Þjóðviljinn - 28.04.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 28.04.1990, Side 2
FRETTIR Alþingi Kvótafrumvarp í óvissu Ekki útilokað að meirihluti sjávarútvegsnefndar samþykki aðfresta kvótafrumvarpifram á haust. Ólafur Ragnar Grímsson: Komið veru lega til móts við sjónarmið Alþýðubandalagsins. Framgangur málsins íefri deild ímikilli óvissu Sjávarútvegsnefnd Alþingis af- greiddi ekki frá sér frumvarp um stjórnun fiskveiða eins og vonir Stefáns Guðmundssonar formanns nefndarinnar og Hall- dórs Ásgrímssonar sjávarútvegs- ráðherra stóðu til. Allar líkur eru á að fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í nefndinni leggi til frestun á afgreiðslu frumvarpsins fram á haust og að meirihluti nefndar- innar samþykki þá tillögu. Þá mun reyna á samstöðu stjórnar- flokkanna í efri deild þingsins þar sem sitja nokkrir óánægðir stjórnarþingmenn. Eftir að forystumenn stjórnar- flokkanna höfðu gert með sér samkomulag fyrr í vikunni sem; fól í sér töluverðar breytingar á frumvarpi sjávarútvegsráðherra, töldu þeir víst að frumvarpið yrði afgreitt frá nefndinni í gær. Ólafur Ragnar Grímsson sagði í gær að þær breytingar sem gerð- ar hefðu verið á frumvarpinu gengju verulega til móts við þau sjónarmið sem Alþýðubandalag- ið hefði haft á lofti og tiltók þar fjögur atriði. f fyrsta lagi með því að bætt er við fyrstu grein frum- varpsins ákvæði um að kvótinn myndi ekki eignarrétt útgerðar- innar á fiskistofnunum. I öðru lagi eru tekin fyrstu skrefin í átt að byggðakvóta, sem hefur verið hornsteinn fiskveiðistefnu Al- þýðubandalagsins. Það er gert með því að sveitarstjórnir hafa forkaupsrétt á skipum sem selja á úr byggðalaginu. Þá er helming af þeim kvóta sem Hagræðingar- sjóður sjávarútvegsins á að hafa til umráða, ráðstafað til byggðar- laga en með þeim skilyrðum að aflanum verði landað í byggðar- laginu og hann unninn þar. „Með þessu er verið að byggja gangvirki byggðarlaganna inn í fískveiðistjórnina og þau verða virkir aðilar við stjórn fisk- veiðanna," sagði Ólafur Ragnar. í þriðja lagi er svo gerð tilraun með takmarkaða kvótaleigu, en þau sex þúsund tonn sem ekki verða eyrnamerkt byggðarlögum og Hagræðingarsjóður hefur yfir að ráða, verða leigð til útgerðar- innar. í fjórða lagi er svo skilið á milli eftirlits- og úrskurðarvalds í þeim deilum sem kunna að koma upp um framkvæmd fiskveiðist- efnunnar. „Þá náðist samstaða um að vinnan og umræðan um skipulag fískveiðistj órnarinnar haldi áfram í sumar og haust og á næstu tveimur árum, en það er stefnt að því að endurskoða frumvarpið árið 1992. Upphaflega var það ætlun hagsmunaaðila í LÍÚ að tryggja varanlegt kerfi þeim í hag og talsmenn Sjálfstæðisflokksins hafa einnig viljað það,“ sagði Ólafur Ragnar. Meirihluti sjávarútvegsnefnd- ar efri deildar ákvað í gær að fresta afgreiðslu málsins fram á mánudag, við lítinn fögnuð sjáv- arútvegsráðherra. Forsætisráð- herra telur koma til greina að þing komi saman að loknum sveitarstjórnarkosningum til að afgreiða frumvarpið, náist ekki Nemendaleikhúsið Glataðir snillingar Nemendaleikhús Leik- listaskóla íslandsfrum- sýnir Glataða snillinga eftir William