Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 3
FRETTIR
Hafrannsóknastofnun
Fimmti lélegi þorskárgangurinn
Sveinn Sveinbjörnsson: Minnist ekki að þetta hafi gerst áður. Fjöldi ýsu- og loðnuseiða undir meðallagi en mikið af karfaseiðum
Eg á ekki von á því í Ijósi
þessara niðurstaðna að Haf-
rannsóknastofnun mæii með að
veiðar í þorskstofninn verði
auknar á næsta ári. Sjálfur
minnist ég þess ekki að svona
lagað hafi gerst áður,“ segir
Sveinn Sveinbjörnsson fiski-
fræðingur.
I nýafstöðnum seiða- og sjó-
rannsóknum Hafrannsóknastofn-
unar fannst lítið af þorskseiðum,
og enda þótt seiðin hafi verið
sæmilega á sig komin, telja fiski-
fræðingar nokkuð öruggt að
þorskárgangurinn 1990 verði
fimmti lélegi þorskárgangurinn í
röð.
Fjöldi ýsu- og loðnuseiða var
einnig undir meðallagi, en ástand
seiðanna var mjög gott. Meira var
af karfaseiðum í Grænlandshafi
en á undanfomum árum og telja
fiskifræðingar að 1990 seiðaár-
gangurinn verði að teljast mjög
góður.
Að öðru leyti voru helstu nið-
urstöður rannsóknanna að í sumar
hefur orðið mikil yfirborðshitun í
sjónum umhverfis landið og er
yfirborðshitinn því óvenju hár.
Aftur á móti gættti þessa ekkert í
dýpri sjávarlögum. Innstreymi
Forrœðismálið
Hvatttil
satta
Samtökin Barnaheill:
Réttur barnsins að fá
að umgangast báða
foreldra
Samtökin Barnaheili hafa sent
frá sér orðsendingu til almenn-
ings þar sem þau hvetja til þess
að sættir náist í forræðismáii 9
ára gamlar telpu sem mikið hef-
ur verið fjallað um í fréttum.
Stjóm samtakanna segir fjöl-
miðla hafa gleymt þvi að bestu
hagsmunir bamsins séu fólgnir í
því að sátt ríki i umhverfi þess.
Samtökin telja að mál þetta hafi af-
hjúpað fjölda annmarka á lögum
og reglum um málefni bama hér-
lendis og við svo búið megi ekki
standa.
Þá er minnt á að í nóvember sl.
var á þingi Sameinuðu þjóðanna
samþykktur nýr alþjóðasamningur
um réttindi bama og hann fái senn
stað í íslenskri löggjöf. A Alþingi
verði án efa mikið fjallað um mál-
efni bama á næstunni og vonast
samtökin eftir að þar takist mönn-
um að rísa undir þeirri skyldu að
koma lögum um málefhi bama í
nútímalegt horf.
-vd.
Framámenn fengu forskot á sæluna hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins i gær. Hér sýnir forstjóri Rb, Hákon
Ólafsson, iðnaðanáðhena Jóni Sigurðssyni og fleirum rannsókn Tækniskóla Islands á burðargetu steypueininga.
Mynd: Kristinn.
Útvegsmenn
Utlitið afar dökkt
Að öllu óbreyttu getur kostnaðarauki útgerðar vegna olíuverðs-
hœkkunar numið allt að 2,3 miljörðum króna.
Þýðir 8% tekjuskerðingu fyrir sjómenn
Að öllu óbreyttu stefnir í að
kostnaður útgerðar vegna
olíuverðshækkunar geti hækk-
að um allt að 2,3 miljarða
króna. Það mundi þýða allt að
8% tekjuskerðingu fyrir sjó-
menn.
Kristján Ragnarsson formað-
ur Landssambands íslenskra út-
vegsmanna segir að tonnið af gas-
olíunni í birgðum sé 148 dollarar
en í Rotterdam sé það komið i
250 dollara tonnið. Ef svo fer að
ástandið á Persaflóasvæðinu
batnar ekki og verð á olíu lækkar
ekki frá því sem það er, þýðir
þetta tekjumissi fyrir sjómenn og
mikinn kostnaðarauka fyrir út-
gerðina. Af þessum 2,3 miljörð-
um mun útgerðin taka á sig 1.500
miljónir króna og sjómenn 800
miljónir.
