Þjóðviljinn - 07.07.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.07.1990, Blaðsíða 2
Lýðrœði Aðeins fyrir meirihlutann Minnihlutinn útilokaður frá nefndum og ráðum íReykjavík. Afundi borgarstjórnar í fyrra- dag hafnaði meirihluti Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórn alfarið beiðni minnihlutaflokk- anna þess efnis að þeir fái áheyrn- arfulltrúa með málfrelsi og tillö- gurétt í nefndir og ráð borgarinn- Náttúruverndarfélag Suðvest- urlands ætlar dagana 7.-11. júlí nk. að úthluta fjörureinum á höfuðborgarsvæðinu til almenn- ings ásamt spurningablöðum þar sem skrásetja á upplýsingar um ástand fjörunnar. Umhverfis- verkefni þetta er skipulagt af Sambandi íslenskra náttúruvern- darfélaga og hefur yfirskriftina „Fjaran mín“. Stefnt er að því að fjörur um land allt verði skoðað- ar á þennan hátt með aðstoð al- mennings og hefur allri strand- morgun. ar. Samskonar ósk frá bæjarfullt- rúa Alþýðubandalagsins hefur ekki enn verið afgreidd í bæjar- ráði og bæjarstjórn Hafnarfjarð- ar. Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri Alþýðuflokksins í lengjunni verið skipt niður í 500 m. langar reinar. Hverri rein fylgir kort og núm- erað eyðublað sem fylla á út. Veitt verður aðstoð við undir- búning skoðunarferðanna. Verk- efnin verða árstíðabundin, menn vakta sína fjörurein einu sinni á árstíð. Markmiðið er að afla upp- lýsinga um ástand strandleng- junnar en lítið er vitað um hvern- ig umhorfs er á stórum svæðum, hvorki hvað varðar mengun né aðra þætti. Þessar upplýsingar má síðan m.a. nýta við stjórnun náttúru- og umhverfisverndar. íslendingar tóku þátt í Fjöru- skoðun Evrópuþjóða 1989 og leiddi hún í ljós að sums staðar er ástandið vægast sagt bágborið og því ekki vanþörf á að fá nánari vitneskju um strandlengjuna. Skrásetning fyrir höfuðborgar- svæðið fer fram í Náttúrufræði- stofu Kópavogs 7.-11. júlí frá kl. 10 til 12 fyrir hádegi og 17 til 19 eftir hádegi. Að lokinni fjöruskoðun Nátt- úruverndarfélags Suðvestur- lands, sem er eins konar forkönn- un á hvernig verkefnið reynist í framkvæmd, verður leitað eftir áhugamönnum sem vilja sjá um verkefnið í hverju sveitarfélagi. -vd. Hafnarfirði, sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að hann reiknaði ekki með því að ósk Al- þýðubandalagsins um áheyrnar- fulltrúa í helstu nefndum og ráðum bæjarins yrði tekin fyrir fyrr en að afloicnu sumarleyfi bæjarstjórnar í september í haust. Aðspurður um það hvort hér væri ekki um sjálfsagt réttlætis- mál að ræða, sagðist Guðmundur Árni ekki ræða málið efnislega. - Þetta verður að skoðast í sam- hengi við önnur mál, sagði Guð- mundur Árni. Bjarni P. Magnússon flokks- bróðir Guðmundar, sagði að sér kæmi það spánskt fyrir sjónir ef meirihlutinn í Hafnarfirði brygð- ist eins við og Sjálfstæðismenn í borgarstjórn. - Ef ég hefði verið í meirhluta þá hefði ég ekki neitað að verða við slíkri ósk, sagði Bjarni. Að sögn Bjarna P. Magnús- sonar, varaborgarfulltrúa Nýs vettvangs, kom það minnihluta- fulltrúunum ekki á óvart að meirihluti Sjálfstæðismanna skyldi hafa brugðist svona við. - Sjálfstæðismenn vísuðu ein- faldlega til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn væri kjörinn með 60% atkvæða og núverandi nefnda- skipan endurspeglaði vilja kjós- enda, sagði Bjarni. - Það er nú einu sinni svo að það eru mörg framboð sem skipa minnihluta borgarstjórnar, sem segir okkur að uppi eru mismun- andi sjónarmið. Þessi ósk okkar að fá áheyrnarfulltrúa í nefndir og ráð borgarinnar er ekki tómur hégómi eins og meirihlutinn vill vera láta. Staðreyndin er sú að aðeins í undantekningartilfellum er ákvörðunum nefnda breytt af borgarstjórn. Þess vegna er mjög mikilvægt að minnihlutinn eigi fulltúra í nefndum til þess að geta fylgst með umræðunni frá upp- hafi en ekki bara á lokastigi eins og nú er, sagði Bjarni. -rk Sól Umhverfismál Viltu taka að þér fjöni? Þótt þessi börn séu sennilega ekki á leið á Landsmót hestamanna, brugðu þau sér á bak og riðu út í góða veðrinu í gær. Mynd: Jim Smart. Landsmót hestamanna Holskefla gesta í dag Otrúleg veðurblíða á Vindheimamelum. Landsmót hestamanna á Vind- heimamelum stendur nú sem hæst og um 7000 gestir og kepp- endur voru komnir á svæðið í gær. Búist var við holskeflu gesta I gærkvöldi og í dag. Að sögn Ólafs Sveinssonar starfsmanns mótsins gengur allt samkvæmt áætlun og veðrið er sífellt að batna. „Þetta fer að horfa til vandræða, hitinn er kominn yfir 20 gráður,“ sagði Ólafur. Nú er lokið við að dæma kyn- bótahross og