Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 11
I DAG Fullorðinsfrœðsla Kostnaður um 800 miljónir Tœplega 30% fullorðinna sœkja einhvers konarfullorðinsfrœðslu. Aætlað að konur séu í miklum meirihluta Hátt í 45.000 manns tóku þátt í einhverskonar fullorðinsfræðslu á síðasta ári, eða um 30% lands- manna á aldrinum 19-75 ára. Heildarkostnaður þessarar full- orðinsfræðslu er áætlaður hátt í 800 miljónir króna. Þetta kemur fram í könnun sem menntamála- ráðuneytið gerði sl. vetur og birt- ist í fréttabréfinu FF-fréttir. Könnunarblað var sent um 300 aðilum sem hugsanlega hefðu einhverja fullorðinsfræðslu á sín- Kvennalistinn Telja vetni vænlegra en ál Kvennalistinn telur stjórnvöld einsýn og íhaldssöm í viðleitni sinni við að koma orku í verð og segist vilja beita sér fyrir breyttum áherslum í þessum efn- um. Kvennalistinn bendir sér- staklega á framleiðslu vetnis sem vænlegan kost í þessum efnum. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á ráðstefnu Kvennalistans um atvinnu- og umhverfismál. „Kvennalistakonur átelja stjórnvöld harðlega fyrir að hafa sóað dýrmætum tíma og gífur- legum fjármunum til þess eins að fá útlendinga til að reisa hér nýtt álver, sem mundi hafa í för með sér verulega umhverfismengun og búseturöskun. Ennfremur hefur öll sú málsmeðferð valdið úlfúð og togstreitu milli lands- hluta,“ segir í ályktuninni. Kvennalistakonur telja allt benda til þess að vetni verði elds- neyti framtíðarinnar og benda á þann kost vetnisframleiðslu að hún veldur ekki umhverfis- mengun. -gg Hjálparstofnunin Styrkir flóttafólk Stjórn Hjálparstofnunar kirkj- unnar ákvað á fundi á miðviku- dag að senda 5.000 dollara eða 300.000 krónur til hjálpar flótta- fólki frá írak og Kúvæt. Beiðni kom frá Alkirkjuráðinu í byrjun vikunnar og verður fénu varið til að útvega fólkinu lyf, teppi, tjöld og fæðu. Á þessu ári hefur stofnunin sent rúmlega sex miljónir króna til erlendra verkefna og varið yfir þremur miljónum til innlendra verkefna. Á næstunni mun stjórnin ákveða hvernig verja skuli því fé sem landsmenn láta af hendi rakna í næstu jólasöfnun. -vd um vegum á síðasta ári. 67% þeirra svöruðu og hjá þeim var heildarfjöldi þátttakenda í full- orðinsfræðslu 42.666. Það eru um 26% allra landsmanna á aldrin- um 19-75 ára. Þar sem nokkrir hafa ekki svarað enn, má reikna með að hátt í 45.000 manns hafi tekið þátt í fullorðinsfræðslu á ár- inu 1989. Af þessum fjölda er áætlað að konur séu í miklum meirihluta. í könnuninni er einnig reynt að fá upplýsingar um kostnað. Ef lagður er saman kostnaðurinn hjá þeim sem upplýsingar veittu um hann, kemur fram að hann er um 540 miljónir króna. Ef reiknað er með að 45.000 manns hafi tekið þátt í fullorðinsfræðslu má áætla að heildarkostnaðurinn hafi verið um 800 miljónir. Framlag ríkisins til fullorðins- fræðslu var um 270 miljónir á sfð- asta ári, eða tæplega 35% af heildarkostnaðinum. ns Mývatn Tími örra breytinga Sumarið sem nú er senn á enda hefur verið tímabil örra breytinga að því er lífríki Mý- vatns og laxár varðar. Vissir átu- og fuglastofnar hafa tekið við sér svo um munar, aðrir standa í stað, en fækkað hefur í enn öðr- um stofnum. Þetta kemur fram í fréttabréfi Rannsóknastöðvar- innar við Mývatn. Fjöldi anda um vorið jókst um 9% miðað við sama tíma í fyrra er fuglastofnar voru í lágmarki eftir hrun átustofna árin 1983 og 1988. Andategundirnar hafa þó tekið misjafnlega við sér. Mest var fjölgunin hjá hrafnsönd um 45%, hjá húsönd um 25% og hjá dugg- önd um 16%, en þessir stofnar hafa látið mjög á sjá á undan- förnum árum. Skúfönd fjölgaði um 10%. Stofn rauðhöfða og straumandar stendur í stað en litlu gráönd, hávellu og toppönd fækkaði. Öndum