Þjóðviljinn - 22.08.1990, Page 2

Þjóðviljinn - 22.08.1990, Page 2
FRETTIR Dagsbrún Stjómin fær mótframboð Stjórn Dagsbrúnar hefur ekkifengið mótframboð síðan 1972 Hópur manna innan Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar hefur ákveðið að bjóða fram lista gegn núverandi stjórn á aðalfundi Dagsbrúnar í janúar. Stjórn Dagsbrúnar hefur ekki fengið mótframboð síðan árið 1972, að sögn Halldórs Björnssonar vara- formanns félagsins. Einn að- standenda mótframboðsins, Þór- ir Karl Jónasson, segir nauðsyn- legt í Ijósi hrapandi kaupmáttar á undanförnum árum að stokka upp í forystu Dagsbrúnar. I samtali við Þjóðviljann sagði Þórir Karl ástæðu mótframboðs- ins einfalda. Ef launaþróun síð- ustu fjögur til fimm árin væri skoðuð, þá hefði kaupmátturinn hrapað stöðugt. Þetta snerti ekk- ert frekar frammistöðu foryst- unnar í Dagsbrún en forystu verkalýðshreyfingarinnar al- mennt, sem væri algerlega mátt- laus. „Við ætlum að reyna að fá því breytt sem við getum. Við viljum auka kaupmáttinn og að láns- kjaravísitalan verði afnumin eða vísitölutrygging verði sett á allt,“ sagði Þórir Karl. Einnig þyrfti að styrkja tengsl forystunnar við hinn almenna félagsmann, sem núverandi forysta hefði ekki staðið sig nógu vel í. Þeir sem standa að mótfram- boðinu starfa hjá stórum vinnu- veitendum eins og skipafélögu- num og bensínstöðvunum, að sögn Þóris Karls. Þetta væri stór hópur manna en til þess að fram- boð verði löglegt þarf að bjóða fram lista 130-140 manna sem eru aðalfélagar í Dagsbrún. „Við teljum að mótframboðið eigi góða möguleika, annars værum við ekki að þessu,“ sagði Þórir Karl. Guðmundur Guðbjarnason starfsmaður Skipadeildar Sam- bandsins er einnig með í undir- búningi mótframboðsins. Hann sagði mikla óánægju vera á meðal stórs hóps Dagsbrúnarfélaga með forystu félagsins og einstakir stjórnarmenn ynnu jafnvel gegn hagsmunum Dagsbrúnarmanna. Það væru nokkrir stjórnarmenn sem nytu trausts en restin væri ekkert annað en jámenn Guð- mundar J. Guðmundssonar for- manns. Guðmundur Guðbjarnason var áður trúnaðarmaður hjá Skipadeildinni og segist lengst af hafa borið í bætifláka fyrir foryst- una, en hann sæi ekki ástæðu til þess lengur. Það væri hans mat að mótframboð ætti hljómgrunn hjá stórum hluta félagsmanna. Varaformaður Dagsbrúnar sagðist varla geta sagt að hann hefði heyrt af væntanlegu mót- framboði, sem þó mætti eiga von á við hverjar stjórnarkosningar. Ef menn væru að bjóða fram bara til að bjóða fram, væri það út af fyrir sig furðulegur hlutur. „En ef menn eru með félagslega gagnrýni held ég að mótframboð sé ekki af verri endanum,“ sagði Halldór Bjömsson. -hmp Samband íslenskra sveitarfélaga Ölvir aftur inn Olvir Karjsson fyrrverandi oddviti í Asahreppi tekur nú aftur sæti í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, eftir að hafa verið meinað að sitja þar fundi. Ölvir lét af störfum sem oddviti Ásahrepps í vor, en hefur nú verið ráðinn aftur til að Ijúka sínum störfum. Það þýðir að þá hefur hann aftur rétt til að sitja fundi stjórnarinnar og hefur væntanlega úrslitaatkvæði í deilunum um ráðningu í fram- kvæmdastjórastöðu sambands- ins. Á síðasta fundi stjórnarinnar skiptust menn í tvær fylkingar í atkvæðagreiðslunni, fjórir studdu Lárus Pálsson og fjórir Húnboga Þorsteinsson. Þar sem Ölvir sat ekki þann fund féll mál- ið á jöfnu. Hins