óbreyttu bendir margt til
þess að það muni aukast þegar
loðnubræðslan hættir starfsemi í
vor og þegar skólakrakkar fara
að hópast inn á vinnumarkaðinn.
Að sögn Sigurjóns Baldurs-
sonar á Reyðarfirði er gerður út
frá staðnum einn nýr og fullkom-
inn frystitogari og einn ísfisk-
togari sem er gerður út sameigin-
lega með þeim og Eskfirðingum.
Á sama tíma er á Reyðarfirði
fullkomið frystihús í eigu
Kaupfélagsins sem getur unnið
allt að 25 tonn á dag en fær í mesta
lagi 5 tonn til vinnslu á degi hverj-
um. Auk þess er á staðnum
fullkomin saltfiskverkun en þar
hefur öllu starfsfólki verið sagt
upp störfum sökum hráefnis-
skorts. Sigurjón sagði að fljót-
virkasta leiðin til að bæta at-
vinnuástandið væri að sveitarfé-
lagið, almenningur og fyrirtæki í
þorpinu legðust á eitt við að safna
fé til skipakaupa.
„Héðan hefur verið atgervis-
flótti undanfarin ár og nú er svo
komið að plássið þolir það ekki
miklu lengur. Af þeim sökum er
brýnt að heimamenn snúi bökum
saman til að leggja grunn að nýrri
framfarasókn," sagði Sigurjón
Baldursson.
-grh
Sambandið
Tapið eykst
Rekstrartap Sambandsins meira en þœr250-
300 miljónir sem áœtlað var
Astjórnarfundi Sambandsins
sem haldinn var um síðustu
helgi var lagt fram bráðabirgða-
yfírlit um rekstur Sambandsins á
síðasta ári. Ólafur Sverrisson
stjórnarformaður SÍS staðfesti
að rekstrartapið væri meira en
þar 250-300 miljónir króna sem
áætlaðar hefðu verið. Hann vildi
ekki nefna nákvæma tölu.
Ólafur sagði að tölur Morgun-
blaðsins um allt að 900 miljóna
króna tap væru þótt ekki réttar.
„Það er þó ljóst að við verðum að
losa okkur við eignir til að mæta
þessu tapi. Þar horfum við eink-
um til eignarhluta okkar í Aðal-
verktökum. Sala hans er til um-
ræðu og miðar áfram þótt hægt
fari.“
Að sögn Ólafs eru helstu
ástæður fyrir tapinu fjármagns-
kostnaður og skuldir sem Sam-
bandið varð að afskrifa á árinu.
Báðir þessir liðir hefðu verið
hærri en gert hafði verið ráð fyrir.
Einnig væri ljóst að sums staðar
mætti spara í rekstri og væri nú í
athugun hvar hægt væri að spara.
-ÞH
Ólafsvík
Nýtt fólk á G-lista
Alþýðubandalagið í Ólafsvík
hefur gengið frá framboðs-
lista sínum fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor. Herbert
Hjelm sem verið hefur fulltrúi G-
listans í bæjarstjórn lætur af því
embætti en efsti maður listans er
Norðurlönd
Vestumorrænn
leiðtogafundur
Formaður landsstjórnarinnar í
Grænlandi, lögmaður Færeyja og
forsætisráðherra Islands ætla að
hittast á vesturnorrænum
leiðtogafundi í Nuuk á Grænlandi
í haust.
Ráðgert er að þeir þremenn-
ingar, Motzfeldt, Sundstein og
Steingrímur, muni ræða m.a.
fiskveiðar og menningarsamstarf
landanna þriggja á fundinum,
sem halda á í lok ágúst.
-gg
Árni G. Albertsson skrifstofu-
maður.
Að sögn Jóhannesar Ragnars-
sonar ríkti mikill einhugur um
skipan listans á félagsfundinum á
mánudaginn var. „Það gekk bet-
ur en okkur óraði fyrir að fá fólk
til að taka sæti á listanum og
menn eru bjartsýnni en síðast á
gengi okkar í kosningunum.
