Þjóðviljinn - 27.03.1990, Qupperneq 7
Um nýja sérkennslureglugerð
Bergþóra Gísladóttir skrifar
Það orkar jafnan tvímælis
hvaða umræða á erindi á síður
dagblaða og hver ekki. Ég fletti
gjarnan yfir heilsíðugreinar um
sóknarmark, aflakvóta eða um
þróun hagvaxtar svo dæmi séu
tekin. Ekki vegna þess að mér
finnist málefnin ekki svo áhuga-
verð eða varða mig. Heldur
vegna þess að ég hef reynslu af
því að eftir því sem menn skrifa
lengri greinar um sérfræðiefni því
torskildari eru þær almenningi.
Nú óttast ég að falla í sömu
gryf j u. En ég finn mig tilknúna að
setja orð á blað vegna umræðu
sem orðið hefur um setningu ný-
rrar sérkennslureglugerðar.
Það er fagnaðarefni fyrir þá
sem bera hag barna með sér-
kennsluþarfir fyrir brjósti að
Fyrir um það bil tvö þúsund og
fjögur hundruð árum voru skrif-
aðir og leiknir harmleikir og gam-
anleikir í grísku borgríki sem hét
Aþena. Þá réð þar um skeið góð-
viljaður og vitur Aþeningur sem
þótti þessi leiklist svo mikilsverð
að hann skipaði svo fyrir að al-
menningur skyldi fá ókeypis á
leiksýningar. Þessir leikir voru
svo djúptækir og nærgöngulir í
framsetningu og afhjúpun á
mannlegri hegðun, samspili æðri
og lægri hvata og skírskotun til
mannlífsins að betur hefur ekki
tekist síðan. Nútíma leikhús á
Vesturlöndum rekur uppruna
sinn til þessa gríska leikhúss.
Þangað eiga líka grímur tvær,
sem hafa orðið tákn leiklistar um
víða veröld, rót sína að rekja og
þó reyndar enn lengra aftur.
önnur gríman er tákn hins mesta
hláturs: Þegar hláturinn er orð-
inn svo mikill að næsta stig er
grátur. Hin gríman er tákn hins
mesta harms: Þegar harmurinn er
orðinn svo mikill að næsta stig er
hlátur. Milli þessara tveggja
andstæðna, sem eru þó svo ná-
tengdar að þegar annarri sleppir
tekur hin við, er veruleiki
leikhússins. Svo í dag sem í gær.
Svo á íslandi árið 1990 eftir Krist
sem í Aþenu 400 fyrir Krist. Og
svo nákomin er leiklistin lífinu að
loksins skuli vera von á nýrri sér-
kennslureglugerð sem leysi af
hólmi sérkennslureglugerð frá
1977. En sú reglugerð var frum-
raun í að fella sérkennslu inn í
löggjöf um grunnskóla. Á þess-
um tíma var þróun sérkennslu á
íslandi stutt komin miðað við það
sem nú er. Gamla reglugerðin
ber keim af þessu. Auk þess hef-
ur hún úrelst á ýmsum sviðum,
því þróun sérkennslumála hefur
að sumu leyti verið önnur en þá
var gert ráð fyrir og veigamiklar
breytingar hafa orðið á öðrunr
sviðum sem snerta fatlaða.
Nýja reglugerðin leitast við að
taka mið af breytingum sem þeg-
ar hafa orðið á skólakerfinu og
ánægja er með. Auk þess er reynt
að koma til móts við álit sem
við gætum allt eins látið þessar
tvær grímur hláturs og harms
tákna mannlífið sjálft, kannski að
viðbættri þriðju grímunni: Svip-
lausri grímu tómlætisins. En hvað
sem menn annars gera við sjálfa
sig fer enginn í leikhús til að yrkja
tómlæti sitt. Þangað fara menn til
að leita sér lífs. Og þegar heppnin
er með, þegar vel er skrifað og vel
er leikið, þegar hinn mesti hlátur
er svo innilegur og hin mesta sorg
svo djúp að ekki verður lengur
skilið milli leiks og lífs, þá er ekki
lengur spurt hver leikur, hver
stjórnar, hver horfir á. Þá er svið
og veggir og loft og gólf numið
burt og hið eiginlega leikhús
verður til: Fágæt og dýrmæt
reynsla sem færir okkur nær sjálf-
um okkur, nær hvert öðru, brúar
bilið milli manns og manns um
stund, fáein, ósvikin andartök.
