Þjóðviljinn - 06.11.1990, Page 2
FRETTIR
Vextir
Dagsbrúnar verður saknað
r r
Asmundur Stefánsson: Þjónar ekki hagsmunum verkalýðshreyfingarinnar ef Dagsbrún selur hlut sinn í Islandsbanka.
Valur Valsson: Vaxtaákvörounin lœkkar vaxtamun
II alur Valsson bankastjóri ís-
® landsbanka segir það miður
að Verkamannafélagið Dags-
brún ætli að hætta viðskiptum
við bankann. Dagsbrún hafi
verið góður viðskiptavinur og
verði saknað. En Dagsbrún
ákvað á félagsfundi á sunnudag
að hætta öllum viðskiptum við
bankann.
Ásmundur Stefánsson forseti
Alþýðusambandsins og fulltrúi
ASI í bankaráði íslandsbanka
sagðist vel skilja að Dagsbrúnar-
menn væru óánægðir með þau
vaxtakjör sem giltu í dag.
Ákvörðun Islandsbanka fæli í sér
samræmingu á óverðtryggðum
lánskjörum og verðtryggðum.
Það mætti þó segja eins og Dags-
brún, að réttara hefði verið að
lækka verðtryggðu vextina. „Eg
er alveg sammála því að það hefði
verið rétta svarið,“ sagði Ás-
mundur.
Forsendur til þessa eru hins
vegar varla fyrir hendi, að sögn
Ásmundar. Þegar íslandsbanki
hefði hækkað vexti 1. júní hefði
hann verið í minnihluta á móti
þeirri ákvörðun og áður fengið
málinu frestað í maí. Þá hefði ver-
ið lagt fram yfirlit á fúndinum
sem sýndi að 600 milljónir hefðu
farið út af sérkjarareikningum
bankans yfir á ríkisskuldabréf og
verðbréfamarkaði. Það hefði því
verið álit bankaráðs að við því
yrði að bregðast með vaxtahækk-
unum bæði innláns- og útláns-
megin.
Ásmundur sagði nauðsynlegt
að taka á verðtryggðu vöxtunum.
Það yrði að gerast með því að
taka á fjármagnsmarkaðanum öll-
um og skoða hvaða áhrif einstak-
ir þættir eins og lánsfjáröflun rik-
issjóðs og húsbréf hefðu á mark-
aðnum.
Ef Dagsbrún gerir alvöru úr
að selja sinn hlut í bankanum,
sagði Ásmundur ljóst að það
myndi veikja stöðu verkalýðs-
hreyfingarinnar innan bankans.
Hann teldi að þeim hagsmunum
sem Dagsbrún bæri fyrir brjósti
yrði ekki vel þjónað með þeim
hætti. „Ég held að okkar ítök i ís-
landsbanka hafi skipt mjög miklu
máli,“ sagði Ásmundur. Það hefði
td. sést í viðræðum aðila vinnu-
markaðarins og bankanna í vetur,
þegar Islandsbanki hafði um
margt forystu fyrir bönkunum. Is-
landsbanki hefði einnig verið
fyrstur til að lækka vexti í febrú-
ar, mars og apríl, ma. annars
vegna þeirrar afstöðu Ásmundar,
að tryggja að það gerðist á réttum
tíma.
Forseti ASI minnti einnig á að
þátttaka verkalýðshreyfingarinn-
ar í Islandsbanka hefði verið
ákveðin ma. vegna þess að menn
hefðu talið rétt að hún tæki þátt í
þeim umskiptum sem væru að
Dalvík
Rykspúandi malbikunarstöð
Okkur var gert viðvart um
mikinn reykjarmökk frá
malbikunarstöðinni á laugar-
daginn. Það er ekki rétt að það
hafi verið olía í reyknum, en hið
rétta er að þarna var um að
ræða ryksalla og gufu. Við
munum fylgjast með stöðinni,
en skiptum okkur ekki af henni
frekar nema eitthvað komi upp
á, segir Valdimar Brynjólfsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Eyjafjarðar, í samtali
við Þjóðviljann.
Malbikunarstöð er nú starf-
rækt utan við_ Dalvík vegna mal-
bikunar í Ólafsfjarðargöngum.
