Þjóðviljinn - 14.06.1990, Page 4
PJÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Fullveldi
Rússlands
(gær varð sá sögulegi atburður, að Þjóðfulltrúaþing rúss-
neska sambandslýðveldisins samþykkti með 907 atkvæð-
um gegn 13 að lýsa því yfir að Rússland væri fullvalda ríki. í
síðustu viku hafði þingið samþykkt, að rússnesk lög væru
æðri ákvæðum sovésku stjómarskrárinnar. í Ijósi stærðar
og áhrifa Rússlands innan Sovétríkjanna þarf enginn að
fara í grafgötur um áhrif þessara tíðinda. Æðsta ráð Sovét-
ríkjanna hefur ennfremur opnað lýðveldunum leið til þess að
lýsa yfir sjálfstæði.
Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, hefur lýst yfir
ánægju sinni með fullveldisyfirlýsingu landa sinna á Þjóðfull-
trúaþinginu og telur hana staðfestingu á þeim möguleikum
þróunar og endurbóta sem nú liggja fyrir innan ríkjasam-
bandsins. Þarf raunar ekki annað en skoða atkvæðatölum-
ar 907:13 til að skilja, að hann var nauðbeygður til að sætta
sig við þessa eindregnu afgreiðslu málsins. Hitt hefur lengi
verið Ijóst, að hann telur miklar hættur vera fólgnar í því að
hraða um of stórum ákvörðunum á innanlandsvettvangi og
hefur varað við lýðskrumurum og einföldunum.
Á vissan hátt kemur fullveldisyfirlýsing Rússlands sér því
illa fyrir Gorbatsjov núna. Aðalgagnrýnandi hans í röðum
sovéskra stjómmálamanna, Boris Jeltsín, forseti Rúss-
lands, er með pálmann í höndunum. Ágreiningur Gorbat-
sjovs og Jeltsíns um efnahagsmálastefnuna og marga aðra
þætti er djúpstæður. Gorbatsjov barðist gegn kjöri hans til
forseta og sakaði hann meðal annars um að stuðla að hruni
Sovétríkjanna. Gorbatsjov er miðjumaður í sovéskum
stjómmálum og hefur harðlega gagnrýnt það sem hann kall-
ar öfgamenn og jafnvel „brjálæðinga” á báðum köntum, og
hefur í birtum viðtölum jafnvel látið þá skilgreiningu duga á
vinstri manninum Jeltsín.
Gorbatsjov hefur lagt mikla áherslu á að allar breytingar
innan Sovétríkjanna verði að fara fram í samræmi við gild-
andi lög og ákvæði stjómarskrárinnar. Sovéska þingið lýsti
þvi yfir á sínum tíma, að sjálfstæðisyfirlýsing Litháa væri ó-
lögleg, enda hafi hún komið fram áður en ákvarðanir Æðsta
ráðsins um fullveldi og sjálfstæði einstakra sambandslýð-
velda voru teknar. Þetta er grundvöllur þess að Gorbatsjov
hefur hingað til krafist að sjálfstæðisyfiilýsingin verði dregin
til baka, til að hægt sé að afgreiða sjálfstæðismálin á kórrétt-
an hátt. Margt bendir til þess að stífni Gorbatsjovs í þessu
efni verði tilgangslítil og að hann verði einnig undir í þessu
máli.
Hins vegar bendir Gorbatsjov á það í ítarlegu viðtali í
bandaríska tímaritinu TIME í síðustu viku, að frá fýrstu tíð
hafi ríkt mikil misklíð um það innan forystu kommúnista,
hvort Sovétríkin ættu að vera bandalag sjálfstæðra ríkja eða
sambandsríki eins og við höfúm þekkt það í raun. Lenín
barðist fyrir fyrmefndu tilhöguninni, um fullveldi ríkjanna, og
formlega var hún samþykkt 1922. Hins vegar þróuðust mál-
in á þveröfugan hátt og í samræmi við hugmyndir Stalíns
um sambandsríkið, þar sem lýðveldin höfðu ekki sjálfs-
stjóm.
Það er því fyrst núna, að áliti forsetans, sem upprunaleg-
ar hugmyndir um stjómskipulegan rétt lýðveldanna verða
að raunveruleika. Aðspurður segist Gorbatsjov í TIME-við-
talinu sjá sjálfstæði lýðveldanna fyrir sér á þann veg, að það
eigi að spanna raunverulegt fullveldi á öllum sviðum og m.a.
að tryggja sérhverri þjóðanna full umráð yfir landi sínu og
skapa þeim tækifæri til að varðveita tungu og eigin menn-
ingu.
Sumir munu enn kalla þetta upplausn Sovétríkjanna og
laða fram í huga sínum æsilegar spár um valdarán hersins
eða borgarastyrjöld í kjölfarið, eða þá friðsamlega úrsögn
lýðveldanna úr ríkjasambandinu og þar fram eftir götunum.