Heinesen Nú er komið að lokáfanga leik- listarnema Leiklistarskóla Is- lands. Síðasta verkefni hópsins, sem útskrifast í vor, verður leik- gerð sögu Færeyingsins, Williams Heinesens, Glataðir snillingar. Eins og um flestar sögur Heinesens gerist þessi í Fær- eyjum og eru söguhetjurnar þrír listelskir bræður. Fjallar ieikritið um líf þeirra og samskipti við aðra bæjarbúa, yfírvaldið og hið kristilega bindindisfélag á staðn- um. Glataðir snillingar er sem fyrr segir lokaáfangi nemenda eftir fjörgurra ára nám við skólann. Baltasar, Björn, Edda, Harpa, Eggert, Hilmar, Ingvar og Katarina útskrifast sem fullgildir leikarar ( vor. Leikgerðina samdi Caspar Koch, Þorgeir Þorgeirsson þýddi verkið á íslensku. Leikstjóri er Stefán Baldursson, leikmynd og búninga hannaði Guðrún Sig- ríður Haraldsdóttir, tónlistina samdi Gunnar Reynir Sveinsson og Egill Ingibergsson sér um lýs- ingu. BE Sölusamtök lagmetis Þumbaldi stjómvalda Lagmetisiðnaðurinn rekinn með tapi ífyrra. K. Jónsson & Costærsti framleiðandinn Theódór S. Halldórsson fyrr- verandi framkvæmdastjóri Sölusamtaka lagmetis segir í síð- asta tölublaði Ægis, riti Fiskifé- lags íslands að ástæðan fyrir því að sala á lagmeti til V-Þýskalands drógst saman um þriðjung á fyrri hluta síðasta árs sé sú, að íslensk stjórnvöld svöruðu ekki áróðri Grænfriðunga fyrr en of seint. Þrátt fyrir þennan þumbalda hjá íslensicum stjórnvöldum til að verja hendur sínar gegn áróðri Grænfriðunga, tókst að auka söl- una á ný þegar orrahríðinni lauk og var hún í árslok um 60% af fyrri sölu. Útflutningur Sölusamtaka lag- metis á síðasta ári nam í íslensk- um krónum 1.306 þúsundum sem er liðlega 22% aukning frá árinu 1988. f tonnum talið nam út- flutningurinn um 3.324 tonnum af lagmeti en þar voru voru um 200 tonn framleidd í erlendri verksmiðju. Að heildarsölu var Útgáfa MM kaupir Forlagið Útgáfustefna Forlagsins óbreytt. Jóhann Páll Valdimarsson áfram útgáfustjóri Forlagsins g ókmenntafélagið Mál og menníng hefur keypt meiri- hluta í Forlaginu sem Jóhann Páll Valdimarsson veitir forstöðu. í frétt frá MM segir að Forlagið verði áfram rekið með óbreyttum hætti að öðru leyti en því að MM mun annast sölu og dreifingu á útgáfubókum þess. Forlagið hefur verið starfrækt í sex ár en þá yfirgaf Jóhann Páll Iðunni til þess að stofna nýtt út- gáfufyrirtæki. Forlagið hefur á síðustu árum gefið út 20-25 titla á ári að meðaltali og meðal höf- unda hafa verið margir úr fremstu röð íslenskra rithöfunda. í fréttinni frá MM segir að út- gáfustefnu Forlagsins muni ekki breytast og að ritstjórn þess verði sjálfstæð og óháð MM. Hins veg- ar tekur Mál og menning við sölu og dreifingu bókanna enda hljóti það að vera stefna útgefenda að auka hagræðingu og samstarf í því skyni að lækka bókaverð. Loks segir að þetta skref sé stigið með hliðsjón af því að í haust bætist ísland „í hóp þeirra menn- ingarþjóða sem hafa aflagt skatt- heimtu á bókmenningu". -ÞH árið 1989 það stærsta í útflutningi frá upphafi en engu að síður var síðasta ár með þeim erfiðari sem komið hafa hjá Sölusamtökun- um. í heild var síðastliðið ár mjög erfitt rekstrarár og var iðnaður- inn í