Þjóðviljinn - 01.08.1990, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 01.08.1990, Blaðsíða 7
Hugvit Höfuðið er til þess að hugsa með því Höfuðið ekki bara til þess að læra með því, segir Sturla Einarsson byggingarmeistari og er myrkur í máli um fyrirgreiðslu hins opinbera við íslenska hugvitsmenn Fyrir skömmu sögðum við í Nýju Helgarblaði frá baráttu ís- lenskra hugvitsmanna fyrir því að fá einkaleyfi á hugmyndum sín- um og fá aðstoð í kerfinu til að þróa hugmyndir sínar. Mun það ganga vægast sagt brösulega. Ekki virðist þó skipta öllu máli hvort hugvitsmenn hyggjast fá einkaleyfi á hugmyndum sínum og hefja framleiðslu á þeim eða hvort þeir vilja einungis koma þeim á framfæri og fá aðstoð til að þróa þær. Sturla Einarsson byggingarmeistari er einn þeirra hugvitsmanna sem segist einung- is vilja koma hugmynd sinni á framfæri við almenning enda sé hún einföld og gæti komið öllum til góðs. Umrædd hugmynd er sú að einangra útveggi utanfrá og hefur aðferð Sturlu hlotið talsverða út- breiðslu frá því að hún kom fram 1978. Má nefna að bæði í Seðla- bankahúsinu og Ríkisútvarpinu eru svipaðar aðferðir notaðar. Sturla hefur sjálfur byggt 8 hús með nýju einangrunaraðferðinni og segir kostina augljósa: yfir 30% orkusparnaður náist og þurfi vatnið til upphitunar ein- ungis að vera 42 gráður í stað 70 - 80. í tilraunahúsi sem Sturla hef- ur byggt nýtir hann einmitt kosti þess að hafa einangrunina utaná og hitar húsið með því að leggja hitarör í útveggina. Þessi aðferð er einnig mun ódýrari en hin hefðbundna, um 19% lækkun á framleiðslukostnaði næst á hvern fermetra útveggjar. Þrátt fyrir þetta hefur Sturla í rúman áratug mátt heyja harða baráttu við kerfið til að fá aðstoð við að þróa hugmyndir sínar og reisa tilraunahús. Húsnæðis- stofnun Ríkisins hefur samkvæmt lögum heimild til að lána til fram- leiðslu á tilraunahúsum. Sturla segir stofnunina þó ekki hafa sýnt þessum málum neinn merkjan- legan áhuga. Hann hafi eftir að ævintýrið hófst sótt um fram- kvæmdalán hjá Húsnæðisstofnun en það hafi ekki fengist heldur bara flýting á Húsnæðismála- stjórnarláni og 35 þúsund króna styrkur - sem hann hafi nú reyndar aldrei beðið um! „Þetta er nú það framlag sem hið opin- bera veitir í byggingu tilrauna- húsa á íslandi, og þykir mjög ríf- legt“, segir Sturla. Árið 1980 mælti Iðnaðarráðu- neytið eindregið með því að fjár- magni yrði veitt í þessar tilraunir en nú rúmum áratug síðar hefur ekkert gerst. Þingsályktunartil- laga um að fela Húsnæðisstofnun að gera úttekt á málinu fór í gegn- um þingið 1981 og síðan hafa komið 2 fyrirspurnir til félags- málaráðheira um hvað Húsnæð- isstofnun hafi gert til eflingar tækniþróunar í landinu. Sturla segir að þetta virðist ekki hafa minnstu áhrif. „Fjöldi þing- manna hefur komið til að skoða hjá mér húsið og allir þykjast þeir hafa góðan vilja en enginn getur gert neitt. Félagsmálaráðherra sagðist á Alþingi ekki ráða yfir Húsnæðisstofnun, vald stofnun- arinnar væri of mikið. Ef hún vildi koma einhverju í gegn gæti hún ekki gengið gegn vilja stjórn- ar Húsnæðisstofnunar. í fyrra- haust sótti ég um lán til stofnun- arinnar til að greiða 4 milljónir sem móðir mín hafði lagt í þessar tilraunir mínar. Því var snarlega synjað í F-lánadeild.