f sárum fækkaði frá sama tíma í fyrra. Fækkunin er að meðaltali 28%, mest hjátoppönd 53%, skúfönd 46% og hjá dugg- önd 24%. Flúsöndum fjölgaði hinsvegar um 6%. Toppöndum í sárum hefur fækkað mikið undanfarin tvö ár og bendir það til þess að hornsílum fari fækk- andi í vatninu. -Sáf Frœðsluráð Vestfjarða Jafnrétti til náms hrein öfugmæli „Ráðherra hefur skipað starfs- hóp sem í sitja auk mín fræðslu- stjórarnir á Akureyri og Suður- landi og við munum skila tillögum fyrir lok þessa mánaðar,“ sagði Pétur Bjarnason fræðslustjóri Vestfjarða í samtali við Þjóð- viljann, en fræðsluráð Vestfjarða hefur lýst þungum áhyggjum yflr kennaraskorti vestra, erflð- leikum við að fá réttindafólk til starfa og tíðum kennaraskiptum. Um helmingur kennara á Vest- fjörðum eru leiðbeinendur og enn hefur ekki tekist að ráða í allar stöður. Aðspurður sagði Pétur að ýrnsar hugmyndir til lausnar hefðu komið ti! tals, m.a. að fá Kennaraháskólann í lið með fræðsluembættunum og færa æfingakennslu í auknum mæli út á land. Einnig að hraða kennara- menntun fyrir leiðbeinendur, kynna kennaranemum betur dreifbýlisskólana og kanna hug yfirvalda til aðferða sem Norð- menn hafa notað til að fá réttindafólk í dreifbýlli héruð, en þar fá kennarar í nyrstu héruðun- um námsstyrki og ýmsar kjara- bætur aðrar. „Sveitarfélögin hafa veitt flutningsstyrki, greitt niður húsa- leigu, borgað staðarupbætur og jafnvel prósentutölur ofan á laun kennara. Ríkinu ber að greiða kennurum samkvæmt verka- skiptalögunum. Þetta þarf að skoða innan viðmiðunarramma kjarasamninga," sagði Pétur. -vd ÞJÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Vestur-lslendingar segja Þýzkalandi stríð á hendur. Brezka útvarpið skýrði svo frá I gær, að Islendingar í Vestur- Kanada ætluðu sér að hjálpa Bretlandi til að vinna styrjöld- ina. Hefðu þeir komið saman á Gimli og samþykkt ályktun í þá átt. 15. september laugardagur. 258. dagur árs- ins. Sólampprás í Reykjavík kl. 6.49 - sólarlag kl. 19.55. Viðburðir Þjóðhátíðardagur Honduras, Guatemala, El Salvador, Costa Rica og Nicaragua. DAGBÓK APOTEK Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfja- búöa vikuna 14. til 20. september er I Lyfjabúöinni löunni og Garös Apóteki. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frldögum). Siðamefnda apó- tekið eropiö á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sanv hliöa hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavík.................« 1 11 66 Kópavogur.................« 4 12 00 Seltjamames...............« 1 84 55 Hafnarfjöröur.........rr 5 11 66 Garðabær..................« 5 11 66 Akureyri..................® 2 32 22 Slökkvilið og sjúkrabflar Reykjavík.....................« 1 11 00 Kópavogur....................tr 1 11 00 Seltjamames...................« 1 11 00 Hafnartjöröur................rr 5 11 00 Garöabær....................« 511 00 Akureyri.....................rr 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar- nes og Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sól- arhringinn. Viljanabeiönir, simaráðlegg- ingar og tímapantanir i rr 21230. Upplýs- ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar i símsvara 18888. Borgarspital- inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeild- in er opin frá kl. 20 trl 21. Slysadeild Borgarspitalans er opin allan sólarhring- inn,« 696600. Hafnarljörður: Dagvakt, Heilsugæslan, n 53722. Næturvakt lækna,» 51100. Garðabær Heilsugæslan GaröaflöL u 656066, upplýsingar um vaktlæk rr 51100. Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á Lækna- miðstöðinni,r» 22311, hjá Akureyrar Apóteki, r» 22445. Nætur- og helgidaga- vakt læknis ffá kl 17 til 8 985-23221 (farsími). Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I rr 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, rr 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu- lagi. Fæðingardeild Landspítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöratími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingarheimili Reykjavíkur v/Eiriksgötu: Almennurtlmi kl. 15-16 alla daga, feöra- og systkinatimi kl. 20-21 alla daga. Öldrunariækningadeild Land- spítalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar- stöðin við Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heimsóknir annarra en for- eldra kl. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs- spítali Hafharfiröi: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra- hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKl: Neyöarathvarf fyrir unglinga, Tjamargötu 35,« 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svaraö er I upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðmm tímum. tr 91-28539. Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sálffæðilegum efnum,rr 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt i síma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá kl. 8 til 17,« 91-688620. „Opið hús" fyrir krabbameinssjúklinga og aöstandendur þeirra i Skógartilið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styöja smitaða og sjúka og aöstandendur þeirra Irr 91-22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingarum eyðni:» 91-622280, beint samband við lækn'r/hjúkmnarffæö- ing á miövikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari. Samtök um kvennaathvarf: tr 91- 21205, húsaskjól og aöstoð viö konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eöa orðið fyrir nauögun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga Id. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, r» 91-21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa fýir siljaspellum: n 91-21500, símsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: rr 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. StigamóL miðstöð fyrir konur og böm sem orðiö hafa fýrir kynferöislegu ofbeldi. Ráögjöf, ffæðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, tr 91-626868 og 91-626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: rr 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I rr 686230. Rafveita Hafnarfjaröar: BilanavakL rr 652936. GENGIÐ 14. september 1990 Sala Bandarikjadollar..............56.65000 Steriingspund................106.81400 Kanadadollar..................48.73700 Dönsk króna....................9,46930 Norsk króna....................9,33740 Sænsk króna....................9,83760 Finnskt mark................ 15,35850 Franskur franki...............10,77410 Belgískurfranki............... 1,75580 Svissneskur franki............43,39170 Hollenskt gyllini.............32.02460 Vesturþýskt mark..............36,09540 Itölsk líra....................0,04839 Austumskur sch.................5,12670 Portúgalskur escudo........... 0,40800 Spánskur peseti................0,57450 Japanskt jen...................0,41471 Irskt pund....................96,85700 KROSSGÁTA Lárétt:3dæld4rán6 gruni 7 viölag 9 mann- eskjur 12 angan 14 sjór 15 vaf i 16 skjálfi 19 af- gangur20 nýlega 21 efla Lóðrétt: 2 blaut 3 kúst- ur 4 slitu 5 reku 7 skark 8 líka 10glundroði 11 kona13Íundur17 kraftar18ræna Lausnásíðustu krossgátu Lárétt: 1 púkk4segg6 ull7valt9ókum 12 jarða14sjó15pár16 svima19noti20álfa21 atall Lóðrétt: 2 úða 3 kuta 4 slóð5góu7visinn8 Ijósta10kapall11 merkan 13 rói 17 vit 18 mál Laugardagur 15. september 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.