Þjóðviljinn - 14.11.1990, Page 6
ERLENDAR FRETTIR
Bandaríkin-Persaflóadeila
Stjórnin ráðfæri sig við þingið
Krafist að Bush geri því grein fyrir markmiðum sinum í Persaflóadeilu og að það ræði hugsan-
lega stríðsyfirlýsingu á hendur Irak
Richard Lugar, öldunga-
deildarmaður frá Indiana
og einn áhrifamestu manna
repúblíkana á Bandaríkjaþingi,
hvatti í gær Bush forseta til að
kveðja þingið sarnan til að ræða
ástand og horfur í Persaflóa-
deilu og sérstaklega hugsanlega
stríðsyfirlýsingu Bandaríkj-
anna á hendur írak.
Þessi áskorun Lugars er Iögð
fram með hliðsjón af því, að nú
„liggur í Ioflinu" að Bandarikja-
stjóm sé staðráðin í að gera hem-
aðarárás á írak ef það sleppi ekki
Kúvæt. Að vísu er ekki gert ráð
fyrir að strið skelli á við Persaflóa
á næstunni, þar eð talsverðan tíma
mun taka Bandaríkin að flytja
liðsauka á svæðið og gera aðrar
ráðstafanir til undirbúnings fyrir
sókn.
Lugar, sem er í hinni valda-
miklu utanríkismálanefnd öld-
Bændur
mótmæla
Þúsundir evrópskra bænda,
flestir svissneskir en einnig margir
frá Þýskalandi og Frakklandi,
mótmæltu í gær í Genf fyrirætlun-
um um að lækka opinbera styrki til
landbúnaðar, en bændur óttast að
þær ráðstafanir muni koma hart
niður á kjörum þeirra. Mótmæl-
endumir, sem sumir voru á hestum
og dráttarvélum, höfðu uppi mynd
af Sam frænda (óopinberu tákni
Bandaríkjanna) og er hann þar
með evrópskan bónda uppi í sér.
Bandaríkin, Ástralía, Brasilía,
Argentína og fleiri ríki leggja fast
að Evrópubandalagsríkjum að
draga stórlega úr styTkjum til land-
búnaðar.
Nígerar á
vettvang
Stjóm Vestur-Afríkuríkisins
Níger hefúr ákveðið að senda 480
hermenn, alla þjálfaða á Saharas-
öndum, í fjölþjóðlega hennn sem
safnað hefur verið gegn írak. Er
Níger annað Afríkuríkið, sem
þetta ákveður, hitt er Senegal sem
þegar hefúr 500 manna lið í Saúdi-
Arabíu. Yfir þessu nígerska liði
verður ofursti að nafni Amadou
Seyni. Samkvæmt vissum heim-
ildum er helsta „hemaðarafrek"
hans til þessa að hann lét í mars s.l.
hermenn undir sinni stjóm skjóta á
skólaböm í mótmælagöngu. Voru
nokkur þeirra drepin.
ungadeildarinnar og var áður for-
maður hennar, segir það skipta
meginmáli að Bush geri þinginu
grein fyrir markmiðum sínum í
Persaflóadeilu og fái umboð
þingsins til að ná þeim. Hann
kvaðst álíta að Saddam Hussein
íraksforseti hefði ekki tekið víg-
búnað Bandaríkjanna gegn Irak
alvarlega hingað til og m.a. þess-
vegna væri nauðsynlegt að þingið
tæki til umræðu hugsanlega form-
lega yfirlýsingu stríðs á hendur
honum. Einnig væri heppilegt að
heimurinn fengi að vita að Bush
hefði þingið á bakvið sig í öllu
sem hann gerði í deilunni.
Þessi tillaga Lugars virðist
öðmm þræði vera svar við vax-
andi gagnrýni í Bandaríkjunum á
stefúu Bush í Persaflóadeilu. Síð-
ustu daga hafa forustumenn
demókrata á þingi og biskupar
kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkj-
unum lagt fast að forsetanum að
fara þvi aðeins í stríð að fúllreynt
hafi verið áður að írak sleppi ekki
Kúvæt með friðsamlegu móti.
Fomstumenn demókrata segja að
ef Bush grípi til vopna án þess að
ráðfæra sig við þingið fýrst muni
það rýra mjög traust það er þjóðin
beri til hans. Bandaríkjaþing var
sent heim í október án þess að
stjómin léti það vita hvort leitað
yrði samþykkis þess áður en hem-
aðaraðgerðir væm hafhar við
Persaflóa, ef til þeirra kæmi. En
samkvæmt stjómarskrá er það í
verkahring þingsins að lýsa yfir
stríði fyrir hönd Bandaríkjanna.
Bandarískur almenningur
virðist einnig hafa vaxandi
áhyggjur af gangi mála í Persa-
flóadeilu og kemst einn frétta-
skýrandi svo að orði að fyrst nú sé
fólki þar almennt að verða ljóst,
að vemlegar líkur séu á að Banda-
ríkin lendi í stríði austur þar. Nið-
urstöður skoðanakönnunar á veg-
um blaðsins USA Today benda til
þess að rúmur helmingur Banda-
ríkjamanna sé að vísu ánægður
með frammistöðu forseta síns í
Persaflóadeilu, en samkvæmt nið-
urstöðum könnunar gerðrar í ág-
úst vom þá 82 af hundraði forset-
ans megin í þessum málum.
