Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 6
VIÐHORF (Að) kjaft(a 0 æði Þjóðviljinn birti viðtal við Ól- af Ragnar Grimsson siðastliðinn laugardag. Umræðuefnið var miðstjómarfundur Alþýðubanda- lagsins á Akureyri og pólitísk sýn formannsins. Margt er þar miss- agt, en ekki hirði ég um að tína nema fátt eitt til, einkum þarsem orðum er vikið að mér á einkar smekkvísan hátt svo sem for- manninum einum er lagið. „Breiða miðjan“ Fyrst ber að nefna stoltið yfir árangri flokksins í ríkisstjóm sem formaðurinn vill deila með hinni „nýju og breiðu miðju“, miðju sem reyndar taldi ekki nema um 30 manns á Akureyrarfundinum af miðstjóm með um 110 atkvæð- isbæra félaga. Stoltinu get ég ekki deilt og veldur þar margt. Birna Þórðardóttir blaðamaður skrifar Ég get ekki verið stolt af for- ystumönnum sem tala tungum tveim, eflir því hvort þeir verma ráðherrastóla eða ekki. Ég er ekki stolt af mönnum sem segjast veija samningsrétt en ógilda kjara- samninga. Ég er ekki stolt af mönnum sem segjast tryggja fé- lagsleg réttindi, en skera niður greiðslur í atvinnuleysistrygg- ingasjóð. Ég er ekki stolt af stjóm sem viðheldur matarskatti. Ég er ekki stolt af stjóm sem opnar allar gáttir fyrir erlent fjármagn og er- lendar fjárfestingar. Ég er ekki stolt af auknum möguleikum til skattfijálsra fjármagnstekna um leið og ekki er sagt færi á hátekju- skattþrepi. Ég er ekki stolt af mönntim sem segjast fara í stjóm tilað bjarga landsbygðinni, en gera ekkert raunhæft í atvinnuupp- byggingu á þeim stöðum sem eru að leggjast í rúst. Ég er ekki stolt af mönnum sem segjast fara í stjóm tilað forðast álver, en sjá engan annan atvinnumöguleika. Ég er ekki stolt af mönnum sem segjast stefna á samfelldan skóla- dag, en fækka kennslustundum hjá sex ára bömum, og ég er ekki stolt af hugmyndum um skóla- gjöld. Ég er ekki stolt af mönnum sem sjá setu sinni best borgið með þvi að deila og drottna og kynda undir úlfiið og tortryggni á milli langskólagenginna og þeirra sem skemmri skólagöngu hafa að baki. Ekkert af þessu vekur mér stolt. „Raunveruleika- bandalagið“ Raunveruleikabandalag er bjargarorðið ffá Akureyrar- fund- inum. „Flokkurinn er kominn með fætuma á jörðina," segir for- maðurinn og hættur „óraunhæfu hjali“. Það má véra að raunveruleiki Ólafs Grímssonar felist í að pen- ingamir arti sig sem best á fjár- magnsmarkaðnum; að „óraun- hæft hjal“ felist í kröfum um þjóðfélag þar sem einstaklingam- ir hafa færi á að ákvarða eigin til- vist og tilvistarmöguleika, þjóð- félag þar sem þegnamir allir geta lifað mannsæmandi lífí, þjóðfélag þar sem samfélagsleg og sameig- inleg ábyrgð er ríkjandi. En þá er okkar raunvemleiki ekki sá sami. Raunveruleika, þar sem stórir hópar launamanna geta ekki ffamfleytt sér þrátt fyrir óskert vinnuframlag, tek ég ekki þegj- andi. Raunveruleiki þar sem böm ganga sjálfala, vegna þess að samfélagið neitar ábyrgð, er rang- látur. Raunvemleiki, sem dæmir mörg hundruð manneskjur til lít- ilsvirðingar atvinnuleysis mánuð- um saman, er óþolandi. Raun- vemleiki, sem neitar gömlu fólki um nauðsynlega aðhlynningu, er siðlaus. Ólafúr Grímsson minnist ekki á þennan raunvemleika, vegna þess að honum er efst i huga að klekkja á einstaklingum innan Alþýðubandalagsins og sitja jafnframt sem fastast í þeim ráðherrastóli sem enginn hefúr kosið hann til. í raun er ,yaun- vemleikabandalagið“ stefna þeirra, sem sitja vilja í stjómar- stólum hveiju sem þarf að fóma. „KjafMN eg hufjar6rar“ Þá er komið að ,Jcjattæðinu“ í Bimu Þórðardóttur og „hugarór- um“ hennar sem Ó. Grímsson kýs að nefna svo í viðtalinu: „Birna Þórðardóttir, sem gekk út af mið- stjómarfúndinum, sagði í ræðu: „Þessi ríkisstjóm hefúr lagt hina skipulögðu verkalýðshreyfingu í rúst“. Hvílíkt kjaftæði" Hér ger- ist fjármálaráðherrann einkar málefhalegur. Lesendum til glöggvunar fer hér á eftir umræddur kafli úr ræðu minni á Akureyri: „Það versta við setu Alþýðu- bandalagsins