Þjóðviljinn - 27.03.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 27.03.1990, Blaðsíða 5
FORVAL ALÞÝÐUBANDALAGSINS I REYKJAVÍK Þriöjudagur 27. mars 1990 ÞJÓÐVIUHNN - SlDA S FRAMBJÓÐENDAKYNNING 1 13mannstakaþáttíforvaliAlþýðubandalagsinsíReykjavíkvegnaborgarstjórnarkosninganna26. maí. Þjóðviljinn kynnir í dag og á næstu dögum frambjóðendurna íforvalinu Soffía oiguroardottir húsmóðir Soffía Siguröardóttir er 32 ára húsmóðir og 3 barna móðir, næstelst 5 systkina, faedd og uppalin á Neistastöðum í Villinga- holtshreppi í Árnessýslu, þar sem hún bjó fram á unglingsár. Að loknu námi í Reykja- vík hefur hún m.a. stundað umönnunar- og framreiðslustörf, og t.d. unnið á barnageð- deild og i verksmiðjuvinnu. Hún hefur setið í stjóm Utvarps Rótar frá upphafi og var þar útvarpsstjóri, stundaði bæði tæknivinnu og dagskrárgerð. - Hver hafa verið afskipti þín af fél- agsmálum? - Ég gerðist virkur þátttakandi í Sam- tökum herstöðvaandstæðinga strax á ung- lingsaldri og hef setið í stjóm þeirra. Ég hef líka tekið þátt í starfi og aðgerðum Heima- varnarliðsins upp á síðkastið. Á sínum tíma var ég félagi í KSML og lít nú á það skeið sem góðan félagsmálaskóla. Sú reynsla hef- ur nýst mér vel, bæði í störfum og í pólitík. Þar voru snörp skoðanaskipti, maður lærði að umgangast margs konar fólk og viðhorf. - Hvernig líst þér á stöðuna í Alþýðu- bandalaginu núna? -Ég hef aldrei gengið í Alþýðubandalag- ið, en held að það sé nauðsynlegt að stefna að því að þeir sem nú deila innan þess geti átt gott samstarf í framtíðinni. Á sama hátt hefd ég að það sé mikilvægt að geta átt samstarf við aðra flokka sem nú eru í minnihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Hins vegar finnst mér Alþýðubandalagið kannski á þingi og í ríkisstjórn hafa lagt full mikið kapp á að sanna að það væri gjald- gengt við stjórn landsmála og þess vegna ekki gert sín sjónarmið alveg nógu gildandi. Við vinstra fólk þurfum ekki að fara í fötin annarra til að sanna okkur. - Hver eru helstu áhugamál þín í borg- armálunum? - Ég lít á borgina sem samastað fólks og að það sé frumskilyrði að þar sé vistiegt að búa og að haldið sé uppi viðunandi félags- legri þjónustu. Sérstakan áhuga hef ég á að efla almenningssamgöngur í stað einkabíl- anna, sem kalla á endalaus bflastæði og skapa þrengsli á götunum. Ég vil bætta að- stöðu fyrir börnin og skólana, að stefnt sé að einsetnum skóla, það er mjög mikilvægt atriði fyrir börn. Það vantar líka aukin úti- vistarsvæði, þar sem þau eru óhult og geta unað sér vel, börnin í Reykjavik eru alltof mikið úti á götunum. Að sumu leyti er þessi borg ekki hundum, hvað þá bömum, bjóð- andi. Draumar mínir um framkvæmdir í borg- dnni snúast ekki um minnisvarða og stræti, heldur mannlega þáttinn. Guðmn Kr. Óladóttir varaformaður og skrifstofu- stjóri Sóknar Guðrún Kr. Óladóttir er 39 ára, fædd og alin upp í Reykjavík, á eina dóttur og búa þær í Vesturbænum. Guðrún hefur verið skrifstofustjóri Starfsmannafélagsins Sóknar frá 1987 og varaformaður félagsins frá 1988. Hún hefur lengst af starfað hjá Reykjavíkurborg, ævinlega í launamálum, m.a. á launadeild Borgarspítalans og síð- ast sem deildarstjóri í starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar. Guðrún Kr. hefur setið í fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í 8 ár. - Hverjar eru áherslur þínar í borgarmál- um? - Þær mótast talsvert af því sem ég vinn við. Ríkasta sveitarfélag landsins, Reykja- víkurborg, greiðir lægstu launin