Þjóðviljinn - 14.11.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 14.11.1990, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 14. nóvember 1990 — 215. tölublað 55. árgangur Sorphirða Sérstakur sorpskattur Sorphirðu- og endurvinnslunefnd umhverfisráðherra: Neytendur borgi sorphirðukostnað sérstaklega samkvœmt reikningi. Neytendur geti skilið umbúðir eftir í verslunum. Eyðingargjald verði lagt á vörur. Skilagjald á bíla. Endurvinnsla verður að borga sig Sorphiröa er mjög kostnaðarsöm. Nefnd á vegum umhverfismálaráöherra telur rétt að neytendur veröi látnir greiða sérstaklega fyrir sorphiröuna ( framttðinni. Mynd Kristinn. Neytendur verði Iátnir borga reikninginn vegna sorp- hirðu sérstaklega svo fólk geri sér grein fyrir kostnaði vegna hennar. Umhverfisgjald verði lagt ofan á verð ýmissa vara sem eru umhverfinu hættuleg- ar. Sett verði lög sem heimila fólki að skilja umbúðir eftir í verslunum. Þetta eru nokkur atriði í hug- myndum að tillögum sem ræddar hafa verið í nefnd umhverfisráð- herra um sorphirðu og endur- vinnslu. Hugmyndimar verða kynntar á ráðstefnu sveitarfélaga og fleiri aðila um sorp- og skolp- mál sem hefst á morgun. Pétur K.. Maack, formaður nefndarinnar, segir i samtali við Þjóðviljann að nefhdin kynni þessar niðurstöður á ráðstefnunni til þess að fá viðbrögð, en að hún muni skila endanlega af sér upp úr áramótum. í hugmyndum nefndarinnar er gert ráð fyrir að sveitarfélög komi á fót 3-15 byggðasamlögum sem verði kjölfesta í sorphirðumálum. Þannig er ekki gert ráð fyrir að hvert sveitarfélag fyrir sig eyði sorpi, heldur verði sorp flutt milli staða til eyðingar. Nefhdin telur að setja verði reglugerð um umhverfisgjald á þær vörur sem innihalda hættuleg efni. Hún vill jafnframt að tryggt verði að gjaldið renni allt til þeirra sem annast söfnun, mót- töku og forgun. Þá telur nefndin að setja eigi lög um skilagjald á bíla. Að sögn Péturs K. Maack er sérstök áhersla lögð á að sérúr- gangur blandist ekki neyslu- og framleiðsluúrgangi, en nefndar- menn hafa rætt um að endur- vinnsla verði rekin frá hreinu við- skiptalegu sjónarmiði. - Endurvinnsla verður að fá að þróast. En ef það er ódýrara að urða sorpið á að gera það. Skipu- leg endurvinnsla af hálfu ríkisins skilar engu. Það sannar reynslan því miður, segir Pétur. Hins vegar eiga sveitarfélög að geta skyldað einstaklinga og fyrirtæki til þess að skila sorpi flokkuðu. Sú hugmynd hefúr einnig ver- ið rædd i nefndinni að ríkið greiði um 100 miljónir króna á ári næstu flmm árin til þess að aðstoða byggðasamlög við að koma sorp- hirðu í betra horf. -gg Síld Gatt-viðrœðurnar Aukið frjálslyndi boðað Boð íslands: Dregið verði úr útflutningsbótum ogþœr á endan- um aflagðar. Aukið frelsi í innflutningi Island býðst til að lækka út- flutningsbætur á landbún- aðarvörum um 65 prósent að raunvirði í stighækkandi áföng- um fram til ársins 1996. Þetta kemur fram í tilboði íslendinga í svo nefndum Úrúgvæ-viðræð- um GATT, en lokasprettur við- ræðnanna stendur nú yfir. Utanríkisráðherra fól í gær fastafulltrúa ísland f Genf að leggja fram tilboðið, en í því er einnig lýst yfir að ísland sé tilbú- ið eftir 1996 að lækka útflutnings- bætur enn frekar með það mark- mið i huga að afnema þær með öllu. ísland býðst til að minnka stuðning við landbúnaðarfram- leiðsluna um 25 prósent í stig- hækkandi áfongum fram til ársins 1996 og hyggst nota til viðmiðun- ar grunnstig AMS- útreikning- anna svo kölluðu fyrir árið 1988. AMS mælir heildarstuðning ríkis við atvinnugrein og er grunnstigið sá stuðningur sem ætlast er til að hverfi. í AMS-tölunum fyrir Is- land fyrir árið 1988 kemur fram að þá var stuðningurinn 7.276 miljónir kr. miðað við grunnstig- ið. Þvi býðst ísland til þess að skera stuðninginn niður um tæpa tvo miljarða eða 1.819 miljónir kr. auk niðurskurðar á útflutn- ingsbótum. Lýst er yfir i inngangi tilboðs- ins að það sé gert með fyrirvara um tilboð annarra ríkja og áskilur ísland sér rétt til breytinga. Þar kemur fram að íslendingar leggja mikla áherslu á hagsmuni sem ekki eru viðskiptalegs eðlis, nefnilega að landið geti framleitt næg matvæli til að sinna innan- landsþörf sem og varðandi upp- byggingu á landsbyggðinni. I tilboðinu segir að innflutn- ingur á landbúnaðarvörum til landsins sé ftjálslegur en boðist er til að auka það frjálslyndi varð- andi innflutning unninna mjólk- urvara og kjöts, nema hvað hægt verði að setja skorður á magn inn- flutnings vegna öryggiskrafna um heilbrigði og vegna legu landsins. Enn verður bannað að flytja inn til landsins lifandi búfénað, nýmjólk og hrátt kjöt, bæði nýtt og frosið, og bent er á að íslenskum búfén- aði sé sökum langvinnrar einangr- unar hætt við sjúkdómum ýmiss- konar. -gpm Skellur fyrir sjómenn Óskar Vigfússon: Mjög efins um að Sovétmenn kaupi meira en fimmtíu þúsund tunnur af saltsíld. Þýðir helmings tekjutap fyrir sjómenn Eg hef það nú einhvern veginn á tilfinningunni að Sovét- menn muni fyrr eða síðar standa við þennan samning um kaup á fimmtíu þúsund tunnum af saltsíld. Hinsvegar er ég mjög efins um að þeir kaupi meira og það þýðir að sfldarsjómenn munu missa allt að helming sinna tekna, sem er stórkostlegt brot á þjóðarsáttinni, segir Ósk- ar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands. Óskar er nýkominn heim frá Moskvu þar sem hann var einn þriggja síldarútvegsmanna sem þangað fóru til viðræðna við Sov- étmenn um saltsíldarkaup á yfír- standandi vertíð. Hann sagði að samninganefhdin hefði getað þok- að saltsildarmálinu upp eftir stjómstiganum í kerfmu þar ytra og framhaldið væri nú í höndum sovésku ríkisstjómarinnar. Þrátt fyrir þessa erfiðleika á sölu saltsíldar til Sovétríkjanna var í gær búið að salta í um fimm- tíu þúsund tunnur fyrir Norður- landa-, Kanada- og Bandaríkja- markað. Góð síldveiði hefúr verið á gmnnslóð við Suðausturland og í gær var Ingvi Rafh og áhöfii hans á Guðmundi Kristni að landa á Fá- skrúðsfirði 150-160 tonnum af ágætissíld sem fékkst á 8-6 faðma dýpi, fjórar sjómílur vestan við Hvanney. -grh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.