vegar er ljóst að á fundi stjórnarinnar þann 30. ág- úst nk. mun aftur koma til at- kvæðagreiðslu. Þá mun Ölvir greiða atkvæði og að eigin sögn mun hann styðja Húnboga. ns. Septem-sýning ^ Næstkomandi laugardag opn- ar Septem-hópurinn sfna árlegu haustsýningu. ( gær voru lista- menn og aðstoðarmenn í óða önn að hengja upp og koma fyrir verkum í báöum sölum Kjar- valsstaða þegar Ijósmyndara Þjóðviljans bar að garði. Á mynd- inni má sjá þau Jóhannes Jó- hannesson, Steinþór Sigurðs- son, Guðmundu Andrésdótturog Guömund Benediktsson, sem eru í hópi sextán listamanna sem eiga verk á sýningunni. Sýningin er að þessu sinni yfirlit þeirra sýn- inga sem hópurinn hefur haldið til þessa. í austursal verða sýnd verk frá árunum 1947-52, en í vestursal verk frá árinu 1974 til þessa árs. September-Septem er yfirskrift þessarar myndlistar- sýningar sem stendur til 9. sept- ember næstkomandi. Mynd: Kristinn. Forsœtisráðherra Ber skila- boð milli ráðherra SteingrímurJ. Sigfús- son óskar eftirskýr- ingum á töfum í utan- ríkisráðuneytinu við gerð loftferðasamnings við Sovétmenn Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra hefur skrifað for- sætisráðherra bréf, þar sem hann biður hann að ganga á eftir skýr- ingum á því hjá utanríkisráðu- neytinu, hvers vegna dregist hafi að gera loftferðasamning við Sov- étríkin. En um eitt og hálft ár er liðið síðan samgönguráðherra hreyfði fyrst hugmyndum um slíkan samning. f samtali við Þjóðviljann sagð- ist Steingrímur hafa skrifað for- sætisráðherra bréf þar sem gangur þessa máls var ræddur og óskað liðsinnis forsætisráðherra við að fá einhvern botn í það. Það hefði ekki verið fyrir hans tilstilli að þetta bréf komst í fjölmiðla, þótt ekkert væri óeðlilegt við að hafa forsætisráðherra með í ráðum þegar um væri að ræða mál á milli tveggja ráðuneyta. „Ég hef tekið málið upp í ríkis- stjórn hvað eftir annað og þetta bréf er í fullu samræmi við það,“ sagði Steingrímur. Að sögn Steingríms er mikill áhugi á því í hans ráðuneyti að ná loftferðasamningi við Sovétríkin. Ráðuneytið hefði einnig hugsað sér að fara í svipuð mál gagnvart miklu fleiri löndum. Það hefði hins vegar verið ákveðið að byrja á Sovétríkjunum, þar sem allar forsendur væru til þess og raunar brýnt að ná þessum samningi í höfn. „Það eru öll ríki að keppast við að tryggja sín sambönd í þessa átt eftir því sem Austur-Evrópa er að opnast,“ sagði samgöngu- ráðherra. Allar spár bentu líka til þess að straumurinn á þessu svæði ykist mikið á næstu árum. -hmp Steinar Siguijónsson er eitt þeirra skálda sem eftir langa þögn lesa upp á samkomunni á Hótel Borg á morgun. Stór skammtur af skáldum Á morgun, fimmtudaginn 23. ágúst, verður upplestur skálda á Hót- el Borg. Þar munu bæði ung og eldri skáld lesa upp úr vcrkum sínum, skáld úr mörgum áttum og hafa sum þeirra ekki flutt verk sín opinber- lega í langan tíma. Má þar nefna menn einsog Jónas Svafár, Steinar Sigurjónsson og Dag Sigurðarson. Auk þeirra koma fram Þorri, Jóhann Hjálmarsson, Olafur Páll, Pálmi Öm Guðmundsson, Nína Björk, Magnúx Gezzon, Gísli Þór Gunnarsson og Bragi Ólafsson. Fólk getur átt von á að heyra bæði bundið mál og prósa. Aðgangur er 300 krónur og hefst samkoman kl. 21 með því að trúbadorinn GG Gunn leikur létta tónlist. Kynnir verður Rúnar Guðbrandsson. Námskeið f skyndihjálp Námskeið í skyndihjálp verð- ur