Þjóðviljinn - 06.03.1990, Page 9
FRETTIR
Umhverfisráðherrar Norðurlanda
Dounreay mótmætt
Umhverfisráðherrar Norður-
landanna munu mótmæla
sameiginlega fyrirhugaðri endur-
vinnslustöð fyrir kjarnorkuúr-
gang f Dounreay í Skotland, á
Norðursjávarráðstefnunni sem
hefst í Haag í Hollandi í dag og
lýkur á morgun.
Á ráðstefnunni mun Júlíus
Sólnes umhverfisráðherra leggja
fram yfirlýsingu fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar varðandi mengun-
armál sjávar. Þar kemur fram að
íslendingar hafa áhyggjur af
mengun Norðursjávar þar sem
hún berst til íslands með sjávar-
straumum á fjórum til sex árum.
íslendingar leggja áherslu á
mikilvægi alþjóðlegra samninga
um varnir gegn mengun sjávar,
en benda á þá staðreynd að slíkir
samningar einir sér koma ekki í
veg fyrir mengunarslys. Því beri
að leggja áherslu á forvarnir og
yfirfæra sönnunarbyrði á meng-
unarvaldinn fremur en þá sem
verða fyrir mengun.
Þá er sérstaklega varað við
mengun sjávar af völdum geisla-
virkra efna, sem öllum fiskveiði-
þjóðum við N-Atlantshaf stafar
mikil ógn af. Auk þess sem Júlíus
tekur þátt í sameiginlegum mót-
mælum umhverfisráðherra
Norðurlandanna á Dounreay
mun hann ítreka mótmæli íslend-
inga.
I yfirlýsingunni er sagt frá
þriggja ára framkvæmdaáætlun
íslensku ríkisstjórnarinnar, sem
lýtur að umfangsmiklum mæling-
um á sjávarmengun við ísland.
Enn fremur kemur fram sú
skoðun, að nú þegar beri að
draga verulega úr losun úrgangs-
efna í sjó og í mörgum tilvikum
banna slíka losun algerlega.
Æskilegt er, að landstöðvar, sem
hafa frárennsli til sjávar, noti
bestu mögulegu tækni til að
hreinsa skólp og annan úrgang
fyrir losun. _Sáf
Svínaræktin
Hemil á framleiðsluna
Þegar metnir eru möguleikar í
svínakjötsræktuninni verður að
nokkru að taka mið af þeim
óstöðugleika, sem greinin hefur
búið við á undanförnum árum,
sagði Hörður Harðarson í Laxár-
dal á ráðunautafundi 1990.
Framleiðsla svínakjöts hefur
aukist úr 956.973 kg árin 1981-
1982 í 2.579.443 kg 1988/1989. Þó
hefur verðlag oftast haldist í
hendur við eðlilegt framboð og
eftirspurn þótt komið hafi fyrir
að verð til framleiðenda hafi farið
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Kvöldvaka
Kvöldvaka Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður haldin
í sal Sveinafélags járniðnaðarmanna við Heiðarveg föstudaginn
9. mars klukkan 20.30.
Dagskrá: Borðhald - Skemmtiatriði - Söngur. Þátttökutilkynnmgar
berist til Huldu í síma 1 -16-84, Baldvins s: 1 -22-79 og Guðmundu í
síma 1-21-26.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Félagsmálanefnd AB
AB Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðanreppi
Kvöldskemmtun í Gaflinum
Alþýðubandalagsfélögin í Hafnarfirði, Garðabæ og
hreppi halda sameiginlega kvöldskemmtun
í Gaflinum föstudag inn 9. mars kl. 20.
Léttur kvöldverður og skemmtiatriði. Ræðustúfa flytja
Magnús Jón Árnason og Hilmar Ingólfsson.
Miðaverð kr. 1300.
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. Stjórmrnar
Alþýðubandalagið Kópavogi
Skrifstofa félagsins
verður fyrst um sinn opin frá kl. 15-18.30 mánudaga-fimmtudaga.
Fólagar eindregið hvattir til að koma á skrifstofuna til að fá f réttir af
málefnum bæjarfélagsins og greiða félagsgjöldin.
Sími 41746. Stjórnin
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld verður haldið í Þinghól, Hamraborg 11, þriðju hæð,
mánudaginn 12. mars kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Málefnaumræðu fram haldið í kvöld, uppi á Punkti og pasta
(áður Torfunni), hefst 20.30.