Ibúar á svæðinu gerðu heilbrigð-
iseftirlitinu viðvart á laugardag-
inn vegna kolsvarts reykjarmakk-
ar sem kom frá stöðinni þegar
verið var að þurrka möl. Snjór
varð svartur á nokkru svæði um-
hverfis stöðina.
Talið er að vélar hafl verið illa
stilltar, en bætt hefúr verið úr því
að sögn Valdimars.
Hægt er að koma í veg fyrir
rykmengun ffá malbikunarstöðv-
um að verulegu leyti með pokas-
ium, en þessi stöð er ekki búin
slíkri síu.
Valdimar segir i samtali við
Þjóðviljann að ekki séu gerðar
kröfúr um pokasíu í malbikunar-
stöðvum þegar þær standa utan
við þéttbýli.
Hann segist búast við að mal-
bikunarstöðin verði farin að viku
liðinni. -gg
gerast í bankakerfmu. Þar væri
verið að ganga í hagræðingarstarf
sem talað hefði verið um í ára-
tugi, en ekki framkvæmt fyrr en
nú. _
I samtali við Þjóðviljann
sagði Valur Valsson þessa
ákvörðun Dagsbrúnar ekki hafa
áhrif á ákvörðun bankans um
hækkun vaxta í síðustu viku. Sú
ákvörðun hefði verið tekin að vel
yfirveguðu ráði og ekki að tilefn-
islausu. Menn hefðu haft áhyggj-
ur af því, að lækkun verðbólgu
síðustu vikna reyndist aðeins
tímabundin. Eftir hækkunina
væru vextir Islandsbanka hins
vegar þeir sömu og þeir voru ffá
april til september, enda verð-
bólgustigið ekki ósvipað og þá.
Valur sagði ffamlag bankans
til þjóðarsáttar vera minni vaxta-
mun og lægri þóknunartekjur en á
síðasta ári. Heildarvaxtamunur
hefði lækkað úr 5,4% 1989 hjá
fjórbönkunum sem stofnuðu Is-
landsbanka, í 3,5% á þriðja árs-
fjórðungi þessa árs. Vaxtaákvörð-
unin í síðustu viku hefði síðan í
for með sér enn ffekari lækkun
vaxtamunar, þannig að hann yrði
3,3% síðustu mánuði ársins.
Að sögn Vals munu þóknana-
tekjur íslandsbanka einnig lækka
að raungildi um 5% á þessu ári.
íslandsbanki teldi því, að hann
hefði tekið myndarlega þátt í
þjóðarsáttinni og á þann hátt sem
að var stefnt í kjarasamningum.
-hmp
Svavar Gestsson menntamálaráðherra opnaöi I gær myndlistasýningu I húsnæöi ráöuneytisins við Sölvhóls-
götu 4. Á sýningunni sýna tveir myndlistarmenn verk unnin á þessu ári. Það eru Sigrlður Rut Hreinsdóttir sem
sýnir vatnslitamyndir og Guðjón Bjarnason sem sýnir málverk og skúlptúra. Mynd Kristinn.
Dagsbrún
Stjórn mótframboðsins tilbúin
Sammála stjórn Dagsbrúnar í Islandsbankamálinu
Mótframboðið til stjórnar
Dagsbrúnar hefur sett
saman lista að stjórn. Listinn
verður formlega lagður fram
nokkrum vikum fyrir stjórnar-
kosningarnar, sem fara fram í
janúar.
Stjóm mótframboðsins skipa
Jóhannes Guðnason, trúnaðar-
maður hjá Fóðurblöndu Sam-
bandsins, en hann er jafnffamt
formaður listans. Varaformaður
listans er Jóhannes Sigursveins-
son byggingaverkamaður. Þórir
Karl Jónasson er gjaldkeri og
jafnffamt framkvæmdastjóri list-
ans, en hann starfar hjá Pósti og
síma. Ritari er Óskar Ólafsson
sem starfar hjá Fóðurblöndu Ew-
os. Fjármálaritari er Einar Sig-
urðsson, fyrrverandi formaður
verkamannafélagsins Dímons.
Meðstjómendur era Páll Þorgríms
Jónsson, starfsmaður hjá Islensku
bergvatni, og Jónas Guðmunds-
son frá Rikisskipum.