haldið á vegum Reykjavíkur- deildar RKÍ. Það hefst í kvöld kl. 20 að Fákafeni 11. Kennsludagar eru 22., 23., 28., 29. ágúst og 3. og 4. september. Þetta námskeið er 24 kennslustundir og er jafnt einni einingu í framhaldsskólum. Öllum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Á námskeiðinu verður m.a. kennd endurlífgun, meðferð sára, skyndihjálp við bruna og beinbrotum auk margs annars. Auk ofangreinds námskeiðs verður haldið endurmenntunar- námskeið í skyndihjálp fyrir al- menning. Það stendur yfir tvö kvöld dagana 27. og 30. ágúst. Þetta námskeið er ætlað fólki sem hefur sótt námskeið í skyndihjálp einhvem tíma á síðustu 4 árum. Sérstaklega er þetta námskeið hugsað fyrir þá sem hafa lært skyndihjálp samkvæmt því kerfi sem var tekið upp fyrir tveimur árum og vilja halda þekkingunni við. Skráning á bæði námskeiðin er í síma 688188. Reykjavíkur- deildin útvegar einnig leiðbein- endur til að halda námskeið fyrir skóla, fyrirtæki og aðra sem þess óska. Reykjavík fyrr og nú Annaðkvöld kl. 20.30 verður síðasti fyrirlesturinn í Opnu húsi í Norræna húsinu í sumar. Páll Lín- dal ráðuneytisstjóri segir frá Reykjavík fyrr og nú og talar á dönsku, en dagskráin er einkum ætluð ferðamönnum frá Norður- löndunum. Að loknu kaffihléi verður sýnd kvikmyndin Eldur í Heimaey. Happdrætti Hjartaverndar 1990 Árlegt happdrætti hefur um langt skeið verið styrkur tekju- stofh Hjartavemdar. Aðeins eitt happdrætti á ári er á vegum sam- takanna og verður dregið í því 12. október í ár. Vinningar em margir og glæsilegir, alls 15 talsins að verðmæti 9 miljónir króna. Tvei hæstu vinningamir em 1,5 milj- ónir hvor, annar til íbúðarkaupa og hinn bifreið, Mitsubishi. Aðrir vinningar em hinir álitlegustu, sá lægsti sem svarar 450 þúsund krónum. Breytingar f utanríkis- ráðuneytinu Nokkrar breytingar hafa orðið á verkaskiptingu í utanríkisráðu- neytinu. Hörður H. Bjamason hefúr tekið við starfi prótokoll- stjóra af Sveini Bjömssyni, sem tók við starfi skrifstofustjóra ráðuneytisins fyrr á árinu. Sverrir Haukur Gunnlaugsson hefur látið af starfi skrifstofustjóra við- skiptaskrifstofú utanríkisráðu- neytisins og tekið við stöðu fasta- fulltrúa Islands hjá Atlantshafs- bandalaginu í Briissel. Einar Benediktsson hefúr látið af störf- um fastafúlltrúa hjá Atlantshafs- bandalaginu, en gegnir áfram starfi sendiherra íslands í Belgíu, Lúxemborg og hjá Evrópubanda- laginu í Brússel. Róbert Trausti Ámason hefúr tekið við starfi skrifstofústjóra vamarmálaskrif- stofú. Áhyggjur vegna flugumferðar Bæjarráð Njarðvíkur hefur lýst yfir við samgönguráðherra þungum áhyggjum sínum vegna mikillar flugumferðar yfir íbúða- byggð í Njarðvík. Tilefnið er nauðlending ferjuflugvélar sunnudaginn 5. ágúst á Reykja- nesbraut ofan Njarðvíkur. Bæjar- ráðið spyr hversvegna umræddri flugvél, sem augljóslega var í miklum vandræðum, hafi verið beint í aðflugi yfir íbúðabyggð í Njarðvíkurbæ. 1 öðm lagi hvort til séu reglur hjá flugmálayfir- völdum um hvemig stjóma skuli aðflugi flugvéla í neyð, þegar að- flugsstefna flugbrautar er yfir í- búðabyggð. Og ef þessar reglur em til hversvegna þeim hafi ekki verið fylgt? Þá krefst baæjarráð þess að slíkar reglur verði settar séu þær ekki til og að sveitarfélög við flugvelli verði höfð með í ráð- um við að semja slíkar reglur. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.