Þjóðviljinn - 14.11.1990, Blaðsíða 9
MINNING
Kórverk
íslensk kirkjutónlist
Frá tónleikum Mótettukórs Hallgrlmskirkju fyrir nokkrum árum. Nýveriö
kom út hljómdiskur kórsins: Islensk kirkjutónlist. Mynd: C.Langensie-
pen.
Mótettukór Hallgrimskirkju
hefur í samvinnu við Ríkisútvarp-
ið nýlega gefið út hljómdisk með
islenskri kirkjutónlist.
Á diskinum er að finna
nokkra þekkta sálma séra Hall-
grims Péturssonar við útsetningar
sem ekki hafa heyrst áður. Auk
þess flytur kórinn trúarleg verk
eftir tónskáldin Hjálmar H. Ragn-
arsson, Jónas Tómasson, Þorkel
Sigurbjömsson, Gunnar Reyni
Sveinsson og Hörð Áskelsson, en
sá síðastnefndi er jafnffamt
stjómandi kórsins. Hljóðritanir
þessara verka hafa ekki verið
gefnar út áður. Sigrún Hjálmtýs-
dóttir sópran syngur einsöng með
kómum á diskinum.
Tónlistinni á hljóðrituninni
má skipta í þrennt: Nýjar útsetn-
ingar á gömlum sálmalögum við
texta Hallgríms Péturssonar, fjög-
ur kórverk sem byggja á hefð-
bundnum kirkjutextum, og að síð-
ustu tveir ffumsamdir íslenskir
sálmar.
BE
Mynd: Jim Smart
Ágúst Petersen
Kveðja frá Félagi íslenskra myndlistarmanna
Einn helsti og traustasti liðs-
maður okkar í Félagi íslenskra
myndlistarmanna er genginn á vit
feðra sina. Mér er bæði ljúft og
skylt að minnast Ágústar Petersen
örfáum orðum. Hann var kominn
af léttasta skeiði, er hann hóf nám
í Myndlistarskólanum í Reykja-
vík, sem þá nefhdist Fristunda-
málaraskólinn, og átti reyndar að-
ild að stofnun hans. Það má vissu-
lega telja Ágústi það til gildis, að
hann skyldi gera sér grein fyrir
því, að ekki nægði áhuginn og
„talentið" eitt, heldur þyrfti að
afla sér menntunar á þessu sviði
sem öðrum. Ágúst nýtti sér vel
tilsögn góðra listamanna, svo sem
Þorvaldar heitins Skúlasonar, án
þess að glata í nokkru sterkum
sérkennum sínum í myndsköpun-
inni. Hann hafði óvenjugott Iita-
og formskyn, sem að sjálfsögðu
er aðal hvers málara.
Gústi var góður félagi og
ffamganga hans öll einkenndist af
bamslegri einlægni og eldlegum
áhuga á myndlistinni. Hans verð-
ur sárt saknað í hópnum.
Eftirlifandi eiginkonu og ætt-
ingjum votta ég samúð.
Hafsteinn Austmann,
formaður Félags íslenskra
myndlistarmanna.
Auglýsendur athugið!
Jólagjafahandbók Þjóöviljans
kemur út 11. desember í 40 þús. eintökum og
verður borin út á höfuðborgarsvæðinu. Að
auki til áskrifenda um land allt.
Auglýsendur, sem hafa áhuga á að koma
auglýsingu í handbókina, vinsamlegast hafi
samband við auglýsingadeild sem allra fyrst
og eigi síðar en 5. desember.
þlÓÐVILIINN
Simar 681310 og 681331
AUGLÝSINGAR AUGLÝSINGAR AUGLÝSINGAR
tÁ>PAS^n
^Sli A
Til sölu vélageymsla,
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagiö I Reykjavlk
Borgarmálaráð
Fundur f borgarmálaráði Alþýðubandalagsins í Reykjavík I
flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105,1 dag, miðvikudaginn 14. nóv-
ember, kl. 17.15.
