Þjóðviljinn - 16.08.1990, Síða 1

Þjóðviljinn - 16.08.1990, Síða 1
Fimmtudagur 16. ágúst 1990 151. tölublað 55. árgangur Nýtt álver Reyðarfjörður út úr myndinni Raforkuverð tengt markaðsverði á áli. Ahyggjur hœnda íEyjafirði setja strik í reikninginn. Halldór Jónatansson: Raforkuverð til Atlantal verður ekki lœgra en til Alusuisse Hcimildarmönnum Þjóðviljans ber ekki saman um hvort þeg- ar sé búið að ákveða að staðsetja nýtt álver á Keilisnesi en staðfesta að Reyðarfjörður sé ekki lengur inni í myndinni. Einn heimildar- manna blaðsins fullyrðir að þeg- ar sé búið að ákveða raforkuverð til nýs álvers og staðsetningu þess á Keilisnesi. Hann segir einnig að raforkuverðið verði tengt mark- aðsverði á áli strax í upphafí, en áður hafði verið talað um fasta tölu sem færi stig hækkandi. Tal- að var um 14 mills á kflóvatts- stund sem byrjunarverð. Samkvæmt annarri heimild úr stjórnkerfinu er Eyjafjörður enn inni í myndinni en Reyðarfjörur hefur hins vegar verið útilokað- ur. Ástæða þess að Eyjafjörður kemur enn til greina er ótti manna við að staðsetja alla stór- iðju á gosbeltinu. En bændur í Eyjafirði hafa lýst yfir áhyggjum sínum ef álver verður staðsett þar og fullyrða að um 50 jarðir leggist í eyði af þeim sökum. Þegar Atl- antalhópnum bárust spurnir af þessu viðhorfi bændanna, mun áhugi þeirra á Eyjafirði hafa minnkað, þar sem þeir vilja halda friði við nágranna væntanlegrar stóriðju. Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar kannast ekki við að búið sé að ákveða staðsetning- una og kannaðist heldur ekki við að raforkuverð hafi verið ákveð- ið, en segir að það verði ekki lægra en til Alusuisse. Stefnt er að því að samningar við Atlantal verði tilbúnir til undirskriftar í næsta mánuði. Þessa dagana sagði Halldór verið að ræða ýmis almenn ákvæði rammasamningsins óháð raforkuverði. Rafmagnsverðið væri ekki á dagskrá í þeim við- ræðum sem fara fram í Reykjavík um þessar mundir. Að sögn Hall- dórs á raforkuverðssamningur við Atlantal ekki að hafa nein áhrif til lækkunar á raforðuverði til Alusuisse. Það verði örugglega ekki samið um lægra verð til Atl- antal en til Alusuisse. Ríkisstjórnin samþykkti fyrir skömmu að gefa grænt ljós á 100 milljóna lántöku Landsvirkjunar vegna undirbúningsframkvæmda við virkjanir. En Alþingi hafði samþykkt að Landsvirkjun fengi að taíca að láni 300 milljónir, að gefnu samþykki ríkisstjórnar. I Halldór sagði framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun. Vega- gerð væri hafin á Fljótsdalsheiði í eins og áætlanir gerðu ráð fyrir og I unnið væri að hönnun og útboðs- gögnum. Ef aðstæður leyfa sagði Halldór allt útlit fyrir að takast megi að ljúka nauðsynlegum framkvæmdum fyrir veturinn. Þegar ríkisstjórnin gaf grænt ljós á 100 milljónirnar, sagði Halldór að gert hefði verið ráð fyrir því að staðan yrði metin um næst komandi mánaðamót. Þá yrði ákvörðun tekin um fram- haldið í ljósi þess hvernig samn- ingaumleitanir við Atlantal standa. „1 dag bendir ekkert til annars en að þær séu í rétta átt og muni því réttlæta frekari undir- búning,“ sagði Halldór. Áður en Alþingi samþykkti lögin um undirbúningsfram- kvæmdirnar og lántökur þeirra, vegna lántöku Landsvirkjunar Igær reyndi þrekraunamaður- inn frá Akranesi, Kristinn Ein- arsson að synda yfír Hvalfjörð. Hann hljóp frá Akranesi til Grundartanga, þaðan sem hann lagði til sunds. Ætlunin var að synda yfír, fara frá bakkanum hjólandi til Reykjavíkur og taka þátt í Maraþonhlaupinu sem fram fer á sunnudaginn. En ekki fer allt samkvæmt áætlun. Þegar Kristinn var kominn að Grundartanga áttu að vera þar tveir bátar til að fylgja honum yfir. Þeir voru hins vegar ekki komnir, og að sögn Kristins var hann búinn