Þjóðviljinn - 27.11.1990, Page 3

Þjóðviljinn - 27.11.1990, Page 3
FRETTIR AB Vesturland Skúli lengi ætlað að hætta Skúli Alexandersson: Hugsaði í kosningabar- áttunni1987 að hætta við jyrsta tœkifæri. Jó- hann Ársælsson: Þetta leggst ágætlega í mig Skúli Alexandersson þing- maður Aiþýðubandalagsins á Vesturlandi gaf þá yfirlýsingu um helgina að hann gæfl ekki kost á sér í áframhaldandi þing- mennsku. „Það gerði ákvörðun mína auðveldari að ég hafði grun um að Jóhann Ársælsson myndi ekki segja nei við fyrsta sætinu,“ sagði Skúli. Uppstillinganefrid og stjóm kjördæmisráðs tók þá ákvörðun eftir yfirlýsingu Skúla að bjóða Jóhanni fyrsta sætið sem hann þáði. Skúli sagðist hafa haft það nokkuð lengi í huga að sitja ekki lengur á þingi en þetta kjörtíma- bil. „Fyrsta hugmynd mín um að hætta var þegar ég kom suður í kosningabaráttunni 1987 og fann fyrir því að hópur manna sem vom meðmæltir framboði okkar á Reykjuanesi vom á fullu við að gera sem minnst úr framboði flokksins í Reykjavík. Og þá hugsaði ég það að hætta við fyrsta tækifæri,“ sagði Skúli en hann tel- ur líka tími til kominn að skapa sér svolítið fri. En hann hefúr set- ið á þingi í 12 ár auk þess að hafa áður verið varaþingmaður Jónas- ar Amasonar. „Þetta leggst ágætlega í mig,“ sagði Jóhann Ársælsson skipa- smiður á Akranesi. Jóhann hefur starfað að félagsmálum lengi, set- ið í bæjarstjóm Akraness í 12 ár og verið varaþingmaður kjörtíma- bilið 1983 til 1987. „Þetta hefúr komið notalega að manni. Það hafði verið nefnt við mig að ég gæfi kost á mér í fyrsta sætið, en ég hafði ekkert leitt hugann að því alvarlega. Það var ekki fyrr en Skúli Alexanders- son ræddi við mig fyrir nokkm og tjáði mér að hann myndi ekki gefa kost á sér í fyrsta sætið en sfyðja mig í sætið að ég fór að hugleiða þetta í alvöru. Það hversu hávaða- laust þetta hefúr gengið fyrir sig ætti að tryggja góðan baráttuanda hjá Alþýðubandalaginu á Vestur- landi í komandi kosningum,“ sagði Jóhann. Stefnt er að fundi kjördæmis- ráðs Alþýðubandalagsins á Vest- urlandi eftir hálfan mánuð þar sem tillaga uppstillinganefndar verður kynnt. -Sáf/gpm Kiarnavopnatilraunir Stórveldin fallist á bann 2000 þingmenn skora á leiðtoga Sovétríkjanna, Bretlands og Bandaríkjanna að fallast á al- gjört bann við tilraunum með kjarnavopn. Rúmur helmingur íslenskra þingmanna sama sinnis. Sendinefnd undir for- sæti Ólafs Ragnars afhenti Gor- batsjov áskorunina í Moskvu í gær Sendinefúd alþjóðaþing- mannasamtakanna Parliamentari- ans Global Action, undir forsæti Ólafs Ragnars Grímssonar fjár- málaráðherra, afhenti í Moskvu i gær Mikhaíl Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, áskomn nimlega 2000 þingmanna viðs vegar úr heiminum um bann við tilraunum með kjanavopn. Sendinefndin er í London í dag þar sem hún afhendir stað- gengli forsætisráðherra Breta, Margrétar Thatcher, samskonar áskomn. Á morgun afhendir sendinefndin George Bush Bandarikjaforseta sömu skilaboð í Whasington. Kjarasamninpar Sjómenn undirrituðu Sjómenn og útvegsmenn undirrituðu nýjan kjarasamning á laugardag og var sá samningur í flestum atriðum einsog kjara- samningur farmanna og LÍU. Olíuverðstengingin er sú sama og tímakaupshækkanir hlutfalls- lega þær sömu en auk þess em í samningnum atriði sem ekki em sí samningi