Kristln Jón Friðrik
Ólafur Ragnar Steingrfmur Svanfrlður
Leiö íslands til markaösbúskapar
500 daga áætlun Þjóðlffs
Birting boðartil opins stjórnmálafundarfimmtudaginn 15. nóvem-
ber I Arsal Hótel Sögu og hefst hann kl. 20.30.
Forystumenn I (slenskum stjórnmálaflokkum, þau Friðrik Sop-
husson, Kristín Einarsdóttir, Jón Sigurðsson, Ólafur Ragnar
Grlmsson og Steingrlmur Hermannsson ræða um áætlunina og
segja álit sitt á henni.
Eftir framsöguræðurnar verða pallborðsumræður með fyrirspurn-
um úr sal, sem höfundar áætlunarinnar, þeir Guðmundur Ólafs-
son hagfræðingur og Jóhann Antonsson viðskiptafræðingur taka
þátt I.
Fundarstjóri verður Svanfríður Jónasdóttir.
Laugardagsfundur ABR
Málefni unglinga
Laugardaginn 17. nóvember nk. kl. 10 fyrir hádegi verður félags-
fundur að Hverfisgötu 105.
Á fundinum verður rætt um hvert stefnir I málefnum unglinga I
Reykjavfk I dag og hvaöa leiðir séu til úrbóta.
Myndi t.d. unglingahús f miöbænum verða til bóta?
Framsögur og umræður.
Félagar, fjölmennið á fundinn og takið þátt f umræðum.
Seleyri við Borgarfjörð
Kauptilboð óskast í vélageymslu Vegagerðar
ríkisins á Seleyri við Borgarijörð, sem er stál-
grindarhús, utanmál 14,2x16,2 m.
Skemman, sem er klædd með bárujárni, selst
til niðurrifs og brottflutnings og er til afhending-
ar nú þegar, og skal kaupandi Ijarlægja allt efni
að undanskildum steyptum undirstöðum fyrir
31. desember 1990.
Skemman er til sýnis í samráði við Guðmund
Finnsson eða Elís Jónsson, Vegagerð ríkisins,
Borgarnesi, sími: 93-71320.
Skrífleg tilboð óskast send skrifstofu vorri að
Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þann 15.
nóvember 1990.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því,
að eindagi launaskatts fyrir október er 15. nóv.
n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal
greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt
er, talið frá og með gjalddaaa.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykiavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í
þríriti.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Skálanum fimmtudaginn 15. nóv-
ember kl. 20.30.
Umræöuefni verður um framboðsmál á Reykjanesi vegna kom-
andi alþingiskosaninga.
Félagar, fjölmennum á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Umræðufundur
Umræðufundur um málefni aldraðra á Akureyri verður fimmtu-
daginn 15. nóvember kl. 20.30, hjá Sigrúnu, Hamarstíg 35.
Þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að mæta.
Laugardagsfundur A.B.R.
17. október kl. 10. f.h.
f Risinu Hverfisgötu 105
Málefni unglinga
Laugardaginn 17. nóvember n.k. kl. 10 f.h. verð-
ur haldinn opinn fundur að Hverfisgötu 105. Á
fundinum verður rætt um hvert stefnir í málefn-
um unglinga í Reykjavík í dag og hvaöa leiðir Sniólaua
séu til úrbóta. Myndi t.d. unglingahús í miðbæn- ‘ y
um vera til bóta? Snjólaug Stefánsdóttir uppeld-
isfræðingur mætir á fundinn og opnar umræðuna.
Félagar! Fjölmennið á fundinn og takiö þátt I umræðum.
Alþýðubandaiagið I Reykjavík
Æskulýðsfylkingin I Reykjavfk
Alþýðubandalagiö f Reykjavík
Æskulýðsfylkingfn f Reykjavfk
Fjármálaráðuneytið
Miðvikudagur 14. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9