Ollum er Ijóst, að breytingamar í Sovétríkjunum og Austur-
Evrópu þoldu enga bið. Einmitt á slíkum umbrotatímum er
hættast við að fregnir þær sem menn vilja draga ályktanir
sínar af, séu ófullnægjandi. Nú þegar sættir virðast m.a. í
sjónmáli í sjálfstæðismálum Eystrasaltsríkjanna, verður Ijóst
hve snúið getur verið að greina allar aðstæður og mögu-
leika eystra af nákvæmni. Slíkt á einnig við um atburðarás-
ina sem framundan er eftir fullveldisyfirlýsingu Rússlands.
KLIPPT OG SKORIÐ
19. júnf 1915
- hátíðarsam-
koma kvenna við
Alþingishúsið.
(Ljósm. Magnús
Ólafsson,
Ljósmyndasafn
Reykjavíkur.)
Bragðerað...
„Konur vinna á hárgreiðslu-
stofum. Karlar á rakarastofum.
Karlar vinna á sjó. Konur í frysti-
húsi. Karlar eru smiðir. Konur og
karlar eru gullsmiðir. Konur eru
flugfreyjur. Karlar eru flugstjórar.
Konur og karlar vinna á spítala.
Sumar konur eru dagmömmur.
Karlar gera við bíla. Konur eru
stundum heima og taka til og gefa
bömunum. Karlar og konur vinna
í búðum og sjoppum. Konur og
karlar vinna á skrifstofum. Þau
skrifa margt og mikið. Konur
hugsa meira um bömin en karlar.
(E.H.)”
Þetta er ekki aldarfjórðungs-
gömul ritgerðasmíð úr bamaskóla
heldur er þetta hugmyndaheimur
10 ára bama í dag. Svona lítið
hefúr okkur miðað á leið þrátt fyr-
ir allt.
Þann 19. júní nk. halda ís-
lenskar konur upp á það að 75 ár
eru liðin síðan þær fengu kosn-
ingarétt til alþingis. Reyndar var
kosningarétturinn 1915 takmark-
aður við konur yfir fertugt en árið
1918 fengu þær fúilt jafnrétti á
við karla með fullveldisstjómar-
skránni. Nk. þriðjudag munu kon-
ur gera sér dagamun og ganga frá
Miðbæjarskóla að Alþingishúsi,
en það er sama leið og gengin var
fyrir 75 árum þegar konur fögn-
uðu stjómarskrárbreytingunni,
sem færði þeim kosningaréttinn.
Um kvöldið verður svo hátíðar-
fúndur í Islensku ópemnni og
mun hin þekkta bandaríska kven-
réttindakona Betty Friedan á-
varpa gesti, auk þess sem flutt
verður dagskrá um sögu kvenna-
baráttunnar.
Sjálfstæðið byrjar
fbuddunni
í tilefni dagsins hefur Kven-
réttindafélag Islands gefið út árs-
ritið 19. júní. Þar kennir ýmissa
grasa að venju, viðtal við Betfy
Friedan, viðtal við Elísabetu Guð-
mundu Kristínu Þórólfsdóttur
fyrmrn húsfreyju í Amarbæli á
Fellsströnd, en hún er fyrsta kon-
an sem fær riddarakross Hinnar
íslensku fálkaorðu fyrir heimilis-
og uppeldisstörf. Þá er einnig við-
tal við Guðrúnu Helgadóttur for-
seta Alþingis og umQöllun um
konur og peninga.
„Sjálfstæði kvenna byrjar í
buddunni,” segir í inngangi um-
fjöllunarinnar um konur og pen-
inga. Lilja Mósesdóttir skrifar þar
grein um Hagfræðina sem bar-
áttutæki kvenna fyrir bættum
kjömm. Hún bendir á að umfjöll-
un hagfræðinga um stöðu ís-
lenskra kvenna á vinnumarkaði
hafl verið mjög handahófskennd
og yfírborðsleg, auk þess sem hún
hafi borið vott um litla þekkingu á
sambærilegum erlendum rann-
sóknum.
„Enda þótt íslenskir hagfræð-
ingar hafi hingað til ekki gefið
kvennahreyfingunni fullnægjandi
svör er ekki þar með sagt að hag-
fræðin geti ekki verið konum til
framdráttar. Konur geta notað
hagfræðina í tvenns konar til-
gangi. í fyrsta lagi til að fá vit-
neskju um upplýsingar og aðferð-
ir sem em nauðsynlegar til að
greina stöðu kvenna. í öðm lagi
til að setja fram kenningar sem út-
skýra stöðu kvenna á máli sem
ráðamenn og verkalýðsforingjar
skilja og/eða bera virðingu fyrir,”
segir Lilja í grein sinni.
Lilja segir að auknar mennt-
unarkröfur við hefðbundin
kvennastörf hafi ekki skilað kon-
um hærri launum, heldur hafi
aukin menntun kvenna í raun leitt
til aukins launamismunar.
