Þjóðviljinn - 01.08.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.08.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Poríákshðfn Troðið á minnihlutanum Meirihlutinn í hreppsnefnd túlkar bráðabirgðasamkomulag sem endanlegt. Kært til félagsmálaráðuneytis Klisti Aiþýðubandalags og Al- m þýðuflokks í Ölfushreppi hefur óskað úrskurðar félags- málaráðuneytisins vegna vinnu- bragða meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks í hreppsnefnd, við skipun í nefnd- ir. Vegna deilna um hvernig skyldi skipað í einstakar nefndir var gert bráðabirgðasamkomu- lag sem meirihlutinn kýs nú að túlka sem endanlega niðurstöðu. í erindinu til félagsmálaráð- herra lýsa Guðbjörn Guðbjörns- son og Oddný Ríkharðsdóttir, fulltrúar K-listans, vinnu- brögðum meirihlutans. Á fyrsta fundi hreppsnefndar 12. júní, þar sem meirihlutasamstarf Sjálfs- tæðisflokks og Framsóknarflokks var kynnt, spurði Guðbjörn oddvita hvernig staðið yrði að kosningum í nefndir og ráð. Oddviti sagði að hlutfallskosning yrði viðhöfð, þar sem minnihlut- inn fengi einn fulltrúa í þriggja manna nefndir og tvo í fimm manna nefndir. Þessi svör oddvit- ans voru ekki bókfærð í funda- gerðarbók. Næsti fundur hreppsnefndar var haldinn 21. júní. í millitíðinni hafði oddviti óskað eftir því við K-listann og H-lista sveitarinnar, að þeir legðu fram lista yfir full- trúa í nefndir og vildi oddviti fá þennan lista fyrir fundinn 21. júní, þar sem kosning í nefndir átti að fara fram. H-listinn varð við þessari kröfu, en K-listinn ekki. „Það er skoðun þeirra sem standa að K-lista að þegar hlut- fallskosning er viðhöfð, komi meirihluti hreppsnefndar með sínar tillögur á löglega boðaðan hreppsnefndarfund og minni- hlutinn leggi þar einnig fram sínar tillögur," segir í erindinu til félagsmálaráðuneytisins. K- listinn telji að hann eigi sjálfur að velja sína fulltrúa, en beri ekki að afhenda lista fyrirfram svo meiri- hlutinn geti ráðskast með hann að vild. Á fundinum 21. júní lagði oddviti hins vegar fram lista þar sem hvert nefndarsæti er skipað. „Meirihlutanum hafði þó þókn- ast að stilla upp einum manni í nefnd frá K-lista,“ segir í erind- inu. Hreppsnefndarfulltrúi K-listans gerði strax athugasemd við þessi vinnubrögð meirihlut- ans. Eftir þennan fund hafði fulltrúi K-lista samband við félagsmála- ráðuneytið og það mun oddvitinn einnig hafa gert. Eftir það vildi oddviti reyna að ná samkomu- lagi. Á fundi 3. júlí var síðan gerð samþykkt, þar sem sagt var að ágreiningur væri um lögmæti fyrri kosninga en brýnt að nokkrar nefndir tækju strax til starfa. Samkomulag varð um kosningu í fjórar nefndir. Það gerðist síðan á hrepps- nefndarfundi 19. júlí að meiri- hlutinn túlkaði þetta samkomu- lag sem endanlegt, ekki yrði sam- ið um fleiri nefndir. í erindi K- listans segir að ekkert segi um það í samkomulaginu að þannig skyldi að verki staðið. Þvert á móti hefði fulltrúi K-listans stað- ið í þeirri trú að samkomulag um þær nefndir sem eftir væru, yrði gert með sama hætti og gert var um nefndirnar fjórar. Óskar K- listinn úrskurðar félagsmálaráðu- neytisins vegna