Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 15
« > Y « 4 . 4 4 . * • v • \ * k * » • « » « » <»*»»»» • «44*44. 1 «. f 4 4 > KVIKMYNDIR Heillandi„fjölskyldu“mynd LAUGARÁSBÍÓ Rckin að heiman (Where the Hcart is) Leikstjóri: John Boorman Handrit: John og Telsche Boorman Kvikmyndatökumaður: Peter Su- schitsky Aðallcikarar: Dabney Coleman, Uma Thurman, Joanna Cassidy, Susan Amis, Crispin Glover, Christopher Plummer, Sheila Kelley, David Hew- lett. Árið 1987 gerði leikstjórinn John Boorman myndina „Hope and Glory“ sem var byggð á æskuminningum hans úr seinni heimsstyrjöldinni. Þessi óvenju- lega lýsing á venjulegri íjöl- skyldu í stríðshrjáðri London rakaði að sér verðlaunum enda var hún alveg sérstaklega yndis- leg. Það er þvi með þó nokkurri eftirvæntingu að maður fer að sjá nýjasta affek þessa leikstjóra, sem í þetta skiptið fékk dóttur sína til að skrifa með sér handrit- ið, því að hann vildi byggja per- sónumar í Rekin að heiman á sinni eigin Qölskyldu, en flytja hana ífá írlandi til Manhattan New York. Dabney Coleman leikur niðurrifsmanninn Stewart McBain sem á og rekur niður- rifsfyrirtækið American Demo- lition. Hann og kona hans (Jo- anna Cassidy) eru vel stæð og eiga þrjú ofdekruð, fulltíða böm sem vilja ekki flytja að heiman, Cloe, Daphne og Jimmy. Cloe (Susan Amis) er listakona sem tjáir sig með trompe l’oeil að- ferðinni (felumálverkinu). Hún málar fyrst gríðarstórar myndir, svo málar hún lifandi fólk inní myndimar, síðan tekur hún ljós- mynd af öllu saman. Jimmy (David Hewlett) er tölvufrík og er að reyna að selja tölvuleik þar sem lítill karl með túrban reynir að komast klakklaust út úr Taj Majhal höllinni á meðan hún hrynur niður í kringum hann. Daphne (Uma Thurman) er hvorki listræn né snillingur í eðl- isfræði, hún er bara ofsalega fal- leg og fúll af hugsjónum (bjarg- ið hvölum, ósonlagi osffv.). Dag einn fær heimilisfaðir- inn nóg af heimtuffekum böm- um sínum, gefúr þeim gamalt hús sem hann fær ekki að rífa niður og bannar þeim að koma heim aftur. Þau verða náttúrlega alveg örvingluð og segja ásak- andi að hann geti ekki spillt þeim alla ævi og hætt því svo þegar honum sýnist. En eftir að þau hætta að kvarta og kveina bjarga þau sér náttúrlega og fá allskonar fólk til að koma og leigja hjá sér, t.d. tískuteiknar- ann Lionel (Crispin Glover) og rónann Skít (alveg furðanlega góður Christopher Plummer). Svo gerast allskonar óvænt- ir atburðir sem leiða til þess að pabbinn fer á hausinn og fjöl- skyldan sameinast á ný. Því að mórallinn er að peningar séu einskis virði ef maður á engan að, og að jafnvel á þessum sið- ustu og verstu timum sé lífið fúllt af töfrum, hvort sem það em dúfur í hatti eða víraðir tölvuleikir. Þetta er óvenjuleg og ævin- týraleg mynd og lengi vel vissi ég ekkert hvemig ég átti að bregðast við henni. Því bæði samtöl, persónur og söguþráður em all-absúrd, en á endanum féll ég gjörsamlega fyrir henni. Hún gæti verið lýsing á því sem myndi gerast ef Lér konungur ræki bömin sín að heiman á Jónsmessunótt á Manhattan árið 1990. Leikaramir em næstum því undantekningarlaust æðis- legir (ég var ekki nógu ánægð með Cassidy í hlutverki mömm- unnar), sérstaklega krakkamir, þau em svo falleg og óvenjuleg að stundum em þau eins og álfar úr öðrum heimi. Sviðið er töffandi. Það er vinkona Boorman-fjölskyldunn- ar, Timna Woolard, sem málar öll trompe l’oeil málverkin og það em þau ásamt búningunum (múslinkjólum og rifnum galla- buxum) sem gera þessa mynd að algjöm augnakonfekti. I lok myndarinnar, þegar Boorman segir algjörlega skilið við raunvemleikann, fylgir mað- ur honum eftir heillaður, því að þótt þessi mynd sé kannski húm- búg þá er hún bæði fallegt og skemmtilegt húmbúg. Sif Alvöru mafíósar BÍÓBORGIN Góðir gæjar (Goodfcllas) Leikstjóri: Martin Scorsese Handrit: Martin Scorscsc & Nicholas Pileggi eftir bók Pileggis „Wiseguy". Aðalleikarar: Robert De Niro, Ray Li- otta, Joe Pesci, Lorraine Bracco, Paul Sorvino Amerískir kvikmyndagerð- armenn virðast vera með mafíu- dellu um þessar mundir. Sean Penn ætlar að þreyta frumraun sína sem leikstjóri með glæpa- myndinni „State of Grace“, Co- en-bræðumir em búnir með „Miller’s Crossing", „Guðfaðir- inn 111“ er á leiðinni og síðast en ekki síst er Scorsese búinn að gera kvikmyndina Góða gæja um mafíuna eins og hún er í alvör- unni! Hann byggir handritið á bókinni Wiseguy sem lýsir lífi glæpamannsins Henry Hill alveg frá því að hann er smástrákur og sendist fyrir stórmafiósana í hverfmu, og þangað til hann er orðinn fúllgildur meðlimur, morðingi, þjófúr og eiturlyfja- sali. Scorsese hefur væntanlega ætlað sér að gera eins raunsæja mynd og hægt væri af lífinu inn- an maflunnar og það er svakalegt að sjá hversu mikil völd mafían hefur í Bandaríkjunum, þeir virð- ast geta keypt allt og alla. Glæpa- kóngamir em heimskar karl- rembur sem hafa ekkert að segja nema lélega brandara um hvemig þeir drápu hina og þessa. Hér er ekkert af fjölskyldurómantíkinni sem einkenndi Guðfoður-mynd- imar. Þessum mönnum er sama um allt, þeir drepa sér til skemmtunar og yndisauka. Enda drýpur blóð úr hverjum mynd- ramma og Scorsese, sem er mað- ur smáatriðanna, lætur mynda- vélina líða hægt yflr sundurbarða og klessta mannslíkamana, fryst- ir kannski allt i smástund til að áhorfandinn geti virt óhugnaðinn betur fyrir sér. (Afsakið meðan ég æli.) Myndina prýða góðir leikar- ar. Ray Liotta leikur aðalhlut- verkið, Henry Hill, og gerir það vel, ég sé hann allavegana ekki fyrir mér í hlutverki skrifstofú- blókar næstu árin. Joe Pesci leik- ur Tommy De Vito og er svo leið- inlegur og viðbjóðslegur að hann á skilið að fá verðlaun fyrir. Ro- bert De Niro er eins góður og hann er vanur að vera. Góðir gæjar minnir að mörgu leyti á myndina Scarface, þær eiga t.d. sameiginlegt að í tvo og hálfan tíma ganga stór- stjömur um, drepa hver aðra og segja „Fuck“. Og þrátt fyrir góð- an leik og kvikmyndatöku við undirleik Rolling Stones þá verð- ur þetta þreytandi til lengdar. Scorsese skefur ekkert utan af því hvað mafíósamir eru mikl- ir skíthælar, en ömgglega finnst fjölmörgum þetta vera lýsing á draumastarfmu. Glæponamir vaða í peningum og fá allt sem þeir vilja. Ef einhver mótmælir þeim er sá sami umsvifalaust drepinn. Mig skyldi ekki undra þótt það fjölgaði í mafíunni eftir sýningu þessarar myndar. Sif haskólabio Pappírs Pési *** Ari Kristinsson kemur hér meö alveg ágaeta barnamynd. Papplrs Pési er skemmtileg flgúra (Islenskur E.T.?) og krakkarnir alveg einstaklega krakkalegir. Lítil vinkona mín sagði aö myndin væri alveg sérstáklega skemmtileg af þvl aö nún kenndi svo skemmtileg prakkarastrikl! Drlfiö ykk- ur með bömin um helgina. Sif Vinstri fóturinn (My left foot)**** Algjörlega yndisleg mynd sem maður getur eRki annaö en falliö fyrir, nokk- urskonar óöur til llkamshluta. Daniel Day Lewis sýnir manni I hlutverki Christy Brown aö vinstri fótur er allt sem maður þarf til aö vera sjarmer- andi og sexy. Sif Cinema Paradiso (Paradlsarblóið)**** Það er I rauninni fáránlegt aö vera aö gefa svona mynd stjörnur, þvl hún er langt yfir alla stjörnugiöf hafin. Svona mynd er aðeins gerð einu sinni og þessvegna má enginn sem hefur hiö minnsta gaman af kvikmyndum missa af henni. LAUGARÁSBÍÓ Skjálfti (Tremours)** Þetta er hryllingsmynd sem er ekkert hryllileg. I staö þess er hún stundum dátdið fyndin og oft spennandi. Það eru Fred Ward og Kevin Bacon sem leika aöalhlutverkin. Myndin fær svo eina aukastjörnu fyrir hressa kven- hetju sem parf bara einu sinni að bjarga úr llfsháska. Á