Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 13
Útvarpsleikhúsið:
RÓSA eftir Peter Barnes.
Þýðandi: Úlfur Hjörvar.
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs-
dóttir.
Hljóðritun: Georg Magnússon.
Leikari mánaðarins er nýlegur
þáttur í dagskrá Útvarpsleikhúss-
ins.
Listamaðurinn sem hlaut
þarm heiður í nóvember var Krist-
björg Kjeld.
Hún flutti einleik eftir Peter
Bames. Eintal Rósu er ,eitt af sjö
eintölum sem hann skrifaði fyrir
BBC og voru þau flutt í röð 1981.
Þá fór Glenda Jackson með ein-
talið á minnisstæðan hátt. Síðan
hefur Bames skrifað tvítöl og
Kjeld
þrítöl fyrir BBC og væri full
ástæða til að flytja þessi verk í út-
varpinu.
Fyrir flutninginn á einleikn-
um var stutt viðtal við Kristbjörgu
sem var um margt ffóðlegt þótt
vel hefði spyijandi mátt kynna sér
feril hennar betur. Kristbjörg kom
til starfa við Þjóðleikhúsið meðan
hún var enn við nám og fyrstu
þrjú árin sem hún starfaði þar
vom henni falin fimm hlutverk,
þijú þeirra veigamest. Fyrstu tíu
árin sem hún var við Þjóðleikhús-
ið vann hún alfarið með þrem
leikstjórum, fyrst Baldvin Hall-
dórsyni, þá Gunnari Eyjólfssyni
og undir það síðasta með Bene-
dikt Ámasyni. Aðspurð um að-
stöðu leikara og hvort einhver
væri til staðar í leikhúsinu sem
ynni að þroska leikaranna minnt-
ist hún hvorki á leikstjóra sína
heilan áratug né Guðlaug Rósin-
krans sem bar hag hennar meira
fyrir bijósti en margra annarra
leikkvenna í þann tíma. En svona
leikur tíminn mat fólks á ævinni.
Ljóst var á svörum hennar um
leik að leikhugsun hennar er ótrú-
lega nærri innlifun. Hún er þannig
í beinu áframhaldi af menntun
þeirra leikstjóra sem ólu hana
upp. Ekki kunni spyrillinn slík
skil á sögu listakonunnar að spurt
væri um hlut Kristbjargar að
stofnun Grímu þar sem fyrstu
teikn eru að leikhúsfólk vilji
kanna nýjar brautir frá þeirri hefð
sem ríkti í leikhúsi okkar.
Ekki spurði hann heldur um
hlut Kristbjargar í fyrstu hóp-
vinnuverkunum, sundurslitinn
leikstjóraferil eða bein vinnu-
brögð svo gagn væri að. Eftirtekt-
arverð var minning hennar um
Val Gíslason í þeirri skírslu sem
hún hlaut ung stúlka í Önnu Frank
sem styður tilgátuna um að leikur
hennar mótist af innlifunartækni.
Væri óskandi að spyijendur í við-
tölum sem ku eiga að fylgja þess-
um mánaðarlega lið væru betur að
sér um feril þeirra sem við er rætt
og kunni sér hóf í því að hlaða þá
lofi augliti til auglitis. Það kemur
engum vel.
Megin Kristbjargar hefur allt-
af verið þokki hennar sem konu,
skap og raddmýkt, þótt hún hafi
lengi beitt rödd sinni í klemmu á
hærri nótum og með meiri sfyrk.
Flutningur hennar á tali Rósu
tókst ekki nema miðlungi vel.
Hana skorti þau háðhvörf sem
ganga ljósum logum í eintalinu og
eru reyndar eitt helsta stílbragð
Bames. Rósa var mædd í stað
þess að vera kaldhæðin, hofmóð-
ug í stað þess að greina aðstæður
sínar. Fyrir bragðið var reiði
hennar mæða og samúð hennar
víl. Og sá skilningur á eðli og er-
indi textans gerir eintalinu ekki
þau skil sem em sæmandi.