heild sinni rekinn með tapi. Af einstökum framleiðendum innan SL var verksmiðja K. Jóns- sonar & Co á Akureyri langstærst í heildarútflutningi eða með um það bil 43% að verðmæti um rúmar 562 miljónir króna. í öðru sæti var Niðursuðuverksmiðjan hf. á ísafirði sem framleiddi niðursoðna rækju fyrir 154 milj- ónir króna. Að mati Theódórs S. Halldórs- sonar er enn brýnna en áður að fullvinna betur þann afla sem berst að landi þegar samdráttur er í fiskveiðum og til þess þarf að sinna vöruþróun í mjög svo auknum mæli. Með skipulegri vöruþróun samfara stærri rekstr- areiningum telur Theódór að hægt sé að auka enn útflutning á lagmetisvörum, auk þeirra hefð- bundnu tegunda, sem fluttar hafa verið út hingað til. -grh um það samkomulag næstu daga. Líklegt er að Karvel Pálmason þingmaður Alþýðuflokks muni greiða frestunartillögunni at- kvæði sitt í efri deild og ekki er útilokað að Skúli Alexandersson Alþýðubandalagi geri slíkt hið sama. Guðmundur Ágústsson þingmaður Borgaraflokksins mun að öllum líkindum láta af- stöðu sína ráðast af þvf hvort frumvarp um umhverfismálar- áðuneyti fái afgreiðslu fyrir þing- lok. En þrjá stjórnarþingmenn þarf til að greiða atkvæði með stjórnarandstöðunni í efri deild til að fresta málinu eða fella það. -hmp/Sáf Sjómenn Samráð við yfirmenn Formanns- og sambands- stjórnarfundur Sjómannasam- bands íslands sem haldinn var í fyrradag ákvað að fela fram- kvæmdastjórninni frekara fram- hald kjaramála í samráði við Farmanna- og fiskimannasam- band íslands. Að sögn Hólmgeirs Jónssonar framkvæmdastjóra SSÍ hafa flest öll aðildarfélögin samþykkt að fela stjórnun þeirra heimild til verkfallsboðunar. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að hafa samráð við FFSÍ í kjaramálum er sú að aðildarfélög þess eru að afla sér verkfallsheimildar en þau eru einnig með lausa samninga. -grh Kjarasamningar Blaðamenn samþykktu í hádeginu í gær voru haldnir fundir í Blaðamannafélagi ís- lands um kjarasamninga við út- gefendur og fóru þeir fram sam- tímis í Reykjavík og á Akureyri. Samningarnir sem fyrir lágu eru í öllum meginatriðum samhljóða samningum ASÍ og BSRB við at- vinnurekendur sem gerðir voru í febrúar. Samningarnir voru sam- þykktir með 49 atkvæðum gegn 21 en þrír seðlar voru ógildir. Samningarnir gilda fram í miðjan september á næsta ári. -ÞH Vinnuferð til Kubu í júlí í sumar verður efnt til vinnu- ferðar til Kúbu sem undanfarin ár, en í fyrra fóru sjö íslensk ung- menni í slíka ferð - gengu þau inn í norrænan hóp, Birgada nordica, sem vann við m.a. byggingar- vinnu og ávaxtatínslu og fór einn- ig í styttri og lengri kynnisferðir. Lagt verður af stað 28. júní að þessu sinni og dvalið á Kúbú í júlí, unnið í þrjár vikur og ferðast um landið í eina viku. Að þessu sinni geta börn frá átta ára aldri slegist með í för, og verður sér- stök dagskrá skipulögð fyrir þau. Umsóknarfrestur er til fímmta maí - við umsóknum tekur Vin- áttufélag íslands og Kúbu póst- hólf 318, 121 Reykjavík. Uppl. í síma 12695 og 622864. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNl Laua*’ lagur 28. apríl 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.