Kjarasamningar sjómanna við
útgerðarmenn hafa verið lausir
ffá því um áramótin og hafa
samningaumleitanir legið niðri í
sumar. Helsta krafa sjómanna er
að kostnaðarhlutdeild þeirra í ol-
íukostnaði útgerðar verði endur-
skoðuð. Hólmgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bandsins segir að ljóst sé að það
verði að bæta sjómönnum þessa
kjaraskerðingu á einhvem hátt,
verði hún að veruleika. í lok mán-
aðarins verður haldin sambands-
stjómarfúndur hjá Sjómannasam-
bandinu þar sem þráðurinn verður
tekinn upp að nýju í kjaramálun-
um.
Kristján Ragnarsson segir að
sjómenn verði að bíta í súm eplin
ef olíuverðshækkunin verður jafn
mikil og allt virðist benda til.
Kristján segir að sjómenn hafi
notið góðs af lækkun oliuverðs
fyrr á árinu og hækkunar á fisk-
verði. Á sama hátt verði þeir að
axla sínar byrðar þegar á móti
blási.
-grh
hlýsjávar vestur og norður fyrir
land hefúr því verið mjög lítið og
verður því sjávarástand fyrir vest-
an, en einkum þó fyrir norðan og
austan að teljast mjög óhagstætt í
sumar.
Sveinn Sveinbjömsson fiski-
fræðingur segir að ekki séu ráð-
gerðir fleiri seiðarannsóknaleið-
angrar hjá Hafrannsóknastofnun á
þessu ári. Hinsvegar í mars á
næsta ári verður hið árlega togar-
arall og þá ættu að fást einhveijar
upplýsingar til viðbótar við þær
sem þegar em komnar í hús.
-grh
Rb
Opið hús
I dag getur almenningur kynnt
sér starfsemi Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins en
stofnunin á 25 ára afmæli um
þessar mundir. Opið hús verð-
ur frá kl. 13:00 til 17:00.
I tilefni af afmælinu gaf iðn-
aðarráðuneytið stofnuninni tvær
milljónir í gær uppí kaup á nýrri
infrarauðri myndavél sem keypt
verður með Landsvirkjun og Is-
lenska jámblendifélaginu.
Hyggst Rb nota vélina meðal
annars til að kanna einangmnar-
galla.
Starfsmenn stofhunarinnar
standa fyrir sýningu á þeim rann-
sóknaverkefnum sem em í gangi.
Þama má kynna sér til dæmis
rannsókn á nýrri gerð glugga sem
settir em í fúllgleijaðir eftir að
steypuvinnu og múrverki er lok-
ið. Glugganum er komið fyrir í
vegg en handan við hann er tól
nokkurt sem býr til bæði regn og
vind. Starfsmennimir fylgjast
síðan með hvort glugginn leki.
Einnig má kikja í smársjár, virða
fyrir sér vél sem tekur infrarauð-
ar myndir, hrærivélar sem blanda
saman olíu og möl til að sjá
hvaða gijót henti vel í olíumöl og
ottódekk og margt, margt fleira.
Allt þetta er opið almenningi
en stofnunin er til húsa að
Keldnaholti. Boðið verður uppá
kaffi og ávaxtasafa handa böm-
unum.
-gpm
Handboltahöll
Pólitískt moldviðri
Valþór Hlöðversson: Handboltahöllin er ekki oflítil
Valþór Hlöðversson bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalags-
ins segir ekki nokkurn vafa á
þvi að upphlaup Birgis Gunn-
arssonar varðandi teikningarn-
ar á handboltahöll í Kópavogi
sé pólitískt moldviðri af hálfu
Gunnars til að bjarga andlit-
inu. En Gunnar gerði andstöðu
við byggingu íþróttahússins að
helsta kosningamáli Sjálfstæð-
isflokksins í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor.
I samtali við Þjóðviljann
sagðist Valþór ekki hafa verið
sannfærður um að handboltahöll-
in verði of lítil samkvæmt fyrir-
liggjandi teikningum. „Þegar við
fómm yfir þetta mál á sínum tíma
nutum við aðstoðar fæmstu sér-
fræðinga,“ sagði Valþór. Það
hefði bæði gilt um ráðgjafa fyrr-
verandi meirihluta, fulltrúa
Breiðabliks og sérffæðinga fjár-
málaráðuneytisins. Allir þessir
aðilar hefðu lagt fram trausta út-
reikninga á því að húsið væri
nógu stórt.
Hönnuðir hússins, Valdimar
Harðarson arkitekt og hans félag-
ar og Verkfræðistofan Linuhönn-
un sem sá um verkfræðilegan þátt
hönnunarinnar, em án efa þeir að-
ilar sem hafa aflað sér mestrar
þekkingar og reynslu í byggingu
íþróttahúsa, að sögn Valþórs.