Örfá orð um þýðingu sem var
bókleg og snauð af talmálslegum
einkennum. I mínum huga em
„council house/flat“ bæjarblokkir
og bæjaríbúð en ekki „borgarhús“
og „borgaríbúð“ og þannig tala
þeir sem búa við tilstyrk hins op-
inbera í húsnæði. pbb
Menntamálaráðunevtiö
Styrkur til
handritarannsókna
í Kaupmannahöfn
( framhaldi af lyktum handritamálsins hafa
dönsk stjórnvöld ákveðið að veita íslenskum
fræðimanni styrk til handritarannsókna við
stofnun Árna Magnússonar (Det arnamagnæ-
anske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn
veitist til allt að tólf mánaða dvalar og nemur nú
um 15.500 dönskum krónum á mánuði, auk
ferðakostnaðar. Umsóknarfrestur er til 7. des-
ember n.k. Nánari upplýsingar um styrkinn og
tilhögun umsó,kna fást í menntamálaráðuneyt-
inu, Stofnun Árna Magnússonar á jslandi og
skrifstofu heimspekideildar Háskóla íslands.
Menntamálaráðuneytið,
8. nóvember 1990
Lóðaúthlutun
Kópavogskaupstaður auglýsir lóðir í „Digra-
neshlíðum" (þ.e. sunnan Digranesvegar og
austan Bröttubrekku) til úthlutunar.
Um er að ræða 42 einbýlishúsalóðir, 14 lóðir
fyrir parhús, 4 raðhúsalóðir og 40 íbúðir í sam-
byggðum tvíbýlishúsum.
Gert er ráð fyrir að hefja megi byggingarfram-
kvæmdir í ágúst 1991.
Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingar-
skilmálar svo og umsóknareyðublöð liggja
frammi á tæknideild Kópavogskaupstaðar að
Fannborg 2, 3. hæð, frá þriðjud. 13. nóv. n.k. kl.
9.00-15.00.
Umsóknum skal skila á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 27. nóv. 1990.
Bæjarstjórinn í Kópavogi
Húseign á Tálknafirði
Kauptilboð oskast í vélaverkstæðishús við
Strandveg á Tálknafirði samtals 428 rúmm. að
stærð. Brunabótamat er kr. 3.201.000,-.
Húsið verður til sýnis í samráði við Stefán
Skarphéðinsson sýslumann, Patreksfirði (sími:
94-1187). Tilboðseyðublöð eru afhent á staðn-
um og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7,
Reykjavík.
Skrifleg tilboð óskast send skrifstofu vorri að
Borgartúni 7, Reykjavík, fyrirkl. 11.00 þann 21.
nóvember 1990.
INIMKAUPASTOFNUIM RIKISINS
________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK ______
t"
Ólafsvíkurvegur um Mýrar 1990
''/V/Æ m Vegagerð ríkisinsóskareftirtilboðum í ofan- ' greint verk. Lengd kafla 7,4 km, fyllingar 60.000 rúmm., skeringar 8.000 rúmm., burðariag 43.000 rúmm. og klæðing 45.000 fermetrar. Verki skal lokið 15. ágúst 1992. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rík- isins ( Borgarnesi og Reykjavik (aðalgjald- kera) frá og með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 26. nóvember 1990.
Vegamálastjóri
*-
Innritun,
starfsþjálfun fatlaðra
Hafin er móttaka umsókna fyrir vorönn 1991.
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember.
Fostöðumaður veitir nánari upplýsingar og tek-
ur á móti umsóknum í síma 29380.
Skriflegar umsóknir sendist Starfsþjálfun fatl-
aðra, Hátúni 10a.
Forstöðumaður
viðurkenningardeildar
Löggildingarstofunnar
Vegna aukinna og breyttra verkefna Löggild-
ingarstofunnar er nú unnið að endurskipulagn-
ingu hennar, en stofnuninni er nú m.a. ætlað að
taka að sér viðurkenningu (accreditation) á
vottunar- og prófunarstofum í samræmi við
Evrópustaðla EN 45 Oxx.
