Þjóðviljinn - 06.11.1990, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 06.11.1990, Qupperneq 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ ÞJÓÐVIUINN Erlent fjármagn Þess er vænst að lagt verði í dag fyrir ríkisstjórn laga- frumvarp um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri á íslandi, reyndar vonum seinna. Fimm ár eru síðan Al- þingi samþykkti ályktun þar sem skorað var á ríkisstjórn að láta endurskoða gildandi lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri á íslandi. Aldrei var hins vegar mælt fyrir frumvarpi sem lagt var fram 1987- ‘88, og skýrsla frá forsætisráðherra á síðasta þingi um erlendar fjárfestingar hér á landi var naumast rædd. Bráðnauðsynlegt er að mörkuð sé sem fyrst skýr, ís- lensk stefna í þessum málefnum, að lagafyrirmæli og reglur séu óyggjandi og unnt sé að fá yfirlit yfir magn og eðli erlendra fjárfestinga, en öll þessi mál hafa verið í þoku. Ýmsir hafa tilfinningalegan ímugust á hvers konar er- lendum fjárfestingum hérlendis. Röksemdir þeirra byggjast stundum á vanþekkingu um eðli fjárfestinga, viðskipta og þjónustu í samtímanum. ísland er nú eina ríkið innan OECD sem heldur í fyrirvara um aukið frelsi í Ijármagnsflutningum. Sú andstaða við erlent fjármagn sem byggist einvörðungu á því að afsal nauðsynlegra, íslenskra yfirráða felist í aðlögun að viðskiptaháttum nú- tímans byggist á verulegri sjálfsblekkingu. íslendingar eru rígbundnir og mjög skuldsettir vegna erlends láns- fjármagns til framkvæmda. Sá klafi er hlutfallslega þyngri á okkur en mörgum öðrum þjóðum og skerðir svigrúm okkar, tækifæri og frelsi með ákveðnum hætti. Ein rökin fyrir því að íslendingar aðlagi sig fjármagns- kerfum umheimsins eru þau, að mjög getur dregið úr lánsfjárþörf atvinnulífsins og erlendum lántökum með auknu frelsi í fjármagnsflutningum hingað. Við það ætti helsi erlendra skulda að slakna á íslensku þjóðinni og frelsi hennar, sjálfsákvörðunartaka og raunverulegt for- ræði að geta aukist. íslendingar hafa sjálfir fjárfest í sí- auknum mæli erlendis undanfarið og gagnkvæmnisregl- ur hljóta að eiga að gilda á því sviði að einhverju marki. Aðrir óttast að ítök útlendinga geti vaxið okkur yfir höfuð, ekki endilega vegna þess að við veitum þeim að- stöðu hérlendis, heldur einkanlega ef form- og eðlis- breytingar verða í framtíðinni innan þeirra viðskipta- svæða og bandaiaga sem við kunnum að hafa gert bindandi samninga við. Ef til vill eru mestu hætturnar einmitt fólgnar í gildrum af því tagi og fátt brýnna en var- ast þær. Nokkuð ákveðin vissa er fyrir því að óboðið, erlent tjármagn sé komið inn í íslenskt hagkerfi eftir ýmsum leiðum. Björn Tryggvason, aðstoðarbankastjóri Seðla- bankans, lýsti því yfir á kynningarfundi um frumvarps- drögin fyrir bankamenn í gær, að útlendingar hefðu reynt - og að einhverju leyti tekist - að troða hér inn fæt- inum með ólöglegum hætti, einkum í tengslum við fisk- iðnað, útgerð og útflutning. Alþýðubandalagið mótaði nýlega afstöðu sína til þessara mála í stjórnmálaályktun miðstjórnarfundar á Akureyri 28. okt. sl., þar sem einn af fimm höfuðáherslu- punktunum tjallar um alþjóðlega aðlögun hagkerfis og atvinnulífs með þessum hætti: „Lykill að blómlegri fram- tíð felst í greiðum og beinum samskiptum við umheim- inn og mikilvægt er að íslendingar taki með fullri reisn þátt í örri alþjóðlegri þróun í viðskiptum, menningu og stjórnmálum." Síðar í ályktun miðstjórnarinnar segir um breytingar í utanríkisviðskiptum og alþjóðasamstarfi: „Á sama tíma hefur átt sér stað þróun í átt til óheftari fjár- magnsflutninga í heiminum. Island mun með margvís- legum hætti aðlaga sig þeirri þróun.