í öðru sæti á G-listanum í Ól-
afsvík er Heiðar Friðriksson fisk-
matsmaður, 3. Margrét S. Birgis-
dóttir húsmóðir, 4. Herbert
Hjelm veitingamaður, 5. Sigríður
Þóra Eggertsdóttir kaupmaður,
6. Jóhannes Ragnarsson hafnar-
vörður, 7. Margrét Jónasdóttir
húsmóðir, 8. Rúnar Benjamíns-
son vélstjóri, 9. Guðmundur
Baldursson sjómaður, 10. Alfons
Finnsson sjómaður, 11. Kjartan
Haraldsson verkstjóri, 12. Sig-
urður Þorsteinsson verkamaður,
13. Sveinbjörn Þórðarson fisk-
matsmaður og 14. HaraldurGuð-
mundsson skipstjóri. _þjj
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3
Það ætlar ekki að ganga átakalaust að staðsetja húsið fyrir úrslitaleikinn í HM í handknattleik 1995.
Viðræður ríkisins og Kópavogs um málið eru þó að hefjast og búist er við að rætt verði við Hafnfirðinga á
næstunni. Mynd Kristinn.
Rflci og borg talast
ekki við
Það virðist Ijóst að engar við-
ræður munu fara fram milli
ríkis og Reykjavíkur um bygg-
ingu íþróttahúss fyrir úrslita-
leikinn í HM í handbolta árið
1995. Ríkið virðist ekki geta
hugsað sér að óska eftir við-
ræðum við Reykjavík og borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins láta
eins og þeim komi málið ekki við.
Sem stendur virðist því lík-
legast að húsið verði reist í Kópa-
vogi, en Hafnfirðingar eru einnig
áhugasamir og ekki útilokað að
Akureyringar muni einnig lýsa
yfir áhuga sínum.
„Reykjavíkurborg er ekki aðili
að þessu máli og mun ekki koma
inn í það að fyrra bragði. Það er
útilokað að við munum óska eftir
viðræðum við ríkið um byggingu
handboltahúss,“ segir Júlíus Haf-
stein borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
„Reykjavíkurborg ræður hvað
hún gerir í þessu máli en hún hef-
ur ekki sýnt byggingu þessa húss
neinn áhuga. Eg hefði vel getað
hugsað mér að húsið yrði reist í
Reykjavík, en það þarf ekki endi-
lega að rísa þar. Svæðið sem
Kópavogur hefur lagt til undir
húsið er mjög heppilegt að mínu
mati,“ segir Svavar Gestsson
menntamálaráðherra við Þjóð-
viljann.
Viðræður
við Kopavog
Á meðan ríki og borg talast við
á þennan hátt í gegnum fjöimiðla
er ríkið að fara í viðræður við
bæjaryfirvöld í Kópavogi um
byggingu húss sem rúma á úrslita-
leikinn 1995 og að sögn Svavars^
Gestssonar verður líklega farið út
í viðræður við bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði innan tíðar. Fulltrúi
menntamálaráðuneytisins átti
reyndar óformlegar viðræður við
fjármálastjóra Hafnarfjarðar um
málið í gær.
Hugmynd Kópavogsbúa er að
byggja sjö þúsund manna hús í
Kópavogsdal, en þar á að rísa
stórt íbúðahverfi á næstu árum.
Að úrslitaleiknum loknum á hús-
ið að rýma grunnskóla, fjögur
þúsund manna íþróttahús,
æfinga- og keppnishús og félags-
aðstöðu fyrir Breiðablik.
Ráðgert var að fara út í allar
þessar framkvæmdir á næstu
árum, en nú sjá Kópavogsbúar
fram á að geta sameinað þær í
eina og lokið þeim mun fyrr en
ella. Auk þess gera þeir ráð fyrir
að ríkissjóður fjármagni fram-
kvæmdirnar að verulegu leyti.
„Við gerum ráð fyrir að húsið
sjálft, að skólanum frátöldum,
muni kosta 634 miljónir króna og
það er að minnsta kosti helmingi
lægri tala en rætt var um í upp-
hafi. Og með þessari tengingu við
skólann og aðstöðu Breiðabliks
höfum við tryggt húsinu rekstrar-
grundvöll í framtíðinni,“ segir
Valþór Hlöðversson, bæjarfull-
trúi í Kópavogi og fulltrúi í við-
ræðunefnd bæjarins.