Hann hefði ekki verið sannfærður
um að allir þessir aðilar hefðu
rangt fýrir sér.
„Ég hef ekki trú á því að
Gunnari Birgissyni, sem mér
virðist vinna í þessu máli með
annarleg sjónarmið í huga, takist
að skáka öllu þessu liði út í hom,“
sagði Valþór. Ef menn gæfú sér
hins vegar þær forsendur að
breikka bekki og annað í þeim
dúr, eins og Gunnar gerði, stækk-
aði húsið auðvitað. Reiknað væri
með 6 -7.000 sætum og ef hvert
sæti yrði stækkað um td. 10 senti-
metra á hvem kant, þyrfti að
stækka húsið um einhver hundmð
fermetra. Með þessu hækkaði
kostnaðurinn um tugi milljóna.
Samkvæmt kröfum Alþjóða
handknattleikssambandsins,
verður handboltahöll sem þessi
að rýma 8-10 þúsund manns.
Valþór sagði forseta Alþóðasam-
bandsins hins vegar hafa sagt, að
vegna sérstakra aðstæðna á Is-
landi myndi sjö þúsund manna
hús duga. Það hefði verið blessað
yfir alla útreikninga af hálfu HSÍ,
og þegar formaður HSÍ hefði far-
ið með útreikningana á þing Al-
þjóðasambandsins, hefðu þeir
einnig verið blessaðir þar. -hmp
Laugardagur 15. september 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3
HELGARRUNTURINN
HEITI POTTURINN í Duus-húsi verður bullandi af stuði á sunnudags-
kvöldið kl. 21.30. Hann hita meðal annarra Eyþór Gunnarsson, Guð-
mundur Ingólfsson, Kvartett Kristjáns Magnússonar, Guðmundur Ing-
ólfsson og Olafúr Stephensen.
HANA-NÚ göngugarpamir í Kópavogi hittast hressir að vanda í dag upp
úr tíu að Digranesvegi 10. Áður en lagt verður af stað út í óvissuna sötra
menn molasopa svo lifni í öllum æðum. I Reykjavík eru menn ekki síðri
göngumenn og kalla sig þar Göngu-Hrólfa. Þeir hittast í dag að Nóatúni
17 kl. 10 árdegis til að fá sér hressandi morgungöngu. Á morgun verður
opið hús í Goðheimum, og geta þeir sem vilja gripið í spil eða teflt. Um
kvöldið verður svo slegið upp balli, og dansaðir polkar og rælar fram á
rauða nótt.
REKAVIÐARMYNDVERK Sæmundar Valdimarssonar eru orðin fræg
víðar en á Islandi. Sæmundur opnar í dag kl. 14 sýningu á Kjarvalsstöð-
um á skúlptúmm sem hann hefúr unnið að á síðastliðnum tveimur ámm.
Á sama tíma opnar í vestursal ungur myndhöggvari Kristínn E. Hrafns-
son að nafni. Við opnunina hjá honum frumfiytur Öm Magnússon píanó-
sónötu eftir Ríkharð H. Friðriksson. Bryndís Jónsdóttír opnar einnig
sýningu i dag. Sýning hennar er í FÍM-salnum við Garðastræti, og hefur
listakonan stillt þar upp leirverkum af ýmsu tæi. í Ásmundarsal við
Freyjugötu opnar Sævar Danielsson sýningu kl. 14 í dag, þar sýnir hann
málverk og höggmyndir í rúma viku. Kollegi Bryndísar, leirlistakonan
Guðný Magnúsdóttír, sýnir hins vegar i Galleri 8 við Austurstæti með
sama númeri. Haraldur Ingi opnar sýningu á um fimmtíu vatnslita-
myndum sem em hluti verks sem tekið hefúr á sig ýmis form siðan árið
1984 í Nýlistasafninu i dag. Hann hefúr komið myndum sínum fyrir í efri
sölum safnsins. Á neðri hæðinni hanga nú uppi ljósmyndir eftir banda-
risku stúlkuna Rakel Divine, en hún hefúr undanfarið fest unga islenska
listamenn á filmur. Annar ljósmyndari er nú að sýna myndir sínar á
Mokka hér í bænum. Fríða Eyjólfsdóttir heitir ljósmyndari sá, og er
þetta í fyrsta skipti sem hún sýnir myndir sínar opinberlega.