Þjóðviljinn - 15.09.1990, Qupperneq 2
FRETTIR
Kvnlíf
Islendingar sannlútherskir
Islenskpör gera það 8 sinnum í mánuði. Karlar ánægðari í hjónabandi en konur. 10% karla og
8% kvenna halda framhjá. 48% karla vilja fá það oftar
að sakar hvorki mig né þig
að gera það tvisvar í viku,“
sagði Liíther við nunnu þá sem
hann tók úr klaustri og
kvæntist. Þetta virðast lslend-
ingar halda í heiðri því meða-
ljónan og meðaljóninn gera það
að jafnaði 8 sinnum í mánuði,
eða tvisvar í viku.
Þetta kemur fram í könnun
sem þau Sigrún Júlíusdóttir og
Gylfi Ásmundsson hafa gert á ís-
lenskum fjölskyldum. Niðurstöð-
umar birtast í bók sem ber heitið
„Kærlighed og Ligestilling" og er
Fasteignaverð í Reykjavík
hefur lækkað um 7,4% frá
fyrsta ársfjórðungi 1989 til
fyrsta ársfjórðungs þessa árs.
Á fjórða ársfjórðungi síðasta
árs fór að gæta lækkunar fast-
eignaverðs í Reykjavík og lækk-
aði verðið þá um 2%. Með tilliti
til verðlagsþróunar, Iækkaði fast-
eignaverð um 3,75% frá fjórða
ársfjórðungi síðasta árs til fyrsta
ársljórðung þessa árs. Þetta kem-
ur fram í Markaðsfréttum, frétta-
bréfi Fasteignamats ríkisins.
Steinarr Höskuldsson hjá
Fasteignamati ríkisins segist telja
þessa Iækkun fasteignaverðs
hluta af eðlilegri sveiflu. „Við
teljum að kaupgeta fólks og fram-
boð á lánsfé ráði fasteignaverðinu
fyrst og fremst,“ sagði Steinarr.
gefin út af norrænu ráðherra-
nefndinni.
Reyndar er ekki alveg sam-
ræmi á milli þess hversu oft ís-
lenskir karlar og íslenskar konur
gera það, því konumar gera það 8
sinnum á mánuði en karlamir
8,41 sinni. Munurinn kann að fel-
ast í því að körlum hættir til að
ýkja samfaratíðnina, að sögn höf-
unda könnunarínnar.
Spumingalisti var sendur til
223 para en 113 svömðu, eða
50,7%. Meðalaldur karlanna var
36,5 ár en kvennanna 35,2 ár.
Fasteignir
Samkvæmt niðurstöðum kjara-
rannsóknamefndar hefði kaup-
máttur taxtakaups rýmað um 10%
á sama tímabili og fasteignaverð
hefur lækkað um 7,4%.
Þessi lækkun fasteignaverðs-
ins kom af þessum sökum ekki á
óvart, að sögn Steinarrs. Útborg-
unarhlutfall við íbúðarkaup hefur
90% paranna vom gift en 10% í
sambúð. Meðalfjöldi bama á
heimilunum var 2,6. 6,5% karl-
anna höfðu áður verið giftir eða í
sambúð en 10,6% kvennanna.
95% karlanna og 83% kvennanna
hafa ffamhaldsmenntun eftir
grunnskóla, þar af em 31,5%
karlanna og 24,3% kvennanna
með háskólamenntun. 50% par-
anna búa í einbýlishúsum og er
meðalstærð íbúðanna tæpir 150
fermetrar.
Könnunin tekur til ýmissa
þátta í samlífi karls og konu;
einnig lækkað, sem Steinarr sagði
að sama skapi eðlilegt. Útborgun-
arhlutfallið heíði lækkað mest í
minnstu íbúðunum og væri nú
komið í 65,2%. Fmmbréf í hús-
bréfakerfinu teldust í þessu sam-
hengi ekki til útborgunar, en ætla
mætti að minnstu íbúðimar væru
keyptar af fólki sem er að kaupa
sér íbúð í fyrsta skipti og hefði
því ekki húsbréf í höndunum. Út-
borgunarhlutfall stærstu íbúðanna
er enn mjög hátt, eða 73,5 -
79,1% fyrir fjögurra til fimm her-
bergja íbúðir.
