Þjóðviljinn - 07.07.1990, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.07.1990, Blaðsíða 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar HM á Ítalíu Altari arðsemis- gyðjunnar Ræöa Sigmundar Guöbjarnasonar, rektors Háskóla íslands, á Háskólahátíö fyrir réttri viku, hefur vakið verðskuldaöa at- hygli. Hann lét aö þessu sinni ekki nægja að gefa rúmlega 300 brautskráðum kandídötum heilræði og hvetja þá sem hyggjast stunda nám erlendis til að snúa aftur og helga þjóðinni síðar krafta sína. í krafti yfirsýnar kvað hann líka upp raust sína um breytingarnar í Evrópu, í austri og vestri, og varaði sterklega við fákænlegu offorsi þeirra sem telja Evrópubandalagið og sem sterkast samband við það einhverja lausn á íslenskum málum. Háskólarektor telur þvert á móti örlagaríka hættu steðja að þjóðinni í þessum efnum. Rektor styður mál sitt góðum rökum. [ viðtali við hann í Nýju helgarblaði Þjóðviljans í gær kemur fram, að Háskóli íslands fylgist náið með því hverju fram vindur innan háskóla og fræði- greina á erlendum vettvangi og hefur sett upp sérstaka al- þjóðaskrifstofu sem sinnir slíkum verkefnum. Sjálfur starfaði háskólarektor tæpan áratug í Bandaríkjunum og er hnútum kunnugur víða. Meðal annars hjá einu af risafyrirtækjum þeim sem einkenna markaðsaðferðir Vesturlanda og hann notar í dæmisögu í viðtalinu. Hann greindi frá ákveðnu fjölþjóðafyrirtæki sem er ma. ráð- andi á matvælamarkaði í Vestur-Evrópu núna. Það annast margs konar rekstur undir mismunandi nöfnum, rekur ma. fiskverslanir og fiskveitingastaði um alla Evrópu og selur fisk í Bandaríkjunum og Japan. Starfsmenn þess eru fleiri en ís- lenska þjóðin og veltan á síðasta ári tvítugföid fjárlög íslenska ríkisins og er það þó ekki stærsta fyrirtæki sinnar tegundar. Sigmundur Guðbjarnason segir í viðtalinu: „Þetta fyrirtæki hef- ur augljósan hag af því að kaupa sig í rólegheitum inn í íslensk- ar fiskveiðar og útgerð. Ef ekki er að gáð er þessu fyrirtæki í lófa lagið að kaupa megnið af kvótanum. ... Þeir mundu auðvitað kaupa allar fiskverkunarstöðvar sem eru hagkvæmar og slík fyrirtæki hafa engum skyldum að gegna gagnvart íbúunum..." Háskólarektor bendir einnig á að fleiri þjóðir eins og td. Japanir eru að kaupa sig í stórum stíl inn í evrópsk fyrirtæki. Hann segir að ef slík fyrirtæki taki yfir stóran hluta af atvinnulíf- inu verði þau ekki rekin með hliðsjón af hagsmunum lands- byggðarinnar: „Þá verður einfaldlega hugsað um arðsemina eina saman.“ Frjálst fjármagnsstreymi milli landa er að öllum líkindum sá lykill sem opnar þessa framtíðardyrfyrir (slendinga, ef þeir vilja, eins og fram kemur í orðum rektors. En hann bendir líka á, að á meðan rætt sé um fjármagnsskort á íslandi og að menn vilji skapa aðstæður til að erlendir aðilar dæli hingað peningum, sé „verulegur áhugi á því hjá íslenskum atvinnurekendum og auðmönnum að geta fjárfest erlendis...ég held að það fylgdu í kjölfarið býsna óþæailegar breytingar.“ Rektor Háskóla Tslands sviptir einnig hulunni af þeim hræðslu- og blekkingaráróðri, að með því að standa utan við Evrópubandalagið séum við að útiloka íslenska námsmenn frá framhaldsnámi þar. Hann bendir á að slíkt bryti alveg í bága við álla samninga og þróun sem er í gangi í þeim efnum. Tugir samstarfssamninga um nám og rannsóknir hafa verið gerðir af íslands hálfu við Norðurlöndin og EB-löndin, oft að þeirra frum- kvæði. Engin dæmi eru þess að erfiðara sé fyrir íslenska stú- denta að komast inn í háskóla erlendis en áður, standist þeir kröfur þeirra. í ræðu sinni á Háskólahátíð sagði rektor frá neikvæðum viðbrögðum sínum við þeim hugmyndum að fara að kenna hér á ensku til að laða að erlenda stúdenta: -.vissum verð- mætum verður ekki fórnað á altari arðsemisgyðjunnar." Og Sigmundur Guðbjarnason leggur áherslu á að rækta þurfi þjóð- ernistilfinninguna hjá háskólastúdentum, þótt sumum finnist „...