Þjóðviljinn - 18.09.1990, Qupperneq 6
ERLENDAR FRETTIR
Filippseviar
Corazon: Bandaríkjaher burt
Segir bandarískra herstöðva ekki þörf á eyjunum fyrst köldu stríði sé lokið
Corazon Aquino, forseti Fil-
ippseyja, sagði í gær í sjón-
varpsávarpi að kominn væri
tími til að stjórnir Filippseyja
og Bandaríkjanna ynnu að þvi
að síðarnefnda rikið legði niður
herstöðvar sínar á Filippseyj-
um. Viðræður ríkjanna tveggja
um framtíð herstöðva þessara
hefjast á morgun.
Ekki gat Corazon þess hve-
nær hún vildi sjá á bak síðustu
bandarísku hermönnunum úr
landi sínu, en filippínskir embætt-
ismenn hafa haft við orð að gott
væri að umræddur her færi á
næstu þremur til fimm árum.
Corazon lét að því liggja í áður-
nefndu ávarpi að dvöl Banda-
ríkjahers á Filippseyjum væri
landsmönnum ekki með öllu að
skapi, þjóðarstolts þeirra vegna,
en tók fram að þeir vildu áfram
vera vinir og bandamenn Banda-
ríkjanna. Eðlilegt og nauðsynlegt
væri að endurskoða samskipti
ríkjanna í öryggismálum, þar eð
nú væri kalda stríðinu lokið.
Herstöðvar þær er hér um
ræðir eru sex og helstar þeirra
Clarkflugvöllur og flotastöðin í
Subic Bay. Eru þetta stærstu her-
stöðvar Bandaríkjanna utan Am-
eríku. Bandaríkjamenn hafa haft
her á eyjunum samfleytt í rúm 90
ár, eða frá því laust fyrir s.l. alda-
mót er þeir tóku eyjamar af Spán-
Corazon Aquino - Bandaríkjamönnum þykir hún dýrseld á aðstöðuna.
veijum. Andóf gegn bandarísku
herstöðvrmum hefur farið vax-
andi upp á síðkastið, og sjálfir eru
Bandaríkjamenn ekki jafn áhuga-
samir og áður um að hafa þama
her. Ein ástæða til þess er að kalda
stríðið er á brott og þar að auki
líkar stjóminni í Washington ekki
hve dýrseldir Filippseyingar em
orðnir á þessa aðstöðu. Banda-
rískir embættismenn hafa þegar
látið hafa eftir sér að til greina
komi að her þeirra fari af eyjun-
um smátt og smátt á næstu tíu ár-
um.
Ekki em Filippseyingar ein-
huga í herstöðvamáli þessu, enda
hefur þjóðarbú þeirra um miljarð
dollara á ári upp úr stöðvunum og
um 78.000 landsmanna hafa
vinnu við þær. I gær kom til átaka
í Manila, höfuðborg Filippseyja,
milli lögreglu og fólks, sem
krafðist þess að Bandaríkjaher
færi. Nokkur hundmð herstöðva-
andstæðingar lögðu af stað í
kröfugöngu til Clarkflugvallar,
sem er um 50 km fyrir norðan
Manila, en mættu á miðri leið um
tvö hundmð herstöðvasinnum,
sem hindmðu för þeirra. í gagn-
kröfugöngunni vom meðal ann-
arra barstúlkur, eins og Reuter
kallar þær, en þær hafa lifibrauð
sitt einkum af samskiptum við
bandarisku hermennina.
Reuter/-dþ.
Stjórnmála-
samband
Sovétmanna
og Saúdiaraba
Saúdi-Arabía og Sovétrikin
hafa tekið upp stjómmálasamband
sín á milli, samkvæmt tilkynningu
frá stjómum beggja rikja. Um slikt
samband milli ríkjanna hefur ekki
verið að ræða síðan 1938, er Saúdi-
Arabía sleit þvi á þeim forsendum
að Sovétríkin væm guðlaust ríki og
andíslamskt.
