Þjóðviljinn - 14.11.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.11.1990, Blaðsíða 3
FRETTIR Vesturlandskonur Nær 5 prósent atvinnuleysi 4,8 prósent atvinnuleysi kvenna á Vesturlandi í október. 115 konur á á Akranesi á atvinnuleysis- skrá. Mikið atvinnuleysi kvenna á Suðurnesjum, Austurlandi og á Norðurlandi Nær fimm prósent kvenna á Vesturiandi voru á atvinnu- leysisskrá í síðasta mánuði, en atvinnuleysi kvenna er einnig mjög mikið á Suðurnesjum, Austurlandi og á Norðurlandi. Atvinnuleysi á landinu öllu var 14 af hundraði meira í október en í september. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu frá vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins. Þar kemur fram að atvinnu- leysi á landinu öllu nam 1,1 af hundraði í október, en það var mun meira meðal kvenna en karla. 1,1 prósent atvinnuleysi jafngildir því, að um 1500 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá all- an mánuðinn. Minnst er atvinnuleysið á Vestfjörðum, eða 0,2 af hundraði, en mest á Vesturlandi og Norður- landi eystra, 2,3 prósent. Sem fyrr segir er atvinnuleysi mun meira meðal kvenna en karla. Atvinnuleysi kvenna nam 1,6 af hundraði, en 0,8 prósent karla voru á atvinnu í október. Atvinnuleysi er hlutfallslega langmest á Akranesi og þar jókst atvinnuleysi um nær þriðjung frá í september. Þar eru 115 konur á atvinnuleysisskrá. Atvinnuleysið stóð nokkum veginn í stað á höf- uðborgarsvæðinu, en jókst nokk- uð á Akureyri. Þar voru 174 á skrá í október, en 152 í septem- ber. Umtalsvert atvinnuleysi er enn á Seyðisfirði. -gg AB Suðurlandi Margrét efst Margrét Frímannsdóttir al- þingismaður varð efst í fyrri hluta forvals Alþýðu- bandaiagsjns á Suðurlandi, en Ragnar Óskarsson bæjarfull- trúi Vestmannaeyjum fylgdi fast á eftir. Hlutu þau bæði yfir 80% tilnefninga. Töluverður munur var á þeim tveim og hópi manna sem komu næstir, en þar á meðal var Unnar Þór Böðvarsson, kennari í Bisk- upstungum, sem skipaði þriðja sæti listans í siðustu alþingiskosn- ingum. Að sögn Hilmars Gunnars- sonar formanns kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi verður seinni umferð forvalsins dagana 23. og 24. nóvember. Stefht er að þvi að kjömefnd komi saman 25. nóvember og raði end- anlega á listann. -Sáf Húsbréf Hærri vextir Akveðið var í gær að gefa út nýjan flokk húsbréfa uppá þrjá miljarða króna og hækka vexti bréfanna úr 5,75 prósent- um í 6,0 prósent. Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra sagði ástæðuna fyrir hækkuninni vera að færa vextina til samræmis við vexti annarra skuldabréfa og eins til að minnka affollin og tryggja að ekki komi til hækkunar á fasteigna- verði. Hún benti á að Seðlabank- inn hefði mælt með 6,5 prósenta vöxtum en að stjóm Húsnæðis- stofnunar hefði ákveðið sex pró- sentin. Hún sagði að við vaxtahækk- unina fæm afíoll bréfanna niður fyrir 10 prósent en affollin em nú um 11,7 prósent. Einnig er líklegt að þetta liðki fyrir sölu bréfanna, en nú á t.d. Landsbankinn mikið af óseldum húsbréfum. Jóhanna taldi að lífeyrissjóðimir ættu að kaupa mun meira en þeir gera því þeir fengju ekki hagstæðari ávöxtunarkost neinsstaðar ann- arsstaðar. -gpm r Isaíjörður Harkaleg lending egar flugvélin var yfir flug- brautinni skall hún harka- Iega niður og við það rifnaði af Revkiavík Óbreytt útsvar Borgarráð ákvað í gær að Reykvíkingar skuli greiða 6,7 af hundraði tekna sinn í útsvar á næsta ári, en það er sama hlutfall og i ár. Ibúar annarra sveitarfélaga greiða allt að 7,5 prósentum í út- svar. Sveitarfélögum ber að ákveða útsvarshlutfall næsta árs fyrir 1. desember. stéldrag hennar sem er úr gúmmíi. Maður kipptist auðvit- að til í sætinu en allir farþegar héldu þó ró sinni,“ sagði Páll Sigurðsson lögregluþjónn sem var farþegi í áætlunarflugi Flugleiða til ísafjarðar í