Þjóðviljinn - 10.10.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 10.10.1990, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 10. október 1990 190. tölublað 55. árgangur VESTMANNA- EYJAR ..atta daga ARNARFLUG INNANLANDS hf. Reykjavíkurflugvelli - Sími 29577 ■ SPURNINGIN ■ Notar þú endurskinsmerki? Daníel 6 ára: Já, ég nota endurskinsmerki svo að ég lýsist betur í myrkri. Óli 6 ára: Nei. Davíð 6 ára: Ég var með það, en það datt úr. Ég er með eitt í vasanum. Ég rata ekki heim, skælir Vala f strætó. Keli kotroskni að vestan þykist vera lögga og býðst til að fylgja stelpuhnokkanum heim. Völu leikur Steinunn Ólfna Þor- steinsdóttir, en Keli er leikinn af Baltasar Kormáki. Myndir Jim Smart. Umferðarfrœðsla „Slys, ó þessi slys!“ Keli þó, barnaleikrit eftir þœr Iðunni og Kristínu Steinsdœtur, sýnt 6-9 ára börnum í skólum landsins. Leiksýningin er samstarfsverkefni Alþýðuleikhússins, Umferðarráðs . og menntamálaráðuneytisins Fljótlega verður frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit eftir þær Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leikritið kallast Keli þó og er ekkert venjulegt leikrit, heldur umferðarfræðsla í nýjum og skemmtilegum bún- ingi. Það er Alþýðuleikhúsið sem setur verkið upp í sam- starfi við Umferðarráð og menntamálaráðuneytið. Farið verður með leikritið í skólana og sýnt bömum á aldrin- um sex til níu ára. Sýningin er Qömg og spennandi og leikarar ávarpa bömin og spyija þau hvemig Kela beri að haga sér í umferðinni. Keli er nýfluttur í bæinn að vestan þar sem lífið í umferðinni var ekki jafnflókið og i borginni. Svo heppilega vill til að hann kynnist jafnöldm sinni, henni Völu, og hún kennir honum umferðarreglumar. í leikritinu er sungið og dans- að, og fá bömin texta við lögin eftir sýningu. Olafur Haukur Símonarson samdi tónlistina, en útsetningu og hljóðfæraleik ann- ast Gunnar Þórðarson. Eins og áður sagði em það þær Iðunn og Kristín Steinsdætur sem sömdu leikritið, en til þeirra var leitað um að skrifa verk handa bömum sem tengdist umferðar- ffæðslu. Alþýðuleikhúsið tók síðan að sér að færa verkið upp og gera úr því 40 mínútna sýningu, það tek- ur því eina kennslustund í flutn- ingi. Leikstjóri verksins er Sigrún Valbergsdóttir. Þrír ungir leikarar fara með öll hlutverkin í leikrit- inu, níu talsins. Það era þau Stein- unn Ólína Þorsteinsdóttir, Gunnar Rafn Guðmundsson og Baltasar Kormákur. GERLA hannar leik- mynd og búninga. Að lokinni sýningu fá bömin afhenta möppu með ýmsum kennslugögnum um boðskap leikritsins, auk þess fá þau söng- texta úr leikritinu og fleiri upplýs- ingar sem því tengjast. Landsbanki Islands er stuðn- ingsaðili verkefnisins og mun hann efna til myndasamkeppni fyrir bömin sem sjá sýninguna. Krakkamir mega mála eða lita hvað sem þeim dettur í hug um Kela og Völu í umferðinni og af- henda í næsta útibú Landsbank- „Langt frá götu leikum við — láttu ei standa á þér! I umferðinni bros og bið besta ráðið er. “ ans Hugulsami lögregluþjónninn ekur þeim Völu og Kela heim á leiö ettir ævin- týralegan dag í umferðinni f miðbænum. Lögregluþjóninn leikur Gunnar Rafn nus Kristín 8ára: Ég er ekki komin með það, en ég er að hugsa um að fá mér endur- skinsmerki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.