Þjóðviljinn - 16.08.1990, Side 12
—i'SPURNINGIN—
Á aö leyfa bílaumferð um
Austurstrætið?
Guðmunda Árnadóttir:
Mér finnst að gatan eigi að fá að
vera eins og hún er. Mér finnst
gott að rölta hér um.
Þór Karlsson:
Nei, það finnst mér af og frá. Ég
kem oft hingað í hádeginu og
finnst vistlegt að hafa hér enga
bíla.
Margrét Símonardóttir:
Nei, gatan á að fá að halda sér
eins og hún er. En þetta er vand-
asamt mál. Sjálf vinn ég í verslun
hér í götunni og ég skil sjónarmið
kaupmanna sem vilja hleypa bíl-
aumferð í gegnum götuna.
Filip Fransson:
Að sjáfsögðu ekki, ég tel meiri
þörf á að klára þetta verk og
breyta þeim hluta götunnar, sem
nú má aka um, í göngugötu.
Alistair Grétarsson:
Nei, það á ekki að leyfa bílum að
aka um þessa götu, ég vil hafa
hana svona.
þjómnuiNN
Flmmtudagur 16. ágúst 1990 151. tölublað 55. árgangur
SÍMI 681333
SÍMFAX
681935
Austurstrœti
Taka
bílamir
völdin?
Kaupmenn vilja að
bílaumferð verði
leyfð eftir
Austurstrœti.
Gangandi
vegfarendur eru því
mótfallnir
Þær hugmyndir að leyfa bfla-
umferð um allt Austurstræti hafa
nú komið upp á yfirborðið að
nýju eftir að samtökin Gamli
miðbærinn hafa farið fram á það
við borgaryfirvöld að umferð bfla
verði leyfð eftir allri götunni.
Ekki eru allir á eitt sáttir um hug-
mynd þessa eins og kemur fram í
svörum við spurningu dagsins hér
við hliðina. Kaupmenn og aðrir
þeir sem stunda viðskipti í mið-
bænum virðast vera sammála um
nauðsyn þess að leyfa umferð
bfla, en almenningur sem leið á
um götuna virðist vera því
mótfallinn.
Borgarráð hefur ekki tekið af-
stöðu til beiðnar samtakanna, en
hefur vísað málinu til umsagnar
umferðarnefndar, og umhverf-
ismálaráðs borgarinnar, en það
ráð felldi hugmyndina nýlega á
fundi sínum. Enn er beðið eftir
áliti umferðarnefndar og einnig
kostnaðaráætlun frá borgar-
verkfræðingi. En það verður
borgarráð sem endanlega tekur
ákvörðun um hvort bílaumferð
verður leyfð, um Austurstrætið
allt í framtíðinni.
- Við viljum að gatan verði
opnuð fyrir bflaumferð á kvöldin
og um helgar. Ég er samfærð um
að það myndi draga úr þeim
skrflslátum sem hér eru á nótt-
unni um helgar, sagði Erla Ólafs-
dóttir hjá versluninni Garbo í
Austurstræti 22. Hún sagði það
mjög brýnt að gera átak í að bæta
umhverfið í Austurstræti og á
Lækjartorgi og fegra það, hvort
sem bflum yrði leyft að aka um
götuna eða ekki. Hún benti á að
aðeins væri ein sorptunna í allri
göngugötunni. Þá var hún þeirrar
skoðunar að fjölga ætti bekkjum
til að sitja á.
-Ég tel aldeilis fráleitt að leyfa
hér bflaumferð að nýju. Ég hef
verið hér frá því fyrst var leyft að
selja vörur hér undir berum
himni, og þetta er í raun eini stað-
urinn þar sem fólk safnast saman
\
Það er hætt við því að þessar stúlkur verði að finna sér annan stað til að slappa af verði borgaryfirvöld við þeirri ósk
kaupmanna að bílaumferð verði aftur leyfð eftir Austurstræti öllu. Mynd: Kristinn.
og börnin geta valsað um hér án
þess að vera í stöðugum ótta við
bfla, sagði Helga Aðalsteinsdótt-
ir sem stundar sölu á hannyrðum
sínum í Austurstræti.
Kolbeinn Kristinsson veitinga-
maður í Myllunni, sem nú er til
húsa þar sem Hressingarskálinn
var, sagði að nauðsynlegt væri að
opna Austurstræti fyrir bflaum-
ferð. Hann sagði að íslendingar
væru nú einu sinni þannig að þeir
vildu aka eins nálægt þeim stöð-
um sem þeir ætluðu að
heimsækja og þeir gætu. Hann
sagði einnig að hann væri ekki í
neinum vafa um að ástandið í
götunni um helgar myndi lagast,
yrði bflaumferð leyfð.
Kaupmenn hafa verið harð-
orðir í garð þeirra sem vilja við-
halda göngugötunni og sagt að
verði umferð ekki leyfð sé það
dauðadómur yfir versluninni í
miðbænum. Þannig sagði Jón
Sigurjónsson stjórnarmaður í
samtökunum Gamli miðbærinn í
blaðaviðtali í gær að ef gatan yrði
ekki opnuð fyrir umferð þýddi
það að þeir kaupmenn sem eftir
eru í Kvosinni myndu hætta
rekstri þar og hverfa annað.
Nú er eftir að sjá hvernig kaup-
menn bregast við þeim hugmynd-
um sem unnið er eftir hjá borgar-
skipulagi um að loka stórum
svæðum í hjarta borgarinnar fyrir
bflaumferð. í þeim hugmyndum
er gert ráð fyrir að öllu Austur-
stræti verði lokað fyrir umferð
bfla. Þá er einnig er gert ráð fyrir
því að engum bflum verði hleypt
að Dómkirkjunni og Alþingis-
húsinu nema þar fari þingmenn
eða annað starfsfólk. -sg