gær. Páll sagði að vélin hefði ofris- ið í lendingu og trúlega hefði það verið vegna misvinda í Skutuls- firði þegar vélin kom inn til lend- ingar, en hvasst var að austan þeg- ar óhappið gerðist. Páll sagði að aðflugið inn fjörðinn hefði verið mjög erfitt því vélin hefði titraði öll og skolfið. Fokker-flugvélin var þéttsetin farþegum sem vom að koma frá Reykjavík og hélt hún stuttu seinna for sinni áfram suður, eins og ekkert hefði í skorist. grh ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Óhætt mun vera að fullyrða að engin lognmolla sé (kringum þessa herramenn um þessar mundir. Óskar Via- fússon t.v. setur sautjánda þing Sjómannasambandsins I dag og þeir Guðjón A. Kristjánsson, formaður FFSi, og Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, virðast eiga annasama daga framundan við að ná ásættanlegri lausn I kjaradeilu yfirmanna á fiskiskipum við útvegsmenn. Mynd: Jim Smart Jafnt skal yf ir alla ganga Eg skil afskaplega vel af- stöðu Farmanna- og fiski- mannasambands íslands þar sem samningar hafa verið gerð- ir við félaga þeirra fyrir vestan sem ekki eiga að ná til annarra aðildarfélaga FFSÍ. Það finnst mér alveg forkastanlegt. Það á jafnt yfir alla að ganga og að þessu leyti setjum við okkur al- gjörlega upp að hlið yfirmanna á fiskiskipum,“ sagði Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands Islands. í dag hefst sautjánda Sjó- mannasambandsþing en þau eru haldin á tveggja ára fresti. Rétt til setu á þinginu hafa um fimmtíu þingfulltrúar af öllu landinu að undanskildum sjómannafélögum á sunnanverðum Vestfjörðum sem ekki eru aðilar að Sjómanna- sambandinu heldur láta sér nægja að vera aðilar að Alþýðusam- bandi Vestfjarða. Þingið stendur í þijá daga og lýkur á fostudag. Aðalmál þingsins verða eins og svo oft áður kjaramál og ör- yggismál sjómanna sem að þessu sinni verða rædd í skugga yfirvof- andi verkfalls hjá yfirmönnum á fiskiskipum. Yfirmennimir hafa boðað verkfall á hádegi þriðju- daginn 20. nóvember næstkom- andi eða eftir tæpa viku, hafi ekki náðst samkomulag við útvegs- menn fyrir þann tíma. Þá verða öryggismálin einnig fyrirferða- mikill þáttur á þinginu nú sem endranær enda sá málaflokkur sem ekki er hægt að afgreiða í eitt skipti fyrir öll. Samiö á Vestf jörðum Öll aðildarfélög Sjómanna- sambands íslands að Sjómannafé- lagi ísfirðinga imdanskildu hafa haft lausa samninga ffá áramótum og eitt af aðalverkefnum þingsins verður að móta stefnu þess i kjaramálum. Þar sem Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan á Vestíjörðum hefur samið við Út- vegsmannafélag Vestfjarða og sá samningur verið samþykktur með þorra greiddra atkvæða hjá fé- lagsmönnum Bylgjunnar er ljóst að ekki mun koma til verkfalls þar vestra. Það vofir hins vegar yfir meðal annarra aðildarfélaga yfirmanna á fiskiskipum og komi það til ffamkvæmda eflir tæpa viku, verður sjálfhætt hjá undir- mönnum sem vafalaust verður sagt upp með hefðbundnum hætti. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélag Reykja- víkur, segir að boðað verkfall yf- irmanna á fiskiskipum, á hádegi á þriðjudag í næstu viku, sé tíma- skekkja. Mörg skip séu langt komin með að fiska upp í kvóta sína og ennfremur sé stutt til ára- móta. Að mati Guðmundar hefði verið miklu nær af hálfu forystu- mana FFSÍ að boða til verkfalls þann 20. janúar á nýbyijuðu fisk- veiðiári, sem er miklu betri tími til verkfallsátaka en í endaðan nóvember. Guðmundur Hallvarðsson segir að deila yfirmanna á fiski- skipum hljóti að leiða til þess að félög undirmanna geri efnislega sömu kröfur á hendur útvegs- mönnum og þeir. Hann segir að afstaða sjómanna til kjaramála sé raunar tvíþætt: Annarsvegar þeir sem telja að þjóðarsátt aðila vinnumarkaðarins hafi markað brautina og svo hinir sem telja að sjómenn séu lægra settir