Þjóðviljinn - 10.03.1990, Side 1

Þjóðviljinn - 10.03.1990, Side 1
Laugardagur 10. mars 1990 48. töKiblað 55. árgangur. >>.>’> m í sólinni á Frakkastígnum bylgjast pálmarnir fyrir útsynningnum af Sundunum og vegfarendur njóta lífsins í áhyggjuleysi íklæddir Álafoss-vettlingum og -treflum. En þrátt fyrir þessa suörænu vin í hjarta borgarinnar þá svíkur göngulag vegfarendanna ekki sinn norræna uppruna og takt, sem er bæði markviss og ákveðinn og meira í ætt við marsúrka en rúmbu. Mynd Jim Smart. 'J/i* * ; , • ■ * ,-ys. * /i >'/ ' * "t; ■ ^ ' Kópavogur íhuga framboð Konur Kvennalistakonur í Kópavogi íhuga að bjóða fram lista við komandi bæjarstjórnarkosning- ar í Kópavogi. Ef af framboði verður er þetta í fyrsta skipti sem konur bjóða fram sérstakan kvennalista þar í bæ. Að sögn Þórönnu Pálsdóttur veðurfræðings hefur ákvörðun þar að lútandi ekki enn verið tekin, enda nægur tími til stefnu að skila inn framboðslista þar sem skilafrestur er til 27. apríl. Þó er málið komið það langt að stefnt er að því að hefja undir- búningsvinnu fyrir framboðið á næstunni sem og vinnu við þau málefni sem væntanlegt framboð mun leggja áherslu á. -grh Ríkið Fokdýr hönnun Hönnun og ráðgjöf vegna Þjóðleikhússins komin ínœr50 miljónir króna. SvavarGests- son: Ekki óeðlilegt miðað við það sem gengur og gerist, en nauðsynlegt að ná kostnaði niður Hönnunarkostnaður er al- mennt allt of hár og ríki og borg þurfa að bindast samtökum um að ná honum niður. Það er almennt viðurkennt að hönnun- arkostnaður hjá ríki og borg er mun hærri en hjá einstaklingum. En ég held ekki að hönnunar- kostnaður vegna breytinganna á Þjóðleikhúsinu sé óeðlilegur mið- að við það sem gengur og gerist, sagði Svavar Gestsson, mennta- málaráðherra, í samtali við Þjóð- viljann. Að sögn Svavars eru dæmi um að hönnunar- og skipulagskostn- aður nemi fjórðungi af heildark- ostnaði þegar um er að ræða breytingar á gömlum húsum. Viðmælendur Þjóðviljans halda því hins vegar fram að hönnunarkostnaður hér á landi sé yfirleitt mun lægri sem hlutfall af heildarkostnaði en tíðkast í nágrannalöndunum. Svavar hefur svarað fyrirspurn Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar um hönnunarkostnað vegna breytinganna á Þjóðleikhúsinu. í svari Svavars kemur fram að kostnaður vegna hönnunar og þjónustu ráðgjafa nemur nú nær 50 miljónum króna, en búist er við að þegar upp verður staðið muni kostnaðurinn verða 80-90 miljónir króna. Um er að ræða framkvæmdir upp á 540 miljónir króna, svo kostnaður við hönnun, ráðgjöf og eftirlit verður rúmlega 15 af hundraði kostnað- ar. Hönnunarkostnaður vegna Þjóðleikhúss á síðasta ári nam rúmlega 37 miljónum króna. Stærsti reikningurinn kom frá húsameistara ríkisins, nær 15 miljónir. Að sögn Svavars eru enn væntanlegir reikningar frá húsameistara upp á 4,8 miljónir króna. Ráðgjafar hafa fengið um 2,3 miljónir króna, en þar af hefur Stefán Einarsson fengið mest, eða 582 þúsund krónur. Ung- verski sérfræðingurinn sem kall- aður var til ráðgjafar fékk 560 þúsund fyrir snúð sinn. Starfsmaður og starfslið bygg- ingarnefndar hafa fengið tæplega þrjár miljónir króna. Þá er ótal- inn kostnaður frá árinu 1988, en hann er upp á rúmlega eina og hálfa miljón króna. Sigurður Gíslason, yfirarkitekt hjá húsameistara ríkisins, sagði í samtali við Þjóðviljann, að 20 miljóna reikningur frá embættinu væri ekki óeðlilegur miðað við eðli og umfang verksins. Hann sagði að verkið væri bæði mikið og flókið og hugmyndir hafi breyst mikið á hönnunartím- anum. „Við erum oft búnir að byrja upp á nýtt síðan hafist var handa. Auk þess er meira en hönnun innifalin í þessum kostnaði. Þarna er líka verið að tala um undirbúning, athugun á starfsemi Þjóðleikhússins, mælingar og teikningu á húsinu eins og það er í dag og fleira," sagði Sigurður. Hann sagði starfsmenn húsa- meistara vinna eftir útseldum taxta, sem væri á bilinu 1500 til 2500 krónur. „Það er hægt að telja kostnað- inn við hönnun breytinga á Þjóð- leikhúsinu of háan ef menn kynna sér ekki málin. Ég skil vel að fólki blöskri þessi háa tala, en hún er í stórum dráttum eðlileg miðað við aðstæður og að þarna er verið að breyta gömlu húsi. Það hefði engu breytt þótt öðrum en húsameistara hefði verið falið að hanna þetta," segir Skúli Guð- mundsson, formaður bygging- arnefndar. Þess má geta að þjónusta hönnuða hækkaði um 15 af hundraði með tilkomu virðis- aukaskatts um áramótin. -gg Fertugsaldurinn Heilbrígðir frumburðir í nýjasta tölublaði læknatímar- itsins „New England Journal of Medicine“ kemur fram að konur hátt á fertugsaldri eignast jafn- heilbrigð börn og konur undir þrítugu. Þetta stríðir gegn viðtek- inni bálbilju um að það sé hætt- uspil fyrir konur að eignast fyrsta barn sitt eftir 35 ára aldur. Gertrud Berkowitz læknir, sem starfar hjá Montain Sinai læknaskólanum í New York, hafði yfirumsjón með rannsókninni sem náði til 3.917 mæðra á öllum aldri yfir tvítugt. Þetta er víðtækasta samanburð- arkönnun á frumburðum kvenna á mismunandi aldri og mæðrum þeirra í Bandaríkjunum. Könnunin leiddi í ljós að mæðrum yfir 35 ára aldri var ekki hættara við að eignast andvana börn en konum á þrítugsaldri. Það voru ekki meiri líkur fyrir að þær eignuðust frumburðinn fyrir tímann og börnin þroskuðust ekki hægar en frumburðir kvenna á milli tvítugs og þrítugs. Hins vegar var meðalþyngd barna eldri kvennanna örlítið minni og það varð oftar að nota keisaraskurð en hjá yngri kon- um. Meðgöngutíminn var líka heldur erfiðari hjá þeim eldri. Reuter/rb

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.