í núverandi ríkis- stjóm er þó, að flokkurinn hefúr að miklu leyti rústað eigin til- vemgrundvelli, sem hefúr byggst á hinni skipulögðu verkalýðs- hreyfingu - þegar búið er að bijóta hana niður þá er ekkert eft- ir. Og það hefúr verið gengið fram í því að bijóta verkalýðs- hreyfmguna niður kjaralega, fé- lagslega og ekki síst siðferðiíega. Ekki einungis að ríkisstjómin hafi sett lög á eigin samninga og á dómsúrskurð, heldur tókst henni líka að ógilda alla sjálfstæða kjar- abaráttu. Hver endist til að vera í spomm sisífosar og velta stöðugt upp steini kjarasamninga sem síð- an er sparkað í með einu bráða- birgðalagasparki? En ríkisstjóminni tókst líka að sundra samtökum launafólks enn meira en áður var, og var þó sundrungin ærin fyrir. Með bráðabirgðalögðunum skaut hún sér á bakvið hluta verkalýðsfor- ystunnar og kröfúr hennar um lagasetningu. BSRB- forystan mótmælti vissulega bráðabirgða- lögunum og ýmsir forystumenn innan ASI, t.d. innan miðstjómar ASÍ, lýstu einnig yfir andstöðu við lagasetningu. Én því miður gekkst hluti verkalýðsforystunnar inná það, að kjarasamningar ann- arra væm ógiltir á þennan hátt - og hvað verður nú hægt að segja þegar okkar samningar verða næst ógiltir? Það er nefnilega enginn munur að ógilda kjara- samninga pínulítið eða heilmikið, annaðhvort em þeir í gildi eða ekki. Hvemig mun ASÍ t.d. geta óskað eftir samstöðu frá öðrum - verði ráðist á félaga þess með lagasetningu eða öðm? Þessi gjörð ríkisstjómarinnar er hin versta allra, því hún eyðileggur ffamtíðarmöguleika launafólks.“ Þetta nefnir formaðurinn „kjaftæði“ og „hugaróra“. Ég vildi óska að satt væri, en ansi er ég hrædd um að vopn launafólks bíti lítt í bili. Launafólk gengur nú enn einu sinni þá gönguna að hver sé sjálfúm sér næstur. Einka- samningur og einkapot er kjörorð dagsins, eins og ætíð þegar gerðir em kjarasamningar sem ekki er unnt að lifa af. Þetta veldur trún- aðarbresti meðal launafólks. Eflir sitja síðan stórir hópar á töxtun- um, fyrst og fremst konur, sem verða að reyna að næla í auka- og yfirvinnu sé þess kostur. Félags- legar afleiðingar þess eigum við eftir að upplifa í vandamálum bama okkar. Siðferðilega er hreyfingin brostin vegna þess að hluti hennar hefúr tekið þátt í að vefa okkar eigin fjötra. Ólafúr Grímsson segir að andstætt „hugarómm" mínum hafi ríkisstjómin „með raunvem- leikatengslin“ náið samstarf við yfir 90% verkalýðshreyfingarinn- ar og vísar þar til þjóðarsáttarinn- ar. A Akureyri kvað hann þúsund- ir hafa tekið þátt í afgreiðslu þjóð- arsáttarinnar. Ekki er svo. Ef ein- ungis em tekin dæmi af tveimur stærstu verkalýðsfélögum lands- ins, þá fór atkvæðagreiðsla í Dagsbrún þannig að já sögðu 216 en 179 sögðu nei, af 3.500-4.000 aðalfélögum. Hjá Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur sögðu 774já en 171 nei. A kjörskrá vora tæp 10.000 og allsheijaratkvæða- greiðsla viðhöfð sem stóð í tvo daga. Raunvemieikinn er einfald- lega sá, að félagar verkalýðs- hreyfingarinnar sjá ekki mögu- leika til þess að leita annarra leiða en lagðar em upp af forystusveit- inni hveiju simi. Ólafiír Gríms- son getur að sjálfsögðu hreykt sér yfir þeim vanmætti. En vonandi verður drambið þar falli næst. Það er ef til vill vegna þess sem viðtali Þjóðviljans við Ólaf Grimsson lýkur á þeirri yfirlýs- ingu um eiginn árangur og ágæti síðustu þijú árin, að það sé „ekki endilega sjálfgefið að menn þurfi að vera á Alþingi til að ná þessum árangri“. Allur er varinn góður ef ekki næst öraggt sæti, þrátt fyrir að margt sé kjaftað i æði. Ólafúr Grimsson segir að milli sín og mín „geti engin sam- leið verið í flokki". Þótt uppflosn- aðir Framsóknarmenn séu ekki mín pólitíska uppáhaldstegimd, læt ég ekki Ólaf Grímsson ráða mínum pólitíska dvalarstað. 7. nóvember 1990 Birna Þórðardóttir 6 Sl€)A—■ ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 10. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.