bláþræöi (Bird on a Wire) * Gibson og Hawn leika hér gamalt kærustupar sem er á flótta undan bæði bofum og löggum (minna má þaö ekki vera). Þau passa hræöilega illa saman og það hefur sýnileg áhrif á leik þeirra. Handritiö er ósköp ómerkilegt, en þaö er reynt aö flikka upp á þaö með því aö láta aöalleikarana vera berrass- aða annað veifiö. Sif BfÓBORGIN Hvíta valdið (A dry white season)***' Hvíta valdiö er unnin upp úr skáld- sögu eftir suöurafrlska rithöfundinn André Brink og lýsir þvl hvernig hvltur s.a. kennari kemst til meövitundar um hvernig fariö er meö svertingia I heimalandi hans. Leikurinn er frabær hvar sem á hann er litiö, sérstaklega eru þær fáu mínútur sem Brando er á tjaldinu æöislegar. Missiö ekki af hon- um. Sif Hrekkjalómarnir 2 (Gremlins 2) ** Litlu skrlmslin eru komin aftur á kreik, I þetta skiptiö I stórhýsi á Manhattan. Ég var full af fordómum I garö þessar- ar myndar og langaöi ekkert á hana og það kom mér pessvegna á óvart hvað ég skemmti mér vel. Það er fullt af góöum bröndurum og tæknibrell- urnar eru frábærar þótt þær séu aö- eins og margar. Sif REGNBOGINN Sigur andans (Tnumph of the spirit)* Þaö skal tekiö fram eins og skot aö enginn sigur andans er sjáanlegur I þessari mynd. Hún er kolsvörf og átakanleg. Leikurinn er fantagóöur, sérstaklega er Willem Dafoe ahrifa- mikill I hlutverki grlsks gyðings I út- rýmingarbúðum nasista I seinni heimsstyrjöldinni. Sif I slæmum félagsskap (Bad Influencer** Stórgóöur tryllir meö Rob Lowe og James Spader I aðalhlutverkum. Þeir sem lita Lowe homauga fyrir all- ar lélegu myndimar sem hann hefur leikið I ættu að gefa honum sjens þvl hér sýnir hann að hann getur meira en brosað fallega. Djöfullinn er ennþá á lífi og býr I Los Angeles! STJÖRNUBÍÓ Nýneminn (Freshman)** Brando er hér með skopstælingu á frægasta hlutverki slnu, Guöföðum- um. Og þessi skopstæling er uppi- staöa myndarinnar. Brando er gæoa- leikari og Broderick er sætur strákur en það neldur ekki uppi dampinum I tvo tíma. Því miöur. Slf I DAG ÞJOÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM „Friður kemur ekki til mála fyrr en barizt hefur verið til úrslita," segir Hitler. Meðan Hitler hélt æsingaræðu slna I Munchen dundu brezkar sprengjur á borg- inni. Barátta hinna undirokuðu þjóða gegn brezka og þýzka aft- urhaldinu harðnar. Þriðji ind- verski sjálfstæöisleiötoginn dæmdur til fangelsisvistar. And- úðin gegn Þjóðverjum vex I hin- um herteknu löndum. Eiga utan- rlkismál Islands að verða einka- mál Thórsaranna? Ihaldið heimtar að skipt sé um þjóna Breta. 10. nóvember laugardagur. 314. dagur ársins. 3. vika vetrar hefst. Sólarupprás I Reykjavlk kl. 9.39 - sólariag kl. 16.43. Viðburðir Goðafossi sökkt á Faxaflóa 1944. Inntaka Islands I Samein- uðu þjóðirnar samþykkt einróma á allsherjarþinginu. Verslunar- mannafélag Suðumesja stofnað 1953. DAGBOK APOTEK Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 9. til 15. nóvember er I Breiðholts Apóteki og Apóteki Austurbæjar. Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frldögum). Siöarnefnda apótekiö er opiö á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 samhliða hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavík « 1 11 66 «4 12 00 tr 1 84 55 «5 11 66 Garöabær. « 5 11 66 tr 2 32 22 Slökkviið og sjúkrabðar Reykjavik « 1 11 00 KÓDavoaur. tr 1 11 00 Seitjarnarnes Hafnarfjöröur. « 1 11 00 « 5 11 00 tr 5 11 00 Akureyri « 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn- arnes og Kópavog er i Heilsuvemdar- stöö Reykjavikur alla virka daga frá ki. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir, símaráöleggingar og tímapantanir i « 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar I slmsvara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít- alans er opin allan sólarhringinn, « 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl- an, a 53722. Næturvakt lækna, ™ 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garöaflöt, « 656066, upplýsingar um vaktlækni «51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiðstöðinni, « 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsími). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar i « 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, «11966. ^ ^ SJUKRAHUS Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæðingardeiid Land- spltalans: AÍIa daga kl. 15 til 16, feðra- tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar- heimiii Reykjavíkur v/Eiríksgötu: Al- mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspital- ans, Hátuni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgarkl. 14 til 19:30. Heilsu- vemdarstöðin viö Barónsstig: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefsspítali Hafnar- firöi: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla dagakl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 0120. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyöarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, « 91-622266, opiö allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svaraö er I upplýsinga- og ráögjafarsíma félags lesbia oa homma á mánudags- og fimmtuaags- kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum tímum.« 91-28539. Sálfræðlstööin: Ráögjöf f sálfræöi- legum efnum, « 91-687075. Lögfræöiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt i slma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opiö virka daga frákl. 8til 17, «91-688620. „Opiö hús" fyrir krabbameinssjúk- linga og aðstandendur þeinra ! Skóg- arhlíö 8 áfimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra I « 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: « 91-622280, beint samband viö lækni/hjúknmar- fræöing á miövikudögum kl. 18 til 19, annars simsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91- 21205, húsaskjól og aöstoö viö konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eða oröiö fyrir nauögun. Kvennaráðgjöftn Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opiö þriöjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, « 91-21500, sfmsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröiö hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500, slmsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: « 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöö fyrir konur og böm sem orðið hafa fýrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: « 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, « 652936. GENGIÐ 9. nóvember1990 Sala Bandaríkjadollar.........54,71100 Steriingspund..........107,18000 Kanadadollar............46,85100 Dönsk króna...............9,57220 9,80730 15,32710 Franskurfranki 10,90280 1,77660 Svissneskur franki 43,59360 32,46400 36,61980 Itölsk l’irá 0,04869 Austurrlskur sch.............5,20680 Portúgalskur escudo......... 0,41560 Spánskur peseti..............0,58030 Japanskt jen................0,42041 Irskt pund..................98,16300 KBOSSGÁTA m 7 12 16 21 17 ■ 4 5 n ■ ■ ■ * 10 11 13 ■ ■ “ 18 ■ ■ 20 Lárétt: 1 stoð 4 svipur 6 skemmd 7 ganga 9 birta 12 maðkar 14 plp- ur 15 hratt 16 reifan 19 afturenda 20 þekkt 21 sterkir Lóðrétt: 2 súld 3 mjög 4 erfiöa 5 hljóöi 7 vikna 8 gaffall 10 peningar 11 sparsamur 13 sam- koma 17 svif 18 keyri Lausn á siðustu krossgátu Lárétt: 1 óþo! 4 skær 6 afl 7 báru 9 óvit 12 ön- ugi 14 ráö 15 tál 16 Uröur 19 afti 20 nauð 21 stian Lóðrétt: 2 þjá 3 laun 4 slóg 5 æöl 7 borgar 8 rööuls 10vitran 11 tal- aöi 13 urö 17 rit 18 Una Laugardagur 10. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.