Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
ÞINGLYNDI
ÞJÓÐVIUINN
Hvenær eru
friðartímar?
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra lét þess
getið í umræðum á Alþingi um utanríkismálaskýrslu ut-
anríkisráðherra, að hann hefði hreyft hugmyndum í rík-
isstjórninni um það, með hvaða hætti bandaríski herinn
yrði á brott héðan. Hann hefði áhuga á því að setja í
málið nefnd allra flokka sem kæmust að samstöðu um
öryggismál sem byggði einkum á þeirri augljósu stað-
reynd, að heimurinn væri breyttur og forsendur fyrir til-
veru hernaðarbandalaga í meira lagi rýrar orðnar.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra heldur
því að vísu fram í DV í gær að Ólafur Ragnar hafi ekki
lagt fram neina formlega tillögu um þetta efni. En hvern-
ig sem þeim formlegheitum er varið má vænta þess, að
þessi umræða sé nú komin vel af stað. Og er það vel:
það hefur satt að segja staðið upp á ráðherra íslenskrar
ríkisstjórnar að draga í raun ályktanir af þeim miklu
breytingum sem orðið hafa í alþjóðlegum samskiptum
með því að erkióvinurinn sovéski er ekki til lengur sem
slíkur og Varsjárbandalagið varla nema nafnið tómt.
Það hefur komið ( hlut Sjálfstæðismanna ýmissa og
Morgunblaðspenna að andæfa því að menn dragi þá
ályktun af þróun mála að tími herstöðva á íslandi sé lið-
inn. Á þeim vettvangi hafa menn verið iðnir við að vitna
í þá fulltrúa „samsteypu herstjóra og iðnaðar" í Banda-
ríkjunum sem eiga beinna hagsmuna að gæta í óbreyttu
ástandi. En þar hafa menn hrakist á milli þess að segja
að Gorbatsjov væri ekki alvara í afvopnunarmálum og
svo þess nú síðast, að Sovétríkin verði áframt öflugt
herveldi, þótt fyrri fjandskapur sé upp gufaður, og allur
varinn góður. Þetta er utanríkisráðherra enn að daðra
við í sinni skýrslu, auk þess sem hann flækir málin í
vangaveltum um það hvort íslendingar eigi að halla sér
að Bandaríkjunum eða Evrópubandalaginu í öryggis-
málum. En hvort sem er: í margnefndri skýrslu heyrist
ávæningur af því sama og einatt hefur heyrst í Morgun-
blaðinu á undanförnum mánuðum: menn eru að leita sér
að rökum fyrir því að engu sé skynsamlegt að breyta í
herstöðvamálum hér á landi. Og hvernig sem þau rök
eru tínd til, þá er í þeim svo mikið tómahljóð, að menn
hljóta að skilja þau sem viðleitni til að breiða yfir það
sem menn í raun hugsa: Þeir óttast mikinn niðurskurð á
umsvifum erlends hers eða brottför hans héðan vegna
þess að þar með mundu margir missa gildan spón úr
sínum aski.
Það er því fróðlegt að í umræðunni á Alþingi skyldi
það vera einn af eldri þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
sem af einna mestri einbeitni gagnrýndi utanríkisráð-
hera fyrir að sitja fast í viðjum kalda stríðsins sem var.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson sagði á þá leið, að engu
væri iíkara en menn hefði gleymt því sem þeir gáfu sér í
upphafi Nató, að hér ætti ekki að vera erlendur her á
friðartímum. Nú væri meiri ástæða en nokkru sinni fyrrtil
að fagna friði, og þá talaði utanríkisráðherra enn um að
verkefni Varnarliðsins myndu ekki minnka. Hér væri,
sagði Þorvaldur Garðar, það boðað, að herliðið erlenda
hefði alltaf sama hlutverki að gegna, hvort heldur frið-
vænlegt væri eða ekki „sem þýðir að því verður haldið
varanlega í landinu á hverju sem gengur".
Hér er í rauninni sneitt bæði að utanríkisráðherra og
þeim tilhneigingum sem áður voru nefndar og hafa sett
svip sinn á mörg skrif í Morgunblaðinu. Og er það gott
og þarft að Ijármálaráðherra, Kvennalistaþingkona og
einn af lífsreyndari þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
myndi með sínum ræðum á þingi einskonar vísi að
breiðri samstöðu gegn þeim varhugaverðu tregðulög-
málum sem hér eru að verki.
ÁB
ÞJÓÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdis Ellertsdóttir, Dagur
Þorleifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson,
Garöar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ölafur
Gíslason, Sævar Guðbjörnsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigríður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradótir.
Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar:
Síðumúla 37, Rvlk.
Sími: 681333.
Simfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð i lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblaö: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1Í00 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. nóvember 1990