Um nokkurt skeið hefur verið
hörgull á góðviljuðum og vitrum
landstjórnarmönnum, svipuðum
þeim og var í Aþenu fyrir 2400
árum. Og ekki er mjög líklegt nú
á tímum að stund í leikhúsi, þótt
dýrmæt sé, vegi þungt í mann-
skæðri leit okkar að betra lífi. En
hún hjálpar okkur að halda í
horfinu og það er ekki svo lítið.
Með það í huga halda liðsmenn
leikhúsa um allan heim al-
þjóða-leikhúsdaginn hátíðlegan.
flestra sem málið varðar. Má í því
sambandi nefna stefnu ýmissa
hagsmunafélaga fatlaðra og fag-
hópa. Að sjálfsögðu þarf oft að
fara bil beggja þegar ekki er sam-
komulag um stefnu og stundum
þarf að taka mið af raunveruleika
sem tiltölulega fáir eru sáttir við.
Má í því sambandi nefna pen-
ingahliðina á þessari reglugerð.
En meðan íslenska þjóðin er ekki
tilbúin að borga meira til skóla-
mála en raun ber vitni (með því
að taka á sig meiri skatta) er
naumast betra von.
Ég vil nú telja upp nokkur atr-
iði sem eru nýmæli í þessari reglu-
gerð og eru til bðta:
1. Reglugerðin tekur mið af
valddreifingu. Það kemur fram á
ýmsa vegu. Fræðsluskrifstofum
er falin úthlutun á sérkennsiutím-
um en það var áður í höndum
menntamálaráðuneytisins. E.t.v.
væri réttara að segja að úthlutun
hafi áður verið í höndum fjár-
málaráðuneytisins eða Alþingis.
Því meðan engin ákvæði voru um
fast tímamagn sem varið skyldi til
sérkennslu fór lokaafgreiðsla
slíkra mála fram við fjárlaga-
reglugerð ár hvert. Óvissa varð-
andi úthlutun sérkennslutíma
truflaði mjög allan undirbúning
sérkennslu og reyndar skólastarf-
ið í heild sinni.
2. Reglugerðin tryggir tíma-
magn til úthlutunar í hlutfali við
nemendafjölda. Með því er úr
sögunni langvarandi blekkinga-
leikur. Gamla reglugerðin gerði
ráð fyrir að börn ættu rétt á svo og
svo mörgum tímum ef þau hefðu
tilteknar fatlanir. Þetta leiddi til
þess að miklum tíma og kröftum
var varið til að sýna fram á hversu
fötluð bömin væm og síðan beðið
viðbragða menntamálaráðuneyt-
isins. Menntamálaráðuneytið
beið svars frá fjármálaráðuneyti.
Lokaniðurstaða var sjaldan á
þann veg að umsækjendur um
sérkennslutíma væm sáttir við
hana. Þótti þeim oftar en ekki að
brotin væru lög á skjólstæðingum
sínum eða að þeirra eigin fag-
mennska væri ekki virt. Niður-
staðan af þessu varð gjarnan sú
að ofuráhersla var lögð á
greiningu en nauðsynleg skipu-
lagsvinna í sambandi við sérk-
ennslu varð útundan og ráðgjöf
og stuðningur sömuleiðis.