en aðrir í réttindamálum og á þau mið eigi í BRENNIDEPLI Óskar Vigfússon for- maður Sjómannasam- bandsins segir að undirmenn áfiski- skipum styðji yfir- menn heilshugar í kröfu þeirra á hendur útvegsmönnum að jafnt skuli yfir alla ganga að sigla í komandi samningavið- ræðum við útvegsmenn. Um þrjá kosti að velja Eins og kunnugt er féllst for- mannaráðstefha Farmanna- og fiskimannasambandsins ekki á að mæla með við sína félagsmenn því tilboði sem samninganefnd Landssambands íslenskra út- vegsmanna gerði þeim á sátta- fúndi síðastliðinn laugardag. Eins og þeim málum háttar í dag, þriðjudag, er fátt eitt sem bendir til þess að deiluaðilar nái saman fyrir boðaðan verkfalls- dag, sem er eftir tæpa viku. Verði verkfall stöðvast allur flotinn nema sá vestfirski og auglýstar vinnslustöðvanir hjá fiskvinnsl- unni koma þá til framkvæmda tæpum hálfúm mánUði seinna eða þann 3. desember næstkomandi. Að mati Guðjóns A. Krist- jánssonar, formanns Farmanna- og fiskimannasambands Islands, er aðeins um þijá kosti að ræða í stöðunni: í fyrsta lagi að LÍÚ bjóði þeim Vestfjarðasamkomu- lagið eins og það liggur fyrir. I öðru lagi að lagfæra olíuverðs- tengingu skiptahlutar enn frekar en gert hefúr verið og í þriðja lagi að fara í verkfall. Guðjón A. segir að ef til þess komi muni málið vafalaust taka allt aðra stefnu en verið hefúr og þá sé hætt við því að ffam komi sú krafa að sjómenn losi sig alfarið við olíuverðsteng- ingu skiptahlutar, eins og sumir talsmenn yfirmanna hafa áður ýj- að að. Mistök fyrir vestan Kristján Ragnarsson, formað- ur Landssambands íslenskra út- vegsmanna, segir að sú afstaða formannaráðstefnu FFSÍ að hafna tilboði útvegsmanna, hafi orðið sér mikil vonbrigði. Hann segir að útvegsmenn séu alveg bit á því ef til verkfalls komi út af tíma- kaupinu sem sé undantekningar- greiðsla í launakerfi yfirmanna. Kristján sagði jafnffamt að ákveðin mistök hefðu átt sér stað í samningum við Bylgjuna með tímakaupið en skipstjómarmenn vestra fá nú í tímakaup sem nem- ur 0,6% af kauptryggingu. Höfðu áður 395 krónur á tímann á sama tíma og aðrir skipstjómarmenn innan FFSÍ fá 318 krónur. Krist- ján segir að enginn ágreiningur sé við vélstjóra um tímakaupið en hinsvegar vilji skipstjórar og stýrimenn fá það sama og þeir sem vélstjórar vilja ekki. Ingimar Halldórsson, formað- ur Útvegsmannafélags Vest- íjarða, sem leiddi samningavið- ræðumar við Bylgjuna sagði það vera álit þeirra íyrir sunnan að gerð hafi verið mistök í tímakaup- inu, en vildi að öðm leyti ekki tjá sig um það. Erfitt úrlausnar Seinnipartinn i gær hafði rík- issáttasemjari ekki boðað deilu- aðila til fundar og er ekki búist við að næsti sáttafúndur verði fyrr en á morgun, fimmtudag. Guð- laugur Þorvaldsson sagði í gær að staðan í deilunni væri afar erfið og ómögulegt að spá nokkm um lausn hennar. Kristján Ragnarsson, formað- ur LIÚ, sagði að deiluaðilar stæðu nánast í sömu sporum og þeir gerðu áður en þeir komu til fúnd- ar hjá sáttasemjara síðastliðinn laugardag, en þá var hún í hnút. Guðjón A. Kristjánsson segir að það sé algjör grandvallar- og sanngimiskrafa af þeirra hálfú að fá sambærilega lausn sinna mála og útvegsmenn sömdu um við fé- laga þeirra fyrir vestan. Deila yfirmanna við útvegs- menn var rædd á ríkisstjómar- fúndi í morgun þar sem forsætis- ráðherra upplýsti ríkisstjómina um gang mála. Sjálfúr hafði hann verið i símasambandi við for- mann FFSÍ á mánudag þar sem Guðjón var staddur á foimanna- ráðstefnunni vestur á Isafirði. Þetta mun vera í annað skiptið sem forsætisráðherra hefúr beint samband við deiluaðila til að for- vitnast um gang mála, því í síð- ustu viku gekk samninganefnd FFSI á fúnd Steingríms að hans ffumkvæði þar sem þáverandi staða málsins var rædd. -grh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.