Leitað er eftir starfsmanni til þess aö byggja
upp og veita forstöðu viðurkenningardeild Lög-
gildingarstofunnar. Hann þarf að hafa háskóla-
próf í verkfræði eða skyldum greinum auk
reynslu í skipulagningu og stjórnun á gæða-
kerfum. Leitað er að manni, sem hefur góða
framkomu og á auðvelt með samskipti við aðra,
jafnt innanlands sem utan.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skal senda til viðskiptaráðuneytisins,
Arnarhvoli, 150 Reykjavík eigi síðar en föstu-
daginn 14. desembern.k.
Upplýsingar um starfið veitir Finnur Svein-
björnsson, viðskiptaráðuneytinu, í síma
(91)609436.
Viðskiptaráðuneytið,
6. nóvember 1990
091104.saf
Auglýsendur athugið! ^
Jólagjafehanctoók Þjóöyiíjans
kemur út 11. desember í 40 þús. eintökum og
verður borin út á höfuöborgarsvæöinu. Aö
auki til áskrifenda um land ailt.
Auglýsendur, sem hafa áhuga á að koma
augiýsingu í handbókina. vmsamlegast hafi
samöand við auglýsingadeild sem allra fyrst
og eigi síöar en 5. desember.
oÞioðviljinn
VIV Símar 681310 og 681331
ALÞÝÐUB AND AL AGIÐ
Alþýðubandalagið I Kópavogi
Opið hús
Opið hús í Þinghóli laugardaginn 10. nóvember kl. 10 til 12.
Elsa S. Þorkelsdóttir bæjarfulltrúi og Svanhildur Skaptadóttir full-
trúi ABK I umhverfisráði verða með heitt kaffi á könnunni.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalagið I Akureyri
Aðalfundur bæjarmálaráös
Aðalfundur bæjarmálaráðs verður haldinn mánudaginn 12. nóv-
ember kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
Dagskrá:
1. Kosin ný stjórn bæjarmálaráðs.
2. Rætt um stöðuna I bæjarmálum, meirihlutasamstarfið og starf-
ið framundan.
Félagar eru hvattir til að mæta. Stjórnin
Alþýðubandalagið I Kópavogi
Spilakvöld
Þriggja kvölda keppni hefst í Þinghóli, Hamraborg 11, þriðju hæð,
mánudaginn 12. nóvember kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjómin
Laugardagsfundur ABR
Málefni unglinga
Laugardaginn 17. nóvember nk. kl. 10 fyrir hádegi verður félags-
fundur að Hverfisgötu 105.
Á fundinum verður rætt um hvert stefnir [ málefnum unglinga í
Reykjavfk í dag og hvaða leiöir séu til úrbóta.
Myndi t.d. unglingahús í miöbænum verða til bóta?
Framsögur og umræður.
Félagar, fjölmennið á fundinn og takið þátt í umræðum.
Alþýðubandalagiö t Reykjavík
Æskulýðsfylkingin f Reykjavík
Leið íslands til markaðsbúskapar
500 daga áætlun Þjóðlífs
Birting boðartil opins stjórnmálafundar fimmtudaginn 15. nóvem-
ber í Arsal Hótel Sögu og hefst hann kl. 20.30.
Forystumenn I (slenskum stjórnmálaflokkum, þau Friðrik Sop-
husson, Kristin Einarsdóttir, Jón Sigurðsson, Ólafur Ragnar
Grímsson og Steingrímur Hermannsson ræða um áætlunina og
segja álit sitt á henni.
Eftir framsöguræðumar verða pallborðsumræður með fyrirspurn-
um úr sal, sem höfundar áætlunarinnar, þeir Guðmundur Olafs-
son hagfræðingur og Jóhann Antonsson viðskiptafræðingurtaka
þátt í.
Fundarstjóri verður Svanfriður Jónasdóttir.
Laugardagur 10. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 13