„Launamunur menntaðra karla og
kvenna með sambærilega mennt-
un er meiri en launamunur verka-
karla og verkakvenna.”
Niðurstaða Lilju er sú að hag-
fræðilegt mat á upplýsingum um
konur sé mikilvægt vopn í barátt-
unni fyrir raunhæfúm aðgerðum
stjómvalda og verkalýðshreyf-
ingar til handa konum. „Með því
að þróa og heimfæra erlendar
kenningar og aðferðir yfir á sí-
breytilegar aðstæður kvenna fást
niðurstöður sem geta orðið
grundvöllur að langtíma stefnu-
mörkun í jafnréttismálum á
vinnumarkaðinum. Langtíma
stefnumörkun sem tekur stöðugt
mið af breytilegum aðstæðum
kvenna mun m.a. koma í veg fyr-
ir að sífellt verði gripið til efna-
hagsaðgerða sem koma með mun
meiri þunga niður á konum en
körlum eins og gerst hefúr á und-
anfomum ámm. Hagfræðin er
mikilvægt tæki í baráttunni gegn
margbreytilegu misrétti á vinnu-
markaðinum. Spumingin er því
ekki lengur um viðhorf kvenna til
hagfræðinnar heldur á hvem hátt
konur beita hagfræðinni í eigin
þágu.”
Kvennaflokkur
ótímabær
Inga Dóra Bjömsdóttir er með
viðtal við Betty Friedan í 19. júní
og víða komið við í spjallinu.
Klippara þótti forvitnilegt að
kynnast viðhorfí Friedan til sér-
staks kvennalista. Hún segist
skilja vel forsendumar fyrir sér-
framboði íslenskra kvenna, en tel-
ur sérframboð kvenna í Banda-
rikjunum óraunhæft þar sem smá-
flokkar hafi haft lítil sem engin á-
hrif á gang stjómmála í Banda-
ríkjunum. Hinsvegar telur hún að
konur eigi að beita áhrifum sínum
og samtakamætti innan flokkanna
tveggja, demokrata og republik-
ana.
„En svo vikið sé aftur að sér-
stökum kvennaflokki, þá verður
það ekki fyrr en flokksleiðin hef-
ur verið reynd til þrautar og
reynst ófær, að tímabært verður
að huga að stofnun nýs flokks eða
nýrrar stjómmálahreyfingar. Það
verður ekki hreyfing, sem nærist
á andstöðu milli karla og kvenna,
heldur hreyfing, sem byggir á
samstarfi, sameiginlegri baráttu
kynjanna fyrir betra mannlífi,
betri heimi.”
Friedan er nefnilega þeirrar
skoðunar að karlmenn vilji ekki
síður en konur breyta skipulagi
vinnunnar, koma á fæðingarorlofi
fyrir konur og karla, tryggja böm-
um ömgga dagvist. Hinsvegar tel-
ur hún að konur verði í farar-
broddi þeirrar hreyfingar.
Þetta em athyglisverð um-
mæli sé litið til Kvennalistans á
Islandi. Rauðsokkahreyfingin
lagði á sínum tíma áherslu á að
kvennabaráttan væri stéttabarátta,
en með stofnun Kvennalistans var
snúið af þeirri braut og hreinrækt-
aður feminismi tekinn upp og
gengið út ffá sameiginlegum
reynsluheimi kvenna. Þetta varð
til þess að ýmsir karlmenn sem
töldu sig eiga samleið með kon-
um vom ekki lengur velkomnir.
Það kom líka vel í ljós í sveitar-
stjómarkosningunum að Kvenna-
listinn hefúr verið að tapa þeim
hljómgmnni sem hann átti, enda
virðist jafnréttisbaráttunni lítið
hafa miðað áleiðis ef litið er á
svör 10 ára bama i ársriti KRFÍ,
19. júní.
Bömin vom beðin að svara
spumingunni: Hvað gera karlar?
- Hvað gera konur? og birtist eitt
dæmigert svar i upphafi klippsins.
Við skulum enda það á öðm
svari, þvi bragð er að þá bamið
finnur:
„Yfirleitt laga karlar bíla.
Konumar kaupa í matinn. Kon-
umar vaska upp. Konumar þvo
fotin. Karlamir smiða. Karlamir
gera við. Konumar pijóna og
sauma. Konumar strauja. Sumir
karlar hafa áhuga á fótbolta.
Kannski hafa þau bæði áhuga á að
fara á hestbak. (Bj.Ó.)”
-Sáf
þJÓÐVILIINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Ami Bergmann, Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: Siguröur Á. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdís Eliertsdóttír, Dagur
Þorteifsson, Elías Mar (pr.), Garðar Guðjónsson,
Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson,
Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn
Ingvarsson (Ijósm.), Vilborg Davíðsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guömunda Kristinsdóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir.
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gisladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Bilstjórí: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar:
Síöumúla 37, Rvik.
Sími: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblaö: 150 kr.
Áskriftarverö á mánuði: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. júní 1990