Hópnefnd
FRA MENNTAMÁLA-
RÁÐUNEYTINU:
Laus staða
Staða fræðslustjóra í Suðurlandsumdæmi er laus til
umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júní 1990.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 3. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið
niður tyrir kostnaðarverð, eink-
um árin 1983-1984 og 1989, en þá
jókst framboðið snögglega. Of
hröð framleiðsluaukning er
greinilega eitt helsta vandamál
greinarinnar um þessar mundir.
Til lausnar á því hafa svínabænd-
ur bent á ýmsar hugmyndir, svo
sem þak á bústærð og setningu
reglugerðar um aðbúnað og holl-
ustuhætti á svínabúum, sem nú er
unnið að í landbúnaðarráðu-
neytinu. Þar er gert ráð fyrir að
öll svínabú verði tekin út af dýra-
lækni a.m.k. einu sinni á ári og
þau bú ein, sem uppfylla ákvæði
reglugerðarinnar, fái starfsleyfi.
Flestir þeir, sem byrjað hafa
framleiðslu án þess að viðunandi
aðbúnaður og þekking hafi verið
til staðar, hafa fljótlega helst úr
lestinni. Áf lauslegri athugun má
ætla að af hverjum 15 nýjum
framleiðendum hafi aðeins tveir
náð sæmilegum tökum á svína-
ræktinni. Hverjum bónda er
nauðsynlegt að fylgjast vel með
þróun kjötmarkaðarins og hafa
vissan sveigjanleika í framleiðsl-
unni.
Að undanförnu hafa framleið-
endur orðið að taka á sig sífellt
stærri hluta af vægi söluskatts á
svínakjöt, sem síðan hefur leitt til
rekstrarerfiðleika og vanskila. Á
þessu þarf að ráða bót.
Athuga þarf möguleika til hag-
ræðingar á rekstri sláturhúsa,
með sameiningu þeirra og
aukinni samvinnu sláturleyfis-
hafa. Tryggja þarf að erfiðleikum
í rekstri kjötvinnslu og smásölu-
verslunar verði ekki mætt með
hækkun á sláturkostnaði. Því er
eðlilegt að sláturhús hafi sjálf-
stæðan fjárhag, óháð öðrum
deildum fyrirtækja með fjölþætta
starfsemi.
Dreifingu og markaðssetningu
þarf að endurskoða f ljósi þeirrar
þróunar, sem orðið hefur í beinni
sölu framleiðenda til smásölu-
verslana. Þau viðskipti hafa oft
valdið bændum stórtjóni í töpuð-
um afurðatekjum. Áthuga þarf
hvernig unnt er að auka hlutdeild
viðurkenndra afurðastöðva í
vinnslu og markaðssetningu og
jafnframt sé reynt að draga úr
beinni sölu framleiðenda til versl-
ana, en hún hefur torveldað
skipulag á framleiðslumagni og
framboði og örvað til undirboða
einstakra framleiðenda. - Endur-
Umboðsmaður
Skattamál
og forsjármál
algengust
Alls bárust umboðsmanni AI-
þingis 150 kvartanir frá einstak-
lingum og samtökum á síðasta
ári. Auk þess tók hann upp 4 mál
að eigin frumkvæði og sem 35
málum var ólokið í upphafi árs-
ins. Alls fjallaði umboðsmaður-
inn því um 189 mál á árinu og
þegar hafa 122 þeirra hlotið af-
greiðslu.
Kvartanir sem borist hafa til
umboðsmanns hafa lotið að ýms-
um þáttum í stjómsýslunni.Flest-
ar kvartanir hafa lotið að fram-
kvæmd skattamála, eða 13 tals-
ins, og næstflest um ákvarðanir
stjórnvalda í skipan forsjár barna
og umgengnisréttar og meðferð
slíkra mála, eða 11 talsins. í 9
tilvikum var kvartað yfir meðferð
og afgreiðslu í málum er varða
atvinnuréttindi og atvinnuleyfi.
Af öðrum málaflokkum má
nefna málefni opinberra starfs-
manna, málefni fanga og annað
er lýtur að fangelsum og meðferð
ákæruvalds.
29 málum lauk með því að um-
boðsmaður lét uppi álit sitt á því
hvort athöfn stjórnvalda bryti í
bága við lög eða vandaða
stjórnsýsluhætti. í 23 málum kom
ekki til frekari afskipta umboðs-
manns, þar sem aðilar höfðu ekki
skotið málum sínum til æðra
stjórnvalds áður en kvörtun var
borin fram. f 29 málum var fallið
frá kvörtun eða kvörtun gaf ekki
tilefni til frekari meðferðar að
lokinni frumathugun og í sumum
tilvikum höfðu þeir, sem báru
fram kvörtun, fengið leiðréttingu
á sínum málum eftir að umboðs-
maður beindi fyrirspurn til hlut-
aðeigandi stjórnvalds. -Sáf
skoða þarf gildandi reglur um
mat og merkingu svínaafurða.
