Þjóðviljinn - 23.10.1990, Qupperneq 2
FRETTIR
Háhyrningaveiðar
Mótmælt hástöfum
Mótmælabréfum rigniryfir Steingrim Hermannsson vegna veiða Fauna á háhyrningum. Magnús
Skarphéðinsson: Fauna fœr 33 miljónir fyrir hvert dýr
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra hefur
fengið fjöldann allan af bréfum
þar sem mótmælt er veiðum
fyrirtækisins Fauna á háhyrn-
ingum. Steingrímur segir að öll
bréfin fari til sjávarútvegsráðu-
neytis og málið sé þar.
Mótmælabréfin koma frá
dýravemdunarsamtökum víða um
heim. Skorað er á forsætisráð-
herra að stöðva veiðamar, en
Fauna hefur fengið leyfi til að
veiða 4 háhyminga sem seldir em
í dýragarða. I bréfunum er þvi
hótað að verði veiðamar ekki
stöðvaðar, muni þessi samtök
sniðganga íslenskar vömr og
hvetja aðra til þess sama.
Fóstrur
Leikskólinn
er mennta-
stofnun
Fóstrufélag íslands mótmælir
harðlega þeirri ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að leggja fyrir al-
þingi frumvörp, sem gera ráð
fyrir að málefni leikskóla og dag-
heimila tilheyri bæði félagsmála-
ráðuneyti og menntamálaráðu-
neyti.
A haustþingi félagsins, sem
haldið var um helgina, var sam-
þykkt ályktun þar sem félagið
harmar þá óvæntu stefnubreytingu
ríkisstjómarinnar að hverfa firá
íyrTÍ skilgreiningu á leikskóla með
því að leggja til að yfirstjóm leik-
skólamála tilheyri félagsmálaráðu-
neytinu.
„Leikskólinn er fyrsti skóli
bamsins og hefur Island verið í far-
arbroddi norrænna þjóða hvað
varðar að skilgreina leikskólann
sem uppeldis- og menntastofnun.
Menntunarlegar forsendur liggja
því að baki innra starfs leikskóla í
dag,“ segir í ályktuninni.
t>á krefst Fóstmfélagið þess að
tekið verði tillit til athugasemda fé-
lagsins og skorar á alþingismenn
að þeir komi í veg fyrir að fmm-
vörpin verði samþykkt óbreytt.
-Sáf
Garöar Cortes og Óiöf Kolbrún
Haröardóttir
Óperuhátíð á
Hótel Íslandí
Nk. sunnudag verður haldin
hátíð á Hótel íslandi til styrktar
íslensku ópemnni. Kór og ein-
söngvarar íslensku ópemnnar
munu m.a. syngja valda kafla úr
Fyrirtækið Fauna er dótturfyr-
irtæki Sædýrasafnsins sem rekið
var í Hafnarfirði og hefur fengið
leyft til háhymingaveiða til að
greiða niður skuldir Sædýrasafns-
ins. Magnús Skarphéðinsson tals-
maður Hvalavinafélags íslands
segist hafa ömggar heimildir fyrir
því að hvert dýr sé selt á 100 milj-
ónir króna. Fauna fái 33 miljónir,
eða 1/3, Sea World fyrirtækið í
Bandaríkjunum og Sealand í
Kanada fái sömu upphæð. Magn-
ús segir að síðastliðin 6-7 ár hafi
Fauna veitt yftr 20 háhyminga,
þannig að fyrir þau dýr hefúr fýr-
irtækið fengið um 660 miljónir.
Ekki náðist í Helga Jónasson
stjómarformann Fauna í gær.
„Fauna fékk þessi leyfi til að
reyna að greiða þær skuldir sem
féllu á það og marga einstaklinga
þegar Sædýrasafnið fór á höfúð-
ið,“ segir Steingrímur Hermanns-
son.
„Það er búið að lofa þeim
þessu og það er erfitt að ganga á
bak þeirra loforða. Hins vegar er
alveg nauðsynlegt að fylgjast ná-
kvæmlega með því að þessi dýr
fái góða meðferð og fari á staði
þar sem vel er farið með þau. Og
fari þangað án tafar. Það þýðir
ekkert að veiða dýrin og hafa þau
hér í lélegum búrum í langan
tíma. En ég held að þeir í sjávar-
útvegsráðuneytinu telji sig skuld-
bundna í þessu máli og vilji að
því ljúki sem fyrst. Að minnsta
kosti vildi ég það,“ segir Stein-
grímur Hermannsson.
ns.
