Þjóðviljinn - 14.06.1990, Síða 6
ERLENDAR FRETTIR
Sovétþing
Efnahagsmálafrum-
varp samþykkt
Æðstaráð Sovétríkjanna sam-
þykkti í gær með atkvæðum
mikiis meirihluta þingmanna
efnahagsmálafrumvarp stjórnar-
innar, en með ráðstöfunum sam-
kvæmt því er fyrirhugað að inn-
leiða markaðsbúskap í sovéskt
efnahagslíf og binda enda á gamla
„tilskipanakerfið“, eins og Gor-
batsjov forseti orðar það. Telja
fréttaskýrendur samþykkt frum-
varpsins marka einhver mikil-
vægustu tímamótin hingað til í
sögu Sovétríkjanna.
Samþykkt frumvarpsins verð-
ur að teljast drjúgur sigur fyrir
Gorbatsjov. Átakalaust gekk
það ekki og var andstaðan við
frumvarpið, sem lagt var fram 24.
maí s.l., svo mikil framan af að
Níkolaj Ryzjkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, hafði við
orð að segja af sér. Eftir langar
umræður og samningaviðræður
náðist fylgi meirihluta þingheims
við meginatriði frumvarpsins,
gegn því að stjórnin tæki mörg
atriði þess til gagngerrar endur-
skoðunar og legði það síðan fram
fullfrágengið í sept. n.k.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
verðhækkunum á fjölmörgum
vörum og meiriháttar breyting-
um viðvíkjandi fjárfestingum,
bönkum, atvinnumálum o.fl. í
ræðu fluttri forustumönnum í
Gorbatsjov - ekkert undanhald frá
hugsjóninni.
Kommúnistaflokknum nýverið
kvaðst Gorbatsjov telja að því
færi fjarri að ráðstafanir þessar
fælu í sér undanhald frá hugsjón-
um bolsévíkabyltingarinnar.
Reuter/-dþ.
Kosningar í Alsír
Þrumusigur bókstafstrúarmanna
ylkis- og borgarstjórnakosn-
ingar fóru fram í Alsír í fyrra-
dag og voru þær fyrstu frjálsu
kosningarnar í sögu þess lands.
Þegar nokkur hluti atkvæða hafði
verið talinn þótti Ijóst að að ís-
lamska frelsisfylkingin, flokkur
bókstafstrúaðra múslíma, hefði
unnið yfirburðasigur, fengið
fleiri atkvæði en Þjóðfrelsisfylk-
ingin, ríkisflokkur Alsírs frá því
að það varð sjálfstætt ríki, og
jafnvel meira fylgi en allir aðrir
flokkar til samans.
Þessi niðurstaða kom allmjög á
óvart, þar eð talið var að Þjóð-
frelsisfylkingin, sem ríkt hefur
einvöld í 28 ár, hefði enn það
sterk tök á landslýð að henni tæk-
ist að halda velli enn um skeið
þrátt fyrir aukið frelsi í kosning-
um. Eftir óeirðir miklar í Alg-
eirsborg og víðar í landinu í okt.
1988 ákvað forusta valdaflokks
og ríkis að innleiða fjölflokka-
kerfi og lofaði fleiri breytingum.
Bandaríkjastjórn
Kjamastríös-
herfræði
til endur-
skoðunar
James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að tekin yrði til endurskoðunar
innan Atlantshafsbandalagsins sú
herfræðikenning að bandalagið
skuli beita kjarnorkuvopnum að
fyrra bragði gegn Varsjárbanda-
laginu I stríði, ef þess teldist vera
þörf í því skyni að stöðva sókn
herja síðarnefnda bandalagsins
gegn liði þess fyrrnefnda.
Baker sagði þetta á fundi með
utanríkismálanefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings. Kenn-
ing þessi hefur verið grundvallar-
atriði í hernaðaráætlunum Nató
frá því um miðjan sjöunda ára-
tug. Vopnaeftirlitssérfræðingur
einn á vegum öldungadeildarinn-
ar kvaðst ætla að þetta væri í
fyrsta sinn, sem af hálfu Banda-
ríkjastjórnar væri tekið skýrt
fram að hún hygðist taka kenn-
ingu þessa til endurskoðunar.
Það fer ekki leynt að þetta
kemur fram í Ijósi þeirra gagn-
geru breytinga sem orðið hafa í
stjórnmálum Evrópu og sam-
skiptum Austurs og Vesturs upp
á síðkastið. Af hálfu Nató hefur
því verið lýst yfir, að bandalagið
muni endurforma sig með það
fyrir augum að það leggi í fram-
tíðinni meiri áherslu á stjórnmál
en hermál.
Reuter/-dþ.
En forustu þess flokks er almennt
kennt um afleitt ástand í
efnahags- og atvinnumálum og
hún þar að auki sögð spillt.