Með samstarfi kjötframleið-
enda og afurðastöðva má helst
tryggja að framboð og hag-
kvæmni í framleiðslu og vinnslu
verði með þeim hætti, að neyt-
endur sjái sér hag í kaupum á ís-
lenskum kjötafurðum, sagði
Hörður Harðarson.
-mhg
Hafrannsókn
Deilt um smælkið
Mælingar eftirlitsmanna sjáv-
arútvegsráðuneytisins á síð-
asta ári á undirmálsfíski í afla tog-
ara gefa til kynna að hann hafí
aðeins verið 4 þúsund tonn. Sú
niðurstaða stangast því mjög á
við þá sem fram kom í skoðana-
könnun sem Skáís gerði fyrir
Kristin Pétursson alþingismann
en þar kom fram að togarar fleygi
árlega 16.604 tonnum aftur í sjó-
inn. Sambærilegar upplýsingar
liggja þó ekki fyrir um bátaflot-
ann.
Á vegum Hafrannsóknastofn-
unar hafa verið gerðar nokkrar
tilraunir til að meta úrkast smá-
þorsks, auk þess sem tölulegar
upplýsingar liggja fyrir sem gefa
vísbendingu um breytingar í þess-
um efnum síðustu 15 árin. Sam-
kvæmt þeim minnkaði hlutur
smáfisks verulega þegar möskvi í
togveiðarfærum var stækkaður á
árunum 1976-1977 og hlutfall
smáfisks í afla var í lágmarki á
tímabilinu 1978-1981. Áárunum
1982-1984 jókst hlutur smáfisks í
afla og hélst hár til og með 1987.
Eftir það hefur dregið úr smáfisk-
adrápi en einkum þó á síðasta ári.
-grh
MINNING
Ingibjörg Krístjánsdóttir
F. 28. júní 1898 - D. 26. febrúar 1990
Ekkert mannshjarta er svo
sterkt að eitt sinn hætti það ekki
að slá, engin vegferð svo löng að
sá dagur renni ekki upp að henni
ljúki. Hún Inga vinkona mín hóf
göngu sína hér í heimi vestur á
Patreksfirði í lok síðustu aldar og
þar sleit hún fyrstu skónum sín-
um. Þaðan átti hún margar sínar
fegustu minningar en jafnvel þær
sárustu. Þá sögu þekki ég ekki
nema af örstuttum frásögnum
hennar um þessa tíma, oftast
skotið inn í annað rabb og vanga-
veltur um tilveruna.
Leið Ingu lá til höfuðborgar-
innar, þar sem hún ól aldur sinn
lengst af síðan. Erfiðisvinnan
varð hlutskipti hennar á þessum
stað. Árum saman flakaði hún og
beinskar fisk til útflutnings og
lagði þannig með verkum sínum
grunn að því vellauðuga samfé-
lagi sem við búum í núna, án þess
að bera mikið úr býtum sjálf. Því
að veraldlegur auður safnaðist
Ingu aldrei og iðulega var hún á
hrakhólum með húsnæði. Efna-
leg fátækt Ingu var að miklu leyti
naumum launakjörum dagl-
aunakonunnar að kenna, en hitt
hygg ég þó ekki síður hafa verið
ástæðuna að Inga var ósínk á au-
rana við þá sem henni voru kærir,
og gjafir hennar oft stórtækari en
efnin hefðu leyft eigingjarnari
huga.
Því að hjartað hennar Ingu sló
fyrir aðra, einkum þó Hlín frænd-
konu hennar Magnúsdóttur og
afkomendur hennar. Þeim gaf
hún ást sína og umhyggju eftir
fremsta megni. Nú er þetta hjarta
hætt að slá og Inga hefur stigið sín
hinstu spor meðal okkar. A þess-
ari stundu er mér efst í huga
þakklæti í garð Ingu fyrir
ómetanleg kynni og vináttu.
Aldrei man ég eftir því að ég bæri
svo upp við hana erindi að hún
yrði ekki við því. Hafi forsjónin
heila þökk fyrir að láta leiðir okk-
ar skerast.
Trausti Ólafsson