Þjóðviljinn - 28.04.1990, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 28.04.1990, Blaðsíða 7
Lýðrœðisbarátta Fjöldamót- mæli í Mongólíu Allt að þrjátíu þúsund manns tóku þátt í Qöldamótmælum stjórnarandstæðinga I Ulan Bator höfuðborg Mongólíu f gær þrátt fyrir bann stjórnvalda sem köll- uðu út fjölmennt lögreglu- og herlið til að hindra mótmælin. Þetta er í fyrsta skipti sem stjórn kommúnista í Mongólíu kallar út herinn frá því að stjórn- arandstæðingar boðuðu í fyrsta skipti til mótmælaaðgerða í des- ember. Um tólf hundruð óvopnaðir hermenn og lögreglumenn stóðu vörð við opinberar byggingar við aðaltorgið í Ulan Bator á meðan stjórnarandstæðingar héldu fjöldafundinn. Ekki kom þó til átaka. Mongólskir kommúnistar hafa lofað frjálsum kosningum í sumar með þátttöku annarra stjórn- málaflokka. Leiðtogar kommún- ista segjast ætla að virða niður- stöður kosninganna jafnvel þótt það verði til þess að þeir missi völdin. Lýðræðisbandalag Mongólíu boðaði til mótmælaaðgerðanna í gær til að þrýsta á kommúnista að afsala sér völdum jafnvel fyrir kosningarnar. Bandalagið krefst þess að nú þegar verði stofnað sérstakt alþýðuþing, sem starfi fram að kosningum, og að kommúnistaflokkurinn flytji höf- uðbækistöðvar sínar úr þinghús- inu. Reuter/rb Kjarnorkuótti Norðmenn endurheimta þungt vatn Norsk stjórnvöld skýrðu frá því í gær að ísraelsmenn hefðu fallist á að skila aftur þungu vatni sem þeir keyptu frá Noregi fyrir þremur áratugum. Hægt er að nota vatnið til að framleiða kjarnorkuvopn. Norðmenn seldu ísraels- mönnum 21 tonn af þungu vatni árið 1959 til nota við kælingu á kjarnorkuofnum. Þá var það skil- yrði sett að það yrði aðeins notað í friðsamlegum tilgangi. En árið 1986 vöknuðu grun- semdir um það í Noregi að fsra- elsmenn notuðu þunga vatnið til að framleiða plútoníum fyrir kjarnorkuvopn. Norsk yfirvöld fóru þá fram á að fá vatnið sent aftur. Samkvæmt sölusamningn- um gátu Norðmenn keypt það aftur ef grunur léki á að það ákvæði sölusamnings um notkun þunga vatnsins hefðu verið brot- in. ísraelsmenn hafa neitað að gefa neinar yfirlýsingar um hvort vatnið hafi verið notað við fram- leiðslu á kjarnorkuvopnum. Þeir hafa nú loksins fallist á að selja Norðmönnum það aftur fyrir 12 miljónir norskra króna. Norðmenn urðu helsta fram- leiðsluþjóð þungs vatns á sjötta áratugnum. En þeir hættu fram- leiðslu þess í fyrra eftir að upplýst var að þungt vatn frá Noregi hafði verið selt ólöglega eftir krókaleiðum til Indlands og að Rúmenar hefðu brotið kaup- samning með endursölu þess til annars ríkis. Reuter/rb ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 {ðnnemasamband íslands auglýsir eftir starfsmanni. Starfsmaðurinn sér um rekstur skrifstofunnar og gefur upplýsingar um nám, réttindi og skyldur iðnnema. Við leitum eftir manneskju sem getur unnið sjálfstætt og er hugmyndarík. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af félagsstörfum, góða þekkingu á æskulýðs- störfum, góða tungumálakunnáttu, tölvu- þekkingu (WP og Multiplan) og að sjálfsögðu góða þekkingu á málefnum iðnnema, bæði menntunarlega og kjaralega. Umsækjendur leggi inn umsóknir á auglýsingadeild Þjóð- viljans fyrir 15. maí merkt „Iðn 12019“. Matreiðsla fiskrétta Námsflokkar Reykjavíkur efna til stutts nám- skeiðs í matreiðslu fiskrétta þessa daga: Mán- ud. 7. maí (næringarfræði með tilliti til fisks). Fimmtud. 10. maí og 17. maí og miðvikud. 23. maí kl. 17-19.30. Námskeiðsgjald kr. 4.200 pr. þátttakanda. Þátttaka tilkynnist í símum 12992 og 14106. Námsflokkar Reykjavíkur T I L HLUTHAFA SAJVtVINNLJBANKA ÍSLANDS HF. AÐALFUNDI S AMVINNUBANKA ísLANDS HF., SEIVl HALDINN VAR FÖSTUD AGIN N 27. APRlL 1990, VAR SAMÞYKKX TILLAGA ÞESS EFN- IS A Ð BANKINN SKYLDI SAMEIMASX LaNDSBANKA ÍsLANDS. ÁDLJR hafði bankarAð Landsbankans samrykkx SAMEININGUNA og VISKIPXARÁÐHERRA VEIXX LEYFI XIL AÐ H OISI FÆRI FRAM. ESS VEGNA HEFOR LANDSBANKINN ÁKVEÐIÐ AÐ ÓSKA EFXIR KAOPUM (INNLAOSN) A HLOXABRÉFUM ALLRA ANNARRA HLOXHAFA I Samvinnubankanum, EN BANKINN Á NO ÞEGAR XÆP 75% HLOXAFJÁRSINS. -L ANDSBANKINN E R REIÐOBÚINN XIL AÐ GREIÐA HLOXHÖFOM 2,749 FALX NAFNVERÐ FYRIR BRÉFIN OG MIÐA KAOPIN VIÐ l.JANÚAR SÍÐASXLIÐINN. f ÞVÍ FELSX AÐ BANKINN MON GREIÐA HLUXHÖFUM VEXXI A KAUPVERÐIÐ FRÁ ÞEIM XlMA. • • o LLOM HLÚXHÖFOM VERÐOR A NÆSXO DÖGOM SENX BRÉF SEM HEFOR A D GEYMA XILBOÐ BANKANS. ÞESS ER ÓSKAÐ A Ð ÞEIR HLOX- HAFAR SEM VILJ A SAMÞYKKJA XILBOÐIÐ SNÚI SÉR XIL NÆSXA AF- GREIÐSLO SX AÐAR LaNDSBANKANS E D A SAMVINNOBANKANS XIL PESS AD LJÚKA SÖLO HLÚXABRÉFANNA. NaúÐSYNLEGX ER ÞÁ AÐ HAFA XILBOÐSBRÉFIÐ MEÐFERÐIS. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.