Hætt er við að ugg setji að ófá-
um við þessa frétt, einkum í ís-
lamska heiminum en einnig í Evr-
ópu. Bókstafstrúarhyggjan hefur
verið í mikilli sókn í íslamska
heiminum síðustu áratugina.
Hún hefur náð völdum í fran, er
mikilvægur drifkraftur mujahide-
en í Afganistan og meðal sjíta í
Líbanon, hefur veruleg áhrif í
flestum öðrum íslamslöndum og
er síður en svo án ítaka meðal
múslíma búsettra í Evrópu, eins
og sýndi sig þegar Rushdie-málið
var á döfinni. Næðu bókstafstrú-
armenn, sem viðurkenna íslams-
lögmál eitt sem gild lög, völdum í
Alsír, yrði það þessari trúar-
stefnu að öllum líkindum mikil
lyftistöng meðal múslíma um all-
an heim.
Abbasi Madani, leiðtogi ís-
lömsku frelsisfylkingarinnar,
krafðist þess í gær að þing Alsírs
yrði þegar í stað leyst upp, senni-
lega þá með það fyrir augum að
þegar á eftir færu fram þingkosn-
ingar, sem yrðu þær fyrstu frjálsu
þarlendis. Á núverandi þingi sitja
eingöngu Þjóðfrelsisfylkingar-
menn og kosningar til þess þurfa
lögum samkvæmt ekki að fara
fram fyrr en 1992. Madani kvaðst
ekki telja að stjórnvöld ættu ann-
ars kost en að leysa upp þingið.
„Lest sögunnar nemur ekki stað-
ar,“ sagði hann.
Þessi árangur íslamskra bók-
stafstrúarmanna verður að teljast
einhver sá mesti, sem þeir hafa
náð frá því að sálufélagar þeirra
komust til valda í íran.
Reuter/-dþ.
Einn Tamíltígra.
Hrannmorð og bardagar á Sri Lanka
Hætta er nú talin á að stríðið á
Sri Lanka milli stjórnvalda þar og
tamílskra sjálfstæðissinna, sem
legið hefur niðri í rúmt ár, sé að
blossa upp á ný. Að sögn tals-
manna stjórnarhersins hafa um
150 manns fallið í bardögum
hersins og Tamíla undanfarna
þrjá daga og tamílskir sjálfstæðis-
sinnar eru sakaðir um að hafa
myrt um 90 lögreglumenn sem
þeir höfðu tekið til fanga. Sjálf-
stæðishreyfing þessi, sem nefnist
Tamíltígrar, vill sjálfstætt ríki Ta-
míla á norður- og austurhluta
eyjarinnar.
Shamir herðir
skilyrði
Hægristjórn sú undir forustu
Yitzhaks Shamir, sem nýtekin er
við völdum í ísrael, hefur hert á
skilyrðum ísraels fyrir því að
teknar verði upp friðarviðræður
milli þess og Palestínumanna.
Á s.l. föstudag var tilkynnt af
hálfu nýju stjórnarinnar að ekki
kæmi til greina að Austur-
Jerúsalem, sem ísrael hefur inn-
limað, yrði sameinuð Vestur-
bakkanum og Gaza þótt þessi
svæði fengju sjálfstjórn. í gær var
haft eftir Shamir að ísraelsstjórn
myndi ekki taka upp samninga-
viðræður við aðra Palestínumenn
en þá, sem samþykkir væru áætl-
un ísraels um takmarkaða sjálf-
stjórn fyrir íbúa Gaza og Vestur-
bakkans.
Óeirðir í
Búkarest
Einn maður beið bana í gær í
Búkarest og 33 meiddust í
átökum milli mótmælafólks, sem
andstætt er stjórnvöldum, og lög-
reglu, að sögn rúmenska
heilbrigðismálaráðuneytisins.
Að sögn sjónarvotta gerði
mótmælafólkið, sem skipti þús-
undum, áhlaup á sjónvarpshús
höfuðborgarinnar og lagði eld að
aðallögreglustöð hennar.
Friðarviðræður
út um þúfur
Friðarviðræður Mósambik-
stjórnar og Renamo, uppreisnar-
hreyfingar sem gegn henni hefur
barist s.l. 14 ár, fóru út um þúfur í
gær svo að segja um leið og þær
hófust. Viðræðurnar áttu að fara
fram í Blantyre í Malaví. Til
þeirra voru einnig mættir fulltrú-
ar stjórna Zimbabwe, sem styður
Mósambikstjórn í borgarastríð-
inu, og Keníu, sem hliðholl er
Renamo. Hafa stjórnir ríkja
þessara tveggja reynt að miðla
málum milli aðila í stríðinu, sem
lagt hefur stór svæði af Mó-
sambik að miklu leyti í eyði. Að-
ilum ber ekki saman um hverjum
sé að kenna að viðræðunum lauk
nánast áður en þær höfðu hafist.