þessa máls. -hmp Reykjanes Aðalverktakar enn langhæstir Islenskir Aðalverktakar sf. sem fyrr með langhæstu heildargjöld lögaðila í Reykjanes- umdæmi, eða tæpar 400 milljónir króna. Næstir koma Sparisjóður Hafnarfjarðar með 68 milljónir, Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli með 48,6 milljónir og Hagvirki hf. með 46,5 milljónir. Þorleifur Björnson í Hafnar- íslenskir Aðalverktakar enn eitt árið langhæstu skattgreiðendur á Reykjanesi. Mynd: Jim Smart. firði greiðir mest einstaklinga eða 19 milljónir en næstir koma tveir lyfsalar, Matthías Ingibergsson í Kópavogi með 9,5 milljónir og Benedikt Sigurðsson í Keflavík með 9 milljónir. el Æðra tilverustig Hvað það verður enginn veit Þorri íslendinga er sannfærður um að líf er eftir dauðann, en fæstir eru þó vissir í sinni sök hvað taki við á næsta tilverustigi. Þetta kemur m.a. fram í niður- stöðum rannsóknar dr. Björns Björnssonar, guðfræðiprófessors og dr. Péturs Péturssonar, lektors í félagsfræði við Háskóla íslands á trúarviðhorfum ísiendinga, sem nýverið hafa verið gefnar út á bók. í ritgerðinni, sem nefnist Trú- arlíf lslendinga og telst þriðja bindið í Ritröð Guðfræðistofnun- ar, kemur fram að einungis um 9% þeirra 731 einstaklinga á aldr- inum 18-76 ára sem sendu inn svör við útsendum spurningalista um trúarlíf landans, telja sig með öllu fráhverfa hugmyndinni um líf eftir dauðann. Lang stærsti hluti þeirra sem aðhyllist hugmyndir um fram- haldslíf er á þeirri skoðun að eng- inn geti vitað hvað taki við að loknu jarðlífinu. Ríflega fjórð- ungur vill þó meina að sálin flytj- ist yfir á annað tilverustig og enn nokkur hópur telur að maðurinn rísi upp til samfélags við Guð. At- hygli vekur að aðeins 6% með- kenna trú á endurholdgun. Af rannsóknarniðurstöðum virðist sem karlar séu heldur van- trúaðri á framhaldslíf en konur. Þá er fólk á aldrinum 25-44 ára vantrúaðri á framhaldslífshug- myndir en þeir sem eru yngri og eldri. Bókarhöfundar ætla að saman- lagt megi ætla að 85% spurðra 'álíti að líf sé að loknu þessu, en það er allnokkru hærra hlutfall en kom fram í alþjóðlegri könnun sem gerð var hér á landi fyrir nokkrum árum um gildismat og lífsviðhorf. Þá svöruðu 76% því játandi að líf væri eftir dauðann. Hvað sem því líður má ætla að eilífðarmálin séu íslendingum mun hugleiknari en nágranna- þjóðunum, því þá játtu aðeins 26% þeirra sem tóku þátt í danska hluta könnunarinnar til- vist framhaldslífs, 28% svarenda í Svíþjóð, 44% í Noregi og 49% í Finnlandi. -rk Hvalfjörður Lagningu slitlags lokið Fyrir skemmstu var lokið við að leggja bundið slit.lag á Hval- fjarðarveginn og það var Vega- gerð ríkisins í Borgarnesi sem sá um síðasta hlutann. Fram- kvæmdir Vegagerðarinnar skipt- ast við Botnsá og var kaflanum frá Rcykjavík að Botnsá lokið í fyrra. Framkvæmdir frá Botnsá að Borgarnesi hófust í maí sl. og lauk sem fyrr segir nýlega. Að sögn Björns Leifssonar starfsmanns Vegagerðar ríkisins í Borgarnesi, er verkinu þó ekki formlega lokið, því verktakinn á eftir að skila af sér og eftirlits- maður frá Vegagerðinni tekur síðan verkið út. ns. Garðbæingar