Reuter/-dþ.
r
Italía
Páf i í krossför gegn Camorru
Skorar á stjórnmálamenn að ástunda heiðarleika og atvinnurekendur
að tileinka sér hugrekki
Dæmigerö maflumorö - tveir menn hafa veriö skotnir til bana I bfl.
Jóhannes Páll páfi annar er
nú á fimm daga ferðalagi
um Napólí og nágrenni og kalla
fréttamenn það krossferð gegn
Camorrunni, mafíunni á þeim
slóðum. í gær flutti páfi ávarp í
Aversa, skammt norður af Na-
pólí, og fordæmdi þá sérstak-
lega ofbeldi Camorrunnar gegn
ólöglegum innflytjendum frá
Norður-Afríku.
Páfi sagði við áheyrendur sína
að Norður-Afríkumennimir væm
bræður þeirra og bæri því að auð-
sýna þeim gott viðmót og skiln-
ing. Fjöldi Afh'kumanna hefúr
allra síðustu ár komið yfir til Ital-
íu frá Afríku sjóleiðina, án leyfis
ítalskra yfirvalda, og er nú fjöldi
ólöglegra innflytjenda þarlendis
orðinn mikill og meiri en i nokkm
öðm landi Vestur-Evrópu. Margir
Afríkumanna þessara hafa ráðið
sig í vinnu í landbúnaðinum en
þar með komist í klær mafiuætt-
bálkanna, sem ráða miklu í at-
vinnulífi í Napólí og nágrenni og
viðar á Suður-Ítalíu. Mikið er um
að liðsmenn Camormnnar mis-
þyrmi verkamönnum þessum.
í ferðinni hefur páfi þrásinnis
fordæmt Camormna fyrir hryðju-
verk hennar og hvatt stjómmála-
menn og atvinnurekendur til stað-
festu gegn glæpasamtökum þess-
um. Það sem af er árinu hafa yfir
160 manns verið drepnir á Napól-
ísvæðinu í iilindum milli mafiu-
fjölskyldna um áhrifasvæði og
ráð yfir eiturlyíjasölu og smygli.
Meðal drepins fólks í erjum þess-
um em allmörg böm og hefur
komið fyrir að önnur böm hafi
verið látin myrða þau.
í ávörpum síðustu daga hefúr
páfi undanbragðalaust sagt við
stjómmála- og embættismenn
svæðisins að þeir eigi að ástunda
heiðarleika og koma á ný lögum
yfir svæðið. Hefur hann þar með
gefið í skyn, að ærlegheit ráða-
manna þar séu ekki upp á marga
fiska og Iög lítilsvirt. Við atvinnu-
rekendur hefúr Jóhannes Páll sagt
að þeir verði að tileinka sér hug-
rekki og hvika hvergi fyrir hótun-
um Camorrunnar. Einn helsti
gróðavegur hennar er að kúga fé
af atvinnurekendum gegn
„vemd“ og mega þeir atvinnurek-
endur, sem frábiðja sér „vemd-
ina“, búast við hinu versta af
glæpalýðnum.
Þessi krossfor páfa þykir
nokkmm tíðindum sæta og und-
anbragðalaus fordæming hans og
fleiri háttsettra ítalskra kirkju-
höfðingja undanfarið á mafíunum
þykir benda til þess að kaþólska
kirkjan hyggist beita sér eindregið
gegn glæpasamtökum þessum,
sem em ríki I ríkinu á ítallu.
Hingað til hefúr kaþólska kirkjan
sem heild þótt fara til þess að gera
vægt í sakimar gegn mafíunum,
enda þótt einstakir biskupar og
lægri klerkar hafi oft beitt sér
gegn þeim.
Reuter/-dþ.
r
Iraskur liðhlaupi
Saddam lét drepa 126 herforingja
I'r raskur höfuðsmaður, er leitað
hefur hælis sem flóttamaður í
Týrklandi, sagði fréttamönnum
í gær að íraksforseti hefði látið
taka af Hfi um 120 herforingja
við upphaf innrásarinnar í Kú-
væt og sex hershöfðingja
skömmu síðar. Dauðasök
þeirra flestra í augum einræðis-
herrans verið sú að þeir hefðu
verið mótfallnir þvi að innrás
yrði gerð í emírsdæmið.
Áður höfðu stjómarerindrekar
í Bagdað og egypskir fréttamenn
látið hafa eftir sér að um 120
menn í Iraksher hefðu verið tekn-
ir af lífi fyrir að hafa verið á móti
innrásinni. Iraksstjóm segir að
þetta sé ósatt.
Höfuðsmaðurinn, sem er ara-
bi, kom yfir _ landamærin inn í
Tyrkland frá írak 5. sept. ásamt
um 130 öðmm flóttamönnum og
eru flestir þeirra liðhlaupar úr
íraska hemum. Að höfuðsmann-
inum frátöldum eru þeir allir af
tyrkneskum ættum eða kristnir.