að hita það vel upp að hann gat ekki hætt við. „Ef ég hefði beðið eftir þeim hefði ég kólnað niður. Ég stakk mér þess vegna bara í sjóinn. Bátarnir komu nefnilega ekki fyrr en eftir klukkutíma,“ segir Kristinn. Þeg- ar bátarnir komu fundu þeir Kristin ekki og lónuðu um fjörð- inn í leit að honum. Mikill öldu- gangur var og vonlaust var að sjá Kristin í sjónum. Þegar bátarnir höfðu svipast um um tíma, var Slysavarnafélagið látið vita og það var í startholunum. En til að- stoðar þess kom ekki. Þegar Kristinn var búinn að vera á sundi í um 40 mínútur var straumurinn farinn að bera hann mikið af leið. „Það var svo mikill voru samþykkt, hafði 40 milljónum verið varið í undirbún- ingsframkvæmdir. Miðað við að undirbúningurinn gangi sam- öldugangur að ég sá að ég myndi aldrei ná á tangann hinum megin. Ég ákvað því að snúa við,“ segir Kristinn. Hann var búinn að vera í sjónum í einn og hálfan klukku- tíma þegar hann komst aftur að landi. Fjarlægðin frá Grundartanga yfir að þeim tanga sem Kristinn ætlaði að synda til er tveir og hálf- ur kflómetri. Hann var hins vegar kvæmt áætlun, sagði Halldór nauðsynlegt að verja 160 milljónum í undirbúninginn á tímabilinu september - desemb- búinn að synda rúma þrjá kfló- metra þegar hann kom aftur að Grundartanga. „Þegar ég sá að ég kæmist tæpast yfir vildi ég ekki taka neina áhættu og fór til baka. Ef bátarnir hefðu verið með mér hefði ég auðvitað farið yfir, það hefði ekki verið neitt mál. Ég var samt aldrei hræddur um að deyja, ég er í það góðri þjálfun. Það eru heldur ekki neinir hákarlar er, til viðbótar við þessar 40 milljónir og 100 milljónirnar sem ríkisstjórnin samþykkti á dögun- um. -hmp þarna!“ segir Kristinn. Hann var aldeilis ekki af baki dottinn þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann, og var á leiðinni í sjóinn aftur. „Ég ætla að skreppa niður á Langasand og bleyta aðeins í mér. En ég ætla að reyna við Hvalfjarðarsundið aftur, það er alveg á hreinu. Ég bíð bara eftir góðu veðri,“ segir Kristinn Ein- arsson. ns. Persaflói Hussein gefur eftir við Iran íraksforseti féllst á skilyrði írana um frið milli landanna Hussein íraksforseti féllstj gær á þau skilyrði sem Iranir höfðu sett fyrir samkomulagi um frið fyrir botni Persafíóa. Hussein sættist á að landamæri ríkjanna yrðu þau sömu og samkomulag varð um árið 1975. En það sam- komulag reif hann í tætlur 1980 og hóf átta ára stríð við íran sem skilaði ekki öðru en skuldum og er í raun ástæðan fyrir innrásinni í Kúvæt. Þetta er stærsti sigur írans í sögunni sagði utanríkisráðherra landsins í gær en íranir fögnuðu mjög ákvörðun Husseins. Hann er hinsvegar talinn vilja styrkja stöðu sína gagnvart fjölþjóð- legum her sem nú býr um sig í Saúdi-Arabíu og á Persaflóa. Eftir þetta gæti Hussein beitt því sem næst öllu milljón mann her- liði sínu á því svæði án þess að eiga á hættu að íranir noti tæki- færið og ráðist á hann bakdyra- megin. I dag mun svo konungur Jór- daníu Hussein hitta Bush Banda- ríkjaforseta að máli en Hussein hitti nafna sinn á mánudag í Baghdad. Talið er að hann hafi með sér bréf frá Hussein ír- aksforseta til Bush. Hugsanlegt er að írakar bjóði loforð um að ráðast ekki inn í Saúdi-Arabíu gegn því að Bandaríkjamenn stöðvi hernaðaruppbygginguna á svæðinu. En þó Jórdaníukonung- ur sé allur af vilja gerður.til að tryggja frið og lausn á málinu þá var ekki að heyra á málflutningi Bush að hann væri í samninga- skapi. Reuter/gpm Sjá síðu 6 Annar bátanna sem áttu að fylgja Kristni að svipast um eftir honum í sjónum. Leit bar ekki árangur þar sem Kristinn var kominn aftur til Grundartanga. Mynd: Jim Smart. Var aldrei hræddur

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.