Berlínarmúr senn allur
Hafist var handa í gær við að
brjóta Berlínarmúr á 26 stöðum,
með það fyrir augum að opna til
umferðar jafnmargar götur, sem
múrinn sleit er hann var hlaðinn
1961.
Eystrasaltslönd
Dregið úr viðskiptabanni
Tillaga umfrystingu sjálfstœðisyfirlýsingar til umfjöllunar á lettneskaþinginu
Eitthvað virðist hafa miðað í átt
til samkomulags í viðræðum
eistneskra, lettneskra og lithá-
ískra ráðamanna annarsvegar og
sovéskra hinsvegar í Moskvu.
Kom það fram í ummælum for-
seta Eystrasaltsríkjanna þriggja,
Kazimieru Prunskiene, forsætis-
ráðherra Litháens og Níkolajs
Ryzjkov, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, í gær.
Að sögn Prunskiene eftir að
hún hafði rætt við Ryzjkov hefur
náðst samkomulag um að so-
véska stjórnin aflétti að nokkru
viðskiptabanninu sem hún heldur
uppi gegn Litháen, þannig að Lit-
háar fái til sín eitthvað af jarðgasi
og hráefnum.
Anatolijs Gorbunovs, forseti
Lettlands, sagði að lettneska
þingið myndi taka til umfjöllunar
tillögu sovésku stjórnarinnar um
að sjálfstæðisyfirlýsing Letta yrði
felld úr gildi til bráðabirgða gegn
þvf að viðræður yrðu teknar upp
með lettnesku stjórninni og þeirri
sovésku um lagalegar hliðar við-
víkjandi þróun Lettlands til sjálf-
stæðis. Ryzjkov kvað Vytautas
Landsbergis, forseta Litháens,
hafa tekið með „skilningi“ upp-
ástungu sovésku stjórnarinnar
um að Litháar færu eins að við
sína sj álfstæðisyfirlýsingu meðan
sjálfstæðismál lands þeirra væru
til umræðu milli þeirra og
Moskvustjórnar.
Tassfréttastofan birti í gær frétt
þess efnis að á fundi sambands-
ráðs Sovétríkjanna á þriðjudag,
sem forsetar Eystrasaltsríkja
sátu, hafi verið samþykkt að
mynda vinnuhóp, skipaðan full-
trúum allra sovétlýðveldanna, er
tæki til endurskoðunar tengsl lýð-
veldanna við sovésku miðstjórn-
ina með það fyrir augum að sjálf-
stjórn þeirra í stjórn- og efna-
hagsmálum yrði aukin.
Reuter/-dþ.
Sovétríkin
Ritfrelsl lögfest
Sovéska þingið samþykkti í
fyrradag frumvarp til laga
sem ætlað er að útrýma ritskoðun
og tryggja blaðafrelsi. Ritfrelsi er
að vísu þegar komið á þarlendis í
raun, en með samþykkt umrædds
frumvarps fæst á því lagaleg
staðfesting.
I Tassfrétt um nýju lögin segir
að þau séu hin fyrstu í sögu Sovét-
ríkjanna, sem í smáatriðum
tryggi fjölmiðlafrelsi og réttindi
frétta- og blaðamanna. Allt
þangað til Míkhaíl Gorbatsjov
kom til valda 1985 hvíldi þung
hönd stjórnvalda á fjölmiðlum.
Hvert blað og útvarpsstöð hafði
sinn eigin ritskoðara, sem sá til
þess að ekkert það væri birt sem
teldist vera óleyfileg gagnrýni á
ríkið.
í samræmi við glasnost Gor-
batsjovs voru fjölmiðlar hvattir
til að vera gagnrýnir, og varð það
til þess að í raun mátti allt birta
nema ríkisleyndarmál. í hinum
nýju ritfreisislögum er enn slakað
á í þessu efni. Þar stendur að
ábyrgðin á því að ljóstra upp
ríkisleyndarmálum skuli eftir-
leiðis hvíla á þeim, sem birtir
þau, fremur en fjölmiðlum sem
þau birtast í.
Að sögn Tass er í lögunum
skýrt tekið fram að ritskoðun á
fjölmiðlum sé bönnuð. Þar stend-
ur og að stofnunum og samtökum
á vegum hins opinþera,
stj órnmálaflokkum og einstak-
lingum sem náð hafa 18 ára aldri
sé heimilt að stofna til útgáfu-
starfsemi. Ennfremur heimila
lögin að embættismenn, sem
hindra fréttamenn í starfi og neita
að gefa þeim upplýsingar, séu
sóttir til saka.
Reuter/-dþ.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN