Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 1
Hamagangur er nú í leikhúsum landsins því verið er að leggja síðustu hönd á um í gamla Iðnó. Þjóðleikhúsið frumsýnir gamansöngleikinn Örfá sæti laus í næstu verkin sem fýrst verða ffumsýnd á leikárinu sem nú fer í hönd. Margt verður í boði, viku, og eru þar Spaugstofumenn og fleiri landsfraegir leikarar í aðalhlutverkum. og kominn tími til að dusta rykið af sparifötunum. Stóru leikhúsin tvö ætla bæði að Þessa skondnu mynd tók Kristinn Ijósmyndari Þjóðviljans á rennsli á ærslaleiknum hefja starfið á því að kitla hláturtaugar landsmanna. Leikfélag Reykjavíkur sýnir nýverið. Banjóleikarar komið út úrskápnum og sameinist, syngurþessi flörugi hóp- farsann Fló á skinni bráðlega, sem naut fádæma vinsælda fýrir tæpum tuttugu ár- ur. Nvtt álver Landsbyggðin velur Keilisnes Könnun Félagsvísindastofnunar leiðir í Ijós að 61,4% landsbyggðarfólks styður Keilisnes, vilji Atlantsál aðeins byggja þar. Meirihluti kjósenda allra flokka styður Keilisnes að gefnum sömu forsendum Samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun hefur gert eru 68% fólks á aldrinum 18-75 ára hiynnt byggingu nýs álvers hér á landi. 18% svarenda eru andvígir nýju álveri, en 15% eru hlut- lausir í afstöðu sinni eða hafa ekki gert upp hug sinn. And- staðan við álverið er mest á meðal kjósenda Kvennalistans, þar sem 47% eru á móti, en minnst á meðal kjósenda Sjálf- stæðisflokksins, 7%. Meirihluti kjósenda allra stjórnmála- flokka í könnuninni er fylgj- andi því að álver rísi á Keilis- nesi, ef Atlantsál vill aðeins byggja þar, þrátt fyrir að stjórnvöld væru reiðubúin til að greiða fyrir því að það rísi annars staðar. Að gefnu því skilyrði að Atl- antsál vilji aðeins byggja á Keilis- nesi þó stjómvöld séu reiðubúin til að greiða fyrir staðsetningu þess annars staðar, styðja 80% reykvíkinga engu að síður bygg- ingu álvers. Það vekur síðan at- hygli að 61,4% fólks á lands- byggðinni styður álver með þess- um skilyrðum, en mest er fylgið á Reykjanesi 84,2%. Langflestir kjósenda Alþýðu- Stuðningsmenn flokkanna flokksins styðja álver á Keilisnesi að gefnum þessum forsendum, eða 86,8%. 7,9% Alþýðuflokks- manna em hlutlausir en 5,3% á móti. 57,8% Framsóknarmanna styðja byggingu álvers á Keilis- nesi á þessum forsendum, 8,9% eru hlutlausir og 33,3% á móti. Af kjósendum Sjálfstæðisflokksins eru 78,3% hlynntir, 10,9% hlut- lausir og 10,9% andvígir. Það vekur athygli að meiri- hluti kjósenda Alþýðubandalags- ins, eða 57,9%, styðja álver á Keilisnesi, ef Atlantsál vill aðeins byggja þar, jafnvel þó stjómvöld vilji greiða fyrir byggingu annars staðar, 15,8% em hlutlausir og 26,3% á móti. Ekki er það síður athyglisvert, í ljósi yfirlýsinga talsmanna Kvennalistans gegn ál- veri, að 50% af kjósendum hans em fylgjandi, 7,1% hlutlausir og 42,9% á móti. 76,2% þeirra sem gefa ekki upp stuðning við ákveð- inn stjómmálaflokk styðja Keilis- nes að gefnum þessum skilyrð- um, 12,3% em hlutlausir og 11,5% á móti. Keilisnes nýtur mesta fylgis sem byggingarstaður fyrir álver, burt séð frá stuðningi við stjóm- málaflokk, þegar aðeins þeir sem em fylgjandi byggingu þess á annað borð og þeir sem em hlut- lausir, em spurðir. Um 41% þess- ara svarenda kjósa helst að nýtt álver rísi á Keilisnesi, 21% kjósa Dysnes í Eyjafirði, 18% velja Reyðarfjörð og um 21% vilja ekki gera upp á milli staða. Ef aft- ur á móti er aðeins miðað við þá sem taka afstöðu, em 51% fylgj- andi Keilisnesi, 26% velja Dys- nes og 23% velja Reyðarfjörð. Afstaða fólks til byggingar- staðar breytist þegar þeir em spurðir hvort það breytti afstöðu þeirra ef álver við Eyjafjörð eða Reyðarfjörð gæti eflt byggðarlög á þeim slóðum og dregið úr fólks- flutningum til höfúðborgarsvæð- isins. Þá velja 36% Keilisnes, 31% Dysnes, 28% Rcyðarfjörð en 4% gerðu ekki upp á milli Dysness eða Reyðarfjarðar. Þegar þeir sem upphaflega völdu Dysnes eða Reyðarfjörð vom síðan spurðir hvort þeirra af- staða myndi breytast ef í ljós kæmi að ódýrara væri að byggja og reka álver á Keilisnesi en á öðmm stöðum sem til greina koma, breytist afstaða þeirra. Þá velja 62% Keilisnes, 20% Dysnes og 18% Reyðarfjörð. Enn fleiri i þessum hópi studdu síðan Keilis- nes ef álver það hefði minni um- hverfisspjöll í för með sér en ef það yrði byggt annars staðar. Að þessu gefnu studdu 73% Keilis- nes, 14% Dysnes og 13% Reyðar- fjörð. Urtak Félagsvísindastofnunar í könnuninni vom þúsund manns, sem var valið tilviljunarkennt úr þjóðskrá. -hmp Birna Hjaltadóttir Gott að koma heim að er gott að koma til íslands en líka erfitt að yfirgefa Gísla og heimili okkar í Kúvæt og skilja allt eftir,“ sagði Birna Hjaltadóttir, fyrsti íslendingur- inn sem sleppur frá Kúvæt, í samtali við Þjóðviljann í gær. Nú em að líkindum allir Norð- urlandabúar komnir frá Kúvæt, að undanskildum eiginmanni hennar, Gísla Sigurðssyni lækni, og sex manna fjölskyldu Kristínar Kjart- ansdóttur. „Eg vona að þau komi sem fyrst en við vitum ekki hve- nær það getur orðið,“ sagði Bima. Hún lýsir innrásinni og ástandinu í Kúvæt í viðtali á síðu sjö í Þjóð- viljanum í dag. -vd Bima Hjaltadóttir kom til landsins á fimmtudagskvöld en eiginmaöur hennar og sex manna fjölskylda Kristínar Kjartansdóttur eru enn inn- lyksa (Kúvæt. Mynd Jim Smart.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.