Þjóðviljinn - 18.09.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Heilbrigðiskerfið
Sérfræði- eða göngudeildaþjónusta?
Hægt að spara án þess að draga úr gœðum þjónustunnar.
Vænlegt til árangurs að efla samstarf sjúkrahúsa og jafnvel að sameina þau
Amálþingi sem haldið var
um helgina um það hvernig
hægt er að spara í heilbrigðis-
þjónustunni án þess að draga
úr gæðum þjónustunnar, töldu
margir vænlegt til árangurs að
efla göngudeildir við sjúkra-
hús, efla samstarf þeirra og
jafnvel að sameina þau.
Bjöm Matthíasson, hagfræð-
ingur í fjármálaráðuneytinu,
sagði að á Landspítala og Borgar-
spítala væm jafnmörg rúm ónot-
uð og eru í notkun á Landakots-
spítala. Rekstur Landakotsspítala
kostar 1100-1200 miljónir króna,
en það mundi kosta um 500 mil-
jónir króna til viðbótar að reka
hin sjúkrahúsin tvö á fullu. Þann-
ig að spamaðarmöguleikar með
sameiningu og skipulagsbreyt-
ingum væm augljósir.
Þá ræddi Bjöm ennfremur um
ofljölgun sérfræðinga og spill-
ingu sem yki lyfjakostnað.
Nefhdi hann t.d. að nú væm sér-
fræðingar í öndunarfærasjúkdóm-
um í boðsferð hjá lyfjafram-
leiðslufyrirtæki i London, sem
framleiddi munnsprei fyrir asma-
sjúklinga. Bjöm sagði að af ein-
hveijum ástæðum væri það lyf
Á Landspítala og Borgarspítala
munu vera jafnmörg rúm ónotuð og
em í notkun á Landakotsspítala.
allsráðandi á markaðnum, þótt
það væri mun dýrara en samskon-
ar lyf frá öðm fyrirtæki, sem
einnig er á markaðnum.
Sigríður Snæbjömsdóttir
hjúkmnarforstjóri taldi ávinning
að sameiningu sjúkrahúsa hæp-
inn. Þó væm sumir þjónustu-
möguleikar þeirra vannýttir. Til
dæmis mætti nota göngudeilda-
þjónustu meira, því tækin og sér-
fræðingamir væm til staðar.
Svala Jónsdóttir hjúkmnarstjóri
tók i sama streng og Rannveig
Gunnarsdóttir lyfjafræðingur
benti á að afgreiðsla lyfja beint til
göngudeildarsjúklinga gæti dreg-
ið úr lyfjakostnaði.
Til upplýsingar skal á það
bent að Læknafélagið hefúr í
áætlunum sínum og athugasemd-
um við áætlunina „Heilbrigði fyr-
ir alla árið 2000“ lagst gegn
göngudeildaþjónustu, enda em
sérfræðingar með einkastofúr þar
í meirihluta.
Guðjón Magnússon, skrif-
stofústjóri í heilbrigðisráðuneyt-
inu, sagði að lokun öldmnar-
deilda í sumar hefði verið leikur í
tafli við fjárveitingavaldið.
-hb/grh
Hörpudeild
Fram Islandsmeistari
Um helgina lauk einu allra-
skemmtilega íslandsmóti í
knattspyrnu með sigri Fram,
sem tryggðu sér titilinn með því
að sigra Valsmenn 3:2 í æsi-
spennandi úrslitaleik á Laugar-
dalsvellinum. Staðan í hálfleik
var 2:0 fyrir Val.
Þessi leikur Reykjavíkurris-
anna verður án efa lengi í minn-
um hafður, jafnt hjá leikmönnum
sem og áhorfendum. En þó kann-
ski ekki síst fyrir leikmenn og
stuðningsmenn KR sem vom
komnir með báðar hendur á Is-
landsmeistarabikarinn. En það
Hjólhýsi
Að gefnu tilefni vill embætti
skipulagsstjóra ríkisins koma því
á framfæri að hámarksbreidd á
hjólhýsi er 2,50 metrar sam-
kvæmt vegalögum. Ætli eigandi
að láta hjólhýsi standa lengur en
einn mánuð utan skipulagðra
svæða, þarf hann að sækja um
leyfi byggingamefndar viðkom-
andi sveitarfélags. A undanfom-
um ámm hafa verið flutt inn og
seld hjólhýsi eða færanlegir sum-
arbústaðir, málmgrindarhús sem
em 3 metrar að breidd og ailt að
10 metra löng. Slík hús teljast
ekki hjólhýsi, heldur innflutt
verksmiðjuframleidd hús, sem
þarf að fara með samkvæmt 13.
grein byggingarlaga.
Tvöfaldur pottur
Það tókst engum tippara að ná
12 réttum í 37. leikviku íslenskra
getrauna á laugardaginn. 16 vom
með 11 rétta og hlaut hver 11.711
krónur. 197 vom með 10 rétta og
hlýtur hver röð 951 krónu. Úrslit
vom nokkuð óvænt en sérstak-
lega vom það leikir í 2. deild sem
léku tippara grátt. Það er því tvö-
faldur pottur næsta laugardag.
var bakvörðurinn snjalli úr Fram,
Viðar Þorkelsson sem gerði vonir
þeirra svarthvítu að engu með því
að skora sigurmarkið gegn Val
nokkrum mínútum fyrir leikslok.
Á sama tíma unnu KRingar,
sem lentu í öðm sæti, öruggan
sigur á liði KA i Frostaskjólinu
með tveimur mörkum gegn engu.