það vera gamaldags að vera að ræða þá hluti.“ Þrjú grund- vallarskilyrðin til að stöðva atgervisflótta háskólamanna héðan telur hann vera: Að virkja þá við verkefni sem eru verðug og spennandi, borga mannsæmandi laun og styrkja þjóðernis- kennd þeirra. Þjóðlegri reisn og fullveldi verður heldur ekki fórnað á altari arðsemisgyðjunnar, meðan menn eins og háskólarektor halda vöku sinni og blanda sér á áhrifaríkan þátt í umræðuna. ÓHT Er allt þegar þrennt er? Um áttatíu þúsund manns munu sjálfsagt troðfylla Olympíu- leikvanginn í Róm á morgun sunnudag þegar lið Argentínu og Vestur-Þýskalands leikatil úrslita á heimsmeistaramótinu í knatt- spyrnu. Þetta er í þriðja sinn í röð sem Þjóðverjar leika til úrslita oa í annað sinn á móti Maradona og félögum. Þeir töpuðu í úrslita- leiknum gegn Ítalíu á Spáni árið 1982 og einnig gegn Argentínu í Mexikó 1986. Margir hafa þá trú að nú muni þeir loksins klára dæmið og standa uppi sem sig- urvegarar í fyrsta skipti síðan 1974 en enginn skyldi þó afskrifa Argentínumenn fyrr en mexíkan- ski dómarinn hefur blásið til leiks- loka. Línuverðir verða þeir Listkiewicz frá Póllandi og Perez frá Kólombíu. Caniggia ekki meö Nokkrir leikmenn argentínska liðsins verða ekki með í úrslita- leiknum á morgun vegna gulra spjalda sem þeir hafa fengið og verða því í leikbanni í þýðingar- mesta leiknum. Þar munar mestu um ljóshærða framherjann Can- iggia en hann og Maradona hafa náð einkar vel saman í keppn- innni sem kom mjög vel í ljós í leik þeirra á móti Brössunum í 16-liða úrslitunum. Aðrir leik- menn Argentínu sem verða í banni á sunnudag eru þeir Giusti, Olarticoechea og hinn síðhærði og skeggjaði Sergio Batista. Að óreyndu verður ekki öðru trúað en að Bilardo, hinn litríki þjálfari Argentínumanna, eigi einhver tromp í bakhöndinni til að fylla þau skörð sem þessir leikmenn skilja eftir sig í liði heimsmeistar- anna. Margir hafa haft það á orði að breyta eigi reglum keppninnar þannig að gul spjöld í undanúr- slitaleikjum eiga ekki að verða til þess að útiloka leikmenn frá sjálf- um úrslitaleiknum. Rökin eru þau að úrslitaleikurinn er há- punktur keppninnar og fyrir vik- ið getur það skemmt töluvert fyrir gæðum og skemmtanagildi leiksins ef lykilmenn liðanna eru kannski ekki með vegna fyrri yfirsjóna. Þjóöverjar til alls líklegir Ef að líkum lætur munu Þjóð- verjar koma grimmari til leiks en nokkru sinni fyrr í keppninni þar sem dagskipun þeirra verður sigur og aftur sigur. Þjóðverjum er trúlega enn í fersku minni tap- leikurinn á móti Argentínu- mönnum í Mexíkó fyrir fjórum árum þar sem þeir gleymdu sér augnablik í vörninni sem kostaði þá sigurinn. Þá er það ennfremur geysimikið metnaðarmál fyrir þjálfara liðsins, Franz keisara Beckenbauer að leiða lið sitt til sigurs í keppninni. Hann var eins og kunnugt er fyrirliði Þjóðverja þegar þeir unnu heimsmeistarat- itilinn síðast árið 1974 í afar eftir- minnilegum leik á móti Hollend- ingum. Til að svo geti orðið verða Þjóðverjar að taka sig saman í andlitinu miðað við frammistöðu þeirra í leiknum á móti Englend- ingum. Mörgum þótti þá sem vamar- og sóknarleikur þeirra væri ekki sem skyldi, miðað við fyrri leiki þó svo að liðið hafi náð að bera sigurorð af tjallanum í vítaspymukeppni. Að hinu leyt- inu hafa Þjóðverjar sýnt það og sannað að þeir leika aldrei betur en þegar mest á reynir. Að sjálf- sögðu má segja hið sama um andstæðinginn sem hefur orðið betri með hverjum leik. Það er síðan spurning hvernig þær væntingar sem gerðar em til lið- anna og sá þrýstingur sem á þeim er hefur áhrif á getu þeirra þegar út í slaginn er komið. Þar ræður dagsformið úrslitum en ekki for- tíðin. Ítalía og England í dag í dag verður leikið um þriðja sætið á mótinu og leiða þar saman hesta sfna lið