farmanna, tafabætur í siglingum og að sjómenn fá greitt ákveðið fyrir hvert tonn sem er landað i gama til sölu erlendis. -Sáf Undirskriftasöfúunin fór frarn í tengslum við ráðstefnu 118 rikja um algjört bann við tilraunum með kjamavopn, sem ffam fer í janúar nk. Yfir 2000 þingmenn í nær 50 löndum, þar á meðal rúm- ur helmingur íslenskra alþingis- manna, skrifúðu undir áskorunina þar sem skorað er á þjóðarleiðtog- ana að gangast inná algjört bann við tilraunum með kjamavopn og að þeir sjái til þess að slíkar til- raunir fari ekki fram í rikjum þeirra þangað til niðurstöður hafi fengist á ráðstefnunni. Bann við tilraunum með kjamavopn hafa lengi verið á stefnuskrá þingmannasamtakanna PGA. Eftir 10 ára hlé á viðræðum kjamorkuveldanna um slíkt bann virðist loksins vera að rofa til og líkur em á að tillaga þessa efnis verði staðfest á ráðstefnunni í janúar. í afvopnunarsamningi stór- veldanna frá 1963 var kveðið á um bann við tilraunum með kjamavopn á höfunum og í and- rúmsloftinu, en heimilaðar neðan- jarðar. Aðildarriki að þessum samningum em nú 118 að tölu. Samkvæmt endurskoðunar- ákvæðum í samningnum verður að kalla til ráðstefhu aðildarríkj- anna berist breytingartillaga frá þriðjungi þeirra ríkja sem skrifað hafa undir samninginn. Fyrir fmmkvæði þingmanna- samtakanna settu árið 1987 sex ríki slíka tillögu fram og síðan hefúr yfir þriðjungur aðildarríkja samningsins lýst yfir stuðningi við algjört bann við tilraunum með kjamavopn. -rk Fundur sem haldinn var um álsamninginn fer fram á að málið verði kannað nánar af óvilhöllum aðilum og að þjóðinni verði gefinn kostur á að tjá sig um það í atkvæðagreiðslu. Spá verulegu tapi af álveri * Byggf er á of bjartsýnum spám um álverð. * Reiknað er með of mikilli afkastagetu áivers. * Framleiðslukostnaður Landsvirkjunar er yfirleitt van- metinn. * Raunvextir verða hærri en reiknað er með í áætlunum Landsvirkjunar. * Skattar af áiveri verða ekki eins miklir og stjórnvöid hafa lýst yfir. * Erlendar skuldir þjóðar- innar munu aukast úr 40 í 53 prósent af landsframleiðslu. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Ragnars Ámasonar prófessors á fundi um fyrirhugað- an álsamning. Ragnar komst að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun og þjóðarbúið í heild muni hafa vemlegt tap af fyrirhuguðum samningi um raforkusölu til ál- vers á Keilisnesi miðað við nú- verandi forsendur. Til fundarins á Hótel Borg var boðað af einstaklingum sem leggjast gegn byggingu álvers á íslandi. I ályktun fúndarins er skorað á stjómvöld að láta óvil- halla aðila kanna hagkvæmni samningsins fyrir íslendinga, kynna niðurstöðumar og leyfa al- menningi svo að tjá sig um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. I þessu felst mikið vantraust á meðferð stjómvalda á málinu, enda kom það skýrt fram á fúndinum að fundarmenn treysta ráðamönnum ekki til þess að gæta hagsmuna Is- lendinga gagnvart hinum erlendu álfyrirtækjum. Bjartsýnar spár Fundarboðendur telja mengun frá álveri meiri en réttlætanlegt er og halda því ffam að Islendingar muni tapa á viðskiptunum við fyr- irtækin þijú sem standa að Atlant- al. Ragnar Amason sagði á fund- inum að i fyrirhuguðum álsamn- ingi væri gert ráð fyrir að álverð yrði yfir 1800 dollurum á tonnið. Hann telur þetta of