Talsmenn listans segjast vilja
leggja meiri áherslu á félagslega
þáttinn en nú er gert og vilja
skarpari kjarabaráttu. Þá segjast
þeir sammála núverandi stjóm
Dagsbrúnar í afstöðunni til vaxta-
hækkana íslandsbanka. Sáf
Á myndinni sést Jóhann Páll afhenda Öriygi Hálfdánarsyni forseta SVFÍ
bikarinn í viðurvist forstjóra félagsins, skólastjóra og starfsmanna Slysa-
varnaskólans.
Utskrift úr
Jarðhitaskólanum
Ellefu nemendur frá sjö lönd-
um útskrifuðust úr Jarðhitaskóla
Háskóla Sameinuðu þjóðanna í
Reykjavík í lok október. Þetta var
12. starfsár Jarðhitaskólans en
námstíminn var sex mánuðir.
Sfyrkþegamir komu frá Búlgaríu,
Costa Rica, Egyptalandi, Júgó-
slavíu, Kenya, Nicaragua og Ug-
anda. Alls hafa 93 styrkþegar ffá
20 þróunarlöndum útskrifast úr
Jarðhitaskólanum síðan hann tók
til starfa 1973, en auk þess hafa
liðlega 30 dvalist hér við nám í
skemmri tíma.
Sæbjargarbikar
gefinn
Jóhann Páll Símonarson sjó-
maður hefúr afhent Slysanvarafé-
lagi íslands fagran bikar til efl-
ingar áhuga sjómanna um ffæðslu
og þjálfún um björgunar- og ör-
yggismál. Forseti Slysavamafé-
lags íslands, skólastjóri og leið-
beinendur Slysavamaskóla sjó-
manna, Sæbjargar, munu árlega
velja það skip og þá skipshöfn
sem sýnt hefúr sérstakan áhuga í
námi og starfi að öryggismálum.
Hér er um farandbikar að ræða
sem veitist í fyrsta skipti á Sjó-
mannadaginn 1991 og að síðustu
árið 2000, en eflir það verður
hann í vörslu Slysavamaskóla
sjómanna.
Basar í Kópavogi
Kvenfélag Kópavogs gengst
fyrir basar félagsins sunnudaginn
11. nóvember. Félagskonur era
vinsamlegast beðnar að skila bas-
armunum í kvöld í kvenfélags-
herberginu milli kl. 20 og 22.
Einnig hægt að skila munum á
laugardag 10. nóvember ffá kl. 13
til 17
Stórbókamarkaður
Bókavörðunnar
í gær hófst árlegur stórbóka-
markaður Bókavörðunnar í Hafn-
arstræti 4 í Reykjavík. Markaður-
inn stendur í 6 daga og alls verða
til sölu rúmlega 30 þúsund bækur.
Innbundnar íslenskar bækur kosta
200 kr., óinnbundnar 100 kr. og
allar erlendar bækur kosta 50 kr.
Upplýsingaskylda
stjórnvalda
Umræðufundur um upplýs-
ingaskyldu stjómvalda verður í
fundarsal Þjóðskjalasafns Is-
lands, Laugavegi 162, í dag kl.
15.30. Á fúndinum verða pall-
borðsumræður um meðferð og
aðgang að skjölum hins opinbera
en pallborðið skipa Jón Sveins-
son aðstoðarmaður forsætisráð-
herra, Ólafúr Ásgeirsson þjóð-
skjalavörður, Þorleifúr Friðriks-
son sagnffæðingur og Amar Páll
Hauksson fféttamaður. Stjómandi
verður Magnús Guðmundsson
skjalavörður Háskóla íslands.
Norskir
tónlistaimenn
Norsku hljóðfæraleikaramir
Trals Mörk, selló, og Leif Ove
Andsnes, píanó, koma fram á
fyrstu tónleikum Tónlistarfélags-
ins í íslensku óperunni, sem
haldnir verða í kvöld og hefjast
kl. 20.30. Listamennimir eru
meðal þekktustu tónlistarmanna í
heimalandi sínu og hafa báðir
unnið sér ffægð á alþjóðlegum
vettvangi þótt ungir séu. Að-
göngumiðasala við innganginn.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. nóvember 1990