KRingar vom með sömu stigas-
tölu og Framarar, 38 stig, en með
óhagstæðara markahlutfall. I
þriðja sæti með 37 stig urðu ný-
liðamir í deildinni, IBV, sem
unnu Stjömuna i Garðabæ með
fjórum mörkum gegn þremur.
Sigur Eyjamanna var aldrei í
hættu því Garðbæingar skomðu
sitt þriðja mark á lokamínútu
leiksins.
Þá unnu FHingar lið Skaga-
manna með tveim mörkum gegn
einu í Kaplakrika og Þór frá Ak-
ureyri vann góðan sigur á Víking-
um með fjórum mörkum gegn
einu.
Markakóngur 1. deildarinnar
varð Hörður Magnússon FH sem
skoraði 13 mörk. Þetta er annað
sinn í röð sem Hörður verður
markahæstur í deildinni en hann
var það einnig i fyrra.
Mynd: Jim Smart
Rokkað á himnum
Á afmælisdegi rokkkóngsins Jerry Lee Lewis, laugardaginn 29.
september, verður frumsýning á Hótel Islandi á söng-, leik- og danssýn-
ingunni Rokkað á himnum. Hún er byggð á gullöld ameríska rokksins
1954-1964 og leikin verða sjötíu lög úr gamla djúkboxinu. Höfundar
eru þeir Bjöm G. Bjömsson og Björgvin Halldórsson. Jón Kjell Selje-
seth stjómar sjö manna rokksveit sem samanstendur af Stjóminni og
fleirum. Tólf manna trítilóður dansflokkur, undir stjóm Helenu Jóns-
dóttur danshöfundar, stígur skref í rétta átt. Þetta er án efa ein metnað-
arfyllsta sýning sem Hótel ísland hefur ráðist í til þessa. Hér er á ferð-
inni dálítil saga um sálina hans Jóns míns og Gullna liðið sem rokkar á
himnum. Eins og í góðri sögu hrekkur Jón uppaf i byrjun leiks og fylgst
er með ferðalagi píunnar hans, sem leggur af stað með sálartetrið, á
kassettu til himna.
Að ári leika Skagamenn og
Þórsarar í annarri deild, en upp
koma sigurvegarar í deildinni í ár,
Viðir og Breiðablik. Markahæstir
í annarri deild urðu þeir Grétar
Einarsson Viði með 14 mörk og
Kristinn Tómasson Fylki með 12
mörk.
í þriðju deild féllu Leiftur ffá
Ólafsfirði og Knattspymufélag
Siglufjarðar. I stað þeirra spila í
annarri deild að ári sigurvegarar
þriðju deildar, Þróttur úr Reykja-
vík og Haukar úr Hafharfirði.
-grh
Hershöfðingi
íheimsókn
í gær kom hingað til lands í
boði Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanrikisráðherra Vigleik
Eide hershöfðingi og formaður
hermálanefndar Atlantshafs-
bandalagsins. Eide mun eiga við-
ræður við utanríkisráðherra,
heimsækja herstöð Atlantshafs-
bandalagsins á Keflavíkurflug-
vclli og fara í skoðunarferðir.
Hershöfðinginn mun dvelja hér-
lendis ffarn á fostudag.
Stjarnan vann
Handknattleikslið Stjömunn-
ar vann frækinn sigur á danska
liðinu Helsingör IF með 27:25 í
Evrópukeppni félagsliða í Garða-
bæ í fyrrakvöld. Markahæstur
Stjömumanna var Sigurður
Bjamason með 11 mörk og
Brynjar Kvaran varði alls 16 skot
í marki Stjömunnar. Markahæstur
í liði Helsingör var Pólveijinn
Kaszmarek með fimm mörk.
Seinni leikur liðanna fer fram í
Danmörku eflir þijár vikur og
verður að telja að róður Stjöm-
unnar verði þungur ytra.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 18. september 1990
Jarðhræringar
Nokkrir
kippir
Jarðskjálftahrina á
Reykjanesi á laugar-
dag. Einnig mældist
skjálfti í Bárðar-
bungu
Skömmu eftir kl. 17 á laugar-
dag hófst jarðskjálftahrina á
Reykjanesi sem stóð fram und-
ir miðnætti. Stærsti skjálftinn
mældist 4,5 stig á Richters-
kvarða. Nokkuð snarpur
skjálfti mældist einnig um
klukkan ellefu um kvöldið í
Bárðarbungu á Vatnajökli.
Að sögn Barða Þorkelssonar
jarðskjálftafræðings hjá Veður-
stofú íslands vom upptök
skjálflanna á Reykjanesi
skammt ffá Reykjanesvita. Þetta
er vel þekkt skjálftasvæði, og
mælast þar margir jarðskjálftar á
ári. Síðastliðinn laugardag hófst
hrinan laust eftir kl. 17 og stóð
næstum til miðnættis. Stærsti
skjálftinn mældist 4,5 stig, eins
og áður sagði, og urðu menn
hans varir í Keflavík, á flugvell-
inum,í Grindavík, Höfnum og í
Reykjavík og á Seltjamamesi.
Skjálftamir vom flestir um 3 stig
á Richterskvarða.
Skjálftinn sem mældist í
Bárðarbungu í Vatnajökli um kl.
23 var 5,2 stig á Richterskvarða,
en ekki er vitað til þess að nokk-
ur hafi orðið hans var. Ekki er
heldur óalgengt að skjálftar
mælist í námunda við þetta
svæði, þótt áðumefndur kippur
hafi verið í snarpara lagi.
BE