Stjömuprýtt liö Barcelona tók léttar æfingar á Laugardalsvellinum í gær. Mynd: Kristinn.
Evrópukeppni
Fram-Barcelona
Hvalreki á fjörur knattspyrnuáhugamanna
Fyrri leikur Fram við
spænsku bikarmeistarana
Barcelona í annarri umferð
Evrópukeppni bikarhafa fer
fram í dag á Laugardalsvellin-
um og hefst Ieikurinn Idukkan
15.30.
Barcelona er án efa eitt sterk-
asta félagsliðið í Evrópu í dag og
er koma þess hingað til lands
hvalreki á íjörur knattspymu-
áhugamanna. Frá því Fram og
Barcelona áttust síðast við árið
1988 hafa orðið verulegar breyt-
ingar á liði Börsunga. I fyrra
komu Daninn Michael Laudrup
frá Juventus og Ronald Koeman
frá PSV Eindhoven til liðs við
spænska liðið og í ár þeir Fem-
ando Munoz frá Sevilla og Sto-
ickov markakóngur Búlgaríu.
Framarar verða án Péturs
Ormslevs og Viðars Þorkelssonar
sem afþlána eins leiks bann, en að
öðm leyti munu Framarar stilla
upp sínu sterkasta liði.
-grh
verkefnaskrá Óperunnar sl. 10 ár,
svo og þekkt atriði úr ópemm,
óperettum og söngleikjum. Allir
sem að hátíðinni standa gefa sitt
framlag. Á það jafnt við um mat,
húsnæði Hótel Islands, matseld,
undirbúningsvinnu, sem og fram-
lag allra listamanna. Aðgangseyr-
irinn kr. 5.500 fer óskertur til ís-
lensku ópemnnar. Húsið opnar kl.
18.30, en miðasala og borðpant-
anir em á Hótel Islandi.
Kynning á Siðmennt
Siðmennt - félag áhugafólks
um borgaralegar athafnir mun
standa að borgaralegri fermingu
vorið 1991. Undirbúningsnám-
skeiðið hefst með skálaferð fyrstu
helgina í nóvember, en vikulegir
fyrirlestrar og umræðutímar byija
í janúar. Til þess að kynna starfið
nánar er boðað til opins fundar
um borgaralega fermingu þriðju-
daginn 23. október. Fundurinn
verður haldinn í húskynnum Fé-
lags bókagerðarmanna að Hverf-
isgötu 21, við hliðina á Þjóðleik-
húsinu, og hefst kl. 20.00.
Námskeið f skyndihjálp
Námskeið í skyndihjálp verð-
ur haldið á vegum Reykjavikur-
deildar Rauða kross Islands. Það
hefst nk. fimmtudag kl. 17 að
Fákafeni 11,2. hæð. Kennsludag-
ar em 25. og 29. október og 1. og
5. nóvember. Námskeiðið er 16
kennslustundir. Öllum 15 ára og
eldri er heimil þátttaka. Á nám-
skeiðinu verður meðal annars
kennd endurlífgun, meðferð sára,
skyndihjálp við bmna og bein-
brotum, auk margs annars. Þá er
haldið endurmenntunamámskeið
í skyndihjálp fyrir almenning 31.
október og 6. nóvember. Það er
ætlað fólki sem hefur sótt nám-
skeið í skyndihjálp á síðustu 4 ár-
um. Leiðbeinandi á báðum nám-
skeiðunum verður Guðlaugur Le-
ósson. Skráning í síma 688188.
Hegðun misþroska
bama
Foreldrafélag misþroska
bama stendur íyrir fúndi á morg-
un í Æfingadeild Kennaraháskóla
íslands kl. 20.30. Finnborg Sche-
ving ráðgjafarfóstra heldur lyrir-
lestur um Hegðun misþroska
bama og þörfina fyrir ráðgjöf.
Rætt verður um hegðunarvand-
kvæði misþroska bama, foreldra-
ráðgjöf, viðbrögð foreldra og þörf
þeirra fyrir ráðgjöf. Fundurinn er
öllum opinn.