Steinarr sagðist reikna með að
fasteignaverð ætti ekki eftir að
lækka frekar. Þegar líða tæki á
þetta ár og í byrjun þess næsta
megi búast við að verðið farí aftur
upp á við. -hmp
bamauppeldis, atvinnu, frítíma
o.fl. Þegar spurt er um áhrif bams
á samband parsins þá er rúmlega
helmingur paranna á því að þau
séu jákvæð en krefjandi, konum
virðast þó finnast bömin ívið
meira krefjandi en körlunum.
Hinsvegar finnst engum bömin
eingöngu hafa neikvæð áhrif á
sambandið.
81% karla og 76% kvenna
finnst ffítíminn með fjölskyld-
unni ekki nægilegur.
37% karla og 33% kvenna
hafa hugleitt skilnað en einungis
32% karla og 4,8% kvenna hafa
skilið við maka sinn.
Þrátt fýrir að rúmlega þriðj-
ungur hafi hugleitt skilnað virðast
ffamhjáhöld ekki vera mjög al-
geng. Tæp 10% karla og tæp 8%
kvenna hafa haldið ffamhjá maka
sínum, enda kemur í ljós að lang-
flestir eru yfirleitt mjög ánægðir
með hjónabandið, karlamir þó
ánægðari eða tæp 80% þeirra en
tæp 69% kvennanna.
Langflest pörin virðast sam-
stiga í kynlífmu, eða rúm 95% af
báðum kynjum segjast vera það.
7,3% kvenna finnst þær þó hafa
samfarir óþarflega oft en enginn
karlanna er þeirrar skoðunar.
48% karla vilja fá það oftar en
þeir fá það og 10% kvenna virðast
ekki fá það nógu oft. Langflestar
konumar, eða 82,6%, virðast sátt-
ar við tíðni samfaranna og 52%
karlanna sömuleiðis.
Meirihluti karlanna og kvenn-
anna eru þeirrar skoðunar að
blíða og hlýja séu mikilvægust
við kynlíf eða 51% karla og
73,8% kvenna. Næstflestir em
þeirrar skoðunar að líkamleg ná-
lægð skipti mestu máli, 34,7%
karla og 22,1% kvenna. Sjálfar
samfarimar em í neðsta sæti en
33,3% karlanna em á því að þær
skipti mestu máli en einungis
9,5% kvennanna.
Innan við helmingur paranna
virðist mjög ánægður með kynlíf-
ið, 45,5% karlanna og 48,2%
kvennanna. Mun færri em þeirrar
skoðunar að makinn sé ánægður
með kynlífið, 36% karlanna og
tæp 34% kvennanna.
Tæplega 98% karlanna telja
sig ætíð hafa frumkvæði við sam-
farir en tæplega 39% kvennanna
er á því að þær hafi frumkvæðið.
Konumar virðast ekki eins opnar
og karlamir að tjá sig um hvað
þær vilja í kynlífi. 73% karlanna
segjast tjá það en 69% kvenn-
anna. Þá segjast karlamir oftar
koma til móts við óskir makans
en konumar eða 94,7 karlanna en
84,1% kvennanna. Þá kom í ljós
að 3,1% karlanna telja sig þving-
aða til að gera eitthvað sem þeir
vilja ekki gera en einungis 0,9%
kvennanna em sömu skoðunar.
-Sáf
Vígbúnaður
Vopnum
fækkar en
styrkurinn
eykst
í skýrslu sem Grænfriðungar
gáfu út í gær kom fram að kjarn-
orkuvopnum á höfum úti fer
fækkandi en hinsvegar hefur
styrkleiki þeirra aukist, þ.e. eyð-
ingarmátturinn.
Á sama tíma og herskipum fer
fækkandi stækka þau og hæfileiki
þeirra til að standa í stríðsrekstri
um langa vegu eykst. Sérstaklega
hefur notkun á kjamorku til að
knýja skipin aukist sem og kjam-
orkuvopnin sjálf, segir í skýrsl-
unni.
Þar segir líka að þessi breyting
sé augljósust í bandaríska sjóhem-
um. Þar hafi áður verið lögð
áhersla á að halda sjóleiðum opn-
um og að betjast við sovéska sjó-
herinn. Nú hefúr sjóherinn hins-
vegar frekar það markmið að geta
hafið árás á land með langdrægum
kjamorkuvopnum og öðmm flug-
skeytum. Skotmörkin em ekki
lengur önnur herskip heldur hem-
aðarlega mikilvægir staðir á landi.
