Þjóðviljinn - 14.06.1990, Síða 7

Þjóðviljinn - 14.06.1990, Síða 7
Leikfélag Reykjavíkur 93 leikár Miðnæturtónleikar Fram á rauða nótt Stuðmenn á hringferð um landið Fyrsta leikári L.R.í Borgarleikhúsinu er að Ijúka, að baki voru 92 leikár í Iðnó Fyrsta leikári Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu fer senn að ljúka. Áhorfendur í vetur urðu nær sextíu þúsund talsins. Síðustu sýningar leikársins verða um helgina, það eru sýningar á leikriti Willy Russels Sigrúnu Ástrósu á Litla sviðið leikhúss- ins. Verkið hefur notið fádæma vinsælda, og er nær uppselt á þær fáu sýningar sem enn eru eftir. Fyrsta verkefni L.R. á stóra sviðinu á næsta leikári verður gamanleikurinn Fló á skinni eftir Frakkann Georges Feydeau. Margir kannast við leikinn því að hann naut mikilla vinsælda þegar hann var sýndur í Iðnó fyrir um tuttugu árum. Leikhússtjóri þá var frú Vigdís Finnbogadóttir, og þýddi hún jafnframt verkið. Æfingar á Flónni eru þegar hafnar og er frumsýning fyrirhug- uð í september. Leikstjóri nú eins og í fýrra sinnið er Jón Sigur- björnsson. Á Litla sviðinu verður fyrsta verk leikársins frumraun Hrafn- hildar Hagalín Guðmundsdóttur í leikritun. Leikritið kallast Meistarinn og fjallar um drauma og metnað þriggja tónlistar- manna. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson. np Sigrún Ástrós fer í leikferð um landið þegar leikári L.R. lýkur upp úr helg- inni. Akureyringar fá fyrstir að kynn- ast þessari glaðlyndu konu 19.-21. júní. Frá Akureyri fer leikhópurinn til Dalvíkur, þá Húsavíkur, Skjólbrekku og Raufarhafnar. Eftir það mjakar hópurinn sér austur um land og lýkur ferðinni í byrjun júlí í Neskaupstað og Mánagarði. Með hlutverk Sigrúnar Ástrósar fer Margrét Helga Jóhanns- dóttir, leikstjóri er Hanna María Karls- dóttir. Mynd: Jim Smart. Stuðmenn eru ekki dauðir úr öllum æðum og halda brátt í tónleikaferð hringinn í kringum landið. Hljómsveitin ætlar að reyna að breyta ímynd sveitaballanna og halda miðnæturtónleika þar sem menn geta hrist sig í takt við tón- listina án þess að borga virðis- aukaskatt. Tónleikar okkar eru ekkert frábrugðnir tónleikum Rolling Stones, segir Jakob Stuðmaður, við erum að fylgja hugverki okk- ar Hve glöð er vor æska úr hlaði með þessari tónleikaferð. Hug- verkið er nýjasta plata sveitarinn- ar sem er nú tilbúin eftir þriggja mánaða strit. Jakob segir plötuna þá rokkuðustu sem þau hafi sent frá sér til þessa, þótt hann kunni engar skýringar á því. A blaðamannafundi, sem stór- sveitin hélt í Templarahöllinni í gær, sögðu meðlimir hennar að þau væru ekki gengin til liðs við Stórstúku íslands, en að þau hefðu vissulega ávallt unnið í anda góðra og gamalla gilda ungmennafélagshreyfingarinnar. Stuðmenn halda rúmíega tutt- ugu miðnæturtónleika víðsvegar um landið, og verða þeir fyrstu 15. júní á Stapa. Þaðan liggur leiðin til Ólafsvíkur, og á þjóð- hátíðardaginn fá bæði borgarbú- ar og Gaflarar að njóta.sveiflu sveitarinnar. Tónleikareisu Stuð- manna lýkur stðan í Húnaveri um verslunarmannahelgina, þar sem þau munu troða upp ásamt fleiri hljómsveitum. BE Stuðmenn í höll Stórstúku íslands i gær. Mynd: Kristinn Eift af þeim frumlegu listaverkum sem eru í listasamkeppninni. Mynd: Ari. Listahátíð Islendingur og haf Listasamkeppni ungsfólks. Ótrúleg hugmyndaauðgi Avegum Listahátíðar stendur nú yfir sýning í Miðbæjar- skólanum, þar sem ungt fólk á listaverk. Þetta er samkeppni sem Listahátíð auglýsti sl. haust, og bárust hátt í þúsund verk hvaða- næva af landinu í keppnina. Þátttakendur í listasamkeppn- inni eru á aldrinum sex til nítján ára, og einu skilyrðin fyrir þátt- töku voru þau að send yrðu inn verk sem með nokkru móti gætu talist til listar af einhverju tagi. Sérstaklega var þó tekið fram að Listahátíð hefði mestan áhuga á verkum sem byggðust á hug- myndinni „íslendingur og haf“. Sýningin í Miðbæjarskólanum er vægast sagt skemmtileg, því þarna er list af öllu tagi. Málverk, teikningar, skúlptúrar, ljóð, ljóðabækur, teiknimyndasögur, vídeómyndir, tónlist af öllu tagi, allt frá poppi yfir í djass og klass- ík. Þá eru sögur, leikritahandrit, veggteppi, dansverk og jafnvel sálmur. Hugmyndaauðgi unga fólksins virðast lítil sem engin takmörk sett. Að áliti aðstandenda Listahá- tíðar virðist þessi lauslega athug- un á sköpunargáfu íslenskrar æsku gefa mjög jákvæða niður- stöðu, þrátt fyrir allt svartagalls- raus um „forheimskun sjónvarps- barna“. Gestir á sýningunni gefa lista- verkunum ejnkunn, og verður álit þeirra tekið tekið til greina þegar dómnefnd kveður upp úr- skurð sinn. Verðlaunaféð er 400 þúsund krónur og það er íslands- banki sem greiðir það og einnig kostar bankinn framkvæmd sýn- ingarinnar. Dómnefndin hefur sjálfdæmi um hvernig verð- launafénu verður úthlutað. Verðlaunaafhendingin verður laugardaginn 16. júní. Formaður dómnefndarinnar er Brynja Benediktsdóttir forseti Bandalags íslenskra listamanna, en auk hennar eru í nefndinni Valgarður Egilsson formaður framkvæmdastjórnar Listahátíð- ar, tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Eyþór Arnalds og myndlistarmennirnir Þór Vig- fússon og Hulda Hákon. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands er heiðursformaður dómnefndar. Listasamkeppni ungs fólks er opin frá kl. 14 til 18 í Miðbæjar- skólanum. -ns. .a humar ja svín.. reyfarif. raritorar franrvábaVc cxfiurúr oq ÍnaFritP Or bowia Kú bvoS Ungir listamenn við skúlptúr sem er á sýningu sem er afrakstur listasamkeppni ungs fólks á vegum Listahátíðar. Mynd: Ari. Fimmtudagur 14. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.