Frjálst verð á síld
Á frindi Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í gær var ákveðið að
gefa frjálsa verðlagningu á síld til
frystingar og söltunar á síldarver-
tíðinni í haust.
Virðisauki á skráningu
eigendaskipta
Nýskráning og skráning eig-
endaskipta ökutækja hækkar um
24,5% 1. nóvember nk. þar sem
ríkisskattstjóri hefúr ákvarðað að
innheimta skuli virðisaukaskatt af
þessari þjónustu. Fram til þessa
hefur Bifreiðaskoðun íslands
ekki innheimt virðisaukaskatt af
AB Vesturlandi
Efasemdir
um
álver
Kjördæmisráð AB
Vesturlandi: Ríkis-
stjórnarþátttaka AB
skoðist í Ijósi þess
hvaða vægi sjónarmið
flokksins fá í álmálinu
„Ríkisstjórnarþátttaka verður
að vera til stöðugs endurmats í
Ijósi þess árangurs sesm næst, og
flokkurinn getur engan veginn
sætt sig við að vera stillt upp við
vegg í jafn veigamiklu máli og
álmálið er. Afstaða til þess, og
ríkisstjórnarþátttöku til vors,
verður að skoða í Ijósi þess
hvaða vægi samstarfsflokkarnir
gefa sjónarmiðum Alþýðu-
bandalagsins í málinu,“ eru
lokaorð stjórnmálaályktunar
aðalfundar kjördæmisráðs AI-
þýðubandalagsins á Vesturlandi,
sem haldinn var í Borgarnesi á
laugardag.
I ályktuninni segir að álmálinu
hafi verið veifað framan í lands-
byggðarfólk sem lausn á vanda í
byggðarmálum, en það komi þó
stöðugt betur i ljós að takmörkuð
heilindi voru að baki því, og að
alltaf hafi verið stefnt að byggingu
álversins á Suðumesjum.
„Forsendur Alþýðubandalags-
ins fyrir samþykkt við álver hafa
verið að það lúti íslenskum lögum,
þar með skattalögum, að orkuverð
standi vel undir kostnaði, að bygg-
ing og rekstur valdi ekki byggða-
röskun og að ítrustu mengunar-
vömum verði beitt. Aðeins fyrsta
atriðinu er fullnægt til þessa.
Orkuverð og verðtrygging þess er
vægast sagt vafasamt, ekkert hefúr
komið fram um hvemig bregðast
eigi við þensluáhrifum við bygg-
inguna né hvemig nota eigi meint-
an hagnað til byggðaþróunar.
Kröfúr um mengunarvamir virðast
við það miðaðar að þær styggi ekki
hina erlendu aðila,“ segir í álykt-
uniimi.
í ályktuninni segir að þátttaka
Alþýðubandalagsins í ríkisstjóm
hafi í ýmsu borið árangur, en erfitt
sé að kyngja öðmm málum. Verð-
bólga hafi vissulega náðst niður,
en að mestu á kostnað launafólks.
Þá segir að bráðabirgðalögin á
BHMR-samningana sl. sumar hafi
gengið þvert á meginstefnu flokks-
ins um samningsrétt launafólks.
-Sáf
þessari þjónustu þar sem félagið
taldi að um væri að ræða opinbera
skráningu ökutækja sem væri
undanþegin þessari skattheimtu.
UNIFEM á íslandi
Framhaldsstofnfúndur félags-
ins UNIFEM á íslandi verður
haldinn annað kvöld á Hótel
Holiday Inn kl. 20.30. Félagið var
stofnað 18. desember 1989 þegar
tíu ár vom liðin frá því að al-
þjóðasamningurinn um afnám
alls misréttis gegn konum var
samþykktur. Tilgangur félagsins
er að styrkja konur í þróunarlönd-
unum til sjálfsbjargar með því að
leggja fram fé til UNIFEM, sem
er þróunarsjóður Sameinuðu
þjóðanna fyrir konur. Á fundinum
verður félagið og lög þess kynnt.
Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri
og Bjöm Dagbjartsson fram-
kvæmdastjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar halda fyrirlestur um
þróunarverkefni íslendinga í Suð-
vestur-Afríku. Rarik-kórinn flyt-
ur nokkur lög og Helga Thorberg
verður með upplestur.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. október 1990