af öllum sveitarfélögum. Fólk gerir sér ekki almennt grein fyrir þessu, ekki einu sinni borgar- starfsmennirnir. Það þarf líka að breyta því fyrirkomulagi, að margt sem varðar starfsmenn borgarinn- ar og stéttarfélög þeirra er til meðferðar og umræðu í nefndum og ráðum, en þessir að- ilar fá lítið að vita af. Reykjavíkurborg er stærsti viðsemjandi Sóknar, svo ég hef kynnst þessu vel. - Af öðrum áhersluþáttum vil ég nefna atriði eins og heimaþjónustuna og skipulag hennar. Við hjá Sókn höfum fylgst grannt með þróuninni þar. Starfsfólkið sem sinnir heimaþjónustunni er afar einangrað, fé- lagslega og á vinnustað, en ég vona að það lagist með hverfaskiptingu þjónustunnar. Borgin þarf líka að sýna meiri dugnað við uppbyggingu dagvistarheimila og ekki síst koma á skólamötuneytum. - Hefur þú lengi starfað í Alþýðubanda- laginu? - Ég starfaði með því fyrr á árum, en gekk á sínum tíma til iiðs við Kvennafram- boðið. Hins vegar fannst mér ég ekki eiga erindi í Kvennalistann. Svo gekk ég nýlega í Alþýðubandalagið aftur. Það stendur næst mínum skoðunum í öllum aðaláhugamál- um. Þrátt fyrir þær deilur sem þar hafa staðið tel ég ailt það fólk sem í þeim hefur staðið vel samstarfshæft áfram, efast ekki um það. Samt skil ég ekki það frumhlaup, fyrst bæði Kvennalisti og Framsóknarflokkur höfðu hafnað samstarfi, að vinna með krötum. — Hver eru áhugamál þín? - Ég hef nú verið á kafi í verkalýðsmálum frá 1978, byrjaði þá í Samtökum kvenna á vinnumarkaði, svo þau hafa tekið mestan tímann. Hins vegar hef ég mjög gaman af bóklestri og sagnfræði er mitt uppáhald. Ég bíð eftir því að Háskóli íslands opnist fólki af götunni eins og mér. Ég hef ekki tíma til að vera í öldungadeild, hef þrisvar þurft frá slíku námi að hverfa vegna tímaskorts. - Annars er aðaláhugamál mitt og von sú, að fólk í þessu landi fari einhvem tíma að geta lifað af þessari dagvinnu sinni. Stefanía Traustadóttir félagsfrœðingur og starfsmaður Jafnréttisráðs Stefanía Traustadóttir er 38 ára félags- fræðingur, ólst upp á Ólafsfiröi og á Akur- eyri, stundaði framhaldsnám og atvinnu í Þrándheimi í Noregi og vann á sínum tíma við Kvennaathvarfið í Reykjavík. Hún starf- ar nú hjá Jafnréttisráði og annast kennslu við Fósturskóla (slands. Hún á eina dóttur og búa þær í Þingholtunum. Stefanía hefur verið formaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík frá 1988. - Hvað leggur þú mesta áherslu á í borg- armálum? - Ég tel að meginvandinn núna sé það hvernig stjórnkerfi Reykjavíkur er byggt upp. Því verður að breyta svo unnt sé að breyta öðru. í sjálfu sér em allir sammála um að hér þurfi manneskjulegra umhverfi, bamaheimili og aukna þjónustu fyrir aldr- aða, en ég held að þetta verði ekki að raun- veruleika fyrr en þetta fyrirtæki, Reykja- víkurborg, verður rekið með hagsmuni allra í huga en ekki bara fyrir þá fáu sem þar ráða. Ég er líka í þessu sambandi að hugsa um dreifingu á valdi, til þeirra sem eru valdir í almennum kosningum, til nefndanna, til þeirra sem sitja með fagþekkingu á málum. Með því móti er hægt að taka ákvarðanir sem henta öllum, en ekki fáum. Þetta miðstýrða og úrelta stjórnkerfi borgarinnar stóð vinstri meirihlutanum fyrir þrifum á sínum tíma, málefnin náðu ekki fram að ganga. Það er spurning í hvaða átt Reykjavík er að þróast. Hún er að verða stórborg og hér þarf að dreifa ákveðnum hlutum, búa til fleiri kjarna, alhliða þjón- ustukjarna, sem draga úr umferð osfrv. í Reykjavík ríkir ákveðin neyð og ó- fremdarástand í dag, en það vantar pólitík til langs tíma og ákvarðanir sem eru miðað- ar við það. - Hvað segirðu um stöðuna sem komin er upp í framboðsmálunum með Nýjum vett- vangi? Þetta er ákveðin afleiðing af ágreiningi sem hefur verið að þróast smám saman nokkur undanfarin ár. Áður var hann fal- inn að hluta sem ágreiningur um persónur, en svo er ekki lengur. Nú er hann sýnilegur sem málefnaágreiningur. Reykjavík er höf- uðborg, hér er langmesta fjölmennið, hér er sjálfsagt og eðlilegt að til sé G-listi Al- þýðubandalagsins. Við mátum það þannig í Alþýðubanda- iaginu í Reykjavík að tími hinnar miklu sameiningar væri enn ekki runninn upp, en vonandi verður það einhvern tíma í fram- tíðinni. Forsendur ABR fyrir því að bjóða fram G-lista eru þær, að málstaðurinn og hugmyndagrundvöllurinn sem Alþýðu- bandalagið byggir á nái ekki bara til lands- mála, heldur til þess að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi og hvemig það er frá degi til dags. Einar Gunnarsson formaður Félags blikksmiða Einar Gunnarsson er 40 ára, ólst upp í Höfðaborginni í Reykjavík til 7 ára aldurs, fluttist með foreldrum sínum meðal annars til Húsavíkur og Kópavogs, en býr nú með konu og 3 börnum í Breiðholti. Hann hefur verið formaður Félags blikksmiða frá 1984 og er m.a. í skólanefnd Iðnskólans í Reykja- vík. Hann situr nú einnig í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkur og hefur setið í Iðnfræðsluráði. Einar hefur starfað mikið að fræðslumálum sinnar stéttar og verkalýðsfélaganna. Einar er í Þjóðleikhússkórnum og hefur sungið með Karlakór Reykjavíkur frá 1976. Hann stundar söngnám við Söngskólann í Reykjavík. - Hverjar eru þínar höfuðáherslur í borg- armálum? - Fyrst og fremst þær að koma hér á mildara stjórnskipulagi í borginni. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn reyni að láta líta svo út að lýðræðið ráði, er borgin mjög mið- stýrð. Það væri til dæmis annað ástand hér, ef þeim peningum sem eytt hefur verið í „Perluna" á Öskjuhlíð hefði verið varið til að byggja leiguíbúðir. Hins vegarer áróður þeirra oft klókindalegur. Það hefur lítið gerst í mörgum þeim málum sem þeir þótt- ust berjast fyrir meðan þeir voru í minni- hluta í borgarstjórn. Áherslurnar gleymdust þegar þeir komust að. Vinstri flokkunum tókst ekki að breyta verulega til á 4 árum, af ýmsum orsökum, tíminn var of stuttur og við tregðulögmál að etja í stjórnkerfinu. - Hver eru helstu áhugamál þín? - Ég er mikill unnandi tónlistar og menn- ingar, og hef þess vegna mikinn áhuga á að borgin styrki og styðji betur slíka starfsemi. - Hefurðu lengi starfað með Alþýðu- bandalaginu? - Já, frá árinu 1968. Eg hef ekki tekið mikinn þátt í þessu pólitíska starfi, en fylgst með málum alla tíð. Ég hef því ekki skemmst mikið af deilumálum innan flokksins og ekki fundist þau snúast um pólitík heldur skítinn í kirkjunni, dæg- urþras. Framtíð Alþýðubandalagsins er hins vegar jafnbjört í mínum augum eftir sem áður. Ég held að það geti verið auðveldara að ná samstarfi, þegar óánægt fólk er farið á annan vettvang. Ég var ekki fylgjandi því að Alþýðu- bandalagið gengi inn í ríkisstjórnina á sín- um tíma og finnst áherslur flokksins innan hennar hafa verið of kratískar. Mér líkar vel við Svavar, en vildi að hann legði meiri áherslu á verknám. Nú er nýkomið til sög- unnar Fræðsluráð málmiðnaðarins á vegum fyrirtækjanna og iðnsveinafélaganna og er komið vel á veg þrátt fyrir peningaskort.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.