“ Lagafrumvarpið um Ijárfestingar erlendra aðila mun eflaust taka efnisbreytingum í meðförum Alþingis. En meginstefnuatriði þess eru brýnt nauðsynjamál. ÓHT Kirkjuþing. ^ jrmm Biskupinn kominn i politík Kirkiuþinq Biskup óánægður með skerðingi Ólafur Skúlason: Höfðum áhyggjur af þvi þegar nefskaltur var lagður niður að JJármálayfirvöld freistuðust til að taki skatthlut kirkjunnar. Anægður með stjómarskrártryggt samband ríkis og kirkju Biskupinn yflr íslandi, Ólaf- ur Skúlason, lýsti óánægju slnnl, I setningarræóu kJrkju- þings á þriöjudag, með aö ríkiö skilaöi ekki innheimtuhlut kríkjunnar í skðttum til kJrkJ- unnar. Ólafur sagðl Þjóövlijan- im aö ekki vserí um aö ræða ramlag rfkisins til kirkjunnar, eldur hlut hennar ( skatt- jimtunni. En þetta fyrí’'*" ag'var sett i **' nefsk*~ við svo heppin að lánsíjárfrum- varpið er lagt fram um leið og frumvarp til fjárlaga“, sagði Ólaf- ur. Fjárveitingavaldið ætlaði aftur að skerða greiðslur til kirkjunnar en í fyrra hefðu menn talið aö þctta ætti aðeins að gera I br**- eina skipti og birðar V;eis -iixr og - ao fá væri öll ,-ui, myndu fjármálayfir- v/iU hugsa scm svo að þetta væri ilt of mikið og freistuðust til að jka af upphæðinni. Nú hefði pctta því miður komið fram. — aO m .. nvar fólk setur „jurdag," sagði Ólafur. En nann ætlaðist til þess að þcir sem hefðu áhuga og áhyggjur af þess- um málum, ræddu þau við þing- menn sína og þingmannsefni. Það væru mörg mál sem réðu þvf hvaða þingmenn fólk styddi. „En þvl aðeins myndi ég styðja ákveð- inn stjómmálaflokk oe stinmm- kirkju. íslendingar væru oft hefði farið hrollur um h tilhugsunina að einhver riskur sjónvaipsprestur i að leggja einhver reiðinnæ I að snúa öllum íslendinj þcss boðskapar scm sjó prestar væru frægir fyrir fjármagnsins. Sér þætti þai styrkur fyrir kirkju og þj að menn reyndu að^hafa s og samband á sem állra st> máta. „Það er ma. þess vej þetta eru mér svo mikii vo: Eg txeysti þeim mönnu halda um stjómvölin til veg kirkjunnar góðan aldrei fundið annað þegar við þá," sagði Ólafur. Biskupinn sagði orð ; verið túlkuð mjög hör hefðu gctað verið harðar orð vætu l raun aðeins vegna þess að hann hefði i við menn sem hann bæri ti fundiö skilning á hlutverl Ólafur Ragnar Grimsson: Nýtt að biskupinn yfir íslandi segifólki livað það á að kjósa Deilt um tekjur kirkjunnar Hörð orð hafa farið milli bisk- ups og fjármálaráðherra út af fjár- málum kirkjunnar. Eins og marg- tekið er ffam í fféttum er það mál svo vaxið, að áður voru sérstök gjöld innheimt til kirkjunnar sem síðar voru felld inn í staðgreiðslu- kerfi skatta. Nú hefur annað árið í röð verið ákveðið með fjárlaga- dæmi að skerða þennan hlut kirkjunnar í skattheimtunni. Bisk- up mótmælir þessu eindregið á kirkjuþingi. Fjármálaráðherra segir að kirkjan verði að axla sinn hluta erfiðleika í þjóðfélaginu. Biskup segir að það hafi verið gert. Fjármálaráðherra hefur uppi efasemdir um siðferði kirkjunnar. Biskup segir eðlilegt að þeir sem áhyggjur hafa af þessari þró- un ýti við þingmönnum og þing- mannsefnum. Fjármálaráðherra segir að með þessu sé biskup að vísa kjósendum á Sjálfstæðis- flokkinn. Sem er vitanlega út í hött og meira en furðulegt að for- maður Alþýðubandalagsins skuli með slíkum hætti skemmta þeim sem alltaf hafa svo viljað vera láta að Guð væri Sjálfstæðismaður. Orð standa ekki Þetta mál er hluti af öðru stærra. Það viðurkennir reyndar Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í laugar- dagspistli nú um helgina. Þar seg- ir hann m.a: „Það er að vísu ekki nýtt af nálinni að lögbundin framlög til margvíslegra framkvæmda séu skert með sérstökum heimildar- ákvæðum, til eins árs í senn. Allir stjómmálaflokkar sem tekið hafa þátt í ríkisstjóm bera ábyrgð á slíkum aðhaldsaðgerðum". Þorsteinn telur að skerðing tekjustofna Þjóðkirkjunnar sé ut- an við slík fordæmi. En þar má reyndar ekki miklu muna. Fjár- málayfirvöld