í BRENNIDEPLI
Sem stendur virðist því
líklegast að húsið verði
reistí Kópavogi, en
Hafnfirðingar eru mjög
áhugasamir og ekki er
heldur útilokað aðAkur-
eyringar muni lýsa yfir
áhuga sínum
Ekki fyrir
einn leik
„Það er alveg rétt hjá Davíð
Oddssyni að það er geðveiki að
ætla að reisa hús fyrir einn leik,
en það er alls ekki ætlun okkar.
Ríkið hefur lýst yfir því á al-
þjóðavettvangi að þetta hús verði
byggt og er undir þrýstingi um að
standa við þá yfirlýsingu. Við
bjóðum fram þessa lausn á mál-
inu og viljum fá afdráttarlaust
svar um það fljótlega hvort ríkið
hefur áhuga.
Ég geri ráð fyrir að ríkið muni
fjármagna framkvæmdirnar að
verulegu leyti,“ segir Valþór.
Hugmynd Hafnfirðinga er
komin frá Haukum og er talsvert
frábrugðin hugmynd þeirra í
Kópavogi. Bæjarráð Hafnar-
fjarðar hefur lýst einhuga yfir
stuðningi við áform Haukanna og
óskað eftir viðræðum við ríkis-
stjórnina um málið.
Haukar hafa fengið úthlutað
íþróttasvæði á Ásvöllum og
leggja til að þar verði reist hús
fyrir úrslitaleikinn. Þeir gera ráð
fyrir að síðan verði hægt að nota
húsið fyrir íþróttir, alls kyns sýn-
ingar og hljómleika.
Alfreð ákafur
Þorsteinn Steinsson, fjármála-
stjóri Hafnarfjarðar, segir að
Haukahúsið eigi að kosta 636
miljónir með öllum búnaði.
„Við verðum auðvitað að
skoða þetta mjög vel áður en
lengra verður haldið, en við höf-
um áhuga á að reisa þetta hús,“
segir Þorsteinn.
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og í
Kópavogi virðast vera einhuga í
áhuga sínum á að fá að reisa þetta
margumrædda hús. Allt annað er
uppi á teningnum í Reykjavík.
Álfreð Þorsteinsson, vara-
borgarfulltrúi og formaður Fram,
hefur verið ákafastur áhugamað-
ur um málið í borgarstjórn. Hann
hleypti af stað umræðum um mál-
ið á fundi borgarstjórnar í síðustu
viku og þar kom greinilega fram
að áherslur eru mjög mismun-
andi.
Alfreð lagði mjög að borgar-
stjórn að óska eftir viðræðum við
ríkið um byggingu húss, enda tel-
ur hann að neyð ríki í húsnæðis-
málum íþróttahreyfingarinnar í
Reykjavík og synd að hafna
fjármagninu sem væntanlega
kemur frá ríkinu.
Samningsstaðan
Það væri synd að segja að orð
hans hafi fallið í góðan jarðveg.
Davíð Oddsson sagðist til dæmis
ekki telja að borgin gæti haft
góða stöðu í hugsanlegum samn-
ingum við ríkið ef hún færi „á
fjórum fótum til manna sem sátu
á ríkisstjórnarfundi og sam-
þykktu að skera fjárveitingar til
framkvæmda við íþróttahús í
Breiðholti niður um fimm milj-
ónir.“
„Það er ekkert voðalegt þótt
úrslitaleikurinn fari ekki fram í
Reykjavík. Með fullri virðingu
fyrir okkar mönnum á ég ekki
von á að ísland leiki þennan úr-
slitaleik," segir Július Hafstein
við Þjóðviljann.
„Reykjavík er hins vegar alveg
tilbúin að ræða við ríkisstjórnina
ef óskað verður eftir því. Okkur
hefur bara ekki borist nein slík
ósk.“
Sigurjón Pétursson, Alþýðu-
bandalagi, sagði á borgar-
stjórnarfundi í síðustu viku að
hann væri ekki hrifinn af því að
byggja þyrfti þetta handboltahús,
en ef svo væri ætti það að rísa í
Reykjavík. Borgin ætti því að
óska eftir viðræðum við ríkis-
stjórnina.
-gg