Höfuðsmaðurinn segist hafa
verið sendur til Kúvæt 11. ágúst
og verið þar í herdeild nálægt
landamærum Saúdi-Arabíu. Hann
segist hafa strokið vegna þess að
hann hafi ekki viljað beijast við
„íslamska bræður“ sína. Hann
segir ennfremur að meðan hann
var þar syðra hafi Kúvæt verið
eins og sláturhús, hermönnunum
hafi verið sagt að drepa alla, sem
veittu þeim einhveija mótstöðu.
Hann segist vita að hundruð
óbreyttra kúvætskra borgara hafi
verið drepnir og mörgum konum
nauðgað af íröskum hermönnum.
Herforingi þessi segir baráttu-
móð íraska hersins ekki mikinn,
enda sé hermönnunum illa séð
fyrir mat og vatni.
Reuter/-dþ.
Bandaríkjamenn
velkomnir
Nguyen Vanh Linh, aðalritari
víetnamska kommúnistaflokksins,
sagði fyrir fáum dögum í viðtali
við japanska sjónvaipsmenn að
Bandaríkjunum og Japan væri ekki
nema velkomið að nota flotastöð-
ina í Cam Ranh, þar eð Sovét-
menn, sem haft hafa afnot af stöð-
inni undanfarið, væru á forum það-
an. Hin opinbera ftéttastofa Viet-
nams skýrði frá þessum ummælum
aðalrítarans á sunnudag.
Nýsjálendingum sleppt
David Lange, fyrrum forsætis-
ráðherra Nýja Sjálands, tilkynnti í
gær að stjóm íraks hefði lofað hon-
um að láta lausa alla nýsjálenska
gísla þarlendis, 17 talsins. Lange,
sem var leiðtogi nýsjálenska
Verkamannaflokksins og sagði af
sér embætti forsætisráðherra í
fýrra, er einn allnokkurra fýrr- og
núverandi framámanna sem lagt
hafa leið sína til Bagdað til bjargar
mönnum þeim er írakar hafa í gísl-
ingu.
Óskað eftir Evrópuher
Talsmenn kristilegra demó-
krata og Kristilega sósíalsam-
bandsins, stjómarflokka í Þýska-
landi, og fransks bróðurflokks
þeirra létu í gær í ljós ósk um að
Evrópubandalagið kæmi sér upp
eigin Qölþjóðlegum her, þar á
meðal sérþjálfúðum liðssveitum til
vemdar „lögmætum evrópskum
öryggishagsmunum,“ sérstaklega í
Miðjarðarhafslöndum og Austur-
löndum nær. Sögðu talsmennimir
að Persaflóadeilan hefði leitt í ljós
að „Evrópa væri enn ófær um að
koma fram sem Evrópa“ og þar
með brýna nauðsyn þess að EB-
ríki samræmdu stefúu sína í örygg-
ismálum.
Sovésk
samsteypustjórn?
Borís Jeltsín, Rússlandsforseti,
sagði í gær að þeir Gorbatsjov
Sovétríkjaforseti hefðu í meginat-
riðum komist að samkomulagi um
að mynda samsteypustjóm fýrir
Sovétríkin og myndi Jeltsín út-
nefna menn í sum ráðherraembætt-
anna í þeirri stjóm. Talsmaður
Gorbatsjovs sagðist aðspurður
ekki vita til þess að þetta hefði ver-
ið ákveðið.
21 fórst
21 blökkumaður, þar af fimm
böm, fómst er fólksflutningavagn
lenti út af vegi skammt frá Jóhann-
esarborg í Suður-Afnku í gær. Þar-
lent slysavamaráð segir að 80 af
hundraði allra dauðsfalla í umferð-
inni þar í landi verði er litlar rútur,
sem blökkumenn nota, lendi í
árekstrum eða út af vegum.
KauphöllíMoskvu
Kauphöll var opnuð i Moskvu
á mánudag og er hún fýrsta þess-
konar stofnunin þarlendis frá því
að byltingin var gerð 1917. Er er-
lendum fyrirtækjum og bönkum
boðið að vera þar með.
Gráúlfur með heróín
ítalska lögreglan fann í gær 32
kíló af heróíni, sem smyglað hafði
verið inn í landið, og handtók 36
ára gamlan Tyrkja sem bjó í íbúð í
Mílanó þar sem eitrið fannst. Lög-
regla segir hinn handtekna vera í
Iiði Gráúlfa, en svo nefnast hægri-
sinnaðir tyrkneskir öfga- og
hryðjuverkamenn sem vom at-
hafnasamir á áttunda áratug.
Olíuverð lækkar
Olíuverð fer lækkandi á heims-
markaði vegna þess að ekki er bú-
ist við að til stríðs komi við Persa-
flóa næstu mánuði. í fyrradag var í
New York spáð 31,87 dollumm á
tunnu af hráolíu í desember og var
það rúmlega tveggja dollara verð-
fall frá deginum áður.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövlkudagur 14. nóvember 1990