Sveigjanleiki sjóhetja heimsins
kemur vel fram í Persaflóadeil-
unni, sagði William M. Arkin,
annar höfundur skýrslunnar. Að
minnsta kosti 20 skip á flóanum
hafa kjamorkuvopn innanborðs.
Þetta em skip frá Sovétríkjunum,
Englandi, Frakklandi og Banda-
rikjunum. Um borð em um það bil
450 kjamavopn.
-gpm
Ráðstefna
Bókfræði
ínútíð
og framtíð
Að frumkvæði Háskólans á Ak-
ureyri verður haldin ráðstefna
dagana 21.-22. september, þar
sem fjallað verður um íslensk bók-
fræði í nútíð og framtíð.
í fréttatilkynningu sem að-
standendur ráðstefnunnar hafa sent
frá sér segir að mikill skortur sé á
íslenskum bókffæðiverkum. En
svo em kölluð rit sem geyma upp-
lýsingar um hvað eina sem skrifað
hefúr verði af vísindagreinum og
öðm því sem merkilegt getur talist.
Þess konar rit em síðan notuð
til að leita heimilda um ýms mál.
Á ráðstefnunni, sem haldin
verður á Akureyri, er ætlunin að
kanna stöðu bókfræði á íslandi.
Sérstök áhersla verður lögð á um-
fjöllun um tölvunotkun við bók-
fræðivinnu og miðlun bókfræði-
efna.
Ráðstefnan er opin öllum
áhugamönnum um bókffæði.
Sjálfsbjörg
Þjóðfélag án þröskulda
Selur endurskinsmerki til að afla fé
fyrir endurhœfingaríbúð
Um næstu helgi verða endur-
skinsmerki með áletruninni
„Þjóðfélag án þröskulda“ boðin
til sölu um land allt, sem og blað
Sjálfsbjargar til styrktar fram-
gangi baráttumála fatlaðra í
landinu.
Sjálfsbjargarfélagar hyggjast
nú koma upp endurhæfingaríbúð í
Sjálfsbjargarhúsinu, en hún er
nauðsynlegur þáttur í endurhæf-
ingu fatlaðra á leið þeirra út í
þjóðfélagið. I íbúðinni verður
komið fyrir sérstökum færanleg-
um innréttingum ásamt hjálpar-
og kennslutækjum sem kosta
mikið fé. Með merkja- og blaða-
kaupum geta landsmenn þvi sýnt í
verki stuðning sinn við störf
Sjálfsbjargar _vd.
Kjarvalsstaðir
Stærri og
smærri
skúlptúrar
Kristinn E. Hrafnsson
myndhöggvari opnar
fyrstu einkasýninguna
í dag kl. 14 opnar Kristinn E.
Hrafnsson sína fyrstu einkasýn-
ingu í vestursal Kjarvalsstaða.
Á sýningunni gefur að líta þrjá-
tíu stærri og smærri myndverk,
öll unnin á þessu ári.
Kristinn er Norðlendingur,
fæddur miðsumars árið 1960.
Hann stundaði nám í Myndlista-
skóla Akureyrar um eins árs
skeið, en hélt síðan suður til náms
i Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands. Að námi loknu sigldi Krist-
inn til Þýskalands og nam í
Múnchen hjá Eduardo Paolozzi,
eins af upphafsmönnum popplist-
ar i skúlptúr. Nýlega varð Kristinn
hlutskarpastur í samkeppni um
listaverk framan við Borgarleik-
húsið. Síðastliðið vor tók hann
við formennsku Myndhöggvara-
félagsins.
Við opnunina á morgun
frumflytur Öm Magnússon píanó-
leikari píanósónötu í þremur þátt-
um eftir Ríkharð H. Friðriksson.
Sýningin stendur yfir til síð-
asta dags septembermánaðar og er
opin frá kl. 11 árdegis til 18 síð-
Kristinn E. Hrafnsson myndhöggvari á Kjarvalsstöðum. Mynd: Jim Smart.
Fasteignaverð lækkar
Fasteignaverð í Reykjavík hefur lækkað um 7,4% á einu ári. Steinarr
Höskuldsson: Tengist kaupgetu fólks ogframboði á lánsfé
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. september 1990