Ítalíu og Englands. Bæði þessi lið hafa verið að sleikja sárin eftir að hafa tapað slagnum um réttinn til að leika í úrslitaleiknum og því er hætta á að leikurinn geti orðið ansi til- þrifalítill. Hinsvegar hlýtur það að vera ítölum mikið kappsmál að sýna löndum sínum hvers þeir eru megnugir og trúlega munu þeir leggja allt í leikinn og leika til sigurs. Englendingar hafa ekki náð eins langt í heimsmeistarakeppni frá því þeir urðu meistarar 1966 og mega vel við una. Vafalaust verður pressan mest á ftölum þar sem þeir leika á heimavelli og mun það verða tjallanum til góða ef eitthvað er. Þessi leikur verður kveðjuleikur Bobby Robson landsliðseinvalds þeirra Eng- lendinga en hann hefur verið ráð- inn þjálfari hjá PSV í Hollandi fyrir komandi keppnistímabil. Keppni hinna óvæntu úrslita Það er mat margra að það sem hefur einkennt keppnina að þessu sinni sé geta hinna litlu liða og óvæntra úrslita. Enda er það í úrslitaleiknum á sunnudag mun mikið mæða á þessum tveimur leikmönnum Lothar Matthaus og Maradona sem báðir leika í peysu númer 10 og eru aðal - leikstjórnendur sinna Ifða. Mun Maradona bera sigur úr býtum enn eina ferðina eða ná Þjóðverj- ar með krafti sínum og seiglu að vinna loksins sigur? Það kemur í Ijós í beinni útsendingu á morg- un, sunnudag í Sjónvarpinu, sem hefst klukkan 17,45. svo að sparkfræðingar hafa nán- ast farið huldu höfði alla keppn- ma því svo til allar spár þeirra um úrslit hafa ekki gengið eftir. Að sama skapi hafa mörg hinna stærri liða valdið miklum von- brigðum í keppninni og nægir þar að nefna Sovétmenn, Hollend- inga og Brasilíumenn. En að hinu leytinu hefur verið mjög gaman að fylgjast með liði Kamerún og írlands sem náðu mun lengra en nokkur þorði að vona fyrir keppnina. Margt og mikið hefur verið skrafað og skrifað um árangur Kamerún sem svo sannarlega var það lið sem vann hugi og hjörtu flestra þeirra sem fylgst hafa með keppninni. Eftir að hafa séð til knatttækni þeirra og leikskipu- lags er ekki að undra þó að þeir hafi náð jafn langt og raun ber vitni um, þrátt fyrir spár sérfræð- inganna um annað. Staðreyndin er nefnilega sú að knattspyrnan hefur verið á mikilli uppleið í Afríku. Hinsvegar hefur kastljós evrópskra fjölmiðla verið ein- göngu á gömlu liðin og varla staf- ur um getu annarra þjóða eins og þau séu ekki til. Það var því eðli- legt að margur maðurinn ræki upp stór augu þegar þeir lögðu sjálfa meistaranna í opnunar- leiknum og síðar lið Rúmeníu. En ef grannt er skoðað kemur í ljós að margir leikmanna liðsins spila sem atvinnumenn í Frakk- landi og víðar og kunna því ýmis- legt fyrir sér í boltanum. Með sama áframhaldi ætti það ekki að koma neinum á óvart ef lið frá Afríku yrði meistari í Ameríku eftir fjögur ár og spilaði úrslita- leikinn á móti öðru Afríkuliði eða liði frá Asíu. -grh þJÓÐVIUINN Síðumúla 37 —108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Utgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófeson. Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur Þorieifeson, Elías Mar (pr.), Garðar Guðiónsson, Guömundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Vilborg Daviðsdóttir, Þröstur Haraldsson. Skrifstofustjóri: Sigriin Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingimundardóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guðriin Gisladóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir, Þorgeröur Sigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrifstofa, afgrelðsla, ritstjóm, auglýsingar: Slðumúla 37, Rvík. Sími: 681333. Simfax: 681935. Auglýsingar: 681310,681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblaö: 150 kr. Askriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4SÍÐA —ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 7. júli 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.