Þjóðviljinn - 06.11.1990, Síða 12
þjómnuiNN
Þriðjudagur 6. nóvember 1990 209. tölublað 55. árgangur
■ SPURNINGIN ■
Hvað finnst þér um það að
sjónvarpsstöðvar rjúfi dag-
skrá með auglýsingum?
Emil Karlsson
stýrimannsnemi:
Ég horfi nú sama og ekkert á
sjónvarp. Aðeins á fréttir og
veður þar sem engar auglýsing-
ar rjúfa dagskrána, enn sem
komið er.
Aðstandendur sýningar Þjóðskjalasafnsins, Björk Ingimundardóttir og Áslaug Jónsdóttir úr sýningarnefndinni; Magnús H. Ólafsson arkitekt, sem að-
stoðaði við uppsetningu, og Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður. Mynd: Kristinn.
Þióðskjalasafn
Haraldur Guðmunds-
son verslunarmaður:
Mér finnst það alveg afleitt og
getur verið afar óþægilegt.
Sigurlaug Hauksdóttir
húsmóðir:
Alveg óþolandi. Þetta rífur
mann frá efninu því það liggur
við að hver auglýsingin komi á
fætur annarri og þá aðallega á
Stöð 2
Ingibjörg Gunnarsdóttir
húsmóðir:
Mér finnst það alveg hræðilegt,
þar sem þessar auglýsingar
geta eyðilagt fyrir manni við-
komandi dagskrá.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegí 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Skföl Í800ár
r j
A sýningunni kennir margra grasa, m.a. Iteyndarskjöl um ungar stúlkur í ástandinu
og undirskrift Jóns Hreggviðssonar
C orseti íslands, Vigdís Finn-
" bogadóttir, opnaði á iaugar-
daginn sýningu Þjóðskjalasafns
Islands á skjölum safnsins.
A sýningunni má sjá skjöl úr
íslandssögunni í 800 ár, en Þjóð-
akjalasafn var stofnað 1882 og
varðveitir öll skjöl frá stofnunum
og embættum rikisins. Safnið fær
skjölin afhent þegarþau eru orðin
30 ára. Nýlega fékk safnið afhent
skjöl frá menntamálaráðuneytinu
sem mælast ekki í hillumetrum
heldur i þúsundum hillumetra, en
í ríkisgeiranum er af nógu að
taka.
Hiliukílómetrar
Skjalaforðinn sem varðveittur
er í Þjóðskjalasafni er nú nálægt
22 hillukílómetrum, eða 22.000
hillumetrar og búist er við að aðr-
ir 10 hillukílómetrar bætist við
ffam að aldamótum. A sýning-
unni eru til sýnis einir 15 hillu-
metrar og svo geta sýningargestir
ímyndað sér afganginn. Þannig
getur framkvæmdagleði ríkis-
valdsins á tímum góðæris oft
valdið talsverðum þrengingum í
skjalasöfnum löngu síðar, segir í
sýningarskrá.
Leyndarskjöl
Á sýningunni kennir margra
annarra grasa. Þar má t.d. finna
pakka af skjölum sem erfmgjar
Jóhönnu Knudsen gáfu safninu
og er hnýtt utan um pakkann og
hann innsiglaður. Jóhanna hafði
eftirlit með ungum stúlkum á
styijaldarárunum 1940-44. Henni
var falið af stjómvöldum að hafa
eflirlit með ungum ólögráða
stúlkum sem lögðu lag sitt við
hermenn. Það var árið 1961 sem
erfingjar Jóhönnu gáfu safninu
skjöl hennar um þessar stúlkur
með því skilyrði að pakkinn yrði
ekki opnaður fyrr en eftir 50 ár
eða 30. september 2011.
Það kom fram hjá Ólafi Ás-
geirssyni þjóðskjalaverði þegar
hann kynnti blaðamönnum sýn-
inguna að það væri helst vegna
persónulegra upplýsinga sem
skjöl á Islandi væm leyndarmál.
Geymist misvel
Á sýningunni má einnig sjá
hvemig mismunandi pappír
stenst tímans tönn. Gömlu skinn-
handritin em best og pappír unn-
inn úr hör og bómullartuskum
endist líka mjög vel, en fax papp-
ír og endumnninn pappír getur
eyðst á ótrúlega stuttum tíma, sér-
staklega ef birtan er mikil. Einnig
má sjá á sýningunni hvemig unn-
ið er að viðgerðum á skemmdum
skjölum.
Elsta skjal safnsins í frumriti
er Reykholtsmáldagi en út frá
máldaganum og sögu Snorra
Sturlusonar, sem þar er getið, má
rekja gilda þætti í þjóðarsögunni,
einsog segir í sýningarskránni.
Máldaginn er eignaskrá Reyk-
holtskirkju, en það er víst svo að
eignarétturinn er einn sterkasti
þátturinn í samskiptum manna.
Og var jarðeign á sínum tíma
grundvöllur auðs, valds og upp-
hefðar. Geta eignarheimildir haft
gildi langt ffam í tímann. Og því
mikilvægt að hafa safh sem safii-
ar slíkum skjölum. Elsti hluti
Reykholtsmáldagans er síðan
1185 og er elsta frumbréf á nor-
rænu sem varðveist hefur.
Jón Hreggviðsson
Eins má á sýningunni sjá eig-
inhandarundirskrift Jóns Hregg-
viðssonar þar sem hann lofar bót
og betrun. Einnig á safhið merki-
legt frímerkjasafh, t.d. nokkur
merki sem hvergi eru til annars-
staðar. Þá eru á sýningunni skjöl
og heimildir um réttarríki og
stjómarfar. Dómskjöl eru varð-
veitt ffá alþingi hinu foma til
vorra daga og má sjá á sýningunni
konungsbréf ffá 16. öld með eig-
inhandamndirritun konunga sem
og forsetabréf íslenska lýðveldis-
ins.
Sýningin stendur til 30. nóv-
ember og er haldin í Bogasal
Þjóðminjasafhs Islands.
-gpm
Sími641012