gæðingakeppni er um það bil að ljúka. Kappreiðar hófust seinnipartinn í gær og úr- slit í þeim verða í dag. Einnig verða í dag úrslit í keppni þar sem hestamenn frá 13 þjóðlöndum leiddu saman lánshesta. í dag verður formleg setning mótsins, en á morgun kemur forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir og tekur þátt í hópreið sem hestamannafélögin standa að. Hún mun einnig gróðursetja tré í sérstökum reit, Hóftungu. Á svæðinu er kaupfélagið með útibú, starfræktur banki, póstaf- greiðsla og fleira. Mikil umferð er um svæðið og á eftir að aukast enn frekar. Olafur sagði að reiknað hafði verið með 12-14 þúsund gestum og allt benti til þess að það stæðist. Landsmótinu lýkur á morgun. ns. Sundlaugamar pakkfullar Landsmótið Úlfljótsvatni Árbœjarsafn Blessað stríðið og djassinn Hernáms Breta og stríðsár- anna er nú minnst í Arbæjarsafni með sýningunni „og svo kom blessað stríðið", þar sem greint er frá þeim áhrifum sem stríðið hafði í Reykjavík. í tilefni af sýn- ingunni verður efnt til jasshátíðar í DiIIonshúsi á morgun. Á sýningunni um stríðið verða munir og myndir frá stríðsárun- um, og Hernámsfréttir gefnar út af safninu. Það er sveit Tómasar R. Einarssonar sem leikur í Dill- onshúsi á morgun, og hefjast tón- leikarnir kl. 15 og standa til kl. 18. Auk Tómasar leika þeir Sig- urður Flosason, Kristján Magn- ússon og Guðmundur R. Einars- son. Þeir lofa góðri sveiflu, og stríðsárajassi á tónleikunum í timburhúsinu gamla á Árbæjar- safni. be Veðurguðirnir hafa aldeilis leikið við landsmenn undan- farna daga, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi. Sól og hiti upp á hvern dag og íbúar höfuðborgar- svæðisins hafa heldur betur nýtt Vísitala báginda er mjög lág á íslandi miðað við önnur lönd. í OECD-löndunum er vísitala báginda 11 stig að meðaltali en á íslandi einungis 9 stig. í fyrra var vísitala báginda hinsvegar 25 stig á íslandi, þannig að bágindin virðast á undanhaldi hér. I Fréttabréfi um verðbréfavið- skipti, sem gefið er út af Verð- bréfaviðskiptum Samvinnubank- ans, er gerður samanburður á vísitölu báginda í nokkrum löndum, en sú vísitala er summa atvinnuleysis og verðbólgu. Ef við lítum á ísland, þá var sér það, því sundlaugar hafa ver- ið pakkfullar og varla hægt að snúa sér við í laugunum. Að sögn Daníels Péturssonar hjá Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði hefur aðsóknin verið með ólík- þessi vísitala 20 stig árið 1988, 25 stig árið 1989 en fer í 9 stig í ár. Stuðst er við spár um verðbólgu og atvinnuleysi á þessu ári frá OECD og Þjóðhagsstofnun. Mun meira jafnvægi virðist vera á þessari vísitölu í öðrum löndum en íslandi. Vísitala bág- inda er langlægst í Sviss, af þeim löndum sem borin eru saman í Fréttabréfinu, eða 5 stig í ár. Næstlægst er hún á íslandi og í V-Þýskalandi 9 stig. í Bandaríkj- unum og Noregi er hún 10 stig. í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð 12 stig. -Sáf indum. f júní sóttu laugina 22 þúsund manns, en undanfarna daga hafa verið allt upp í 1500 manns á dag, en á „venjulegum" dögum koma u.þ.b. 500 manns. Daníel sagði að í laugina kæmi fólk á öllum aldri, en mest bæri á mæðrum með börn sín sem eyða deginum í lauginni. En Suður- bæjarlaug er ekki bara sundlaug, því þar er góð aðstaða til alls kyns útivistar, s.s. hlaupabraut. Marg- ir koma með nesti með sér og njóta þessa útivistarsvæðis. Hjá starfsfólki Laugardals- laugarinnar fengust þær upplýs- ingar að aðsóknin væri geysilega mikil og rúmlega 2000 manns koma þar á dag. „Það er svo mikið að gera að maður kemst varla á klósettið," sagði starfs- maður Laugardalslaugarinnar. Ekki var minna að gera í Vest- urbæjarlauginni, því þegar Þjóð- viljinn hringdi þangað svaraði starfsmaður því til að hann hefði bara ekki tíma til að tala í símann, það væri svo mikið að gera! ns. Heimsóknar- dagur ídag í dag verður heimsóknardagur á Landsmót skáta að Úlfljót- svatni. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, verður meðal gesta á mótinu. Mótinu verður svo slitið á morgun kl. 11 árdegis. Að sögn Sóleyjar Ægisdóttur, sem er í kynningarnefnd mótsins, er búist við að í dag verði á fjórða þúsund manns á mótssvæðinu, en um 1600 manns taka þátt í Lands- mótinu. í gærkvöldi var tívolí og sveita- ball. „Mótið hefur gengið mjög vel. Allir eru kátir og hressir enda veðrið .verið mjög gott,“ sagði Sóley. -Sáf Vísitölur Bágindi lítil á íslandi 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júlí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.