fá nýjan golfvöll Nýr golfvöllur verður formlega tekinn í notkun í Garðabæ á morgun. Völlurinn, sem er níu holu völlur, er á Vífilsstaðatúni. Allan veg og vanda af gerð vallar- ins sem og smíði skála og æfinga- svæðis fyrir golfmenn hafði Golfklúbbur Garðabæjar. Golfklúbbur Garðabæjar hef- ur ekki haft land til umráða undir starfsemina þar til í fyrra, að samningar tókust við stjórn Ríkisspítala um afnot til 20 ára af Vífilsstaðatúni. Vígsluathöfnin hefst kl. 17 á morgun og að henni lokinn verð- ur efnt til vígslumóts. Skógrækt í Norræna Á opnu húsi í Norræna húsinu annað kvöld mun Sigurður Blöndal, fyrrverandi skógræktar- stjóri spjalla um íslenska skóga og skógrækt á íslandi. Sigurður flytur tölu sína á norsku. Að loknu kaffihléi verður sýnd kvik- myndin „Þrjár ásjónur íslands". Myndin er með norsku tali. Eins og áður segir verður fyrir- lesturinn annað kvöld í Norræna húsinu. Hann hefst stundvíslega kl. 20.20. Aðgangur er ókeypis. Ungirframsóknar- menn á Norðurlöndum þinga Ungherjar miðjuflokka í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi auk Sam- bands ungra framsóknarmanna halda sitt árlega þing um þessar mundir í Valaskjálf á Egilsstöð- um. Á þinginu verða umhverfis- mál ofarlega á baugi. Meðal ann- ars munu þingfulltrúar ræða um nauðsyn þess að skapa samnorr- æna orkustefnu, þar sem um- hverfisvernd veröi höfð að leiðarljósi. Nýr sveitarstjóri í Skútustaðahreppi Sigurður Rúnar Ragnarsson hef- ur verið ráðinn sveitarstjóri Skút- ustaðahrepps. Hann tók við starfinu af Jóni Pétri Líndal sem verið hefur sveitarstjóri hrepps- ins undanfarin ár. Sigurður er vélvirki að mennt. Hann starfaði áður hjá Kísiliðj- unni í Mývatnssveit. Aðstoðarmaður Ceausescus á bók Almenna bókafélagið hefur gefið út frásögn lon Mihai Pacepa. Hann var um árabil yfirmaður rúmensku leyniþjónustunnar áður en hann snéri við blaðinu og gaf sig bandarískum stjórnvöld- um á hönd. Bókin nefnist í ís- lenskri þýðingu Ólafs B. Guðna- sonar „Blóðugur blekkingarleik- ur“. Bókin er 220 síður að lengd og er hún með leyfi höfundar nokk- uð stytt í þýðingu. „Kínver]inn“ ófundinn Lögreglunni hefur ekki enn tekist að upplýsa hver eða hverjir sprengdu kínverja inni á miðju dansgólfi Hótel Borgar á aðfarar- nótt sunnudags með þeim afleið- ingum að þrír gesta urðu að leita aðstoðar á slysadeild sökum meiðsla er þeir hlutu við spreng- inguna. Fjöldi gesta var á Borginni um- rædda nótt en enginn hefur gefið sig fram sem vitni að atburðinum. Tónlistarveisla í tilefni verslunar- mannahelgar Af tilefni verslunarmannahelgar verður haldin tónlistarhátíð á „Tveimur vinum og annar í frí“. Herlegheitin byrja í kvöld, en þá mun Rokkabillyband Reykjavík- ur troða upp. Annað kvöld verð- ur helgað blúsnum en þá leika Blúskjammar ásamt Sigurði Sig- urðssyni söngvara og munn- hörpuleikara. Á föstudags- og laugardagskvöld stíga íslandsvin- ir á svið. Hljómsveitin Sprakk, Sprakk rekur síðan lestina og heldur uppi fjörinu á sunnudags- kvöld. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 1. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.