3. Nýja reglugerðin gerir ráð
fyrir auknu sjálfstæði skólanna
og að skólarnir axli ábyrgð í sam-
ræmi við það. Þetta er til mikilla
bóta frá því sem áður var þar sem
ábyrgð á sérkennslu var að meira
og minna leyti í höndum utanað-
komandi fagmanna. Það að
ábyrgðin er lögð á skólann eykur
Birgir Sigurðsson
Alþjóða
leikhúsdaguríim
Haukur Þorleifsson
Kveðja
Það er erfitt að sætta sig við að
afi Haukur, eins og við kölluðum
hann alltaf, skuli vera farinn frá
okkur. Þótt við vissum að hverju
stefndi, er samt jafnsárt að hann
skuli vera dáinn. Næstum því
daglega hittum við ömmu og afa á
Rauðalæknum og alltaf var jafn
gott að koma þangað. Alltaf
fundum við hlýjuna og nærgætn-
ina sem streymdi frá honum afa.
Hann var fullur fróðleiks og
óspar á vísur og sögur.
' Sumarbústaðurinn Hólaskjól
við Langá var álfalandið okkar.
Þar var farið í gönguferðir og þúf-
umar og steinamir áttu sér nöfn
og sögur. Þama lærðum við að
njóta náttúmnnar. Að fara í veiði
í Langá fannst sumum þó
skemmtilegast.
í Palma áttu afi og amma lítið
heimili, þar sem þau dvöldu köld-
ustu mánuði ársins. Sum okkar
heimsóttu þau þangað. Það vom
gleðistundir. Haukur afi naut sín
vel á Mallorca. Þar, eins og
heima, gátu þau amma sinnt
áhugamálum sínum, farið í ferða-
lög, sótt tónleika, lært spönsku,
fengist við þýðingar o.fl. Eitt af
áhugamálum afa var tréskurður
og em til ótal fallegir munir eftir
hann víða.
Við geymum ótal minningar
um afa og þökkum honum allt. Ef
allir líktust honum væri heimur-
inn betri. Elsku amma Ásta, við
viljum styrkja þig í sorg þinni.
Við samhryggjumst börnum,
bamabörnum og öðmm vanda-
mönnum hans.
Látlaust fas og falslaust hjarta
- finnst ei annað betra skraut -
með þessu réð hann skrúði skarta
skírt var yfirlitið bjarta,
hið ytra þar hans innra naut.
(G.Th)
Ásta, Hallfríður, Siggi,
Nanna, Hlynur og Magga
líkurnar á því að sérkennsla teng-
ist skólaheildinni á eðlilegan hátt
sem er mikilvægur þáttur blönd-
unar.
4. Reglugerðin fjallar um fag-
lega vinnu sem tengist sér-
kennslu. Gert er ráð fyrir að ein-
staklingsáætlanir séu gerðar fyrir
hvem nemanda eða nemendahóp
og skipuleg skráning og endur-
mat fari fram. Slík umfjöllun er í
senn stuðningur og aðhald við þá
sem á máium halda.
5. Samvinna við foreldra og
forráðamenn er gerð að skyldu.
Og með gerð einstaklingsáætlana
er lagður grunnur að því að slík
samvinna verði árangursrík.
6. Lagt er til að nemenda-
vemdarráð fái fastan sess í
stjórnkerfi skólans. Með því er
reynt að tryggja tvennt: a) Fag-
lega umræðu innan skólans um
sérkennslumál. Yfirsýn allra að-
ila innan skólans um sérkennslu.
7. f nýju reglugerðinni er gert
ráð fyrir að fræðslustjóri hafi um-
sjón með innritun í alla sérskóla
og sérdeildir ríkisins á sínu svæði.
Þetta er spor í framfaraátt og ætti
að geta stuðlað að heildstæðri
þróun skólamála í átt til samskól-
unar. En flestar raddir aðstand-
enda fatlaðra og sömuleiðis radd-
ir fatlaðra sjálfra eru í þá veru.