hafa, eins og fram var tekið, gengið og ganga áfram í tekjustofha og sjóði sem hátíð- lega hafði verið um samið að færi til tiltekinna nauðsynja: hvort sem væri til lífeyrissjóða, þjóðar- bókhlöðu, vinnueftirlits, svo nokkur dæmi séu nefhd. Þetta er náttúrlega af opinberri hálfu alltaf réttlætt með tilvísun til þess að ill nauðsyn bijóti lög. Og þessi praxís, sem enginn mun kannast við að hafa byijað á, hann er orðinn svo útbreiddur, svo fastur hryggjarliður í fjárlaga- dæmum, að hægt og bítandi hleðst upp stórmikill siferðis- vandi í samfélaginu. Sá vandi er í stuttu máli fólginn í þessu hér: ef ríkið gengur á undan í því að ganga á gefín orð og samninga, hvað þá með alla hina? Þeir menn sem mótmæla þessum praxís verða ekki kveðnir í kútinn með því að segja sem svo, að þeir vilji ekki vera með í að axla byrðamar. Þeir hafa miklu meira til síns máls en svo. Og þar með biskup og kirkjuþingsmenn. Kirkjan og hinn þétti leir Vitanlega er það svo sérstakur vandi fyrir kirkjuna að þurfa að standa í orðaskaki út af fjármál- um. Menn vilja helst ekki leyfa henni það. Allir mega óátalið hafa uppi kjarakröfur af ýmsu tagi - líka sérfræðingar í læknastétt, aflaménn á frystitogurum og flug- menn, svo nokkur alþekkt dæmi séu nefnd. En detti einhverjum presti í hug að minna á kjör sinn- ar stéttar eða stofnunar, þá hefja menn upp mikil óp og hneykslan rétt eins og guðsmenn hafi nú svikið sína köllun og sest við hlið víxlaranna í musterinu eftir að Kristur var farinn og þeir búnir að reisa við sín borð. Það væri vitanlega leiðinlegt ef kirkjan byrsti sig aldrei út af neinu öðru en tekjustofnum. Þann háska þarf hún vitanlega að varast eins og eld brennandi. En kirkj- unnar menn verða að hafa sæmi- legan rétt á við aðra til að þæfa hinn þétta leir, fyrst þeir em ekki staddir í klaustri heldur í heimi sem tekur mið af þessum sama leir. Ekki síst þegar um það er að ræða (eins og í þessu dæmi hér) að ekki er deilt um launakjör prestanna sjálfra heldur um fjár- muni til ýmissa verkefna kirkj- unnar. Þjóðkirkjan og aðrir kostir Að þessu þurfa menn að hyggja með rósemd hugans. Líka vegna þess sem nú skal á minnst: I samtali við Þjóðviljann um þetta mál kom Olafur biskup Skúlason að þjóðkirkjufyrir- komulaginu íslenska og bað því þrifhaðar. Þetta fyrirkomulag hef- ur sína galla rétt sem annað skipu- lag, en það hefur þá ótvíræðu kosti að menn losna undan mörgu sem fylgir því að trúarlíf leysist upp í harðsnúna og fjárfreka sam- keppni hinna einstöku kirkju- deilda og safnaða um sálimar. Biskup gat þess einmitt í fyrr- greindu viðtali að hann hugsaði til þess með hrolli ef t.d. einhver bandarískur sjónvarpsprestur kæmi með gilda sjóði til að hræra í sálum íslendinga. Og mætti við bæta: til að hafa svo af þeim sem allra mest fé með ógeðfelldum hætti eins og sífellt er gert þar vestra þar sem trúarþörfum er skotið undir markaðslögmálin eins og öllu öðra. ÁB ÞJOÐVIUINN Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur Þorleifsson, Ellas Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson, Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.LJim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), ðlafur Gíslason.Sævar Guðbjömsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristln Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Sigrlður Sigurðardóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir. Útbrelðslu- og afgrelöslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradóttir. Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýslngar: Siðumúla 37, Rvlk. Simi: 681333. Símfax: 681935. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: ðddi hf. Verð I lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. \ 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.