Forsœtisráðherra Noregs
Játar að hafa brotið af sér
Nokkrar líkur á að hann verði að láta bæði af embætti forsætisráðherra
og stöðu formanns Hægriflokksins
N
l okkrar líkur eru taldar á
1 því að Jan P. Syse, forsætis-
ráðherra Noregs og leiðtogi
Hægriflokksins þar, verði að
segja af sér báðum stöðum
vegna hneykslismála sem hann
er flæktur í, svo og vegna þess
að vinsældir hans eru mjög á
niðurleið, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakannana.
Vinningstölur laugardaginn
15. sept. ‘90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.058.587
2. 4^í@ 4 89.431
3. 4af 5 97 6.361
4. 3af 5 3430 419
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.470.498 kr.
:;É UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Syse, sem er stjómarformaður
tveggja fyrirtækja sem eiga
íbúðablokk í Osló, hefur viður-
kennt að hafa tekið 60.000 norsk-
ar kr. að láni hjá öðm fyrirtækj-
anna fyrir þremur árum og jafh-
framt séð til þess að mágur hans
fékk 100.000 kr. að láni hjá sama
fyrirtæki. Syse borgaði skuldir
þessar þremur mánuðum síðar, en
það breytir ekki því að lántökum-
ar vom ólöglegar norskum lögum
samkvæmt, þar eð skuldir fyrir-
tækisins vom þá meiri en hrein
eign þess.
Forsætisráðherrann hefur
beðist afsökunar á því að hafa
brotið lögin um hlutafélög, en
segist ekki hafa gert sér grein fyr-
ir því hve ströng þau em og aftek-
ur að hann hafi nokkuð hagnast á
lánafyrirgreiðslunni. A fostudag-
inn játaði hann aukheldur að ann-
að fyrirtækja þeirra, sem hér eiga
hlut að máli, hefði ekki gert grein
fyrir ársreikningum sínum á þann
hátt sem lög mæla fyrir um.
Stjómarandstaðan, einkum
Sósíalíski vinstriflokkurinn, hefur
gagnrýnt Syse harðlega fyrir lög-
brotin og úr flokki hans heyrast
raddir um að hann verði varla
endurkjörinn formaður þar. Þó er
hermt að enn sé óvíst hversu fari
um mál þetta, m.a. vegna þess að
samkvæmt almannarómi em brot
af þessu tagi allalgeng, án þess að
þau hafi verið tekin mjög alvar-
lega til þessa. Brot á umræddum
lögum geta varðað sektum og allt
að árs fangelsi, en engum hefur
enn verið stefnt fyrir rétt út af
þeim.
Syse sagði fréttamönnum í
gær að hann hefði ákveðið að fela
endurskoðanda að fara í gegnum
reikninga fyrirtækjanna beggja,
sem og persónulegar fjárreiður
sínar síðustu árin.
Reuter/-bd./-dþ.
Bretland
Irökum vísað úr landi
Breska stjórnin fyrirskipaði í
gær 31 íraka, þar af átta
sendiráðsmönnum, að verða á
brott úr Bretlandi innan viku.
Er þessi ráðstöfun stjórnarinn-
ar liður í samræmdum ráðstöf-
unum Evrópubandalagsríkja.
Rikin hafa komið sér saman
um ráðstafanir til svars við yfir-
gangi íraka við vestræn sendiráð í
Kúvæt. Helst þeirra er að her-
málafulltrúum sendiráða Iraks í
öllum aðildarrikjum bandalagsins
verður vísað úr landi og fjöldi
starfsliðs sendiráðanna takmark-
aður.
Á föstudag ruddust iraskir
hermenn inn í bústað franska am-
bassadorsins í Kúvæt og höfðu
þaðan á brott með sér fjóra menn.
Iraskir hermenn ruddust einnig
inn í hús tilheyrandi sendiráðum
Kanada, Hollands og Belgíu í Kú-
væt.
Franska stjómin brást við
þessu um helgina með þvi að vísa
úr landi um 50 íröskum sendi-
ráðs- og embættismönnum og
banna þeim sendiráðsmönnum ír-
aka, er fá að vera áffam í landinu,
að fara út fyrir París.
Reuter/-dþ.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagtir 18. aeptember 1900
Walesaí
forsetaframboð
Hinn kunni pólski verka-
Iýðsleiðtogi Lech Walesa til-
kynnti í gær formiega að hann
hefði ákveðið að bjóða sig fram
til forsetaembættis PóIIands,
þegar næst yrði kosið til þess.
Talið er líkiegt að Jaruzelski for-
seti verði knúinn til að segja af
sér innan skamms og verði síðan
haldnar þing- og forsetakosning-
ar. Walesa er talinn sigurstrang-
legur sem forsetaefni, einnig af
mörgum andstæðinga sinna.
Tugir barna fórust
Um 35 manneskjur, flestar
böm, fórust á sunnudag er lang-
leiðavagn lenti út af vegi og niður í
ána Choluteca við Cantarranas, um
70 km norðaustur af Tegucigalpa,
höfúðborg Hondúras. Bömin vom
af bamaheimili, sem bandarísk
hjón ráku, og vom að koma úr
skemmtiferð. Bandaríska konan
var við stýrið, er slysið varð, og
mun hafa misst stjóm á vagninum.
Kveikt í Saddamsmosku
Kveikt var á laugardagsnótt í
mosku í Birmingham, Englandi,
og hlutust af nokkrar skemmdir.
Moskan heitir eftir Saddam Huss-
ein íraksforseta, sem er dýrlegur
guðsmaður í augum margra músl-
íma. Fjórir hvítir menn sáust
hlaupa af vettvangi og var einn
þeirra í bol með mynd af enskum
bolabít á. Nokkuð hefur borið þar-
lendis á andúð á Irak frá því að inn-
rásin var gerð í Kúvæt. I ágúst var
íraskur sendiráðsmaður nefbrotinn
og íraskar sendiráðsbyggingar hafa
verið grýttar.
Havel gagnrýnir
Slóvaka
Vaclav Havel, forseti Tékkó-
slóvakíu, fór í gær hörðum orðum
um vissa aðila í Slóvakíu, sem
hann sakaði um að leitast við að
draga óhæfilega mikil völd ftá
sambandsstjóminni til stjómvalda
slóvakíska lýðveldisins. Sagði Ha-
vel þetta hafa í för með sér óvissu-
ástand, sem skaðaði álit Tékkó-
slóvakiu út á við, t.d. á þann hátt að
erlendir aðilar hikuðu við að fjár-
festa í Iandinu. Slóvakar hafa kom-
ið sér upp sérstöku innanrikisráðu-
neyti, en það segir Havel vera brot
á samkomulagi um valdaskiptingu
milli sambandsstjómar og lýðveld-
anna, sem Tékkóslóvakía skiptist i.
Margrét sögð illgjörn
í yfirlýsingu birtri í gær af
hinni opinberu fréttastofu íraks
segir að Margaret Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, sé óð og
illgjöm og fúll af vonsku gegn
mannkyninu. Var þetta svar við
umsögn Thatcher um Saddam ír-
aksforseta um helgina, en þá sagði
hún að hann væri grimmur og villi-
mannlegur einræðisherra.
Fjórefldur Egyptaher
Egypska stjómin hefur ákveðið
að senda 15.000 manna herlið,
brynsveitir þar á meðal, til Saúdi-
Arabíu og verður egypski herinn
þar þá orðinn 20.000 manns.
Sá margra ríkja her, sem sam-
ankominn er á Persaflóasvæðinu,
eflist stöðugt. Bandaríkin, sem em
liðsterkust þar þessara ríkja, hafa
þar nú yfir 140.000 manna her.
Víetnamaleiðtogi til Kína
Nguyen Van Linh, leiðtogi ví-
etnamska kommúnistaflokksins,
fór fyrr í mánuðinum með leynd til
Peking og ræddi við kínverska
ráðamenn. Er þetta í fyrsta sinn,
sem æðstu ráðamenn Kína og Víet-
nams hittast að máli síðan ríkin
háðu stríð 1979. Samskipti þeirra
vom næsta kuldaleg eftir það
þangað til fyrir tveimur árum, er
þau tóku að batna. Talið er að aðal-
umræðuefni Linhs og kínverskra
ráðamanna hafi verið Kambódía,
en stjómum beggja rikja er áhuga-
mál að leysa vandamálin viðvíkj-
andi því landi.