8. Gert er ráð fyrir að sérskólar
og sérdeildir taki að sér ráðgjöf til
kennara oig foreldra sé þess ósk-
að. Þetta er ekki síst mikilvægt ef
stefnt er að því að sem flest böm
geti stundað nám í heimabyggð.
Þá ríður á að veita þeirri sérþekk-
ingu sem hefur safnast fyrir í sér-
skólum út í almenna skólann.
Ég hef hér nefnt nokkur dæmi
um það sem er til bóta í þessari
nýju reglugerð. Enn fleiri dæmi
mætti taka en þetta eru þau sem
mér sýnast vega þyngst. En ekk-
ert er hafið yfir gagnrýni og mun
ég í því sambandi aðeins taka eitt
veigamikið atriði auk þess sem ég
vil benda á nokkur smáatriði sem
betur mættu fara.
Réttlætiskrafa:
Mikið fatlaðir nemendur sem
ekki em nú þegar í sérskólum,
ekki eiga aðgang að sérskólum
eða vilja ekki vera í sérskólum
eru að vissu leyti skildir eftir úti í
kuldanum. Stundum kjósa líka
foreldrar að börn þeirra séu í
hverfisskóla þótt sérskóli sé á
svæðinu. Þjónusta við mikið fatl-
aða nemendur sem ekki em í sér-
skóla skal takast af úthlutuðu
tímamagni til sérkennslu á svæð-
inu. Ef um mikla fötlun er að
ræða þarf oft að gera margháttað-
ar ráðstafanir sem ekki snerta
beinlínis kennsluna. Slíkar ráð-
stafanir krefjast fagþekkingar,
hugkvæmni og úthalds. Svo ekki
sé talað um vilja og frumkvæði.
Það er viss hætta á að svo dýr og
fyrirhafnarsöm þjónusta sitji á
hakanum nema til komi bæði
stuðningur og hvatning. í þessu
sambandi má benda á að víða
háttar svo til á landsbyggðinni að
ekki hentar að nýta ákvæði um
stofnun sérdeilda ef börnin eiga
að fá kennslu í heimaskóla og
heimabyggð. Það er viss hætta á,
ef ekkert verður að gert, að fötl-
uðum börnum verði sópað inn í
sérskólana sem fyrir em. Byggð-
arlögin myndu þannig sleppa við
aukinn kostnað af skólagöngu
þeirra. Og við væmm aftur stödd
á slóðum hreppaflutninga. Við
þessu mætti sporna með sérstöku
heimildarákvæði þar sem kveðið
væri á um að stutt væri við ný-
breytnistarf í þágu mikið fatlaðra
einstaklinga þar sem komið væri
til móts við þá í heimaskólum.
Þetta ákvæði þyrfti ekki einu
sinni að vera í sérkennslureglu-
gerð heldur gæti það staðið eitt
og sér.
Varðandi gagnrýni sem fram
hefur komið, aðallega frá sál-
fræðingum, vil ég segja þetta:
Mér sýnist að inn í þá deilu
blandist langvarandi ágreiningur
sem verið hefur í Reykjavík varð-
andi hlutverk sálfræðinga. Ég
dreg í efa að æskilegt sé eða
mögulegt að leysa slíkan
ágreining með reglugerð. Þó væri
auðvitað æskilegt að ná einhvers-
konar samkomulagi við alla fag-
hópa sem hafa með þessi mál að
gera. Þótt slíkt samkomulag
mætti ekki vera á kostnað
veigamikillla framfaraþátta í
reglugerðinni. Á ég þar við sjálf-
Framhald á bls. 9
Bergþóra Gísladóttir er sérkennslu-
fulltrúi á Fræðsluskrifstofu Vestur-
lands.
Vinningstölur laugardaginn
24. mars ‘90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.318.128
2.4 SHm 3 134.370
3. 4af5 110 6.321
4. 3af 5 3.759 431
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.038.908 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002