bjartsýna spá og benti á að meðaltalsverð síð- ustu þrjátíu ára hefur verið 1760 dollarar á tonnið, en meðalverð síðustu tíu ára hefur verið 1590 dollarar. Hann telur að í forsendum samningsins sé gert ráð fyrir allt of mikilli afkastagetu álvers, eða 98 af hundraði. Landsvirkjun hefur gefið sér að raunvextir af lánum vegna virkjanaframkvæmda verði 5,5 af hundraði, en að sögn Ragnars hafa raunvextir verið hærri á und- anfomum ámm. Til að mynda segir hann að Landsvirkjun greiði sjö prósent vexti af lánum sínum, en hann telur raunhæft að gera ráð í BRENNIDEPLI Þegar allt kemur til alls r telur Ragnar Arnason að álver á Keilisnesi muni aðeins greiða rúmlega 14-15 mills á hverja kílóvattstund rafmagns, en að kostnaður Landsvirkjunar á hverja einingu muni verða 19-20 mills fyrir því að raunvextir verði sex af hundraði. Skattar ofmetnir Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hefúr lýst yfir því að Atlantal muni greiða 20 mil- jarða króna í skatta til ríkisins á næstu 20 árum, en Ragnar hefúr komist að annarri niðurstöðu. Hann bendir á að álverið mun ekki greiða skatta fyrstu níu árin og telur að núvirði skattgreiðslna á samningstímanum nemi aðeins um sjö miljörðum króna. Reyndar efast hann um að skattgreiðslur verði svo háar og nefnir í því sam- bandi að spár um skattgreiðslur ÍSAL hafi ekki staðist. - 50 miljarða fjárfesting í hefðbundnum atvinnuvegum myndi skila hærri heildarsköttum, sagði hann á fúndinum. Hins vegar bendir hann á að fjárfesting á bak við hvert starf í álveri og störf því tengd verði á bilinu 60-80 miíjónir króna. - Það er ekki verið að fjár- festa í þessu til þess að skapa at- vinnu, sagði Ragnar. Þegar allt kemur til alls telur hann að álver á Keilisnesi muni aðeins greiða rúmlega 14-15 mills á hveija kílóvattstund raf- magns, en að kostnaður Lands- virkjunar á hveija einingu verði 19-20 mills. Miðað við útreikn- inga Landsvirkjunar og stjóm- valda hefur verið gert ráð fyrir að álverið muni greiða 18,3 mills á hveija kílóvattstund. Stenst ekki samanburö Kristín Halldórsdóttir, for- maður Ferðamálaráðs, sagði á fúndinum á Hótel Borg að ókostir við álver yfirgnæfðu kostina al- gerlega. Hún álítur að íjárfesting á bak við hvert starf sé of mikil og störf- in of fá. Á hinn bóginn spáir hún því að bygging álvers og virkj- anaframkvæmdir muni valda skyndilegri þenslu á vinnumark- aðnum. Meðal ókosta álvers nefúdi Kristín einnig landshlutanag, aukningu erlendra skulda og mengun. - Jafnvel lítil mengun er of mikil mengun. En þetta virðist vera eina bjargráð stjómmála- manna, sagði Kristín. Sterkustu rökin gegn álveri telur hún þó vera þau, að hægt verði að ná mun betri árangri í at- vinnumálum með öðrum hætti en byggingu álvers. Ferðaþjónusta hefur að henn- ar mati mikla vaxtarmöguleika og alla þá kosti sem álver hefúr ekki: * Tekjur af ferðaþjónustu em þegar orðnar vemlegt hlutfall af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. * Átvinnugreinin er mannafl- afrek og kostnaður við hvert starf er ffemur lítill. * Störf í ferðaþjónustu dreif- ast um land allt. * Þau henta konum vel, em fremur þrifaleg og byggjast á samskiptum við fólk. - Samanburðurinn verður all- ur ferðaþjónustunni í hag, sagði Kristín. -gg ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.