“ Sturla segir það haft að engu þótt fagmenn hafi mælt með til- raunum hans. í skýrslu sem Rík- harður Kristjánsson hjá Rann- sóknastofnun byggingariðnaðar- ins tók saman segir meðal annars: „Það er sjaldgæft að einstakl- ingar leggi á sig að gera dýrar til- raunir í líkingu við þetta. Til- raunastarfsemi í byggingariðnaði er alltof fátækleg á íslandi og nauðsyn að styðja við bakið á þeim sem vilja leggja á sig vinnu við að prófa eitthvað nýtt“. Er ekki hugsanlegt að leita til annara aðila en Húsnœðisstofn- unar? „Húsnæðisstofnun er falskt ör- yggi vegna þess að allir aðrir sjóð- ir sem eiga að sinna þessum mál- um beint og óbeint, Fram- kvæmdasjóður, Iðntæknisjóður, Iðnþróunarsjóður, Rannsókna- ráð Ríkisins, Iðnaðarráðuneytið, já og fjöldi annarra sjóða, vísa allir á Húsnæðisstofnun. Það er einfaldlega gert ráð fýrir að Hús- næðisstofnun láni til byggingar tilraunahúsa samkvæmt lögum. Af hverju þessi tregða? „Ef ég vissi það nú. Húsnæðis- stofnun lánar í nánast allt nema svona starfsemi. Þetta er ekki spurning um peningaleysi, heldur skilningsleysi og þráhyggju. Það er álit stofnanamanna að upfinn- ingamenn á íslandi hljóti að vera klikkaðir“, segir Sturla. Hann kveðst stundum í gamni hafa líkt ferðum sínum milli stofnana undanfarinn áratug við Kefla- víkurgöngu. 1980 hafi hann verið komin til Hafnarfjarðar en nú áratug síðar sé hann kominn aftur til Keflavíkur. „Ég er alveg hætt- ur að eiga við kerfið. Ég sé ekki nokkur tök á því yfirleitt að byggja tilraunahús hér á landi.“ Sturla Einarsson, byggingarmeistari: Það er álit stofnanamanna að uppfinningamenn á íslandi hljóti að vera klikkaðir. Sturla er ekki bjartsýnn á að öðrum hugvitsmönnum gangi í framtíðinni betur að eiga við kerfið. „Ég er með hálffulla tösku af vottorðum og meðmæl- um, samt gengur ekkert. Hvað verður eiginlega um þá sem eru bara með hugmyndir í kollinum.“ En hvað er til ráða? „Viðhorfsbreyting verður að eiga sér stað. Við eigum ekki alltaf að kaupa inn tæknina er- lendis frá heldur eigum við að hagnýta íslenskt hugvit og þekk- ingu. Menn verða að gera sér grein fyrir að hausinn á okkur er til þess að hugsa með honum en ekki til þess bara að læra með honum. Menntun getur aðeins komið til viðbótar skynseminni, hún getur aldrei tekið við af skynseminni“, sagði Sturla að lokum. el Senn fækkar fólki í Evrópu Viðkoma aldreijafnlítil. -Þörffyrir innflytjendur.- Pólitískt sprengjuefni Meðalævi fólks í löndum Vestur-Evrópu er að lengjast meðan barnsfæðingum fækkar ört. Nú eru það aðeins írar sem eignast nógu mörg börn (2,1 barn á hverja móður) til að við- halda þjóðinni. Þetta þýðir að nú þegar á þeim áratug sem hafinn er mun fækka stórlega því unga fólki sem kem- ur á vinnumarkað og snemma á næstu öll mun fólki fara að fækka í flestum löndum álfunnar. Þetta setur á dagskrá innflutn- ing fólks frá öðrum heimshlutum. Mikil pólitísk andstaða er gegn því t.d. í Frakklandi og fleiri löndum, að leyfa fleiri farand- verkamönnum að flytja til Evr- ópu. Er þá vísað til þess að veru- legt atvinnuleysi sé landlægt í flestum löndum EB. En málið er ekki svo einfalt. Innflytjendur hafa víða tekið að sér óvinsæl störf eða láglaunastörf, sem heimamenn vilja ekki taka að sér. Þeir vilja heldur vera á at- vinnuleysisbótum “í sínu fagi“. í Evrópubandalaginu eru nú 327 miljónir íbúa. Af þeim eru 12 miljónir innflytjendur og afkom- endur þeirra. Flestir í Frakklandi eða 4,5 miljónir, 2,5 miljónir í Bretlandi og 1,8 miljónir í Vestur-Þýskalandi. Sem fyrr segir fækkar fæðing- um j afnt og þétt í löndum EB. Nú á hver kona að meðaltali 1,58 barn. Meira að segja í kaþólskum löndum eins og Italíu og Spáni, þar sem sterk hefð er fyrir stórum fjölskyldum, er meðalbarnafjöldi í fjölskyldu kominn niður í 1,3. Á meðan fjölgar gömlu fólki á eftirlaunum stórlega svo að auðséð er að það verður þörf fyrir verulegan fjölda innflytjenda til að halda því hlutfalli milli vinn- andi manna og óvirkra á vinnum- arkaði sem hagvöxt gæti tryggt. En sem fyrr segir: innflytjendam- ál eru hlaðin pólitísku sprengi- efni, ekki síst í Frakklandi þar sem innflytjendur eru flestir. Miðvikudagur 1. ágúst 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.